Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 67
( —
FRETTIR
Afmælis-
fundur
Vatna-
mælinga
FUNDUR verður haldinn í dag í
Borgartúni 6 í tilefni af fimmtíu ára
afmæli Vatnamælinga.
Tíu fyrirlesarar fjalla um þýðingu
vatnamælinga fyrir ýmsa starfsemi.
Meðal annars fjallar Rannveig Rist,
forstjóri ísal, um vatnamælingar og
orkfrekan iðnað. Einnig verða flutt
erindi um hlutverk vatnamælinga
við ákvarðanir í orkumálum, í vörn-
um gegn flóðum, náttúruvá og
ágangi vatns, í skipulagsmálum,
varðandi veiði í ám og vötnum og á
ýmsum öðrum sviðum.
Fundurinn hefst á ávörpum Þor-
kels Helgasonar orkumálastjóra og
Arna SnoiTasonar, forstöðumans
Vatnamælinga.
Spil með
galdrakarlin-
um frá Oz
KOMIÐ er á markaðinn spil frá út-
gáfufyrirtækinu Ravensburger,
Galdrakarlinn frá Oz. Spilið er fyrir
2-4 þátttakendum frá 7 ára aldri
°g fylgja leiðbeiningar á íslensku.
„Gefst nú unnendum ævintýrisins
kostur á að viðhalda kynnum sínum
við Galdrakarlinn og aðrar persón-
ur ævintýrisins, Dóróteu, Pjátra
viðarhöggvara, fuglahræðuna og
huglausa ljónið," segir í fréttatil-
kynningu.
Spilið fæst í verslunum um land
allt. Heildsöludreifingu annast And-
vari ehf., Sundaborg.
---------------
Sveitarstj órnir
Framboðs-
frestur
fjórar vikur
FRAMBOÐSLISTA til sveitar-
stjórnarkosninga skal skila inn
fjórum vikum fyrir kosningar sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum en
ekki 15 dögum fyrir kosningar eins
og á við þegar kosið er til Alþingis.
Að sögn Sesselju Árnadóttur í
félgasmálaráðuneytinu liggur fyrir
Alþingi breyting á lögunum, sem
felur í sér að skila skuli inn listum
þremur vikum fyrir kosningar.
SKORRI Andrew Aikniann, sölustjóri Ásgeirs Sigurðssonar ehf.
og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Iþróttasambands fatlaðra
undirrita styrktarsamninginn. Með þeim á myndinni er Ólafúr
Magnússon, framkvæmdastjóri íþróttasambands fatlaðra.
Styður starfsemi
Iþróttasambands
fatlaðra
NÚ nýlega undirrituðu íþrótta-
samband fatlaðra og Ásgeir Sig-
urðsson ehf. nýjan samning um
stuðning fyrirtækisins við undir-
búning og þátttöku fatlaðs ís-
lensks íþróttafólks í Ólympíumóti
fatlaðra í Sydney árið 2000.
„I tengslum við 100 ára starfs-
afmæli Asgeirs Sigurðssonar ehf.
árið 1995 ákvað fyrirtækið að
styrkja Iþróttasamband fatlaðra
og hið fatlaða afreksfólk vegna
þátttöku þess í Ólympíumóti fatl-
aðra í Atlanta 1996 með söluher-
ferð LUX sápuvörum, þar sem
ákveðinn ágóði af sölu vörunnar
rynni til Iþróttasambands fatl-
aðra. Töldu forráðamenn Ásgeirs
Sigurðssonar ehf. að hin jákvæða
ímynd og hin glæstu afrek fatlaðs
íslensks íþróttafólks yrðu án efa
fyrirtækinu til framdráttar og
með samningnum sýndi fyrirtæk-
ið stuðning sinn við íþróttastarf
fatlaðra í verki. Þannig var Ás-
geir Sigurðsson ehf. eitt fyrsta
fyrirtækið til þess að nýta sér
fatlað íslenskt afreksfólk í aug-
lýsingum ásamt því að láta fé
renna til uppbyggingar afreksí-
þrótta fatlaðra. Hinn glæsilegi
náðist á Ólympíumóti fatlaðra í
Atlanta 1996, var ekki síst stuðn-
ingi Ásgeirs Sigurðssonar ehf. að
þakka,“ segir í fréttatilkynningu
frá Iþróttasambandi fatlaðra.
Stefnumótun
í fjarkönn-
un á Islandi
NEFND um stefnumótun í fjar-
könnun á íslandi hefur sldlað
greinargerð og tillögum sínum til
Guðmundar Bjarnasonar umhverf-
isráðherra, en hann skipaði nefnd-
ina í desember 1996. Með fjar-
könnun er átt við mælingu á geisl-
un frá yfírborði og lofthjúpi jarðar
með flugvél eða gervitungli, úr-
vinnslu mæligagna og myndræna
framsetningu þeirra.
„Nefndin leggur til að fjarkönn-
un verði skilgreind sem sérstakur
málaflokkur innan stjórnsýslunn-
ar á ábyrgð umhverfisráðuneytis-
ins og að sérstök lög verði sett um
fjarkönnun. Einnig er lögð
áhersla á að Fjarkönnunarstofa
verði sett á laggirnar til að efla
fjarkönnun hér á landi, samnýta
gögn og stuðla að samvinnu stofn-
ana.
