Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 59
I
OFNAR:
15 gerðir í hvítu, svörtu,
stáli eða spegiláferð, fjölkerfa
eða Al-kerfa með Pyrolyse
eða Katalyse hreinsikerfum.
HELLUBORÐ:
16 gerðir með „Hispeed" hellum
eða hinum byltingarkenndu,
nýju Spansuðuhellum, sem
nota segulorku til eldunar.
Ný frábær hönnun á ótrúlega góðu verði
Blomberg
hefur réttu lausnina fyrir þig
Einar Farestveit & Co. hff.
Borgartúni 28 - Sími 562 2901 og 562 2900
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 59-
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastnipflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
• « M «(«*««*«« ••••• •••• ••'••«' *
’q 35^1°
: z
: <
• —J
: in
1CV
co
Í,Í.aW&>
: ■*” . *
:
• éi. * ■
• Án*f-n%hi * Vr»t«rwo*rfryiMUf • Jritutm\fm * í*t
DAGUR FRlMERKISINS 9.
Frímerki Pósts og síma hf.
FRIMERKI
TVO ALDARAFMÆLI
OGSMÁÖRK
Frímerki til að minnast aldarafmælis
Hins islenzka prentarafélags og ald-
arafmælis Leikfélags Reykjavíkur.
Smáörk helguð íslenzkum árabátum.
í MAÍ var síðast sagt frá þeim
frímerkjum, sem Póstur og sími hf.
hafði þá gefið út frá áramótum.
Svo liðu nokkrir mánuðir, þar til
tvö næstu frímerki komu út eða til
3. september. Annað þeirra var til
að minnast aldarafmælis Hins ís-
lenzka prentarafélags, sem heitir
nú Félag bókagerðarmanna. Hitt
var gefið út til að minnast aldaraf-
mælis Leikfélags Reykjavíkur.
Leikfélag Reykjavíkur er eitt
elzta starfandi menningarfélag í
íslandi, stofnað 11. jan. 1897. Fyr-
ir stofnun þess var reykvísk leik-
starfsemi lítt skipulögð og því eðli-
lega viðvaningsbragur á leik flestra
leikara á þessum árum og verk-
efnaval ekki margbrotið. Þetta
breyttist verulega með stofnun hins
nýja leikfélags.
Á fáum árum þroskuðust helztu
leikarar félagsins svo, að þeir þóttu
gera sumum erfiðustu verkum
heimsbókmenntanna mjög góð skil.
Þar bar hæst unga leikkonu, Stef-
aníu Guðmundsdóttur, en hún hafði
fyrst komið fram á leiksviði árið
1893, aðeins 17 ára gömul. Má
segja, að hún, sem var einn af stofn-
endum Leikfélags Reykjavíkur, hafi
borið af innan þess frá upphafi og
allt þar til hún lézt árið 1926, tæp-
lega fimmtug að aldri. Barst hróður
hennar víða um Norðurlönd fyrir
afburðaleikhæfileika og allt til ís-
lendingabyggða vestan hafs, þar
sem hún fór frægðarleikför á árun-
um 1920-21.
Eftir tíu ára starf LR( rann upp
blómaskeið þess, því að þá komu
fram fyrstu íslenzku leikritin. Voru
mörg þeirra frumflutt í Iðnó, húsi
Iðnaðarmannafélagsins. Þar var
Leikfélagið til húsa frá upphafi og
allt til ársins 1989, þegar það flutt-
ist með starfsemi sína í Borgarleik-
húsið, sem Reykjavíkurborg reisti í
samvinnu við LR.
Á frímerkinu sést Iðnó, og vissu-
lega fer ekki illa á því, að í for-
grunni sé mynd af frú Stefaníu í
hlutverki Áslaugar álfkonu í Nýárs-
nóttinni eftir Indriða Einarsson. Því
miður eru margir mér sammála um
það, að frímerki þetta sé ekki nógu
vel gert, og mynd sú, sem á að
vera af Stefaníu Guðmundsdóttur,
ekkert lík henni.
Þetta frímerki, sem er að verð-
gildi 100 kr., hannaði Steinþór Sig-
urðsson listmálari. Frímerkið var
offsetprentað í Hollandi hjá Joh.
Enschedé.
Annað félag átti einnig aldaraf-
mæli á þessu ári, Hið íslenzka
prentarafélag, sem hvarf raunar
árið 1980 inn í nýtt félag, Félag
bókagerðarmanna (FBM), þegar
það sameinaðist Bókbindarafélagi
Islands og Grafíska sveinafélaginu.
