Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 84

Morgunblaðið - 05.12.1997, Síða 84
Jiewu&l -setur brag á sérhvern dag! Sparaðu tíma, sparaðu peninga 'feÚNAÐARBANKlNN traiutur banki MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Verk Errós og Dana- drottningar á Listahátíð EINN af helstu viðburðum Lista- hátíðar í Reykjavík 1998 verður sýning á verkum úr Errósafni í Hafnarhúsinu. Er opnun sýning- arinnar fyrsti dagskrárliður há- tíðarinnar en við sama tækifæri verður fyrsti hluti Hafnarhússins formlega tekinn í notkun. Erró mun einnig sýna myndir í nýju galleríi Sævars Karls við Banka- stræti en listamaðurinn hefur ekki tekið þátt í Listahátið í Reykjavík í tvo áratugi. Erró hefur jafnframt hannað veggspjald hátíðarinnar en, að sögn Þórunnar Sigurðardóttur formanns framkvæmdastjórnar hennar, hefur hann ekki tekið að sér verkefni af því tagi um Iangt árabil. Listahátíð verður sett 16. maí 1998 og stendur til 7. júní. Ligg- ur dagskrá nú fyrir í grundvall- aratriðum. Meðal annarra gesta á hátíðinni má nefna rússnesku söngkonuna Galinu Gortsjakovu, franska hljómsveitarstjórann Yan Pascal Tortelier, barokktón- listarmanninn Jordi Savall, dans- höfundana Jirí Kylián og Jorma Uotinen, Nederlands Dans Theater, Les Ballets Africains frá Gíneu, Chilingirian strengja- kvartettinn, með Asdísi Valdi- marsdóttur innanborðs, nýlista- konuna Louise Bourgeois og myndlistarmanninn Max Ernst. Allt er þetta Iistafólk í fremstu röð á sínu sviði í heiminum. Þá verður á hátíðinni sýning á höklum og altarisklæðum eftir Margréti Þórhildi Danadrottn- ingu og efnt til tónleika henni til heiðurs í Þjóðleikhúsinu, þar sem fram koma Caput-hópurinn og Danski útvarpskórinn. ■ Andstæður/42 Samgönguráðherra á Alþingi Breiðband í þágu íj ölmiðlafrelsis ÁHERSLA Pósts og síma á breið- bandsvæðingu var gagnrýnd í utan- dagskrárumræðum á Alþingi í gær. Halldór Blöndal samgönguráðherra sagði að tengikostnaðurinn gæti numið 50-60 þús. kr. á hvert heimili. Ráðherra sagði að hann og fleiri hefðu ekki barist fyrir frjálsum út- varpsrekstri í landinu á sínum tíma til þess að breyta einokun eins aðila í einokun tveggja. Ein ástæða þess að menn vildu koma umferð á breið- bandið væri að gefa sem flestum kost á að nýta það og auka þannig fjölmiðlafrelsi í þjóðfélaginu. Guðmundur Arni Stefánsson, þingflokld jafnaðarmanna, var máls- hefjandi og sagði að rætt væri um að breiðbandsvæðingin gæti kallað á 5 milljarða króna fjárfestingu á næstu þremur árum. Hann kvaðst efast um að þörfin væri svo brýn og ástæða væri til að benda á að möguleikar samnetsins og annarrar fyrirliggj- andi tækni væru langt í frá fullnýtt- ir. Þráðlaus boðskipti væru i örri þróun og framtíðin lægi þar, ekki síður en í köplum og þráðum í jörðu. ■ Kostnaður gæti/18 Rætt um að leggja mengunarskatt á flug Hækka farseðlar til Danmerkur um « 1.200-1.900 kr.? Rannsakað verði hvort Hækkun um 1,2 milljarða FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykja- víkurborgar, sem var til umræðu í borgarstjórn í gær, gerir ráð fyrir að tekjur borgarsjóðs hækki um 1.190 milljónir og rekstrargjöld um 1.235 milljónir frá áætlun þessa árs. Áætlað er að launakostnaður borgarinnar hækki á næsta ári um 700 milljónir. Reiknað er með að útsvarstekjur hækki um 1.075 milljónir, m.a. vegna launahækk- ana. ■ Fjárhagsáætlun/43 skattstofur misbeiti valdi RÍKISSKATTSTJÓRI hefur farið þess á leit við ríkisendurskoðun að rannsakað verði hvort ásak- anir um misbeitingu valds skattstjóra á landinu eða embættis ríkisskattstjóra eigi við rök að styðjast. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi sagði í gær að nú stæði yfir úttekt á skattstofum lands- ins og þetta atriði yrði sennilega skoðað með því að athuga vinnureglur og kanna hvort um væri að ræða einhver dæmi, sem hægt væri að bera saman. Úttekt Ríkisendurskoðunar myndi senni- lega liggja fyrir í janúar eða febrúar. