Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 1
116 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
278. TBL. 85. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Sættist við Winnie
YFIRHEYRSLUR sannleiks- og
sáttanefndarinnar í Suður-Afríku
tóku óvænta stefnu í gær er Joyce
Seipei, móðir 14 ára drengs sem
var myrtur í Soweto, faðmaði og
kyssti Winnie Mandela, sem hefur
verið sökuð um að hafa fyrirskipað
morðið. Konumar sættust þegar
Winnie Mandela hafði verið yfir-
heyrð í sjö stundir vegna ásakana
um að hún hefði fyrirskipað morð á
sex ungum blökkumönnum.
Desmond Tutu erkibiskup, for-
maður sannleiksnefndarinnar, kall-
aði til sín foreldra drengjanna og
kvaðst vona að þeir vildu „rétta
þeim sáttarhönd sem kynnu að
hafa valdið þeim sársauka."
Móðir Seipei varð við beiðninni
en fyrr um daginn hafði verið
skýrt frá því að stuðningskonur
Winnie hefðu áreitt Joyce Seipei.
■ Segir sakargiftir/32
Forseti Indlands
leysir upp þingið
Nýju-Delhí. Reuters.
K.R. NARAYANAN, forseti Ind-
lands, leysti í gær upp þing landsins
og gagnrýndi forystumenn stjórn-
málaflokkanna fyrir að hafa valdið
stjómarkreppu sem hafði lamað
þingið í hálfan mánuð. Flokkarnir
bjuggu sig undir kosningar og kjör-
stjóm landsins sagði að þær yrðu að
öllum líkindum haldnar í lok febrú-
ar eða byrjun mars.
Forsetinn ákvað að rjúfa þing þar
sem Ijóst var að enginn flokkanna
gæti myndað meirihlutastjóm eftir
að Kongressflokkurinn hætti stuðn-
ingi sínum við minnihlutastjórn
Samfylkingarinnar, bandalags 15
flokka. I yfirlýsingu forsetans sagði
að mynda þyrfti nýja stjórn ekki
síðar en 15. mars á næsta ári.
Stjórn Samfylkingarinnar hafði
verið við völd í eitt og hálft ár þegar
hún féll. Hún var mynduð með
stuðningi Kongressflokksins eftir
að flokkur þjóðernissinnaðra
hindúa, Bharatiya Janata, hafði ver-
ið við völd í tólf daga.
Kongressflokkurinn hætti stuðn-
ingi við stjórn Samfylkingarinnar
eftir að hún neitaði að slíta sam-
starfinu við einn stjórnarflokkanna,
sem grunaður er um að vera viðrið-
inn morðið á Rajiv Gandhi, fyrrver-
andi forsætisráðherra, árið 1991.
Útiloka samstarf við
Kongressflokkinn
Kongressflokkurinn virtist ekki
vera bjartsýnn á að ná meirihluta á
þinginu og kvaðst reiðubúinn að
mynda bandalag með öðrum flokk-
um í kosningabaráttunni. Áður en
þingið var leyst upp hafði hann
reynt að kljúfa Samfylkinguna og fá
nokkra flokka hennar til samstarfs
við sig en það tókst ekki. Samfylk-
ingin sagði í gær að ekki kæmi til
greina að mynda kosningabandalag
með Kongressflokknum.
Forystumenn Bharatiya Janata
sögðust í gær vera tilbúnir í kosn-
ingaslaginn og léðu máls á sam-
starfi við aðra flokka í kosningunum
ef þörf krefði.
Líklegt forsætisráðherraefni
flokksins, Atai Behari Vajpayee,
kvaðst sannfærður um að hann
fengi meirihluta þingsætanna í
kosningunum og reyndi að sefa
múslima, sem óttast að flokkurinn
komist til valda.
Bharatiya Janata var aðeins með
tvö þingsæti árið 1984 en í síðustu
kosningum fékk hann 162 þingmenn
af 545. Fylgisaukningin er m.a. rakin
til herferðar flokksins fyrir því að
reist yrði hof í indverska bænum
Ayodhya, þar sem hindúaguðinn
Rama er sagður hafa fæðst. Herská-
ir hindúar rifu niður mosku á staðn-
um árið 1992 og það olli átökum milli
múslima og hindúa sem kostuðu
rúmlega 3.000 manns lífið.
Efnahagsaðstoð IMF til Suður-Kóreu aukin
Aðstoð sögð niðurlægjandi
Seoul, Tdkýó. Reuters.
