Morgunblaðið - 02.11.1997, Page 49

Morgunblaðið - 02.11.1997, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 49 BREF TIL BLAÐSINS „ Við gerum okkar besta“ Eg er þroskaþjálfi! Eg sagði upp! Frá Sigrúnu Jónsdóttur og Sigurbjörgu K. Jónsdóttur: „VIÐ gerum okkar besta og ennþá betur ef það er það sem þarf.. Þessi baráttusöngur landsliðsins í handbolta gæti auðveldlega átt við þroskaþjálfa í starfi hvar sem er á landinu. Undanfarin ár og áratugi höfum við reynt að gera okkar besta í þeim fjársveita málaflokki sem málaflokkur fatlaðra er. Það er hins vegar spurning hversu lengi við getum það. Þroskaþjálfar eru fyrir löngu búnir að fá nóg af seina- gangi og skeytingarleysi stjórn- valda í þeirri kjarabaráttu sem átt hefur sér stað undanfarna mánuði. Störf þroskaþjálfa eru ekki alltaf sýnileg í samfélaginu og oft og tíð- um er lítið sem almenningur veit um starfsvið og starfsvettvang þroskaþjálfa. Þroskaþjálfar starfa samkvæmt reglugerð um störf, starfsvettvang og starfshætti þroskaþjálfa nr. 215/1987, siðareglum þroskaþjálfa og lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Þroskaþjálfar stjórna og bera ábyrgð á þroskaþjálfun og felast störf þroskaþjálfa auk þess í þjálf- un, uppeldi og umönnun fatlaðra. Þroskaþjálfar starfa þar sem fatlað- ir geta notið þroskaþjálfunar, s.s. á þjálfunarstofnunum, vinnustöðum, skammtímavistunum, heimilum (sambýlum), leikskólum og Grein- ingar- og ráðgjafarstöð ríkisins. Margir þroskaþjálfar bera ábyrgð á starfsmannahaldi s.s. á sambýlum, á dagvistunarstofnunum og víðar. Þeir standa auk þess að fræðslu um málefni fatlaðra til annarra starfsmanna. Þroskaþjálfar stuðla að því að koma fötluðum einstakl- ingum til aukins þroska og taka þannig mið af þörfum einstaklings- ins í samræmi við aldur og fötlun. Markmiðið með þjálfuninni er að fatlaður einstaklingur fái að lifa í samfélaginu til jafns við aðra ein- staklinga. Þjálfun - Með þjálfun einstakl- ingsins skal stefnt að auknum þroska og að örva getu og fæmi einstaklingsins. Færni einstaklings- ins er metin og markmið eru sett fram ásamt aðferðum eða leiðum að markmiðunum. Þjálfun hefst og að henni lokinni er framkvæmt end- urmat á einstaklingum. Eftir það er tekin ákvörðun um framhaldið, þ.e. uppsetning nýrra markmiða með hliðsjón af endurmati. Uppeldi - Stefnt er að því að efla ahliða þroska einstaklingsins svo hann geti lært og þroskast við réttar aðstæður. Lögð er áhersla á tilfinningar, jákvæða sjálfsmynd, samfélagið og kröfur þess og gildis- mat. Mikilvægt er að stuðla að þroska einstaklingsins til að taka ákvarðanir, auka umburðarlyndi, ábyrgðarkennd og hjálpsemi. Síðast en ekki síst er lögð áhersla á upp- Beðið eftir svari tollstjóra Frá Baldri Símonarsyni HINN 3. október birtist í Morgun- blaðinu opið bréf til tollstjóraemb- ættisins frá Lúðvík Gústafssyni. Hann hafði keypt bækur samkvæmt tilboði á 18 bresk pund, en verið gert að greiða virðisaukaskatt af fullu verði þeirra, sem var rúm 180 pund. Hann óskaði eftir skýringum tollstjóra á því hvers vegna skattur- inn væri ekki greiddur af sannan- legu söluverði bókanna. Nú eru liðn- ar rúmar þijár vikur frá því að bréf Lúðvíks birtist, en ég hef enn ekki séð svar tollstjóra hér í blaðinu. Vonandi þarf Lúðvik ekki að senda embætti hans afrit bréfsins í ábyrgðarpósti til þess að verða virt- ur svars. BALDUR SÍMONARSON, Oddagötu 12, Reykjavík. eldi sem skilar auknum möguleikum til þátttöku í leik, námi og starfi. Umönnun - Með umönnun er átt við líkamlega og andlega velferð fatlaðra. Þar er átt við daglega umhirðu og fæðu, almennt heilsu- far, aðhlynningu, lyfjagjöf og annað er varðar umönnun einstaklingsins. Eins og sjá má er starf þroska- þjálfa viðamikið. Þroskaþjálfar bera ábyrgð á miklu starfi sem oft krefst mikillar þolinmæði og skipulags. Nám þroskaþjálfa er þijú ár við Þroskaþjálfaskóla íslands og munu þeir sem hófu nám við skólann haustið ’96 útskrifast með háskóla- gráðu. Störf þroskaþjálfa hafa hingað til ekki verið metin að verð- leikum og hafa þroskaþjálfar nú fengið nóg. Atkvæðagreiðsla um verkfall hefur farið fram og kom í ljós að þroskaþjálfar eru tilbúnir Frá Sigmundi Magnússyni: íMORGUNBLAÐINU þriðjudaginn 28. október 1997 var birt grein mín „Stjórnvaldsníðsla - af hveiju?" Við innslátt greinarinnar í Morgun- blaðið hefur því miður slæðst villa sem ekki var i handriti. í Morgun- blaðinu