Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fyrsta Boeing 757-200 þota Flugleiða af fjórum kom til landsins 1 gærmorgun
NÝJA Flugleiðaþotan á leið inn í viðhaldsstöðina þar sem móttökuat-
höfn fór fram.
BRYNDIS er nafn nýju þotunnar. Sigríður Sigurðardóttir eys vélina
vatni úr Ilornafjarðarfljóti.
Kostar
3,5 millj-
arða
króna
BRYNDÍS er nafnið á nýrri
Boeing 757-200 þotu Flugleiða
sem lenti á Keflavíkurflugvelli
laust fyrir klukkan 11 í gærmorg-
un eftir tæplega sjö tíma flug frá
Seattle í Bandaríkjunum. TF-FIN
er hin fyrsta af fjórum 757 þotum
sem Flugleiðir hafa fest kaup á og
bætast hinar þijár í flota félags-
ins á næstu fjórum árum.
Á slaginu ellefu Iukust upp dyr
viðhaldsstöðvarinnar og var þot-
an dregin inn á gólf í viðhaldsstöð
Flugleiða á Keflavíkurflugvelli.
Áður hafði hún flogið hring yfír
höfuðborginni. I viðhaldsstöðinni
voru forráðamenn Flugleiða, hóp-
ur fyrrverandi og núverandi
starfsmanna og gestir.
Fjárfesting Flugleiða vegna
vélanna ljögurra verður á bilinu
14 til 15 milljarðar króna. Bryndís
kostaði 3,5 milljarða króna. Vara-
hreyfill á 757 þotu kostar kring-
um 400 milljónir króna.
Fyrsta skrefíð í
stækkun flugflotans
Sigurður Helgason, forstjóri
Flugleiða, sagði í ávarpi súiu að
sóknarhugur væri í fyrirtækinu
og að umferð um Keflavíkurflug-
völl hefði aukist meira en um
flesta aðra flugvelli í Evrópu. Með
tilkomu nýju þotunnar er tekið
fyrsta skrefíð til stækkunar flug-
flotans en árið 1989 hófst endur-
nýjun hans þegar keyptar voru
fyrstu 737 þotumar og síðar 757
þotur.
„Nú er komið að því að byggja
á þeim grunni sem lagður hefur
verið við endurnýjun fyrirtækis-
ins. Flugleiðir hafa mótað sér
Morgunblaðið/RAX
STJORNARMENN tóku á mdti áhöfninni. Frá vinstri: Stefán Gunnarsson og Hallgrímur Jónsson flugsljórar,
Björg Valdimarsdóttir flugfreyja, Sigurður Helgason forstjóri og stjórnarmennirnir Hörður Sigurgestsson
og Grétar Kristjánsson.
nýja stefnu um uppbyggingu og
stækkun rekstrarins," sagði for-
sljórinn. Flug til tveggja nýrra
áfangastaða hefst í aprfl, Minnea-
polis í Bandarikjunum og Helsinki
í Finnlandi. Verða áfangastaðir
félagsins í Ameríku sex og 23 í
Evrópu og öll tenging leiðanetsins
er á Keflavíkurflugvelli. „Sú flug-
þjónusta sem við höfum byggt
upp undanfarin ár, leiðakerfið,
öflugt markaðs- og sölukerfi og
áætlanir um sókn hafa staðfest
okkur í þeirri trú að við getum
náð góðum árangri og afkomu
þegar á þessu ári,“ sagði Sigurð-
ur ennfremur. Sagði hann fyrir-
tækið hafa á að skipa frábæm
starfsfólki á öllum sviðum sem
ásamt tiltrú eigenda og sóknará-
ætlunum gerði því kleift að
standa vel að vígi í samkeppni í
flugrekstri.
Helgi Ágústsson, ráðuneytis-
sljóri utanríkisráðuneytisins,
flutti ávarp ráðherra sem gat
ekki verið viðstaddur. Þar kom
fram að rekstur flugstöðvarinnar
á Keflavíkurflugvelli hefði verið
treystur til muna, hún gegndi nú
lykilhlutverki í ferðaþjónustunni
og að tekjur af ferðamönnum
fæm mjög vaxandi. Eiginkona
ráðherra, Siguijóna Sigurðar-
dóttir, jós vélina vatni úr Horna-
fjarðarfljóti, heimaslóðum ráð-
herra, um leið og hún óskaði far-
kostinum heilla.
Nýja Boeing 757 þotan tekur 189
farþega eins og aðrar þotur Flug-
leiða af sömu gerð. Stefán Gunn-
arsson eftirlitsflugstjóri var flug-
stjóri á leiðinni heim og Hallgrím-
ur Jónsson yfirflugsljóri sat í
flugmannssætinu hægra megin.
Stefán sagði þotuna búna
nokkmm tækninýjungum enda
hefði þessi gerð þróast frá því
Flugleiðir fengu fyrstu þotuna ár-
ið 1990. Allt sem sneri að flug-
mönnum væri þó hið sama enda
öryggisatriði að vél sömu tegund-
ar væri eins í meðhöndiun. Hall-
grímur sagði heimflugið hafa tek-
ið sex tíma og 42 mínútur, eins og
áætlað var. Heimkomu vélarinn-
ar var seinkað um sólarhring því
þegar vélin átti að halda frá
Seattle bilaði rafall en Hallgrímur
sagði því hafa verið kippt strax í
liðinn.
Breytingar
í farþegarými
I farþegarýminu er aðalbreyt-
ingin ný sætagerð og Saga Class
farrýmið er nokkm stærra en í
hinum þotunum. Þá er vélin búin
fleiri sjónvarpsskjám og stillirof-
ar em ofan á sætisörmum en ekki
á hlið þeirra eins og í eldri vélun-
um. Nýja vélin fer fyrstu áætlun-
arferðina til London í í dag.