EFNAHAGSAÐSTOÐ fyrir tilstilli
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) til
Suður-Kóreu var í gær aukin um
sem svarar tveim milljörðum
bandaríkjadala, um 140 milljörðum
ísl. kr., en margir S-Kóreubúar hafa
brugðist ókvæða við aðstoðinni og
þykir niðurlæging fólgin í henni.
Á miðvikudag var gengið frá
samkomulagi milli s-kóreskra
stjómvalda og IMF um 55 milljarða
dala aðstoð vegna gífurlegra
skammtímalána er gjaldfalla innan
skamms. Petta er mesta fjárhagsað-
stoð sem nokkurt ríki hefur fengið
frá sjóðnum. í gær greindi svo fjár-
málaráðuneytið frá því að upphæðin
hefði aukist í 57 milljarða (rúmlega
4.000 milljarða króna), eftir að ítalir
hefðu heitié) framlagi og þrjú önnur
ríki aukið við sín framlög.
Var þess vænst að um 5,5 millj-
arðar dala yrðu afhentir í Seoul í
kvöld að staðartíma og ríflega 10
milljarðar bærust fyrir árslok, að
því er fjármálaráðuneytið greindi
frá. í fyrirsögnum blaða var mikið
gert úr þeirri niðurlægingu sem
fjárhagsaðstoðin væri fyrir s-
kóresku þjóðina. „Suður-Kórea hef-
ur í raun glatað íjárhagslegu full-
veldi sínu næstu þrjú árin,“ sagði í
Joongang Ilbo.
„Gleymum ekki fjárvörslusamn-
ingnum frá 3. desember," sagði
Kyung Hyang Shinmun. Skírskot-
unin er augljós í huga Suður-
Kóreubúa, sem er í fersku minni er
Bandaríkin, Sovétríkin, Bretland
og Kína tóku að sér fjárvörslu fyrir
Kóreu við lok heimsstyrjaldarinnar
síðari, er yfirráðum Japana í land-
inu lauk.
■ Kreppan í Asíu/33
Reuters
Hungursneyð
í Nýju-Gíneu
HUNGURSNEYÐ í kjölfar mik-
illa þurrka í Nýju-Gíneu hefur
kostað um 650 manns lífið og líf
tuga þúsunda manna er í hættu,
að sögn yfirvalda í Jayawijaya-
héraði. Ástandið er einnig slæmt
á Papúa Nýju-Gíneu. Reykur
vegna skógarelda sem loguðu
víða í Suðaustur-Asíu í haust hef-
ur gert hjálparstarf erfítt en
Rauða krossinuin hefur nú tekist
að koma matarsendingum til
íbúa á svæðinu og var myndin
tekin þegar börn í Irian Jaya á
Papúa Nýju-Gíneu fögnuðu einni
slikri sendingu.
Kyoto-ráðstefnan
Gagrirýna
Japani
Kyoto. Reuters.
FULLTRÚAR Evrópusambands-
ins, ESB, á ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um loftslagsbreytingar,
sem haldin er í Kyoto í Japan,
sendu gestgjöfum ráðstefnunnar
tóninn í gær og sökuðu þá um að
sýna ósanngirni í samningaviðræð-
um.
Japanir höfðu leyft sér að draga í
efa sanngirnina í tillögu ESB sem
gengur út á að aðildarríki þess geti
dregið mismikið úr útblæstri gróð-
urhúsalofttegunda, en í heild verði
útbásturinn frá öllum ESB-löndun-
um 15% minni árið 2010 en viðmið-
unarárið 1990. Japanir hafa lagt til
að á þessu tímabili skuldbindi öll
iðnríkin sig til að draga úr útblæstri
sem nemur 5%.
■ Deilt um „hvolf 724
■ ísland gæti/24
-----------
ESB bannar
tóbaksaug--
lýsingar
Brussel. Reuters.
HEILBRIGÐISRÁÐHERRAR
Evrópusambandsins samþykktu í
gær að setja á bann við tóbaksaug-
lýsingum sem á að koma til fram-
kvæmda innan sex ára, með þeirri
undantekningu að tóbaksframleið-
endum er gefinn átta ára frestur til
að hætta að fjármagna menningar-
viðburði og íþróttakappleiki.
Gert er ráð fyrir að samkomulagið
um bannið, sem unnið hafði verið að í
átta ár, gangi í gildi á næsta ári, þeg-
ar Evrópuþingið hefur staðfest það.