Morgunblaðið - 23.01.1998, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.01.1998, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Góðar gjafír hafa borist til Barnaspítala Hringsins frá Lionsmönnum Fjármálaráðuneytið Morgunblaðið/Golli AUK maga- og lungnaspeglunartækja gáfu félagar í Lionskúbbnum HALLGRÍMUR Guðjónsson meltingarfærasérfræðingur skoðar Þór Fjörgyn Barnaspítala Hringsins leikföng í gær. Atli Snær í bamastól. Steinarsson Lionsmann með nýju tækjunum. Auðvelda flóknar rannsóknir á börnum FÉLAGAR í Lionsklúbbnum Fjörgyn í Grafarvogi afhentu í gær Barnaspítala Hringsins að gjöf magaspegiunartæki og lungnaspeglunartæki sem kosta allt að þrjár milljónir króna. Að sögn Ásgeirs Haraldssonar forstöðulæknis Barnaspitalans hafa tækin þegar verið tekin í notkun en þau munu auðvelda til muna flóknar maga- og lungna- speglunarrannsóknir bama. Segir hann að tækin séu með þeim bestu sem þekkjast í dag, en þegar böm séu rannsökuð þurfi tækin að vera minni og mjórri en ella. Auk tækjanna gáfu Lionsfélagar leikföng til Barnaspitalans. Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur, að sögn Ásgeirs, gefið Barnaspítala Hringsins veglegar gjafír undanfarin ár. Má þar nefna öndunarvélar og hitakassa sem Lionsmenn gáfu í samvinnu við Bónus-verslanirnar. Þá getur hann þess að Lionsklúbburinn standi um þessar mundir að söfn- un fjár til að bæta aðbúnað og umönnun barna sem leggjast inn á Barnaspítala Hringsins vegna brunaslysa. Skipun skatta- nefndar undirbiíin SKATTAMÁL voru rædd á fundi, sem haldinn var í fjármálaráðu- neytinu í gær, og verður unnið að undirbúningi þess að slripuð verði nefnd til að fara ofan í ákveðna þætti þessara mála. „Við ræddum hvaða atriðum þyrfti að taka á,“ sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra í gær. „Niðurstaðan var sú að halda áfram að vinna að þessum málum og þar á meðal að setja niður starfslýsingu hugsanlegrar nefnd- ar.“ Meðal þeirra umbóta, sem Frið- rik hefur sagt að komi til greina á skattkerfínu, er að gera ísland að einu skattumdæmi og koma á kerfí forúrskurða þannig að hægt verði að fá skorið fyrirfram úr ágrein- ingsefnum í skattamálum. Félagsdómur vísaði verkbannsmálinu frá FÉLAGSDÓMUR vísaði í gær frá máli sem Sjómannasambandið höfðaði gegn Vinnuveitendasam- bandinu vegna verkbanns sem það boðaði á sjómenn. Ástæðan er sú að boðuðu verkbanni hafði verið aflýst. Hugsanlegt er að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar eða að höfð- að verði nýtt mál fyrir félagsdómi. Sjómannasambandið höfðaði málið vegna þess að það taldi að framkvæmdastjórn Vinnuveitenda- sambandsins hefði ekki verið heim- ilt að taka ákvörðun um að láta fara fram atkvæðagreiðslu um verk- bann. Slíka ákvörðun hefðu útvegs- mannafélögin, sem mynda LÍÚ, átt að taka. Verkbannið var boðað 2. janúar og átti það að ná til félaga í Sjómannasambandinu og Far- manna- og fiskimannasambandinu sem starfa á skipum með aðalvél 1501 kw og stærri. 19. desember var tekin ákvörðun um að fresta verkbanninu til 20. janúar eftir að Vélstjórafélagið hafði frestað boð- uðu verkfalli. Eftir að vélstjórar frestuðu verkfallinu aftur til 2. febráar var verkbanninu aflýst, en hins vegar ákváðu útvegsmenn að láta fara fram nýja atkvæða- greiðslu um verkbann sem taka átti til sjómanna í félögum sem fellt höfðu tillögu um verkfall 2. febrúar og vélstjóra sem ekki höfðu boðað verkfall. Áfrýjað eða nýtt mál höfðað Málflutningur í verkbannsmálinu fór fram daginn eftir að tekin hafði verið ákvörðun um að aflýsa verk- banninu. Lögmaður Sjómannasam- bandsins óskaði eftir því að félags- dómur kvæði engu að síður upp úr- skurð í málinu vegna þess að út- vegsmenn hefðu ákveðið að láta greiða atkvæði um nýtt verkbann. Staðið væri að atkvæðagreiðslunni með sama hætti og í því máli sem stefnt hefði verið fyrir dóminn. Lögmaður VSI mótmælti þessari ósk ekki. Lögmennimir töldu því báðir að málsaðilar hefðu hag af því að fá úrskurð í málinu. Félagsdómur lét það hins vegar ráða niðurstöðunni að búið væri að aflýsa verkbanninu. Sú ákvörðun sem Sjómannasambandið taldi ólögmæta hefði því engin réttar- áhrif og sambandið hefði því enga lögvarða hagsmuni í þessu máli. Af þessu leiddi að líta yrði svo á að í kröfu Sjómannasambandsins fælist krafa um álit félagsdóms á lög- fræðilegu álitamáli án þess að úr- lausn deilumálsins hefði efnislega þýðingu í málinu. Lögfræðingur Sjómannasam- bandsins á nú tvo kosti, annars veg- ar að áfrýja málinu til Hæstaréttar og hins vegar að höfða nýtt mál vegna verkbannsins sem boðað var í síðustu viku. Hæstiréttur mun ekki kveða upp efnislegan úrskurð heldur getur hann aðeins staðfest úrskurð félagsdóms eða gert hon- um að taka efnislega á málinu. