Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 4

Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 5 efstu sölustaðir seldra vinninga í Lottó 5/38 og Víkingalottó Allar upphæðir í þúsundum króna 1. vinningur Lottó 5/38 Bónusvinn. Víkingalottó 1. vinningur Víkingalottó Samtals vinningar 1. Happahúsið Kringlunni, Reykjavík \ 76.895 4.201 12.114 93.210 2. Nætursalan Strandgötu 6, Akureyri 36.000 2.342 44.310 82.652 3. Skalli Hraunbæ Hraunbæ102, Reykjavík 33.848 2.984 39.546 76.378 4. Gerpla Sólvallagötu 27, Reykjavík 67.499 3.675 , m 71.173 \ 5. Stjarnan Langholtsvegi 126, Reykjavík 29.941 2.394 vtH 32.336 Happahúsið er happa- drýgst í Lottóinu HAPPAHÚSIÐ í Kringlunni hefur selt flesta miða sem hafa gefið fyrsta vinning í Lottó 5/38 frá því að sala hófst. Nætursalan á Akur- eyri hefur selt næstflesta miða en Skalli í Hraunbæ í Reykjavík er í þriðja sæti yfir söluhæstu staði. Fimm staðir hafa einu sinni selt miða sem gefið hafa fyrsta vinn- ing í Víkingalóttó. Sala á lottómiðum hófst hér á landi árið 1986 og sala á miðum í Víkingalóttó árið 1993. Happa- húsið hefur 19 sinnum selt miða sem hafa gefið fyrsta vinning í Lottó 5/38. Sá fyrsti seldist í byij- un árs 1988 en sá síðasti kom í desember á Iiðnu ári. Hæsti vinningur í Happahúsinu til þessa var rúmar 15 milljónir árið 1994. Umboðið hefur einu sinni selt miða sem hefur gefið fyrsta vinning og þrisvar sinnum bónusvinninga í Víkingalottóinu. Samtals hefur Happahúsið selt fyrsta vinning í lottóunum tveim- ur auk bónusvinninga í Víkinga- lottóinu fyrir rúmar 93 milljónir króna. Birgir Steinþórsson eigandi Happahússins sagði það ánægju- legt að flestir vinningar hefðu komið á miða hjá sér enda skipti það máli hvað sölu varðar. „Það má segja að mínir dyggustu við- skiptavnir séu fullorðið fólk. Ung- lingar virðast ekki spila jafnmikið í lottóinu." Fimm fengið fyrsta vinning í Víkingalottói Nætursalan á Akureyri hefur 18 sinnum selt miða sem gefið hefur fyrsta vinning í Lottó 5/38. Bónusvinningur í Víkingalottóinu hefur komið tvisvar sinnum en fyrsti vinningur einu sinni. Það var í fyrradag og vann sá heppni rúmar 44 milljónir króna. Hann hefiir óskað eftir nafnleynd. Næt- ursalan á Akureyri hefur selt miða sem hafa gefið fyrsta vinn- ing og bónusvinning að verðmæti 82 milljónum króna. Á sama tíma hafa 76 milljónir króna fengist á miða sem seldir voru í söluturninum Skalla í Hraunbæ. Söluturninn Gerpla í Reykjavík er í fjórða sæti, hefur selt vinninga fyrir rúma 71 millj- ón króna. I fimmta sæti er sölu- turninn Stjarnan á Langholtsvegi í Reykjavík sem hefur selt miða sem hafa gefíð um 32 milljónir króna í vinning. Auk Nætursölunnar og Happa- hússins hefur fyrsti vinningur í Víkingalottóinu komið á miða frá Horninu á Selfossi, Sigló-Sport á Siglufirði og Skalla í Arbæ. MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR__________ Nýr fundarsalur fyrir Garðbæinga BÆJARSTJÓRN Garðabæjar tók í gær í notkun nýjan fundarsal á 4. hæð í tumbyggingu v'ð Garðatorg í miðbæ Garðabæjar. Salurinn er um 70 fermetrar og er í sama húsnæði og bæjarskrifstofurnar. Til þessa hafa fundir bæjarstjómar verið haldnir í safnaðarheimilinu við Kirkjulund. I maí sl. fluttu bæjarskrifstofum- ar úr Sveinatungu í nýja húsnæðið við Garðatorg og þar með samein- aðist á einn stað öll stjórnsýsla bæj- arins, sem áður var á þremur stöð- um. Bæjarskrifstofan skiptist í fjög- ur svið, félags- og heilbrigðissvið, fjármála- og stjómsýslusvið, fræðslu- og menningarsvið og tækni- og umhverfissvið. Skrifstof- an er 1.259 fermetrar að stærð auk 246 fermetra á 3., 4. og 5. hæð í turnbyggingu. Þar er aðstaða fyrir bæjarfulltrúa, fundi bæjarstjómar og fyrir nefndir sem bæjarstjórn skipar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hljóðrita fundi bæjarstjóm- ar og senda út á hljóðvarpsrásum og taka upp á myndband og dreifa á sjónvarpsrás innanhús. Ingimundur Sveinsson arkitekt hannaði innréttingarnar en hann er jafnframt hönnuður byggingarinn- ar, Verkfræðistofan Forsjá sá um vatns,- holræsa- og loftræsilagnh- og Tómas Kaaber rafiðnfræðingur