Morgunblaðið - 05.12.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 05.12.1997, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 MORGUNBJ^ÐIÐ LISTIR Jólasýning Þjóðminja- safnsins FORSETI íslans, herra Ólafur Ragnar Grímsson, kveikir á jólatré Þjódminja- safns íslands laugardaginn 6. desember kl. 14 og opnar jafnframt jólasýningu safnsins. Hún fjallar um þróun jólagjafa og jólaauglýsinga i hundrað ár. A sýningunni má sjá ýmis dæmi um glaðninga og gjafír þennan tíma en einnig eru birtar auglýsingar úr blöð- um frá lokum 19. aldar, og sýnishorn frá hveijum áratug 20. aldar. Einnig verða til sýnis gömul jólakort, en sá siður hófst í Englandi fyrir miðja 19. öld, á íslandi um 1890. í kynningu segir: „Meðal almennings þekktust hvergi í heimi óvæntar jóla- gjafir fyrr en langt var liðið á 19. öld. Fyrir þann tíma var jólaglaðningur fremur einskonar ársþóknun og sam- svarar „desemberuppbót“ nú á dög- um.“ Jafnframt segir: „Fyrsta auglýsing um jólagjöf hérlendis er frá árinu 1866. Þar er fólk hvatt til að gefa Nýja testa- mentið. Næsta auglýsing er frá 1878, en á næstu áratugum fjölgar þeim jafnt og þétt.“ Sýningin verður opin alla daga fram að jólum frá kl. 12-17, nema 8. og 10. desember. Hinn 12. desember hefjast heimsóknir gömlu íslensku jólasvein- anna sem koma í réttri röð kl. 14 á hveijum degi nema Kertasníkir sem kemur á aðfangadag kl. 11. Morgunblaðið/Árni Sæberg JÓLAVARNINGUR fyrri tíma verður m.a. sýndur í Þjóð- minjasafninu. Það aldin út er sprungið TONLIST Illjómdiskar JÓL í HALLGRÍMSKIRKJU Flytjendur: Mótettukór Hallgrims- kirkju, Daði Kolbeinsson óbó, Hljóm- skálakvintettinn (Ásgeir H. Stein- grímsson og Sveinn Birgisson tromp- et, Þorkell Jóelsson horn, Oddur Bjömsson básúna og Bjami Guð- mundsson túbaj, Douglas A. Brotchie orgei, Hörður Askelsson klukknaspil og orgel. Stjómandi: Hörður Áskels- son. Hljóðritun fór fram í Hallgríms- kirlgu í okt sl. Sveinn Kjartansson frá Stafræna hljóðupptökufélaginu ehf. sá um tæknivinnu. Dreifíng: Japis. KLUKKUR Hallgrímskirkju hringja inn þetta unaðslega jólapró- gramm (og reyndar út líka), þá kem- ur yndislegt „hjarðljóð" (pastorale) á orgel eftir Bach og síðan Nóttin var sú ágæt ein eftir séra Einar í Heydöl- um og Sigvalda Kaldalóns, sungið af Mótettukórnum. Svo fáum við Introitus á jólanótt, Barn er oss fætt, og þá lag frá 15. öld o.s.frv. Þannig skiptast á orgelleikur (hjarðljóð og jólasálmforleikir eftir meistarann sjálfan), gamlir og yndislegir jóla- söngvar og sálmar (útsetn. flestar frá 17. öld og ein eftir Jón Þórarinsson, Syngi Guði himnahjörð) og endar með hátíðlegri og flottri þátttöku Hljómskálakvintettsins ásamt Dou- glas A. Brotchie, orgelleikara á jóla- cansónu (Canson duodecimi toni úr Sakrae Symphoniae) eftir Gabrieli. Flutningur allur er áberandi góð- ur, jafnt hjá kór, orgelleikara og blásurum. Hraðaval einstaklega fínt (yfirleitt í frísklegri kantinum). Ekki kemur þeim þetta á óvart sem þekkja til Mótettukórsins og vinnubragða Harðar Áskelssonar, afturámóti kom flatt uppá mig að forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans væri við- hafnarorganisti við Árneskirkju í Trékyllisvík á Ströndum, en fæddist ekki Freisarinn í fjárhúsi...! Ekki fer milli mála að hann leikur á orgel- ið með fínum sans, sennilega jafn handgenginn Bach og skammta- efnafræðinni. Að vísu grunar mig að Hörður eigi heiðurinn af sálmfor- leikjunum og „hjarðljóðunum", allt ákaflega fallega flutt, en upplýs- ingabæklingur fylgdi ekki