Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX „VIÐ vigtum féð einu sinni á ári, aðallega til að fylgjast með fóðrun en einnig til að vita hvort allt hafi heimst," sagði Bjarni Runólfsson bóndi þegar blaðamenn litu inn í fjárhiísin í Bakkakoti I í Meðal- landi. Þar voru bræðurnir Bjarni og Guðni að ljúka við að vigta féð og skrá niðurstöðumar í fjárbók. Bjami og Lilja dóttir hans vigtuðu en Bjarni og Stefanía Stefánsdóttir skráðu niðurstöðurnar. Guðni er með vistvæna fram- leiðslu og segir að eitt af skilyrð- um fyrir vottun framleiðslunnar sem vistvænnar sé að féð sé skráð með ákveðnum hætti í tölvumar hjá Bændasamtökunum. „Við lögð- Vistvænt fé í Meðal- landi um i fyrsta skipti inn vistvænt ræktað fé í haust og fengum örlítið hærra verð, 6 krónur á kíló,“ segir Guðni. Vistvæn sauðfjárrækt felst í því að halda áburðarnotkun innan vissra marka og sleppa notkun lyQa. Síðan eru lömbin lögð inn eftir númemm ogá númerið að fylgja skrokknum alla leið til neyt- andans. „Ef neytandanum mislikar eitthvað, til dæmis ef kvartað er undan hrútabragði af kjötinu, væri hægt að rekja það til mín. Ég tel að þetta sé gott og stuðli að því að bændur vandi sig og bæti fram- leiðsluna," segir Guðni. Nokkrir bændur á svæðinu tóku sig saman um þessa vistvænu ræktun. Ekki segist Guðni geta sagt til um það hvort aukin fyrirhöfn við ræktunina skili auknum tekjum. „Ég tel að þetta sé það sem koma skal. Ef ekki er hægt að stunda þessa ræktun hér, sé ég ekki hvar það ætti að vera hægt,“ segir hann. Skilar inn lækninga- ^ leyfi og segir sig úr LI ESRA S. Pétursson lýsti því yfir í gær að hann sæi nú að það orkaði tvímælis að greina frá bakgrunni bamsmóður sinnar með þeim hætti sem gert væri í endurminningum hans. Hann hefði ákveðið að skila inn lækningaleyfi sínu og segja sig úr Læknafélagi íslands. Olafur Ólafsson landlæknir hefur lagt til við heilbrigðisráðherra að Esra verði sviptur lækningaleyfi. Siðanefnd Læknaféiags íslands mun Ijúka umfjöllun sinni um meint brot Esra á siðareglum lækna, þrátt fyrir að hann hafi sagt sig úr félaginu. Guðmundur Bjömsson, formaður, segir að stjóm félagsins muni funda þegar úrskurður siða- nefndar liggi fyrir, því málið í heild sinni kalli á hörð viðbrögð. Esra S. Pétursson sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem segir: „Undanfarið hafa æviminningar mínar, „Sálumessa syndara“, vakið umtal og umræður í fjölmiðlum. Mér hafa meðal annars borist bréf frá Landlækni, stjóm Geðlæknafé- lags íslands og stjóm Læknafélags íslands. Landlæknir ásakar mig í bréfi sínu dagsettu 13. nóvember 1997 um brot á 15. grein læknalaga um þagnarskyldu. Eg sé það nú að það orkar tvímælis, að greina frá bakgmnni bamsmóður minnar með þeim hætti sem gert er í 49. kafla æviminninganna. Eg taldi hins vegar nauðsynlegt til skiln- ings á ævi minni og sambandi okk- ar Áslaugar Jónsdóttur eftir með- ferð hennar að greina frá þessu í heild. Bókin er skrifuð í anda sál- könnunar, sem leitast við að íhuga og skilgreina ævina ítarlega í heild. Viðbrögð landlæknis og starfs- bræðra minna hafa verið með þeim hætti, að ég álít að við áframhald- andi umfjöllun þessara aðila muni ég ekki geta notið sannmælis. Ég hefi því ákveðið að skila inn lækningaleyfi mínu til ráðherra heilbrigðis- og tryggingamála frá og með deginum í dag. Jafnframt hef ég sagt mig úr Læknafélagi ís- lands frá sama tíma.