Morgunblaðið - 23.01.1998, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
kDANSHUSIÐ
\V
V
Artún
Vagnhöfða 11, sími 567 4090 og 898 4160, fax 567 4092.
Dansleikur föstudagskvöld.
Húsið opnar kl. 22.30.
syngur og leikur blandaða tónlist.
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó og Háskólabíó hafa ásamt Borgarbíói á Akur-
eyri tekið til sýningar myndina Alien Resurrection. Þetta er fjórða Alien-
myndin og eins og jafnan er Sigourney Weaver í aðalhiutverki, nú ásamt
Winonu Ryder. Leikstjóri er hinn franski Jean-Pierre Jeunet, höfundur
Delicatessen og The City of Lost Children.
Laugardagskvöld: Harmonikufélag Reykjavíkur.
Ragnheiður Hauksdóttir syngur
V
Neeturgaurm
Y
Smiðjuvcgi 14, ‘Kppavogi, sími 587 6080
‘Dansstaður
Föstudags- og laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms
Sunnudagskvöld leikur hljómsveit
Hjördísar Geirs
L.V gömlu og nýju dansana M
__ ■ —-MnBfrsk!
Paul IMunan
um helgina
„Allt f grœnuni sjó á káfasfu kráBD!
í iœcuiB pessa ielgf”
afnarstræti
íSetri stofan
-glœsilegur ueilsusalur pið
öll fcel^ifæri
ISrúðljaup, þorrablól, fermingar, afmœli, baraj
nefndu það, jafnf fyrir sfóra sem smáa þópa.
Pantið TÍMANLEGA
Gjörið svo vel og
HAFIÐ SAMBAND í SÍMUM
562 5530 og 562 5540
Kljómsueifin Kálft í þporu leiþur farir ðansi
fösfudags- og laugardagsljuöld.
affi Re'jbia^íb —— þar sem sluðið er
RIPLEY (Sigourney Weaver) er reist upp frá dauðum.
Ripley rís
upp frá
dauðum
Winona var 10
ára þegar hún
fór að sjá
fyrstu Alien-
myndina árið
1978.
ALIEN 3 lauk þannig að söguhetjan,
Ripley (Sigourney Weaver), beið bana
og var þá sjálf orðin hýsill fyrir ófreskj-
una, sem þrjár myndir höfðu snúist um að berj-
ast gegn. Það virtust vera skilaboð um að nú
væri þessari framhaldsröð lokið en annað er
komið á daginn. Það er búið að endurlífga
Ripley og hún á enn í höggi við ógnvænlegar
lífverur utan úr geimi.
Það var handritshöfundurinn Joss Whedon
sem fékk það verkefni að búa til handrit að
fjórðu Alien-myndinni og komast framhjá þeim
hnöki-a að aðalsþguhetjan beið bana í lok síð-
ustu myndar. Útkoman varð að endurkoma
Ripley er nokkurs konar þema myndarinnar.
Hún endurholdgast sem nýr karakter eftir að
hafa gengið í gegnum dauðann.
„Hún er búin að sjá allt og gera allt, meira að
segja deyja,“ segir Joss Whedon. „Hún lætur
ekkert koma sér úr jafnvægi. Vegna þess sem
á undan er gengið getur hún litið á þetta með
gráglettnum húmor.“
An Ripley yrðu engar Alien-myndir. Sigour-
■■■hhmhbhbhbb ney Weaver segir að
handrit Whedons hafi
haft á sér nægilega
ferskan blæ til þess að
hún var tilbúin að leika í
fjórðu myndinni. „Það
sem dró mig að mynd-
inni var sú hugmynd að
Ripley byrjaði með.
hreint borð en svo kæmi í ljós að hún er ekki öll
þar sem hún er séð,“ segir Sigourney. „í þess-
ari mynd þurfti Ripley ekki alltaf að standa
vörð um það sem er gott og rétt eins og hún
þurfti að gera í fyrri myndunum. Það færði
karakternum frelsi og gaf mér frelsi sem leik-
ara.“
í nýju myndinni er bætt við persónunni Call,
sem Winona Ryder leikur. Winona var 10 ára
þegar hún fór að sjá fyrstu Alien-myndina sem
Sigourney Weaver lék í árið 1978. Hún varð
strax aðdáandi, sérstaklega af því að hetjan var
kona. „Þegar mér bauðst svo að vera með varð
ég að segja já,“ segir Winona.
Persónan Call er hluti af smyglaragengi sem
Ripley verður að taka höndum saman við til
þess að berjast við óværuna. Baráttan felst í að
hindra erfðavísindamenn í að fikta við hluti
sem gætu haft ógnvænlegar afleiðingar. Þegar
þeir missa tök á atburðarásinni neyðist hin
endurfædda Ripley til að hefja þetta nýja líf á
sama stað og hinu gamla lauk, þ.e.a.s. í bar-
daga við ókindina. Þá þarf hún að ganga í
bandalag við smyglarana. Vélvirkinn Call er
þar í lykilhlutverki; hún hefur á valdi sínu að
endurleysa Ripley eða senda hana út í ystu
myrkur.
Jean-Pierre Jeunet, franski leikstjórinn, sem
ásamt Marc Caro gerði tvær þekktar myndir,
Delicatessen og The City of Lost Children, var
fenginn til Ameinku til þess að leikstýra Alien
Resurrection. Hinum sjónrænu og sérstæðu
myndum Jeunets og Caros gleymir ekki sá sem
séð hefur, a.m.k. ekki mannætunum í
Delicatessen. Þetta er í fýrsta skipti sem Jeu-
net leikstýrir mynd sem hann skrifar ekki jafn-
framt handritið að. Ein helsta ástæða þess að
hann vildi slást í hópinn var aðdáun á Sigourn-
ey Weaver, en einnig segist hann
hafa séð ýmis viðfangsefni í handrit-
inu sem tengjast hans fyrri mynd-
um, svo sem að söguþráðurinn fjall-
ar um sundurleitan hóp fólks sem
hrærist á jaðri samfélagsins og
stendur frammi fyrir því verkefni að
lifa þar sem ekkert líf virðist geta
þrifist. Einnig er vísindunum þarna
teflt íram sem illu afli. Jeunet tók
með sér tvo leikara úr myndum sín-
um, Dominique Pinon og Ron
Perlman. Hann ber einnig mikið lof
á stjörnur myndarinnar, sérstak-
lega Sigourney.
WINONA Ryder leikur Call, sem slæst í lið með Ripley í
baráttunni við óværuna.
Lambalœri bearnaise kr. 790.
Súpa og heimilismatur í hádegi aðeins kr. 590.
Hamborgaratilboð — Pizzutilboð.
WjöCCíHóCm sér um dansinn.
CataUna
Itamraborg 11,
sími 554 2166
Frumsýning