Morgunblaðið - 23.01.1998, Síða 1
72 SIÐUR B/C
18. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fyrsta útimessa Jóhannesar Páls II páfa á Kúbu
Gagnrýndi stöðu kirkj-
unnar og* fóstureyðingar
Santa Clara. Reuters.
JOHANNES Páll II páfi réðst
harkalega á það að fóstureyðingar
skuli leyfðar á Kúbu, í fyrstu mess-
unni, sem hann heldur þar í landi.
Messaði páfi undir berum himni í
borginni Santa Clara að viðstöddum
um 50.000 manns. Var messunni
sjónvarpað beint á Kúbu en ákvörð-
un um það var tekin á síðustu
stundu. Fjöldi fóstureyðinga er
framkvæmdur á hverju ári á Kúbu
og í fyrra urðu þær fleiri en barns-
fæðingar.
Páfí gagmýndi þjóðfélög þar sem
fóstureyðingar væru leyfðar, en
slíkt væri ætíð, auk þess að vera
glæpur, „heimskuleg þrautpíning
manneskjunnar og samfélagsins". Pá
sagði páfí að allt of margt ungt fólk
gerði sig bert að lauslæti og allt of
auðvelt væri að fá lausn sinna mála
með fóstureyðingu.
Búast má við að páfi hafi rætt fóst-
ureyðingar og hjónaskilnaði á fundi
sem hann átti með Fidel Castro, leið-
toga Kúbu, í nótt að íslenskum tíma.
Castro og páfí áttu viðræður árið
1996 og þá kvaðst Castro mótfallinn
fóstureyðingum, þótt þær væru
leyfðar.
Páfí nefndi einnig stöðu kaþólsku
kirkjunnar á Kúbu en skólum á veg-
um kirkjunnar var lokað snemma á
sjöunda áratugnum. Sagði páfí að
stjórnvöld hefðu ekki rétt á að „yfir-
taka hlutverk foreldra". Þeir ættu að
geta valið börnum sínum menntun
sem tæki mið af trúnni. Var orðum
hans ákaft fagnað.
Santa Clara er ekki síst þekkt fyr-
ir að þar eru jarðneskar leifar bylt-
ingarhetjunnar Che Guevara grafn-
ar. Alls kyns minjagripir tengdir
Che njóta mikilla vinsælda en þeir
hafa orðið að víkja fyrir myndum,
derhúfum og öðru tengdu komu
páfa.
í dag messar páfi í borginni
Camaguay.
■ Castro segir margt iíkt/20
Reuters
KAÞÓLIKKAR flykktust til
borgarinnar Santa Clara í gær
til að hlýða á messu páfa.
Hvergi
nema á
Italíu
Róm. The Daily Telegraph.
LEIGUMORÐINGI á vegum
mafíunnar fékk það verkefni
að myrða konu sem hafði
óhlýðnast skipunum yfir-
manns síns, en morðinginn
varð ástfanginn af konunni
áður en hann gat lokið verk-
inu.
Hann heitir Pietro Mancuso,
32 ára, og konan heitir
Francesca Gemelli, 29 ára.
Þau búa nú saman og njóta
lögregluverndar eftir að hafa
veitt yfírvöldum upplýsingar
er leitt hafa til handtöku 19
fíkniefnasala.
Arafat fundar með
Bandaríkjaforseta
Clinton
telur
„mikið
í húfí“
YASSER Arafat, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, sagði í
gær að hann hefði á fundi sínum með
Bill Clinton, Bandaríkjaforseta, farið
fram á að Bandaríkjamenn legðu
hai-t að ísraelum að flytja á brott
herlið sitt frá stærri svæðum á Vest-
urbakkanum. Arafat sagðist „ekki
vera að biðja um tunglið".
Forsetarnir áttu tvo fundi í gær,
en eftir fyrri fundinn sagðist Clinton
telja að „mikið væri í húfi“ að friðar-
umleitunum í Mið-Austurlöndum
yi'ði komið af stað. Fréttaskýrendur
segja að á fundinum með Arafat í
gær hafí Clinton ítrekað nauðsyn
þess að kröfur Palestínumanna um
skil ísraela á landi á Vesturbakkan-
um byggðust á raunsæi. Þá hafí
Clinton lagt til að Ai'afat héldi fund
með Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, fyrir mOligöngu
Bandaríkjamanna.
Af þeim svæðum sem Israelar
hersátu hafa þeir þegar látið heima-
stjórn Palestínumanna eftir allt
Gazasvæðið og 27% Vesturbakkans.
