Morgunblaðið - 05.12.1997, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SVONA Sighvatur minn, ég ætla bara aðeins að skutla þér í Víkina svo þú getir séð hvort
Snæfells Siggnrnar séu eitthvað öðruvísi skapaðar en við Eyja-gellurnar.
Niðurstöður íslenskrar læknisfræðirannsóknar
Meðfæddir hjartagallar
algengari meðal tvíbura
ÍSLENSK rannsókn bendir til
þess að meðfæddir hjartagallar séu
algengari meðal tvíbura en ann-
arra barna og að nýgengi hjarta-
galla hafi aukist verulega á síðustu
árum eftir að glasafrjóvganir
hófust hér á landi.
Rannsóknina gerðu Yrsa B.
Löve, Hróðmar Helgason og Gunn-
laugur Sigfússon og greina þau frá
niðurstöðum hennar í nýútkomnu
Læknablaði. Var tilgangurinn að
rannsaka nýgengi og gerðir með-
fæddra hjartagalla hjá tvíburum
fæddum á íslandi á 10 ára tímabili
og bera það saman við nýgengi hjá
íslenskum bömum í heild.
Voru rannsakaðir tvíburar sem
fæddust á íslandi á árunum 1985-
1995 og greindust með hjartagalla.
Fram kom að af 1.089 lifandi fædd-
um tvíburum voru 35 með hjarta-
galla, eða 3,21% samanborið við 1%
nýgengi í samanburðarhópi og er
þessi munur tölfræðilega mark-
tækur. Algengast var að gallinn
greindist í bömunum á fyrstu sjö
dögunum eftir fæðingu og einungis
tvö böm greindust með hjartagalla
eftir 6 mánaða aldur.
Tengsl tæknifrjóvgana
og hjartagalla?
Nýgengi hjartagalla er hærra á
seinni hluta rannsóknartímabilsins.
Fram kemur í Læknablaðinu að
árið 1991 hafi glasafrjóvganir á ís-
landi hafist, sem leiddi til mikillar
fjölgunar tvíburafæðinga og á
sama tíma hafi nýgengi meðfæddra
hjartagalla aukist meðal tvíbura.
Því vakni sú spuming hvort hugs-
anlega sé samband milli tækni-
frjóvgana og aukinnar tíðni með-
fæddra hjartagalla. Þannig mætti
athuga möguleg áhrif frjósemis-
lyfja. Einnig megi hugsa sér að
tengsl séu milli þess að eiga í erfið-
leikum með að eignast bam og
þess að eignast bam með með-
fæddan galla, og tæknifrjóvganir
hafi þannig áhrif á nýgengi með
óbeinum hætti.
Ekki komu fram vísbendingar
um að hjartagallar séu algengari
hjá eineggja tvíbumm en tvíeggja,
en aðrir rannsakendur hafa fengið
þær niðurstöður að meðfæddir
hjartagallar séu algengari á meðal
eineggja tvíbura eða tvíbura af
sama kyni. í lokaorðum greinar-
innar í Læknablaðinu segir að full
ástæða virðist til að rannsaka alla
tvíbura við fæðingu til að skera úr
um hveijir séu eineggja eða tví-
eggja, skrá hverjir séu getnir með
tæknifrjóvgun og skrá svo alla
hjartagalla í tvíbumm. Slík rann-
sókn gæti ef til vill gefið skýrari
svör um hvað varðar hlut eineggja
og tvíeggja tvíbura í hópi barna
með meðfæddan hjartagalla auk
þess að svara spumingunni um
möguleg áhrif tæknifrjóvgunar.
Þingað um heilsuvernd starfsmanna
Vinnan á ekki að
ganga óeðlilega
á heilsuna
NEFND um málefni
heilsuvemdar starfs-
manna efnir til opins
kynningarfundar í Ársal
Hótels Sögu í dag klukkan 13.
Gestur fundarins verður
Thorkil Baungaard fram-
kvæmdastjóri í ráðgjafarfyr-
irtækinu BST Storkobenhavn
a/s í Kaupmannahöfn. Fyrir-
tækið veitir ráðgjöf um vinnu-
umhverfi og ytra umhverfi
fyrirtækja og annast heilsu-
vernd starfsmanna í um 1.100
fyrirtækjum í Kaupmanna-
höfn. Baungaard mun flytja
erindi og kynna starfsemi fyr-
irtækisins.
Eyjólfur Sæmundsson seg-
ir að starfandi hafi verið
nefnd á vegum stjómar
Vinnueftirlits ríkisins um
málefni heilsuvemdar starfs-
manna og vísar í 11. kafla
laga um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980
sem ekki hefur komist til fram-
kvæmda enn. Mun nefndin leggja
fram tillögur um framkvæmd
heilsuverndar starfsmanna á ís-
landi og reiknað með að þær liggi
fyrir á fyrri hluta næsta árs að
hans sögn.
- Hvað er starfsmannaheilsu-
vemd?