sá um lagnir og lýsingu. Hönnuður húsgagna í fundarsal bæjarstjórnar er Þórdís Zoega innanhússarkitekt á teiknistofu Ingimundar Sveins- sonar en Trésmiðaverkstæði Héð- ins og Asgeirs sf. annaðist smíði þeirra. Kostnaður um 70 milljónir SETJA þarf hraðatakmarkara í um 900 vörubíla og 100 hóp- ferðabfla yfir 10 tonn að þyngd hérlendis, samkvæmt ákvæðum í reglum sem gilda í ríkjum Evr- ópubandalagsins. Samkvæmt reynslu nágrannaþjóðanna kost> ar um 70 þúsund ÍSK að setja þennan búnað í hvem bíl. Þetta er því kostnaður upp á samtals um 70 milljónir króna. Fjöldi vörubfla af þeirri stærð, þ.e. yfir 12 tonn, sem þurfa samkvæmt lögum að hafa hraðatakmarkara er um 1.440 en þar af eru hátt í 400 með búnaðinn og einhveijir þeirra, líklega 200-300 falla ekki undir reglugerðina. Um 50 hópferða- bflar eru með hraðatakmarkara. Morgunblaðid/Árni Sæberg FYRSTI fundur bæjarstjórnar Garðabæjar í nýja salnum var í gær. Benedikt Sveinsson bæjarfulltrúi er í ræðustól. Vinnuslys á Grund- artanga VINNUSLYS varð á Grund- artanga, í gær, er smiður sem var að fara niður af mótavegg steig fram hjá stiganum og féll fimm metra til jarðar. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi virtist maðurinn, sem er undirverktaki hjá ístak, við fyrstu athugunn hafa öklabrotnað og marist. Hann var fluttur á sjúkrahús til aðgerðar. Forsætisráðherra situr leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Ríga Aðildað Eystrasaltsráð- inu Islendingum í hag Ríga. Morgunblaðið. DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra átti í gær fund með Guntis Ulmanis for- seta Lettlands, en forsætisráðherra er staddur í Ríga vegna leiðtogafundar Eystrasaltsráðsins. Davíð segir í samtali við Morgunblaðið að Ulmanis hafi í viðræðum þeirra lagt áherslu á að umsókn Letta um aðild að Evrópusam- bandinu (ESB) megi rekja til öryggishagsmuna þeirra. Eystrasaltsríkin vilji sýna fram á að þau séu vestræn lýðræðisríki. Hringdu núna 09 '*ri, heí^ HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings 8006611 Fundinn í Ríga sitja forsætisráð- herra Eistlands, Lettlands, Lithá- ens, Rússlands, Póllands, Finn- lands, Svíþjóðar, Noregs, Danmerk- ur og íslands auk Helmuts Kohls, kanslara Þýskalands. Fyrir hönd Evrópusambandsins sækja fundinn þeir Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, og John Prescott, aðstoðarforsætisráðherra Bretlands, en Bretar fara nú með forystuna í ráðherraráði ESB. Fundurinn hófst með kvöldverði leiðtoganna í gærkvöld og verður haldið áfram í dag. Þá verður í dag haldinn leiðtogafundur EFTA og ESB vegna EES-samstarfsins en Islendingar fara nú með forystuna í EFTA. Davíð Oddsson segir Islendinga hafa mikilla hagsmuna að gæta varðandi efnahagslega þróun Eystrasaltssvæðisins og nefnir sem Reuter DAVÍD Oddsson og Guntis Ulmanis forseta Lettlands við upphaf viðræðnanna í gær. dæmi að viðskipti íslendinga við Eystrasaltsríkin þrjú hafi aukist verulega á síðustu árum. Hann seg- ir að gildi þátttöku íslendinga í samstarfi á borð við Barentsráðið og Eystrasaltsráðið muni koma í ljós þegar samsldpti við ríki á þess- um svæðum fari að bera arð eftir nokkur ár. Fyrirmynda leitað á íslandi Þetta er annar leiðtogafundur Eystrasaltsráðsins en sá fyrri var haldinn í Visby í Svíþjóð sumarið 1995. Davíð segir samstarfið hafa þróast mikið síðan. Fundurinn í Vis- by hafi öðru fremur verið almennur fræðslufundur. Nú sé hins vegar unnið að áþreifanlegum verkefnum og hafi íslendingar m.a. tekið þátt í að þróa réttaröryggi þeirra ríkja sem áður voru hluti Sovétríkjanna. Til dæmis hafi embætti umboðs- manns Alþingis verið tekið til fyrir- myndar varðandi gæslu réttarör- yggis einstaklinga. Valdis Birkavs, utanríkisráðherra Lettlands, segir Eystrasaltsráðið m.a. gegna því mikilvæga hlutverka að stuðla að því að draga úr mis- muni í aðstæðum ríkja við Eystra- salt. Þá sé hagsmunamál allra að draga úr skipulagðri glæpastarf- semi og draga úr tæknilegum höml- um í viðskiptum milli ríkja á svæð- inu. Verða þau mál meðal annars rædd á fundinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.