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði í ræðu á flokks- og formannafundi Sjálfstæðisflokksins á laugardag, að ástæða væri til að athuga hvort stofna bæri embætti umboðsmanns almennings gagnvart skattyfirvöldum. Hann sagði í viðtali, sem birtist í Morgunblaðinu á þriðjudag, að borið hefði á því erlendis að skattheimtumenn hefðu misbeitt valdi sínu og kvaðst telja ástæðu til að ætla að svipað kynni að hafa gerst hér á landi. Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs, sagði þá að hann heyrði mikið kvartað undan vinnubrögðum skatt- yfirvalda og því væri hugmyndin um umboðs- mann þörf. Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóri gagn- rýndi umfjöllun um þetta mál í samtali við Morg- unblaðið í gær og benti á að ekkert dæmi hefði verið nefnt um að skattstofan hefði misbeitt valdi sínu. „Við höfum beðið Ríkisendurskoðun að kanna þessi ummæli," sagði Garðar um þá umræðu, sem skapast hefði í kjölfar ræðu forsætisráð- herra. „Við höfum beðið um að þetta verði sér- staklega skoðað með það íyrir augum að-leiða í Ijós hvort ásakanir um brot á meðalhófsreglu eigi við rök að styðjast." Ásakanir um ofríki og ósanngirni í bréfi Garðars til Sigurðar segir að sam- kvæmt ummælum, sem birst hafi í fjölmiðlum undanfarna daga, hafi komið fram kvartanir „til stjómvalda frá gjaldendum og löggiltum endur- skoðendum um að einstakir aðilar í skattkerfinu sýni þeim ofríki, ósanngimi og framkomu sem ekki sé sæmandi og ástæða sé til þess að ætla að starfsmenn skattkerfisins hafi beitt valdi sínu óleyfilega og gangi með óhæfilegum hætti að fólki með fresti og kröfur um upplýsingar“. ÝMIS sjónarmið em uppi varðandi mengunarvarnir í flugi, t.d. að leggja á mengunarskatta. I erindi á flugþingi í gær nefndi Þorgeir Páls- son flugmálastjóri að slíkir skattar gætu leitt til hækkunar fargjalda og minni fjárfestinga flugfélaga. Sem dæmi nefndi hann að skattur á far- gjald á leiðinni milli Reykjavíkur og Kaupmannahafnar gæti numið 1.200 til 1.900 krónum hvora leið. Þorgeir sagði mikilvægt að flug- málastjórn, flugrekendur og þeir sem stunduðu einkaflug tækju upp stefnumótun í umhverfismálum, þar \.U?y/æri enginn undanskilinn. Hann Ríkisskattstjóri leitar til Rikisendurskoðunar sagði formlega stefnu Flugmála- stjórnar ekki til, hún væri í mótun en hér væri unnið eftir alþjóðlegum og evrópskum reglum og stöðlum. Magnús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri umhverfisráðuneytis, sagði að í stað boða og banna væri nú lögð aukin áhersla á að nýta hagstjórn- artæki, umhverfisgjöld og skatta til að reyna að draga sem mest úr um- hverfisáhrifum. Hann sagði að heildarlosun kolmónoxíða frá flug- vélum hefði dregist saman um meira en tvo þriðju hluta á síðustu 15 árum og að losun á óbrunnu elds- neyti og sóti hefði minnkað ennnþá meira, þarna færu saman betri nýt- ing á eldsneyti og umhverfisvemd- arsjónarmið. Um það bil 2% af heildarlosun í heiminum kæmu frá alþjóðaflugi. Gert væri ráð fyrir að flugið ykist um 5% á næstu árum en losun kolmónoxíðs myndi vaxa eitt- hvað minna vegna tækniframfara, stærri véla og betri flugumferðar- stjórnar. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Jólasúkkulaðið svíkur engan ÞAU tóku forskot á sæluna, börn- in í 1.-4. bekk heilsdagsskólans í Hvassaleiti, og brugðu sér á veit- ingahúsið Lækjarbrekku ásamt kennurum sínum. Erindið var að fá sér sopa af gómsætu jólasúkkulaði með rjóma - og svo sporðrenndu þau auðvitað nokkrum kökum um leið. Jólaljós- in allt í kring gerðu sitt til að auka enn frekar á jólastemmning- una.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.