Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 58

Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Hverjir eru bestir? matarlyftuna og því engin furða þótt rafmagnið segði til sín. „Mat- arskammtamir" voru í þyngra lagi í þetta skiptið. ★ Knattspyrnumenn í IBV fóru nokkrar ferðir til Austur-Evrópu, áður en járntjaldið féll, vegna þátt- töku í Evrópukeppnum. Árið 1982 var farið til Póllands og leikið við Lech Poznan. Að leik loknum söfnuðust leikmenn IBV saman á einu hótelherberginu til að sletta úr klaufunum. Ekki voru ís- skápar í vistarverunum og var því ákveðið að panta klaka upp á her- bergi. Sigurlás Þorleifsson, kunnur markahrókur og síðar knattspymu- þjálfari, tók það að sér enda þóttist hann kunna eitthvað í þýsku, því tungumáli sem helst var hægt að gera sig skiljanlegan á þar í landi kynnu menn ekki pólsku. Eitthvað hefur tungumálakunnátta Sigurlás- ar þó verið málum blandin, því skömmu eftir að hann hafði beðið herbergisþjónustuna um klakana, renndu tólf leigubílar upp að hótel- inu; leigubflar sem gestimir frá Is- landi höfðu pantað. Ekkert bólaði hins vegar á heitustu ósk IBV- manna ... klökunum. ★ Jón Óðinn, Ódi, júdóþjálfari á Akureyri, hefur orðið: Þegar ég var nýbyrjaður að æfa MÞ júdó kom hópur reykvískra júdó- manna í heimsókn til Akureyrar. A íyrstu æfingunni stilltu þeir sér upp íyrir framan okkur og máttum við velja hvem við glímdum við. Mér leist nú ekkert á þetta lið, flestir heljarmenni að sjá, utan einn. Hann var lítill og greinilega elstur. Mér til mikillar gleði valdi enginn þann litla, enda taldi ég félaga mína svo sem vera meiri hetjur en svo að þeir færa að níðast á gamalmennum þeg- ar í boði væra yngri kappar. Eg vatt 31 mér að stubbnum og spurði brattur hvort hann þyrði í mig. Hann tók því vel og við glímdum, eða öllu heldur hann glímdi og ég reyndi að halda lífi og fór nú að skilja hvers vegna þessi hafði orðið út undan í valinu. Þetta reyndist vera Halldór Guð- bjömsson, einhver allra mesti nagli sem í júdógalla hefur komið. Eg hef aldrei glímt við hann aftur. HEMMI Gunn. að störfum. ★ Bogdan Kowalczyk þjálfaði handboltalið Víkings á áranum 1978-1983. Hann var stundvís mjög og krafðist þess sama af leik- mönnum sínum. Þó kom það einu sinni fyrir að Bogdan var of seinn á æfingu. Bensíngjöfin á gamla, græna, litla og forljóta Fíatbflnum var því stigin í botn og hvers kyns umferðarmerki virt að vettugi. A gatnamótum Höfðabakka og Vest- urlandsvegar ætlaði Bogdan að lauma sér yfir á rauðu ljósi. Það tekst þó ekki betur en svo að stór trukkur með tengivagn aftan í ekur í bókstaflegri merkingu yfir Fíat- inn. Ökumanni trakksins var að sjálfsögðu bragðið og taldi að þarna hefði orðið banaslys. Greip hann strax talstöðina og hugðist kalla á sjúkrabfl, en einmitt í þeim svifum skríður Bogdan út úr flakinu, geng- ur hratt að trukknum og segir á hálfgerðu símskeytamáli: „Má ekki vera að þessu. Kallaðu á lögguna. Segðu að Víkingur eigi bflinn." Og þar með var Bogdan rokinn. ★ Guðjón Guðmundsson, Gaupi, var liðsstjóri hjá Bogdan þegar sá síðarnefndi þjálfaði landsliðið. Seg- ir Gaupi nú frá: Bogdan reiddist einhverju sinni við mig á landsliðsæfingu í Hafnar- firði. Var karlinn ekkert að tvínóna við hlutina frekar en fyrri daginn, heldur gekk hreint til verks og rak mig. Ég tók þetta alvarlega, fór heim og taldi að þar með væri af- skiptum mínum af landsliðinu lokið. Daginn eftir hringir Bogdan í mig og spyr hvort ég ætli ekki að mæta á æfingu. Ég varð fremur hissa sem vonlegt var og svaraði: „Nú, var ég ekki rekinn í gær?“ Þá heyrðist í Bogdan: „Jú, en það þýðir ekki að þú hafir verið rekinn í dag.“ Því má svo bæta við að alls rak Bogdan mig sautján sinnum. ★ Margar skemmtilegar sögur hafa verið sagðar um hinn kunna mark- vörð Skagaliðsins og landsliðsins hér áður fyrr, Helga Daníelsson og eru þær eflaust bæði sannar og lognar. Hér kemur ein og mega menn geta sér til um sannleiksgildi hennar: Það var eftir leik Skagamanna, sem tapaðist, að ókunnur maður vatt sér inn í búningsherbergi IA og sagði við Helga Daníelsson: „Ég hef áhuga á þér.“ Helgi spyr að bragði: „Frá hvaða félagi ert þú?“ „Ég?