Rætur þessa félags ná samt engu
að síður aftur um eina öld. Félagið
er allíjölmennt, um 1.000 manns,
enda eru innan vébanda þess nær
allir þeir, sem starfa að bókagerð
með einhverjum hætti.
Frímerki þetta er að verðgildi 90
kr. Það hönnuðu þeir Jón Ágúst
Pálmason og Tryggvi T. Tryggva-
FRÍMERKI Pósts og síma hf.
í september og október.
son. Það var síðan offsetprentað
hjá sömu prentsmiðju í Hollandi og
prentaði Leikfélags-merkið.
Á Degi frímerkisins, 9. október,
kom út smáörk, svo sem venja hef-
ur verið um mörg ár. Segja má, að
þessi örk sé orðin eina táknið, sem
minnir á þennan dag. Fyrst framan
af var verulegt líf í Degi frímerkis-
ins meðal íslenzkra frímerkjasafn-
ara, en því miður er hann nú næst-
um horfinn úr lífi þeirra. Hið eina,
sem gerist, er útgáfa smáarkar með
yfirverði, sem rennur í Frímerkja-
og póstsögusjóð póststjómarinnar.
Þetta yfirverð getur numið tölu-
verðu fé, sem síðan er notað til
ýmissa verkefna, sem mörg hver
tengjast frímerkjum og póstsögu-
legu efni með margvíslegum hætti.
Þetta er ekki heldur óeðlileg ráð-
stöfun, því að staðreyndin er sú,
að það munu nær eingöngu íslenzk-
ir og erlendir frímerkjasafnarar,
sem kaupa þessar arkir og þá auð-
vitað mest til söfnunar. Satt bezt
að segja, hef ég aldrei orðið var við
frímerki úr þessum smáörkum á
venjulegum póstsendingum hér inn-
anlands. Þess vegna er enginn efi
á því, að umslög með þessum frí-
merkjum og þá að sjálfsögðu með
réttu burðargjaldi verða góðir safn-
gripir á næstu öld. Þetta skyldu
þeir athuga, sem vilja gleðja unga
vini sína og ættingja með góðu frí-
merkjaefni.
Hin nýja smáörk er helguð ís-
lenzkum árabátum, sem voru um
langan aldur einu farartæki íslend-
inga með sjó fram og svo við sjávar-
síðuna til að draga björg í bú úr
nægtabúri hafsins.
Þijú verðgildi eru í örkinni, sam-
tals 200 kr. til burðargjalds, en að
auki er svo 50 kr., sem renna í
áðumefndan Póstsögusjóð. Á
lægsta verðgildinu, 35 kr., er teikn-
ing af áttæringi, sem hér er sýndur
með loggortusegl, eins og segir í
tilkynningu póstsins. Þau munu
ekki hafa tíðkazt fyrr en um miðja
19. öld. Jafnframt er tekið fram,
að vertíðarskip Vestmannaeyinga
hafi á síðustu öld verið áttæringar.
Þóttu þau afburðagóð sjóskip, en
eru löngu horfin úr sögunni. - Á
65 kr. verðgildi er teikning af báti
með svonefndu Engeyjarlagi, en
það var ráðandi á Faxaflóa á 19.
öld. - Á 100 kr. frímerki er teikn-
ing af báti með svonefndu breiðf-
irzku lagi. Er það flutningaskipið
Egill, en það var smíðað 1904.
Hönnuðir þessarar smáarkar eru
Hlynur Ólafsson og Bjarni Jónsson,
en síðan var hún prentuð hjá BDT
í Englandi. Margir era sammála um
það, að hér hafi tæplega nógu vel
til tekizt, hvorki um útfærslu sjálfr-
ar arkarinnar né prentun. Frímerk-
in sjálf í örkinni era nær litlaus,
og þessi ljósguli litur umgjarðarinn-
ar er ekki skemmtilegur. Þessi örk
á Degi frímerkisins er að mínum
dómi hin sízta, sem Póstur og sími
hefur gefíð út til þessa.
Jón Aðalsteinn Jónsson
LYFJA
Lágmúla 5
Opið alla daga kl. 9-24
I dag er 25% afsláttur
af nýjasta nikótínlyfmu
frá Nicorette:
IMICORETTE
innsogslyf
-kjarnimálsins!
P A T I U M
i I t l i T Y l K
Frönsk hönnun
framleidd í Tékklandi
Opið sunnudaga kl. 13-17
Nýbýlavegi 30, simi 554 6300.
Top p uri n n
,. í eldunartækjum
Blomberg
\U»r
Blomberg Excelleent
fyrir þá, sem vilja
aðeins það besta!