Morgunblaðið - 02.11.1997, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 27
nnn n narpJ
JnSTii MOTO?
HÁTÍÐAHÖLD á byltingardaginn í Moskvu snemma á íjórða ártugnum.
Quaroni, sendiherra Ítalíu, snæddu
saman kvöldverð að fjöldasamkom-
unni lokinni. Þeim kom saman um
að almenningi kynni að þykja gam-
an að ganga fyrir leiðtogana á
Rauða torginu, væri veður þokka-
legt og hátíðahöldunum stillt í hóf,
en því hafði ekki verið að heilsa og
Pétur skrifaði eftir Quaroni að hon-
um he/ði þótt hann vera kominn aft-
ur til Ítalíu á valdaskeiði fasista.
Pétur Thorsteinsson fór ekki í
veislu sem Kremlverjar héldu að
kvöldi byltingardagsins en Pétur
Benediktsson sat hana og skálaði þá
meðal annars við Molotov. „Við
gimumst ekki neinar herstöðvar á
Islandi," sagði utanríkisráðherrann
og bætti við að Island ætti aðeins að
vera fyrir Islendinga. Um þetta
leyti höfðu Bandaríkjamenn borið
upp þá ósk sína að hafa herstöð á
íslandi til 99 ára sem stjómvöld
höfnuðu síðan. íslendingamir í
Moskvu heyrðu vitaskuld strax að
ráðamenn þai- fundu þessari mála-
leitan flest til foráttu. Þeir komust
einnig að raun um að Svíar bám
ugg í brjósti og töldu hætt við að
Sovétmenn krefðust stöðva á
Alandseyjum eða Borgundarhólmi,
fengju Bandaríkjamenn að vera til
frambúðar á íslandi. Sendifulltrúi
Finna í Moskvu leiddi líka getum að
því að Sovétmenn létu krók koma á
móti bragði og færu fram á að fá
sömu aðstöðu á Islandi og valdhafar
í Washington vora að leita eftir.
Pétur dvaldist í Moskvu til októ-
berloka 1947 og var því þrjú ár
eystra, lengst af einn, eða i tvö og
hálft ár, þar eð Pétur Benediktsson
hafði fljótlega verið kaliaður til ann-
arra starfa í utanríkisþjónustunni.
Hann skráði dagbók allan tímann,
hélt til haga sendibréfum og skrif-
aði fjölmörg skeyti og skýrslur.
Þetta era stórfróðlegar heimildir.
Hann sagði frá daglegu lífi útlend-
ings í Moskvu, bollaleggingum vest-
rænna sendimanna um stjómmála-
ástandið, sífelldum seinagangi í
stjómkerfinu og mörgu fleira. Inn á
miili fléttaði hann gamansögum,
einatt gráglettnum.
Slíkum frásögnum vildi fjölga
þegar Pétur Benediktsson var
einnig í Moskvu. I lok september
1945 fór hann þangað í viðskiptaer-
indum fyrir stjórnvöld og Einar 01-
geirsson, formaður Sósíalista-
flokksins, var einnig með í fór.
Sendiherrann hafði gaman af að
stríða Einari dálítið og var ófeim-
inn við að gagnrýna þjóðskipulagið
eystra í hans hljóði. Einar tók
gamninu þó vel og sagði til dæmis
sjálfur frá því að þegar hann var í
Moskvu fyrir stríð hefði hann hald-
ið ræðu í verksmiðju, talað á þýsku
og aldrei minnst á Lenín eða Sta-
lín. Síðan hefði hins vegar borið svo
við að rússneskur túlkur hans
nefndi þá tvo margoft í þýðingu
sinni og mikið lófaklapp dundi yfir
í hvert skipti.
Pétur J. Thorsteinsson sneri aft-
ur til Moskvu árið 1953, þá sem
sendiherra, 35 ára gamall, og var
eystra í sjö ár. Hann lýsti hátíða-
höldunum 7. nóvember ekki eins
nákvæmlega þessi ár en sótti þau
auðvitað og vakti það alltaf lukku
meðal Kremlverja að íslenski
sendiherrann skyldi hafa fæðst
sama dag og byltingin hófst í Rúss-
landi. í einni veislunni í Moskvu
var Pétur kynntur fyrir Georgíj
Malenkov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, með þeim orðum að hann
hefði komið í heiminn þennan
merkisdag. „Malenkov lét í ljós
ánægju yfir þessum upplýsingum,"
skrifaði Pétur síðar, „og sagði: „Við
skulum segja honum Níkíta
Sergeevitsj frá þessu.“ Viðbrögð
Khrústsjovs urðu hins vegar nokk-
uð óvænt. Þegar hann rétti mér
höndina sagði hann dapur í bragði:
„Já, ég átti son, sem var fæddur
þennan dag, en hann féll í stríð-
inu.“ Malenkov hafði sýnilega ekki
vitað um fæðingardag þessa sonar
Khrústsjovs."
Pétur hitti Khrústsjov í síðasta
sinn í Moskvu í lok dvalarinnar þar
og ræddust þeir þá lengi við. Pétur
var taka við embætti sendiherra í
Vestur-Þýskalandi en risaveldin
deildu harkalega um framtíð
Berlínar um þessar mundir og
Khrústsjov ákvað að koma mikil-
vægum skilaboðum á framfæri í
samtalinu við íslenska sendiherr-
ann. Khrústsjov tók óvenju sterkt
til orða og svo fór að Pétur ákvað
að skýra ekki frá öllu sem þeim fór
í milli. En það er önnur saga.
Höfundur er sagnfræðingur
HOLMARAR!
b Er ekki komin tími tii að tengja?
Laugardaginn 8. nóvember ætla brottfluttir Hólmarar
á höfuðborgarsvæðinu á öllum aldri að skemmta sér
saman, dansa fram eftir nóttu og jafnvel stofna félag
til þess að efla tengslin í framtíðinni.
Gleðin hefst kl. 21:30 í Félagsheimili Fóstbræðra við
Langholtsveg 109-111.
Nánari upplýsingar fást í símum:
555 4584/899 4430 (Rannveig)
og 565 9290/553 8322 (Aðalsteinn).
Ef þú ert alvöru Hólmari þá lætur þú þig ekki vanta.
Sjáumst!
SNERTU MIG!
Sýning á Peugeot 1998 um helgina
Peugeot er til að njóta með öllum
líkamanum — ekki bara augunum.
Heitur, mjúkur, hljóðlátur og umfram
allt þægilegri en nokkru sinni fyrr!
Snertu, hlustaðu, finndu lyktina af
Peugeot 306 og 406 í Jöfri um
helgina!
Opið frá kl. 13 - 17.
Nýbýlavegi 2 • sími 554 2600
PEUGEOT
- ekki bamfyrirangað!