Nefndin leggur til að Fjarkönn-
unarstofa verði vistuð hjá Veður-
stofu Islands. Hlutverk hennar
verður, skv. tillögum nefndarinn-
ar, einkum eftirfarandi:
• að taka á móti gögnum frá
gervitunglum og miðla þeim til
notenda,
• að tryggja reglulega loftmynda-
töku af landinu í samræmi við
langtímaþarfir þjóðfélagsins,
• að veita aðstöðu til og aðstoða
við úrvinnslu fjarkönnunargagna,
• að tryggja varðveislu fjarkönn-
unargagna og miðla upplýsingum
um þau,
• að stuðla að samhæfingu og
samvinnu stofnana ríkis og sveit-
arfélaga á sviði fjarkönnunar og
tryggja hagkvæma öflun og nýt-
ingu fjarkönnunargagna,
• og að gæta hagsmuna íslands á
alþjóðavettvangi og taka þátt í al-
þjóðlegu samstarfi á sviði fjar-
könnunar.
Sérstök samvinnunefnd notenda
á að móta starf og verkefnaval
Fjarkönnunarstofu, sem yrði rekin
með beinum framlögum ríkissjóðs.
Nefndin telur að margfaldur
ávinningur náist með þeirri stefnu
að gefa afnot af fjarkönnunar-
gögnum, sem aflað er af ríkinu,
frjáls og ódýr. Þá leggur nefndin
til að settur verði upp búnaður til
að taka á móti gervitunglagögnum
til daglegrar vöktunar," segir í
fréttatilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu.
Landssambandið
gegn áfengisbölinu
Taka þátt í prófkjöri á
vegum Kvennalistans
UPPSTILLINGARNEFND
Kvennalistans í Reykjavík vegna
prófkjörs R-listans 1998 hefur til-
kynnt um þátttakendur í prófkjör-
inu og eru það eftirtaldar:
Drífa Snædal, formaður Iðn-
nemasambands Islands, Guðrún
Erla Geirsdóttir myndlistarkona,
Rristín Blöndal myndlistarkona,
Ragnhildur Helgadóttir, bókasafns-
og upplýsingafræðingur, Sólveig
Jónasdótth, útgáfu- og kynningar-
fulltrúi Starfsmannafélags Reykja-
víkurborgr, Steinunn V. Óskars-
dóttir borgarfulltrúi og Kolbrún
Jónsdóttir, hreppsnefndarmaður á
Kjalarnesi, sem er fulltrúi óháðra á
lista Kvennalista.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
ályktun fulltrúaráðsfundar Lands-
sambandsins gegn áfengisbölinu
þar sem segh m.a.:
„Fulltrúaráðsfundur Landssam-
bandsins gegn áfengisbölinu,
mánudaginn 24. nóvember 1997,
átelur harðlega birtingu auglýs-
inga hér og þar frá framleiðendum
og seljendum áféngis, þar sem fólk
er beint og óbeint hvatt til kaupa
neyslu áfengis. Fundurinn bendir á
ískyggilega fjölgun slíkra auglýs-
inga, þrátt fyrh það að í lögum sé
gert ráð fyrir algeru banni...
„Fulltrúaráðsfundur skorar því
á alla þá aðila, sem eiga að annast
framkvæmd löggjafar í landinu og
hafa eftirlit með því að lög séu
haldin, að hrista nú af sér slenið og
hreinsa þessa óværu, þ.e. áfengis-
auglýsingamar, burt úr íslensku
samfélagi. Annað telur fundurinn
þeim ekki sæmandi."
Starfsheitið sálfræð-
ingur er lögverndað
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftifarandi í tilefni af skrifum sem
orðið hafa um ævisögu Esra Péturs-
sonar, „Sálumessu syndara".
„I umfjöllun um bókina hefur
Esra nokkrum sinnum verið kallað-
ur sálfræðingur bæði í blöðum og
manna á meðal. Við viljum því taka
eftirfarindi fram: Starfsheitið sál-
fræðingur er lögverndað og Esra
Pétursson er ekki sálfræðingur og
hefur aldrei verið sálfræðingur.
Hann er geðlæknh og sálkönnuður.
Sálkönnuðir geta haft ýmiskonar
grunnmenntun, en henni til viðbót-
ar kemur langt nám. Erlendur titill
sálkönnuða er „psychoanalist" og er
hann lögverndaður í ýmsum ná-
grannalöndum.
Við teljum að skrif eins og þau
sem birtust í bók Esra séu í and-
stöðu við lög um þagnarskyldu og
brot á almennu siðferði. Slík skrif
geta valdið óbætanlegum skaða á
því trúnaðartrausti sem er nauðsyn-
legt milli skjólstæðings og þess sem
stundar meðferð.
Sólveig Ásgrímsdóttir,
formaður Sálfræðingafélags
fslands.
Ingi Jón Hauksson,
formaður siðanefndar
Sálfræðingafélags Islands."
WALL STIREET SKÁPASAMSTÆBA
I
t
a.
s
*o
•h
c
*Ö
-o
s
gn gæði
fHiíTTgilWlþfeííÍíþ
- kjarni málsins!
3000 m2 sýningarsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
Fjölmargir möguleikar
TM - HÚSGÖGN
w
SíSumúla 30 -Sími 5ó8 6822