Næsta nýja þota er væntanleg í
apríl á næsta ári og tvær til við-
bótar koma í mars árin 2001 og
2002. Verða þær af gerðinni 757-
300 sem em sjö metrum lengri
en 200 gerðin, tekur um 40 fleiri
farþega og hefur meira frakt-
rými. Auk þessara véla hafa
Flugleiðir kauprétt á allt að átta
B 757 þotum til viðbótar sem
kæmu til afgreiðslu til ársins
2006. Ekki er afráðið hvernig
þær munu skiptast milli 200 og
300 gerðanna.
Lögreglan í Reykjavrk leggur hald á fjölda vopna á hverju ári
80 skotvopn
síðustu ár
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur
lagt hald á töluverðan fjölda vopna
á undanfomum árum. AIls hefur
verið lagt hald á um 80 skotvopn,
allmikið af hnífum, lagvopnum, bit-
vopnum, bogum og bareflum.
Skarphéðinn Njálsson, varðstjóri
hjá Lögreglunni í Reykjavík, sagði
í samtali við Morgunblaðið að lagt
hefði verið hald á urmul vopna í
umdæminu á liðnum árum. „Við fá-
um mikið af ólöglegum vopnum við
húsleitir en einnig úr öðrum mál-
um. Fólk afsalar sér vopnum vegna
lögreglumála eða færir þau lög-
reglu af sjálfsdáðum."
Auk hefðbundinna skotvopna
hefur lögreglan í Reykjavík lagt
hald á loftbyssur, startbyssu og
örvaboga á síðustu árum. Skarp-
héðinn sagði að lögreglan ætti orðið
töluvert safn af vopnum. „Við
geymum alls konar útgáfur af
vopnum, sum eru heimatilbúin en
önnur flutt til landsins."
Þúsundir skotvopna á skrá
Það lætur nærri að um 8.500
skotvopnanúmer séu skráð í
Reykjavík. Sú tala segir ekki alla
söguna því margir látnir einstak-
lingar eru einnig skráðir eigendur.
Afnotaleyfl eru um 1.050 talsins en
mörg leyfl er hægt að gefa út á eitt
skotvopn. Lögreglan í Reykjavík
gefur út 600 til 700 skotvopnaleyfí
árlega. „Mikil hreyfing er í skot-
vopnakaupum en í hvert sinn sem
einstaklingur kaupir skotvopn, sel-
ur eða fær afnotaleyfi er geflð út
nýtt skírteini. Því er fjöldi skírteina
talsverður."
Árið 1978 hófst innköllun skot-
vopna. Um leið var númeraröð þétt
og skotvopnaleyfi látinna og ann-
arra sem létu af vopnaeign tekin út.
Skarphéðinn sagði æskilegt að inn-
köllun skotvopna færi fram að nýju.
• ^INNLENT
Unnið að
umsókn
um Keiko
DAVE Phillips, stofnandi
Free Willy Foundation, sem
vill ala háhyrninginn Keiko á
afgirtu svæði í Eskifirði, kem-
ur að öllum líkindum til lands-
ins í næsta mánuði til að vinna
málinu fylgi.
Phillips segir að það sé unn-
ið hörðum höndum að því að
undirbúa málið. Verið sé að
undirbúa formlegt umsóknar-
bréf til íslensku ríkisstjómar-
innar þar sem verði reynt að
svara öllum álitamálum og
spurningum sem hefðu komið
upp í tengslum við komu
Phillips til Islands í desember
á síðasta ári. I umsókninni
verði ítarlegar upplýsingar um
heilsufar Keiko og hvernig
samtökin hyggist standa að
því að flytja háhyrninginn
hingað til lands og ala hann
hér.
Phillips segir að samtökin
hafi fengið mikinn stuðning
frá íslenskum fyrirtækjum og
þau hafi mörg sett fram óskir
um að hvalurinn verði fluttur
hingað til lands.
Flugráð fjallar um
eldsneytisgjald
Afgreitt
eftir viku
Á FUNDI Flugráðs í gær-
morgun, þar sem fjallað var
um eldsneytisgjald, voru lagð-
ar fram greinargerðir frá Þor-
geiri Pálssyni flugmálastjóra
og Gunnari Hilmarssyni flug-
ráðsmanni.
Að sögn Hilmars B. Bald-
urssonar, formanns Flugráðs,
fóru fram miklar umræður um
eldsneytisgjaldið á fundinum
en engar ályktanir voru sam-
þykktar. Stefnt er að því að
Flugráð afgreiði málið á næsta
fundi sínum að viku liðinni, 29.
janúar.
Handtek-
inn með
hass
MAÐUR var handtekinn þar
sem hann hafði brotist inn á
Laugavegi 3 í Reykjavík
snemma í gærmorgun. Var
komið að honum á fimmtu hæð
hússins.
Á manninum fannst Ktils-
háttar af hassi og var hann í
yfirheyrslu hjá lögreglunni
síðdegis í gær. Hann hefur áð-
ur komið við sögu afbrota og
hugðist lögreglan reyna að fá
hann úrskurðaðan í síbrota-
gæslu.
Rigning- um
helgina
VEÐURSTOFAN spáir suð-
vestlægum áttum um helgina,
kalda eða stinningskalda og
frekar úrkomusömu veðri
einkum um sunnan- og vestan-
vert landið. Gert er ráð fyrir
rigningu, en hætt við slyddu
og slydduéljum á sunnudag og
mánudag. Vægt frost verður
um norðaustanvert landið á
laugardag, en annars verður
allt að fimm stiga hiti.