“ Úrskurður siða- nefndar um helgina Guðmundur Bjömsson, formað- ur Læknafélags Islands, segir að siðanefnd lækna ljúki líklega um- fjöllun sinni um málið um helgina og stjóm Læknafélagsins muni þá funda um úrskurð hennar strax eftir helgina. „Úrræði Læknafé- lagsins við brotum þeim sem Esra er sakaður um em að vísa honum úr Læknafélaginu eða beina til- mælum til réttra yfirvalda, teljist hann hafa brotið gegn hegningar- lögum eða læknalögum. Við getum augljóslega ekki vísað manni úr fé- laginu sem hefur þegar sagt sig úr því og ég get ekki tjáð mig um hvort önnur viðbrögð koma til greina fyrr en siðanefnd fellir úr- skurð sinn.“ Landlæknir leggur til að Esra verði sviptur lækningaleyfi Ólafur Ólafsson landlæknir skrifaði í gær bréf til heilbrigðis- ráðherra, þar sem hann leggur til að Esra verði sviptur lækninga- leyfi. „Þá höfum við til athugunar frekari aðgerðir vegna alvarlegra brota á læknalögum og löjgum um réttindi sjúklinga,“ segir Olafur og kveðst telja líklegt að farið verði fram á opinbera rannsókn á málinu. Tuttugu mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær fimmtugan mann, Franklín Kristin Steiner, í 20 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Héraðsdómur hafði áður dæmt hann í 25 mánaða fang- elsi, en mildun Hæstaréttar byggist m.a. á því að við endurvigtun am- fetamíns reyndist minna af því en ákært var fyrir og óvissa ríkti um styrkleika hluta efnisins. Héraðsdómur dæmdi Franklín Steiner fyrir að hafa átt í bifreið sinni og á heimili sínu í Hafnarfirði 253,5 grömm af amfetamíni, 126,3 grömm af hassi og 6,7 grömm af marijuana þegar hann var handtek- inn af lögreglu 13. apríl á síðasta ári og fyrir að hafa brotið skotvopna- löggjöf með því að eiga byssu, skot- hylki og ýmis eggvopn á heimili sínu. Óvíst hvort hirslan var læst í dómi Hæstaréttar kemur fram, að amfetamínið hafi verið vigtað á ný eftir héraðsdóminn og reyndist það 244 grömm, en ekki 252,5 grömm, auk þess sem ósamræmi og óvissa kom fram um mælingar á styrkleika efnisins, sem Hæstiréttur sagði að meta yrði Franklín í hag. Hæstiréttur staðfesti dóm vegna eins skots kindabyssu, sem fannst í fórum Franklíns Steiner, en ekki taldist sannað að hann hefði gerst brotlegur við lög með því að geyma skot og skothylki í ólæstri hirslu. Þá var staðfest sakfelling að því er varðaði byssustingi, sverð og önnur bitjám sem fundust við húsleit, en Hæstiréttur benti á að lög bönnuðu ekki eign svokallaðra fingrajáma og sýknaði Franklín af ákæra hvað þau varðaði. í niðurstöðu Hæstaréttar er vísað til þess að Franklín Steiner hafi síð- ast hlotið refsingu með dómi Hæstaréttar 1989. Refsing hans væri hæfilega ákveðin fangelsi í 20 mánuði. 