eintakinu sem ég fékk í hendur. Upptakan er hljómmikil og falleg - með dálitlum eftirhljómi (,,ekkói“), sem gefur tilfinningu fyrir kirkj- unni, en er ekki hafin yfir gagn- rýni, einkum í kórsöng, og veldur því vafalaust erfiður hljómburður. En þetta kemur ekki svo mjög að sök, því innihaldið blífur í allri sinni auðmjúku dýrð. Oddur Björnsson Nýjar plötur •„SELLÓ“ er með sellóleik Stefáns Arnars Arnarsonar. Platan var tekinn upp í Ak- ureyrarkirkju í ágúst sl. með 20 manna kammersveit sem kom sérstak- lega saman undir stjórn Stefáns Arn- ar fyrir þetta verkefni. Á þessari geislaplötu má m.a. fmna Svaninn eftir Stefán Örn Saint-Saéns Arnarson við undirleik Sophie Schoonjans og Ave Maria eftir Schubert við undirleik Björns Steinars Sólbergssonar. í kynningu segir að nútíma upptökutækni kom einnig við sögu við gerð þessa geisla- plötu, þar sem Stefán Öm flyt- ur Preludio úr Bachianas Bras- ilieras eftir Villa-Lobos sem er skrifað fyrir átta selló. Þar Ieikur Stefán Öm allar raddirn- ar átta sem eftir því sem best sé vitað hafí það ekki verið gert áður meðal klassískra flytjenda. Upptöku og hljóðvinnslu annaðist Halldór Víkingsson. Útgefandi erSkrefogJapis annast dreifingu. Verð 1.999 kr. • HLUSTlögð viðstein í Jörfa & íslensk kórlöger með söng Háskólakórsins og er gefín út í tilefni af 25 ára starfsmæli hans. Á plötunni syngur kórinn íslensk þjóðlög og ýmis kórlög, sem mörg hver hafa verið sérstaklega samin fyrir kórinn. Auk þeirra er að fínna kórverkið „íjlust lögð við stein í Jörfa“ eftir Hákon Leifsson. Stjórnendur em Egill Gunnarsson og Há- kon Leifsson. Acf útgáfunni standa Há- skólaútgáfan og Fermata- hljóðritun. Hljóðritunin fyrir þessa afmælisútgáfu hefur staðiðyfir undanfarin tvö ár á vegum Halldórs Víkingsson- ar upptökustjóra. Hljómdisk- urinn fæst íBóksölu stúdenta ogíhelstu plötuverslunum. Verð: 1.999 kr. Drykkfelld- ur o g bitur Hamlet Breski leikstjórinn Matthew Warchus hefur sett upp mjög stytta útgáfu af Hamlet þar sem áherslan er lögð á fjölskyldu- harmleikinn í verkinu DRYKKFELLDUR og bitur birtist Hamlet bresk- um áhorfendum í nýrri og nánast byltingar- kenndri uppfærslu á einu þekktasta verki Will- iams Shakespeare. Uppfærslan er í höndum ungs og efnilegs leikstjóra, Matthews Warchus, en hún er verulega stytt útgáfa verksins og svo breytt að jafnvel hörðustu Hamlet-unnendum þykir sem um nýtt verk sé að ræða. Hot Tickets, fylgirit Evening Standard segist Warchus ekki hafa haft nokkurn áhuga á því að setja Hamlet upp. Honum hafi þótt verkið þung- lamalegt og úr sér gengið. En þegar Konunglega Shakespeare-leikfélagið bauð honum að setja Hamlet upp með Alex Jennings í aðalhlutverki, stóðst hann ekki mátið, enda þótti honum tilbreyt- ing i því að hafa jafn reyndan leikara og hinn fertuga Jennings í hlutverkinu í stað nýútskrif- aðs ungstirnis. „Ég sagðist myndu taka verkið að mér ef ég mætti stytta það,“ segir Warchus og hann stóð við orð sín, segist hafa skorið texta Shakespeare niður um 37%, svo það er aðeins um hálfur þriðji tími í flutningi. Warchus segir lengdina hafa verið annað lykil- atriðanna en hitt var að setja verkið upp á þann hátt að það kæmi við áhorfendur. Hann segir Hamlet ekki hafa snert sig og það hafi verið orsök áhugaleysis síns. Þvi hafí hann ákveðið að selja Hamlet upp sem fjölskylduharmleik, ekki þó konungsfjölskylduharmleik. Ætlunin hafi ver- ið að frelsa Hamlet úr höndum fræðinganna. „Þegar ég hafði tekið þessa ákvörðun, féllu stórir hlutar textans í