Ekki mikill árangur
Ekki er tekið fram í samningum
ísraela og Palestínumanna hversu
miklu meira land ísraelum beri að
láta af hendi, en Netanyahu, hefur
sagt að skilyrði fyrir frekara
landafsali séu þau að Palestínumenn
beiti sér af harðfylgi gegn hermdar-
verkum múslímskra öfgamanna og
að heimastjórn þeirra afturkalli op-
inberlega kröfu um að Israelsríki
; verði eytt.
Eftir fundinn í Hvíta húsinu í gær
var ekkert sem benti til að mikill ár-
angur hefði náðst, en Arafat lagði
áherslu á mikilvægi þess að Banda-
ríkjaforseti beitti áhrifum sínum, og
kvaðst Arafat þess fullviss að þátt-
taka Clintons myndi tryggja að frið-
t arumleitanir kæmust á.
Reuters
KENNETH Starr ræðir við Qölmiðla úti fyrir skrifstofu sinni í gær.
Bill Clinton harðneitar
ásökunum um misferli
Washington. Reuters.
BANDARÍSKI saksóknarinn Kenneth Starr, sem
stjómar rannsókn Whitewater-málsins, sagði í
gær að athugun á nýjustu ásökununum í garð Bills
Clintons, forseta, myndi hefjast án tafar. Sagðist
Starr fullviss um að komist yrði að hinu sanna í
málinu.
Forsetinn er nú ásakaður um að hafa átt í ástar-
sambandi við 24 ára stúlku er var í starfsnámi í
Hvíta húsinu og reynt að hindra framgang réttvís-
innar með því að hvetja stúlkuna, Monicu Lewin-
sky, til meinsæris með því að ljúga til um sam-
bandið er hún bæri vitni í máli Paulu Jones gegn
Clinton. Þá beinist athygli fjölmiðla einnig að því,
hvort forsetinn hafí sjálfur borið ljúgvitni.
Clinton segir ekkert hæft í þessum ásökunum.
Starr sagðist í gær ekki sjá neitt athugavert við
þær aðferðir sem beitt hefði verið við rannsókn
málsins, en fregnir herma að m.a. hafí upptöku-
tæki verið falið á Lindu Tripp, vinkonu Lewin-
skys, og samtöl þeirra um meint samband Lewin-
skys við Clinton tekin upp án hennar vitundai'.
í yfirlýsingu frá skrifstofu Starrs á miðvikudag
voru staðfestar fregnir þess efnis að rannsókn
hans á Whitewater-málinu svonefnda, er snýst um
meint fjármálamisferli Clinton-hjónanna er forset-
inn var ríkisstjóri í Arkansas, hefði verið aukin og
næði nú yfir mál Lewinskys.
Starr sagði í gær að þær rannsóknaraðferðir
sem beitt hefði verið væru „hefðbundnar lög-
gæsluaðferðir. Við sinnum þessari rannsókn með
sama hætti og hverri annarri," sagði hann við
fréttamenn í gær.
Forsetinn sat í gær fundi með lögfræðilegum
ráðgjöfum sínum, en Starr sendi forsetaembætt-
inu stefnu á miðvikudag þai- sem farið var fram á
að lögð yrðu fram gögn er tengdust málinu.
Fréttastofan AP sagði í gær að á meðal þess sem
farið hefði verið fram á væru skjöl þar sem greint
væri frá því hvenær Lewinsky hefði farið inn í
Hvíta húsið og út úr því.
Clinton sagði í gær að hann myndi veita nánari
upplýsingar um tengsl sín við Lewinsky. „Það er
fjöldinn allur af spurningum sem ég tel viðeig-
andi,“ sagði forsetinn við fréttamenn. „Þið eigið
rétt á að spyrja þeirra og bandaríska þjóðin á rétt
á að fá svör.“
The Washington Post greindi frá því í gær að
bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefði í síðustu
viku tekið upp samtal Lewinskys við Tripp, og síð-
an reynt að telja hana á að leggja Starr lið í rann-
sókn hans. Sagði blaðið að Clinton hefði neitað því,
eiðsvarinn, að hafa átt í ástarsambandi við Lewin-
sky, en játað að hafa gefíð henni gjafir. Var Starr
sagður vera að kanna hvað hæft væri í fregnum
um að forsetinn hefði m.a. gefið Lewinsky kjól.
George Stephanopoulos, sem var fyrrum einn
helsti ráðgjafi forsetans, sagði í viðtali við ABC-
sjónvarpið að það væri ekki óalgengt að forseti
gæfí gjafir, „en ég held að það geti verið erfitt að
útskýi-a af hverju [hann] var að senda lærlingi
kjól“.
■ Clinton í meiri vanda /30