„Hún tengist ekki bara læknum
og hjúkrunarfólki því um er að
ræða starfsemi sem miðar að for-
vörnum gegn vinnuslysum, at-
vinnusj úkdómum og óeðlilegu
álagi við vinnu, líkamlegu sem
andlegu. Markmiðið er að greina
áhættu og koma við forvörnum á
frumstigi, áður en skaðinn er
skeður.“
- Hvers vegna er fundurinn
haldinn?
„Starfsmannaheilsuvemd hefur
ekki verið með sama hætti hér og
á hinum Norðurlöndunum, þar
sem byrjað var að byggja hana
upp fyrir um 20 árum. Við höfum
almennt mjög fullkomið heilsu-
gæslukerfi, kannski fullkomnara
en þeir, en hér á landi hefur ekki
verið rekin almenn starfsmanna-
heilsuvernd þrátt fyrir ákvæði í
lögum. Það hefur margoft komið
til skoðunar af hálfu Vinnueftir-
litsins og aðila vinnumarkaðarins
og verið unnið í því að undirbúa
tillögur að því hvemig rétt væri
að útfæra starfsmannaheilsu-
vemd á íslandi. Tilgangurinn er
sá að fara yflr hvað felst í starfs-
mannaheilsuvemd og hvaða hug-
myndir era uppi um hana á Is-
landi.“
- Hvernig taka atvinnurekend-
ur hugmyndunum, til dæmis um
minna vinnuálag?
„Það verður að ganga út frá því
að enginn atvinnurekandi vilji
skaða sína starfsmenn. Það er
grandvallaratriði að starfsmanna-
heilsuvemdin sé á vegum fyrir-
tækisins og að hún greiðist af at-
vinnurekanda. Hún ________________
verður að vera rekin á
þann hátt að tryggt sé
að ríki trúnaður gagn-
vart starfsmönnum en
samkvæmt samningi
við viðkomandi fyrirtæki. Heilsu-
verad starfsmanna er ekki eftirlit
með starfsemi fyrirtækisins á
heldur þáttur í því að fyrirtækið
axli ábyrgðina sjálft.“
- Ættu öll fyrirtæki að bjóða
slíka þjónustu?
Þetta er mikið langtímaverk-
efni og í raun og vera ættu öll íyr-
irtæki að gera það. Hins vegar
verður að taka þetta í einhverri
röð og hæpið að hægt sé að
hyggja upp alls staðar samtímis.
Eyjólfur Sæmundsson
► Eyjólfur Sæmundsson fædd-
ist í Hafnarfirði árið 1950.
Hann lauk landsprófi frá
Flensborgarskóla árið 1966 og
varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavík árið 1970.
Hann lauk fyrrihlutaprófi í _
efnaverkfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1972 og prófi í verk-
fræði frá Tækniháskólanum í
Þrándheimi áramótin 1974-75.
Að því búnu starfaði hann sem
sérfræðingur og deildarverk-
fræðingur að mengunarmálum
hjá Heilbrigðiseftirliti ríkisins
sem þá var til ársins 1979 og
sem öryggismálastjóri til 1980.
Hann hefur verið forsljóri
Vinnueftirlits ríkisins frá 1981.
Eyjólfur er kvæntur Gerði Sig-
urðardóttur kennara í Hafnar-
firði og eiga þau tvö böm.
Markmiðið er
forvarnir á
frumstigi
Menn hafa rætt tiltekna fram-
kvæmdaáætlun þar sem atvinnu-
greinarnar koma inn í þetta smám
saman.“
- Hvemig á framkvæmdin að
vera?
„Starfsmannaheilsuvemdin á
að vera ráðgefandi um alla þætti
vinnuvemdar fyrir fyrirtækin.
Auk þess á að annast vissa þjón-
ustu á borð við heilsufarseftirlit
sem kveðið er á um í reglum að
eigi að fara fram þar sem áhættur
era fyrir hendi, til dæmis vegna
tiltekinna efna. Hið sama gildir
um næturvinnustarfsmenn sem
eiga að vera undir sérstöku
heilsufarseftirliti. Einnig er Ijóst
að vissum störfum getur fylgt
andlegt og líkamlegt álag sem
einnig kemur inn í þetta.“
- Hvernig er hinn fullkomni
vinnustaður?
„Þar sem stjómendur greina og
meta áhættu sem kann að vera
fólgin í ýmsum störfum, sinna for-
vömum svo ekki hljótist skaði af
og nýta sér þjónustu starfsmanna-
heilsuvemdar þar sem
sérfræðingar era til
ráðgjafar."
- Getur skipulögð
stefna í heilsuvemd
bætt vinnuanda?
„Gagnsemin er sú að starfsfólk-
ið er öraggara um sína heilsu og
velferð og væntanlega þá ánægð-
ara í starfi. Þetta á að geta dregið
úr vinnuslysum og sjúkdómum og
þannig minnkað kostnað fyrirtæk-
isins og samfélagsins. Megin-
markmiðið er auðvitað það að
hver einstaklingur geti gengið inn
í atvinnulífið þegar hann kemur
úr skóla og unnið þar sína
starfsævi án þess að fóma heils-
unni vegna vinnunnar."