segir m.a.: „framkvæmda- stjóri lækninga á Landspítala sem er meinafræðingur" en hér á að standa meinefnafræðingur. Þetta er ekki aðeins röng frásögn af sérgrein mannsins heldur tapast sú staðreynd að tveir mannanna sem virðast nátengdir málinu eru í sömu sérgrein, meinefnafræði. Annar þeirra, framkvæmdastjóri að leggja niður störf ef þörf kref- ur. Verkfall þroskaþjálfa hefst því 3. nóvember. Með verkfalli þroska- þjálfa lokast m.a. dagstofnanir og skammtímavistanir þar sem þroskaþjálfar starfa. Neyðarástand skapast hjá mörgum foreldrum og aðstandendum og álag eykst til muna á sambýlum og alls staðar þar sem fatlaðir búa. Þetta verk- fall sem fyrirhugað er, bitnar mest á þeim sem síst skyldi, þ.e. fötluðum einstaklingum og aðstandendum þeirra. Það er því eindregin von okkar að ráðamenn geri sér grein fyrir mikilvægi starfs okkar svo koma megi í veg fyrir það neyðarástand sem í stefnir. SIGRÚN JÓNSDÓTTIR, SIGURBJÖRG K. JÓNSDÓTTIR, þroskaþjálfar í Lækjarási. lækninga á Landspítalanum, hefur lagt til að rannsókna- og þar með greiningaraðstaða blóðfræðinga, rannsóknastofa í blóðfræði (áður blóðmeinafræði) verði lögð undir sameinaða rannsóknastofu undir stjórn meinefnafræðings, þ. e. hans eigin sérgreinar, en ekki undir stjórn blóðfræðinga. Ég hefi vakið athygli forstjóra ríkisspítala, Vigdísar Magnúsdótt- ur, á þessum hugsanlegu hags- munatengslum í bréfí til hennar dags. 9. október 1997. SIGMUNDUR MAGNÚSSON, forstöðulæknir rannsóknastofu í blóðfræði, Landspítalanum. Frá Magnúsi Helga Björgvinssyni: NÚ í gær 30. október 1997 sagði ég upp starfi mínu á Landspítalan- um í Kópavogi. En þar hef ég starf- að síðastliðin 13 ár. Ástæðan sem ég gaf fyrir uppsögninni er sú að ég tel að laun mín (89.000 kr) séu í engu samræmi við þá ábyrgð og umfang sem felst í starfínu. En það er m.a.: í fyrsta lagi er ég deildarstjóri heimilis þar sem búa 4 þroskaheftir einstaklingar. Flest sem lýtur að lífí þessara heimilismanna er á minni ábyrgð. Ég ber ábyrgð á öllu er varðar heimilishald; klæðnaði, mat, eftirliti með daglegu heil- brigði, fjármálum, húsbúnaði, eign- um heimilismanna, samskiptum við aðstandendur, samskiptum við þjónustu- og stoðdeildir o.fl. I öðru lagi ber ég ábyrgð á því að tryggja heimilismönnum tilboð utan heimilis, bæði í formi vinnu og afþreyingu. í þriðja lagi ber ég ábyrgð á skipulagningu á innra starfi heimil- isins. Ég set heimilinu markmið, set upp þroskaþjálfun og fylgist með framkvæmd hennar. í flórða lagi ber ég ábyrgð á skipulagningu vakta og umsjón með þeim starfsmönnum sem starfa inni á heimilinu, ráða nýja starfsmenn, setja þá inn í starf, skipuieggja orlof og ráða í afleysingar. Það eru starfsmenn inni á heimilinu allan sólarhringinn, samtals 9 starfs- menn. Ég sé um að gera vinnu- skýrslur og um skil þeirra til launa- deildar. Ég hef yfirumsjón með yfír- vinnu og að manna vaktir vegna forfalla. í fimmta lagi ber ég hluta af ábyrgð við rekstur. Ég sé um að- föng til heimilis, eftirlit með kostn- aði. Ég hef eftirlit með því að nauð- synlegt viðhald sé framkvæmt á húsnæði og húsmunum o.fl. Auk þessa eru svo öll almenn störf sem falla til á heimili eins og þrif, þvottur, matseld og fleira. Það að vera í forsvari fyrir heim- ili sem þetta þýðir að ég er sífellt á bakvakt. Það koma upp veikindi starfsmanna og fleira ófyrirsjáan- legt. Því er töluvert um ónæði og óvænt útköll. Fyrir þetta starf fæ ég um 89.000 krónur og á von á hækkun eftir rúm 5 ár og síðan ekki meir. En hvað gefur starfíð mér! Fyrst og fremst er það ánægjan. Það er gefandi að sjá fatlaðan einstakling ná árangri, heimilismenn mínir eru skemmtilegir og krefjandi einstakl- ingar sem ég hefði óskað að sjá ná enn fleiri áföngum í átt til betra lífs, m.a. sjá þá komast í þá að- stöðu að flytja héðan. Ég hef haft alveg frábært samstarfsfólk, bæði fólk sem hefur unnið á heimilinu svo og aðrar fagséttir sem hafa veitt okkur þjónustu og aðstoð. Eins hef ég átt góð samskipti við að- standendur. Ég hef haft yfirmenn sem meta störf mín. En ég lifi ekki eingöngu á því. Ég var ekki að mennta mig í 3 ár að loknu stúd- entsprófi til að starfa alla ævi á lágmarkslaunum, sérstaklega ekki þegar aðrar stéttir með sambæri- legt nám eru mun betur launaðar en ég! MAGNÚS HELGIBJÖRGVINSSON, þroskaþjálfi. Meinefnafræðingur en ekki meinafræðingur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.