Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 32
FOSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997
Ibod
MORGUNBLAÐIÐ
DAEWOO
2898
Black Matrix
myndlampi,
breiötjalds-
stilling,
Nicam stereo,
70 stööva
minni,
tvö Scarttengi,
NTSC afspilun,
ísl.textavarp,
fjarstýring o.fl.
PHILIPS
100 Hz
28PT7403
100 riöa flöktfrí
mynd
Super Black Line
myndlampi
íslenskt
textavarp,
sjálfvirk
stöðvaleitun,
Nicam Stereo
hljóökerfi,
barnalæsing,
svefnrofi o.fl.
DAEWOO
DV-K885
6 hausa
myndbands-
tæki meö
NTSC afspilun,
allar aögeröir
á skjá,
tímaupptaka,
fjarstýring,
Show View
o.f I.
RflFTÆKMPtRZLUIÍ ISLflNDS If
- AN NO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
Greiðslukjör við allra haefi
Mo erum I hM ,,ð «£El
ERLENT
Winnie Mandela neitar ásökunum um morð og pyntingar
Segir sakargiftir „fár-
ánlegan tilbúning44
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Jóhannesarborg. Reuters.
WINNIE Madikizela-Mandela,
fyrrverandi eiginkona Nelsons
Mandela, forseta Suður-Afríku,
kvaðst saklaus af öllum ásökunum
um morð og barsmíðar á ungum
blökkumönnum þegar hún kom
fyrir sannleiks- og sáttanefndina
svokölluðu í gær. Hún lýsti sakar-
giftunum sem „fáránlegum tilbún-
ingi“ og lið í ófrægingarherferð
gegn sér.
Yfirheyrslur sannleiksnefndar-
innar vegna máls Winnie Mandela
hafa staðið í níu daga og rúmlega
20 vitni hafa sakað hana um aðild
að morðum, barsmíðum og pynt-
ingum hóps ungra fylgdarmanna
hennar, sem kölluðu sig „Knatt-
spymufélagið Mandela United“
þótt þeir hefðu aldrei tekið þátt í
knattspymumótum.
Vitnin sögðu að Winnie Mandela
hefði leikið tveimur skjöldum, verið
þekkt út um allan heim fyrir bar-
áttu gegn aðskilnaðarstefnu hvíta
minnihlutans í Suður-Afríku og á
sama tíma stjórnað grimmdarverk-
um í Soweto, hverfi blökkumanna í
Jóhannesarborg, sem hefðu valdið
ógn og skelfingu meðal íbúanna.
Winnie kvaðst aldrei hafa hitt
nokkur vitnanna, sem sögðust hafa
búið á heimili hennar í Soweto á ár-
unum 1988-89 og tekið þátt í
óhæfuverkunum að fyrirmælum
hennar.
Neitar að hafa
fyrirskipað morð
Hún sagði ekkert hæft í ásökun-
um um að hún hefði fyrirskipað
morð á fjórtán ára dreng, Stompie
Seipei, og tveimur blökkumönnum
sem tóku þátt í baráttu Afríska
þjóðarráðsins (ANC) gegn aðskiln-
aðarstefnunni, þeim Lolo Sono og
Sibusiso Shabalala.
Jerry Richardson, fyrrverandi
„þjálfari Mandela United", afplán-
ar nú lífstíðarfangelsisdóm fyrir
morðið á Seipei og hefur borið vitni
fyrir nefndinni í von um að hún
veiti honum sakaruppgjöf. Hann
sakaði Winnie Mandela, sem hann
kallaði „mömmu", um að hafa fyrir-
skipað morð á Seipei og fleiri
blökkumönnum. „Mamma drap
engan, en hún notaði okkur til að
drepa marga,“ sagði hann.
Reuters
WINNIE Madikizela-Mandela svarar spurningum sannleiks- og
sáttanefndarinnar í Suður-Afríku vegna rannsóknar á meintri aðild
hennar að morðum og pyntingum seint á síðasta áratug.
„Þetta er fáránlegt og algjör fá-
sinna,“ sagði hún þegar lögfræð-
ingur hennar, Ishmail Semenya,
spurði hvort hún hefði fyrirskipað
morðið á Seipei árið 1988. Hún
kvaðst ekki hafa stjómað gerðum
ungu blökkumannanna á heimili
hennar þótt hún hefði veitt þeim
húsaskjól.
Eitt vitnanna, Katiza Cebek-
hulu, fyrrverandi altarisþjónn í
Jóhannesarborg sem hefur búið í
Bretlandi, kvaðst hafa séð Winnie
Mandela stinga Seipei til bana en
hún vísaði þeim vitnisburði á bug
sem „ofskynjunum geðsjúklings".
Winnie sagðist ennfremur sak-
laus af ásökunum um að hafa skip-
að fyrir um morð á lækninum Abu
Baker Asvat. Þá kvað hún ekkert
hæft í vitnisburði Nicodemus
Sono, sem kvaðst hafa séð son
sinn illa leikinn eftir barsmíðar í
sendiferðabíl með Winnie Mand-
ela en hún hefði neitað að láta
hann lausan. Ökumaður bílsins
hefur staðfest þennan vitnisburð
en neitaði að koma fyrir sannleiks-
nefndina eftir að Winnie Mandela
hafði samband við hann.
Desmond Tutu erkibiskup, for-
maður sannleiksnefndarinnar,
skýrði frá því að stuðningskonur
Winnie Mandela hefðu áreitt móð-
ur Stompie Seipei og haft í hótun-
um við hana þegar hlé var gert á
yfirheyrslunum. Hann lýsti atburð-
inum sem „glæpsamlegu athæfi“.
Liður í „ófrægingarherferð“
Sannleiks- og sáttanefndin var
stofnuð til að upplýsa glæpi sem
framdir voru undir merkjum að-
skilnaðarstefnunnar og baráttu
blökkumanna gegn henni en nefnd-
in hefur ekki vald til að refsa
Winnie Mandela. Desmond Tutu
hefur þó sagt að nefndin kunni að
vísa alvarlegum glæpamálum til
lögreglunnar.
Winnie sækist eftir því að verða
kjörin varaformaður Afríska þjóð-
arráðsins síðar í mánuðinum og seg-
ir ásakanimar lið í ófrægingarher-
ferð hvítra andstæðinga ANC og al-
þjóðlegra fjölmiðla á hendur sér.
G5?/ mpndlist
ilbúnir rammar
mskiö úrval
'lacfcpt
ný sending
Q$)peglar
sérsmfðaðir að
þfnu vali
Opiðídag
frá kl. 10.00-17.00
Sunnudag kl. 13.00-17.00
RAMMA
■sr
INNRÖMMUN
MIÐSTOÐIN f£æj°-slw5111616
1 1 I
I