burtu. Það er vissulega missir að sumum hlutunum en mér fannst ég sýna Shakespeare meiri virðingu með því að láta eina hlið verksins skila sér almennilega í stað þess að reyna að koma öllu til skila og láta meðal- mennskuna vera allsráðandi." Warchus Sýningin var frumsýnd í síðustu viku og hefur hlotið fremur jákvæða dóma hjá gagnrýnendum. Warchus hefur vissulega verið sakaður um „slátr- un“ og „limlestingu" á verki Shakespeares en margir hafa farið um það lofsamlegum orðum, t.d. gagnrýnandi Guardian sem segir uppfærsluna svo nýstárlega að.jafnvel hörðustu Hamlet-áhorf- endum finnst þeir vera að sjá verkið í fyrsta sinn“. Uppfærslan er undir greinilegum áhrifum af kvikmyndum. Upphafsatriðið er t.d. mikið breytt og sýnir svartklæddan og dapurlegan Hamlet með tóma kampavínsflösku í hendi velta duftkeri um koll. I baksýn rúlla svipmyndir úr æsku hans yfir risaskjá. Warchus viðurkennir fúslega að hann sé undir áhrifum kvikmynda og þá einkum tveggja, „The Shining“ og „Fargo“. Hamlet sé nakin, háðsleg og köld eins og sú síðarnefnda og rétt eins og í „The Shining“ komist enginn á brott fyrr en öll mál hafi verið gerð upp. Þá þykir mörgum útlit sýningarinnar minna mjög á „Þögnina“ eftir Ingi- mar Bergman. Warchus hefur hug á því að gera kvikmynd og segist vera með nokkur handrit í takinu. Tel- ur hann nútímamenningu vera „kryddlegna í orðaforða kvikmyndanna“ og segir að jafnvel þótt hann unni leikhúsinu, telji hann auðveldara að stýra frásögninni í kvikmynd en á leiksviði. En það þarf þó ekki að þýða að hann hyggist segja skilið við leikhúsið. „Ég vil takast á við erfiða hluti. Ég missi áhugann fljótt ef hlutirnir eru of einfaldir. Erfiðast er að takast á við hluti sem maður hefur ekki komið nálægt áður - til dæmis að gera kvikmynd. En þegar það er frá reynist mér liklega erfiðast að seljast niður með þremur leikurum og hefja æfingar á litlu leik- verki með nær engri sviðsmynd. Þetta gengur í hringi." Tímarit • TÍMARIT Máls og menn- ingar, 4. hefti 1997 er komið út, og eru í því greinar um bókmenntir, leiklist og tónlist. Elías Mar, Geirlaugur Magnússon, Bergsveinn Birgisson og þýska skáldið Johann Peter Tammen birta ljóð í tímaritinu. Eysteinn Þorvaldsson skrifar grein um náttúru- vemd í ljóð- um Stefáns Harðar Grímsson- ar og Böðvar Guðmundsson segir frá sögulegum bak- grunni skáldsagna sinna, Hí- býli vindanna og Lífsins tré. Kanadíski fræðimaðurinn Francois Ricard skrifar um nýjustu skáldsögu Milans Kundera og kólumbíska blaða- konan Silvana Patemostro skrifar um García Marquez og blaðamannaskóla sem hann stofnaði nýverið í heimalandi sínu, Kólumbíu. Atli Heimir Sveinsson tón- skáld lítur yfír farinn veg í grein sem hann nefnir Lista- mannslíf og Helgi Hálfdanar- son ritar hugleiðingar um nokkur atriði í leikritum Will- iams Shakespeares. Tvær ádrepur er að finna í þessu síðasta hefti ársins, eftir Matthías Viðar Sæmundsson og Ólaf Halldórsson. Ennfrem- ur eru í tímaritinu ritdómar. Tímarit Máls ogmenningar er 120 bls. Það kemur út árs- fjórðungslega og kostar árs- áskrift kr. 3.300. Ritstjóri er Friðrik Rafnsson. Nánari upp- lýsingar og efnisyfirlit síðustu árganga er að finna á heima- síðu Máls ogmenningar: h ttp://www. mm.is ÓVENJULEG útgáfa af Óþelló eftir William Shake- speare er nú á fjölum Shake- speare-leikhússins í Wash- ington. í henni fer hvítur maður með hlutverk Márans Óþellós og blökkumenn með öll önnur hlutverk. Friðrik Rafnsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.