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Færri fæðingar í Reykjavík Á SÍÐASTLIÐNU ári fæddust 2.748 börn á fæðingardeild Land- spítalans, 122 færri en árið á und- an, en þá voru fæðingar á deild- inni 2.870, að sögn Kristínar Viktorsdóttur aðstoðaryfírljós- móður. Á landinu öllu fæddust 4.329 börn árið 1996, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu ís- Iands, en endanlegar tölur fyrir árið 1997 eru ekki komnar. Með- altal fæðinga á íslandi á árunum 1986-1990 var 4.415 og 4.497 árin 1991-1995. Korthafar VISA Jólareikn- ingurinn 6,3 millj- arðar VIÐSKIPTI með VISA- greiðslu fyrir jólin, sem koma til greiðslu nú í byrjun febrú- ar, námu samtals 6,3 milljörð- um króna. Er það um 1,2 milljörðum króna meira en í meðalmánuði og um 700 millj- ónum hærri fjárhæð en í fyrra, sem er 12% hækkun. Viðskipti með VISA Electro debetkortum í desember námu áþekkri fjárhæð eða 6,2 milljörðum króna, sem er 2,2 milljörðum hærri fjárhæð en árið á undan. Þá sömdu korthafar VISA um raðgreiðslur fyrir um 800 milljónir vegna stærri við- skipta, sem koma til greiðslu á næstu 36 mánuðum. í heild námu því viðskipti með VISA- kortum á þessu tímabili 13,3 milljörðum króna. Blaðanefnd stjórnmálaflokkanna leggur til að Kristín Ástgeirsdóttir fái úthlutun Þingmenn Kvennalista segir úthlutunina mistök 1 TILLÖGU formanns Blaðanefnd- ar stjómmálaflokkanna sem lögð var fram á miðvikudag er m.a. lagt til að Kn'stín Ástgeirsdóttir, fyrr- verandi þingmaður Kvennalista, fái hluta þess fjár sem þingflokki Kvennalista er reiknaður sam- kvæmt lögum og samstarfsreglum. Guðný Guðbjömsdóttir, annar af tveimur þingmönnum Kvennalista, sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki líta svo á að lokaaf- greiðsla úthlutunar úr Blaðanefnd stjórnmálaflokkanna hefði farið fram þar sem tillögur formannsins hefðu ekki verið undirritaðar. Þingmenn Kvennalistans ræddu við ýmsa aðila um málið í gær og formenn þingflokkanna ætla að hittast og ræða það í dag. Guðný segir að Kvennalistakon- ur hafí átt von á því að mál Kristín- ar Ástgeirsdóttur, sem á síðasta ári sagði sig bæði úr þingflokki Kvennalistans og Samtökum um Kvennalista, yrði afgreitt á sama hátt og mál Jóhönnu Sigurðardótt- ur sem sagði sig úr Alþýðuflokkn- um árið 1994 og hlaut í kjölfar þess einungis fé til sérfræðiaðstoðar. Þær líti svo á að um mistök sé að ræða og eigi von á því að þau verði leiðrétt. Tveir aðskildir fjárlagaliðir Guðný segir að við úthlutun á fé til útgáfumála sé um tvo aðskilda liði í fjárlögum að ræða. Annars vegar sérfræðilega aðstoð fyrir þingflokka og skýrt sé kveðið á um skiptingu þess liðs í lögum. Upp- hæðinni sem sé breytileg frá ári til árs skuli skipt jafnt á milli þing- mannanna 63 og þingflokkanna 5. Kvennalistanum finnist því full- komlega réttlátt að Kristín fái einn þessara hluta og Kvennalistinn þrjá, þ.e. einn þingflokkshluta og tvo þingmannahluta. Hinn liðurinn heiti Styrkur til út- gáfumála samkvæmt tillögum stjórnskipaðrar nefndar og skrif- legri umsókn þingflokka og um út- hlutun úr honum gildi engin lög. Þingflokkarnir hafí hins vegar komið sér saman um ákveðnar skiptireglur sem fyrir nokkrum ár- um hafi verið þær að 47% upphæð- arinnar skyldi skipt jafnt á milli þingflokka og afgangnum í hlutfalli við fjölda þingmanna. Nú sé reglan hins vegar sú að sá hluti sem skipt- ist óháð stærð flokkanna sé einung- is 12,5% og þau 87,5% sem eftir séu skiptist á milli þeirra samkvæmt atkvæðafjölda í síðustu kosningum. I tillögum formanns nefndarinn- ar hafí Kristínu Ástgeirsdóttur ekki verið ætlað neitt af 12,5% hlutnum en hins vegar hafi verið lagt til að atkvæðum Kvennalistans yrði skipt í þrennt og Kristín fengi einn þriðja hluta þess fjár sem Kvennalistanum bæri samkvæmt atkvæðafjölda. Guðný segir þetta út í hött. I fyrsta lagi sé þingflokkur skil- greindur í lögum sem samtök tveggja eða fleiri þingmanna og því geti Kristín ekki verið þingflokkur. I öðru lagi beri Kristínu, sem ein- staklingi, engin skylda til þess að gefa út blað og því geti hún allt eins stungið peningunum í vasann. Ólafur G. Einarsson þingforseti sagðist í gærkvöldi hafa hitt Kvennalistakonur vegna þessa máls í gær. Það væri greinilega um- deilanlegt og yrði skoðað. Ekki náðist í Kjartan Gunnars- son formann nefndarinnar í gær- kvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.