“ stundi maðurinn. „Nei, þú misskilur þetta. Ég er augnlæknir." ★ Og nú slær knattspyrnuþjálfar- inn Logi Ólafsson botn í þetta: Leikmenn IA dvöldu eitt sinn á Hótel Örk fyrir Evrópuleik. Þar nutu Skagamenn hinna mestu þæg- inda og komust meðal annars í greipar nuddkonu sem sá um að mýkja vöðva þeirra íyrir komandi átök. Þegar Ólafur Þórðarson mætti í nuddið var hann á stuttbuxum ein- um fata. Nuddkonan biður hann að fara úr þeim og leggjast síðan á bekkinn. Óli verður í fyrstu klumsa en segir svo: „Ég er ekki í neinu innanundir, ekki einu sinni sundskýlu.“ „Það er allt í lagi,“ svaraði konan, „við nuddum bara hér.“ • Bókarheiti er Hverjir eru bestir. Ritstjórar Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason en útgefandi er Hól- ar. Bókin er alls 187 bls. BRIDS llnisjón Arnúr G. Ragnarsson Bridsannáll fyrir árið 1996 kominn út NYLEGA er kominn út bridsannáll ársins 1996. Það er Guðmundur Sv. Hermannsson blaðamaður á Morg- unblaðinu sem tekið hefur saman og skrifað ritið sem gefið er út af Bridsblaðinu en fastir áskrifendur þess fá ritið án endurgjalds. Ekki er annað að sjá en vel hafi til tekist og er blað sem þetta ómissandi fyrir alla bridsspilara. Efnið er bæði innlent og erlent, prýtt myndum, en höfundur segir m.a. í formála.: ,Árið 1996 var við- burðaríkt hjá íslenskum bridsspil- urum. Við eignuðumst heimsmeist- ara í brids í fyrsta heimsmeistara- mótinu í parasveitakeppni, íslenskt landslið komst í íyrsta sinn í úrslit á Ólympíumóti, og Island varð í 2. sæti á Norðurlandamóti í sveita- keppni..." Þetta er annað árið í röð sem Guðmundur Sveinn skrifar bridsannálinn. Blaðið er 56 síður prýtt fjölda mynda. Það fæst hjá Bridssambandinu og kostar 1.200 krónur. Bridsfélag Akureyrar Annan desember lauk þriggja kvölda hraðsveitakeppni B.A. Sveit Unu Sveindóttur náði forystu strax fyrsta kvöldið, jók hana jafnt og þétt og sigraði með talsverðum yf- irburðum. Með Unu spiluðu Stefán Ragnarsson, Grettir Frímannsson og Pétur Guðjónsson. Keppni um næstu sæti var mjög spennandi og eftir bráðabirgðauppgjör vora sveitir Frostrásarinnar og Gylfa Pálssonar jafnar í 2.-3. sæti og Sveinn Pálsson í 4. sæti var einu stigi á eftir. Eftir endurútreikning var Gylfi lækkaður um 1 stig og því urðu hann og Sveinn jafnir í 3.-4. sæti. Lokastaðan var sem hér seg- ir: Una Sveinsdóttir 856 Frostrásin 754 Gylfi Pálsson 753 Sveinn Pálsson 753 Veiðisport 738 Næstu tvö þriðjudagskvöld verð- ur spilaður tvímenningur með Mitchell fyrirkomulagi og verða verðlaun í anda jóla frá Kjötiðnað- arstöð KEA. Spilamennska hefst í Hamri kl. 19.30 og geta menn skráð sig hjá Antoni í síma 461 3497 eða á staðnum til kl. 19.15. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Þegar lokið er 2 kvöldum af 3 í Monnrad-barometer tvímenningi er staða efstu para eftirfarandi: Stefán Garðarsson-Skafti Ottesen 1082 MaríaAsmundsd.-Stemdórlngimundars. 1067 Halldór Þorvaldsson-Baldur Bjartmarsson 1039 Kristjana Steingrímsd.-Hanna Friðriksd. 996 GeirlaugMagnúsd.-TorfiAxelsson 967 Meðalskor eftir tvö kvöld: Besta skor 1. desember sl.: Alfreð Kristjánsson-Þorsteinn Joensen 572 Stefán Garðarsson-Skafti Ottesen 544 MaríaAsmundsd.-Steindórlngimundars. 523 Guðlaugur Sveinsson-Júlíus Snorrason 513 Jóhannes Guðmannss.-Aðalbjöm Benediktss. 501 RYK- & VATNSSUGUR IBESTAI Urvalið er hjá okkur Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001 Sölu- og tískusýning á pelsum í framhaldi af vel heppnaðri sölusýningu okkar í janúar sl. í samstarfi við A.C. Bang, höfúm við ákveðið að halda sýningu á Grand Hótel Reykjavík dagana 5.-9. desember. Salan byrjar í dag frá kl. 19-22 og heldur áfram sem hér segir: Meðal margra frábœrra tilboða getum við nefrit: 7 stk. „demibufp-jakkar, 85 cm, kvenminkur, SAGA ROYAL Okkar Venjulegt verð heimsmarkaðsverð 299.000,- 550.000,- 3 stk. kápur, 120 cm, léttvigtar, „demibufF SAGA ROYAL kvenminkur 488.000,- 800.000,- „Scanblack swinger" 100 x 200 cm, SAGA ROYAL kvenminkur 349.000,- 600.000,- „Russian Dark“ kvenminkur, „swinger“, 100 x 200 cm 298.000,- 600.000,- „Natural Canadian" bjór-jakki 149.000,- 280.000,- „Mahogny ‘ kápa, SAGA ROYAL kvenminkur, hönnun Kafasi 649.000,- 1.100.000,- Vendijakki, plokkaður kvenminkur „purple“ SAGA ROYAL 168.000,- 350.000.- 100% kasmír slagkápa, fóðruð m. plokkuðum mink 98.000,- 230.000.- Virðingarfyllst 30-50% undir markaðsverði - Alltaf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.