Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 31
ERLENT
Vísindamenn deila harkalega um kenningar um að líf hafi þrifist á Mars í fyrndinni
Washington. Reuters.
HARÐAR deilur spruttu upp nú í
vikunni um hvort lítill ioftsteinn er
fannst á Suðurskautslandinu hafi að
geyma vísbendingar um að líf hafí
verið á Mars í fyrndinni. Vísinda-
mennirnir sem fundu steininn segj-
ast hafa sannað að í honum sé ekki
að fínna nein merki um líf, en rann-
sóknannenn Johnson geimvísinda-
stofnunina og Stanfordháskóla, sem
í fyrra kváðust hafa fundið örveru-
leifar í steininum, segjast enn viss-
ari en áður í sinni sök.
Vísindamennimir greindu frá
uppgötvunum sínum í ágúst í fyrra.
Rannsökuðu þeir loftstein, er
nefndur er ALH84001 og talinn er
hafa borist til jarðar frá Mars fyrir
13 þúsund árum. Kváðust þeir hafa
fundið í steininum leyfar stein-
gerðra einfrumunga sem að sumu
leyti væru svipaðir jarðneskum
gerlum.
Andmælendur kenningarinnar
um að líf hafi þrifist á Mars birtu
niðurstöður rannsókna sinna á
ALH84001 í tímaritinu Nature á
miðvikudag. Tímaritið leyfði vís-
indamönnum NASA að svara and-
mælunum í sama tölublaði, en slíkt
er óvenjulegt. Andmælendumir
komast að þeirri niðurstöðu að um
sé að ræða jarðneska þætti, en ekki
lífræna.
„Við höfum fundið tvö ólík form
steintegunda í ALH84001 sem líta
nákvæmlega eins út og örsteingerv-
ingar, en þau eru ekki af lífrænum
toga,“ segir John Bradley, við efna-
og verkfræðideild Georgia Institute
of Technology, í yfirlýsingu.
Þeir sem lögðu fram kenninguna
sögðu nú í vikunni að þeir hefðu
styrkst í þeirri trú sinni að hún ætti
við rök að styðjast. „Það gengur
mikið á [meðal vísindamanna] að
koma þessu fyrir kattarnef," sagði
Everett Gibson, við Johnson geim-
vísindastofnunina, í viðtali við
Reuters.
Ralph Harvey, við jarðvísinda-
deild Case Western Reserve-há-
skóla í Ohio, segir að hann hafi,
ásamt aðstoðarmönnum sínum, hafi
á undanförnu hálfu ári beitt nýrri
tækni við rannsóknir á ALH84001
og fundið fleiri form er minni á
gerla. Harvey segir hins vegar að
um sé að ræða steindarþynnur sem
Yfir 20 tegundir
af sófaborðum á lager
- Ýmsar viðartegundir
Fákafen 9, sfmi 568 2866
Segja engin merki
um líf í ALH84001
yrðu til við jarðhræringar.
„Þetta er ekki rétt,“ svarar Gib-
son. „Við vorum búnir að sjá svona-
lagað fyrir nokkrum árum og af-
skrifuðum þetta sem vísbendingar
um örsteingervinga." Gibson segir
að Harvey og samstarfsmenn hans
hafi leitað fanga á röngum stað.
Harvey segir að örformin sem líti
út eins og liðskipting hafi í raun
verið leyfar málmhúðunar sem not-
uð hafi verið við rannsóknir með
rafeindasmásjá. „Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem málmhúðaragnir
leiða til þess að menn telja sig hafa
fundið öreindasteingervinga í
grjóti," skrifa Harvey og samstarfs-
fólk hans.
Gibson svarar því til, að athugað-
ir hafi verið fletir á grjótinu, sem
ekki hafi verið húðaðir með málmi
og þar hafi fundist sama skiptingin.
Ennfremur bendir hann á að vís-
indamenn séu nýlega farnir að
kannast við að til séu svokallaðir ör-
gerlar er geti þrifist við mjög
harkalegar aðstæður.
Harvey er nú staddur á Suður-
skautslandinu að sækja fleiri loft-
steina. Hann segir að við rannsókn-
ina hafi hann, og samstarfsmenn
hans, gætt þess vandlega að nota
nákvæmlega sömu aðferðir og
Johnson-Stanford rannsóknarhóp-
urinn til þess að engum blöðum yrði
um að fletta að rannsóknaraðferðir
hefðu ekká haft nein áhrif á niður-
stöður.
Gibson segir að rök andmælenda
kenningarinnar um að líf hafi þrifist
á Mars séu einfaldlega ekki nógu
sterk. Hann og samstarfsmenn
hans hyggist birta meiri upplýsing-
ar um gerlana sem þeir telja að hafi
myndað steingervingana í
ALH84001.
PHILIPS
- alltaf ódýrast hjá okkur
óem
ur
PT 8703
Við bjóðum einnig annað gæðatæki sem
búið er sömu eiginleikum og PT 9113 að
Að framleiða góð sjónvörp er ekki á allra færi og það kunna fáir eins
vel og PHILIPS. Enda eru PHILIPS sjónvarpstækin þekkt fyrir
framúrskarandi myndgæði og magnaðan hljóm.
PT9113
Ultraflat BlackLine Super myndlampi
með Crystal Clear III gerir myndgæðin
þau skörpustu sem til eru í dag
100 Hz Digital Scangerir myndina
stöðuga sem Ijósmynd
120 W Dolby Pro Logic Surround heima
bíókerfimeð 5 hátölurum og bassa
Sjálfvirkur DNR myndsuðseyðir
Mynd í mynd (PIP)
íslenskur leiðarvísir
_______ Kr. 189.900 stgr.
undanskildu „mynd í mynd“ og Dolby
Pro Logic Surround.
Fjárfestu til framtíðar í hágæða sjónvarpstæki frá PHILIPS.
Kr. 161.400 stgr.
Heimilistæki hf
VISA raögreiðslur til allt að 36 mánaða
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
EURO raðgreiðslur til allt að 36 mánaða
©
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt
© © ©