12. dómurinn Frá árinu 1966 hefur Franklín hlotið 11 dóma, auk dóms í þessu máli. Flestir era dómamir fyi-ir brot á fíkniefnalöggjöfinni, auk nokkurra sátta fyrir sams konar brot. Samtals hefur Franklín Stein- er verið dæmdur til 6 ára og 3 mán- aða fangelsisvistar, auk 20 mánaða fangelsisdómsins sem Hæstiréttur kvað upp í gær. Mál Páls Skúlasonar gegn Galleríi Borg Fellt niður þar sem stefnandi mætti ekki PÁLL Skúlason héraðsdómslög- maður sótti ekki þing í Héraðsdómi Reykjaness og boðaði ekki forföll þegar flytja átti mál sem hann hafði höfðað gegn Pétri Þór Gunnarssyni, eiganda Gallerís Borgar, fyrir hönd danskrar prestsekkju. MáUð var því fellt niður með útivistardómi og var Páll dæmdur til að greiða Galleríi Borg 60 þúsund krónur í málskostn- að. Málið höfðaði Páll til þess að fá rift eða fá fram fullar efndir á samn- ingi um sölu á málverki eftir Kjar- val. í Morgunblaðinu í júní á þessu ári lýsti hann málavöxtum svo að hann teldi Pétur Þór hafa sýnt svik- samlegt atferli þegar hann árið 1992 keypti málverkið af eigin- manni prestsekkjunnar og að hann hefði notfært sér eUi mannsins og að hann hefði haft óljósar hugmynd- ir um verðgildi verksins. Það hafi verið keypt undir því fororði að það yrði selt safni en síðan hafi það ver- ið selt á málverkauppboði fyrir 1,4 milljónir króna, einni milljón króna meira en það var keypt á. Pétur Þór Gunnarsson vísaði staðhæfingum Páls Skúlasonar á bug í Morgunblaðinu og hefur auk þess höfðað meiðyrðamál gegn hon- um vegna þeirra og er það mál enn til meðferðar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Þegar taka átti mál það sem Páll Skúlason höfðaði vegna fyrrgreinds málverks til meðferðar fyrir dómi fyrir tveimur vikum sótti Páll ekki þing og tilkynnti ekki forfóll. Málið var þvi fellt niður með úrskurði Finnboga Alexanderssonar héraðs- dómara og var stefnandi dæmdur til að greiða Pétri Þór Gunnarssyni og Galleríi Borg 60 þúsund krónur í málskostnað. Sýknaður af ákæru um ærumeiðingar HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær þá niðurstöðu Héraðsdóms Reykja- víkur að sýkna Hrafn Jökulsson, fyrrverandi ritstjóra Alþýðublaðs- ins, af ákæra um að hafa meitt æra Haralds Johannessens, fyrrverandi fangelsismálastjóra ríkisins, eða borið hann aðdróttun sem leitt gæti til hnekkis fyrir Harald. Málshöfð- unin átti rætur að rekja til greinar sem Hrafn skrifaði í Álþýðublaðið í mars 1996. í niðurlagi þeirrar greinar sagði að Haraldur væri ekki fangelsismálastjóri heldur „glæpamannaframleiðandi ríkis- ins“. í dómi Hæstaréttar segir að í greininni hafi öðra fremur verið deilt á tiltekin atriði í störfum Fangelsismálastofnunar, einkum hvað varðar meðferð og aðbúnað fanga á Litla-Hrauni. „Greinin snýr að samfélagslegu málefni, sem eðlilegt er að komi til almennrar umræðu. í slíkri um- ræðu verða stjórnvöld að þola að gagnrýni sé beint að þeim, þótt orð- færi í því sambandi kunni að verða hvasst. Ákærði kaus að fara þá leið í grein sinni að nafngreina tvívegis forstjóra Fangelsismálastofnunar. Hvað sem líður mati á hvort sá háttur á skrifum ákærða hafi verið viðeigandi verður ekki litið framhja því að meginefni greinarinnar varð- aði störf stofnunarinnar, sem for- stjórinn veitti forstöðu, en um per- sónu hans var þar ekki fjallað. Hann verður að sæta því að stofn- unin hafi verið samsömuð honum með notkun nafns hans eins og hér var gert í almennri umræðu," segir í dómi Hæstaréttar. Hrafn var því sýknaður af ákæru ríkissaksóknara og ríkissjóði gert að greiða allan sakarkostnað, þar á meðal málsvarnarlaun Jóns Magn- ússonar hæstaréttarlögmanns. t I I t t i t t I í í i l i I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.