Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 11
FRÉTTIR
Hagfræðingur VSI um hækkun
fasteignamats
Þörf á frekari
skýringum
HAGFRÆÐINGUR Vinnuveit-
endasambands Islands segir að
þörf sé á frekari skýringum á
ákvörðunum sem lágu að baki
nýju fasteignamati þar sem í ljós
hefur komið að verðþróun á
70-110 fermetra húsnæði i fjöl-
býli á höfuðborgarsvæðinu hefur
ekki orðið eins og gert var ráð
fyrir þegar yfirfasteignamats-
nefnd ákvað nýtt fasteignamat í
nóvember síðastliðnum.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær er matið almennt
4,5% hærra á öllum tegundum
húsnæðis en það var í íyrra og
sums staðar á landinu 9% og
12% hærra en það var þá. Tæp-
lega 0,1% af hækkun á vísitölu
neysluverðs í janúar má rekja til
hækkunar húsnæðisgjalda.
Hannes G. Sigurðsson, hag-
fræðingur VSI, segir að sér virð-
ist það óeðlilegt að þarna sé ver-
ið að búa til verðbólgu sem ekki
sé til staðar.
„Það liggur ekkert fyrir um
forsendur þessarar ákvörðunar.
Þetta er veruleg skattahækkun
sem þarna er í gangi, sem virðist
vera byggð á mjög hæpnum for-
sendum, einhvers konar vænt-
ingum og mati sem er ekki stutt
neinum gögnum. Það finnst mér
mjög vafasöm forsenda skatt-
heimtu. Mér finnst ástæða til
þess í fyrsta umgangi að kalla
eftir frekari skýringum á for-
sendum þessara ákvarðana, og
ef forsendurnar eru vafasamar
eins og manni virðist, þá hlýtur
að þurfa að kalla eftir endur-
skoðun á þessu mati,“ segir
Hannes.
ASÍ hyggst fylgjast
með málinu
Edda Rós Karlsdóttir, hag-
fræðingur Alþýðusambands Is-
lands, segir að sér komi á óvart
fregnir af því að við ákvörðun
fasteignamatsins kunni almenn
hækkun á markaðsverði hús-
næðis að hafa verið ofáætluð.
„Á þessu stigi mun ég fylgjast
með þessu máli og kanna hvort
eitthvað er athugavert," segir
hún.
Bann við losun PCB
og díoxíns undirbúið
MENGUN PCB, díoxíns og ann-
arra skyldra efna telja íslensk
stjórnvöld með alvarlegustu ógnun
við líf sjávar að sögn Magnúasar Jó-
hannessonar, ráðuneytisstjóri í um-
hverfisráðuneytinu, þótt hún sé
minni hér við land en á ýmsum ná-
grannasvæðum okkar, svo sem í
Norðursjó.
Allt frá árinu 1990 hefði það verið
meðal helstu baráttumála íslenskra
stjórnvalda að settur yrði alþjóðleg-
ur samningur um takmörkun á los-
un þessara efna. Mengun þeirra
ætti að litlu leyti rætur sínar að
rekja til losunar hér á landi en bær-
ist um langan veg og því yrði ekki
tekið á þessu máli öðruvísi en með
alþjóðasamningum.
Magnús segir að á umhverfisráð-
stefnunni í Ríó árið 1992 hafi ís-
lendingar verið eina þjóðin til þess
að bera þetta mál upp. Á þeim tíma
hafi verið lítill skilningur á nauðsyn
þess að settar yrðu alþjóðlegar
reglur um losun þessara efna. Það
hafi hins vegar verið að breytast
enda hafi komið fram vísbendingar
um alvarlegri áhrif af völdum þeirra
en áður var talið.
Á alþjóðlegum fundi um varnir
gegn mengun hafsins, sem haldinn
var hér á landi í mars árið 1995, hafi
síðan náðst samkomulag um nauð-
syn þess að tekið yrði á þessu máli
og nú hafi verið ákveðið að samn-
ingaviðræður hæfust um mitt þetta
ár.
Mikil notkun í þriðja heiminum
Á sama tíma og notkun þessara
efna hefur verið takmörkuð víða á
Vesturlöndum eru þau enn mikið
notuð í þróunarlöndunum, bæði
vegna þess hve ódýr þau eru og
einnig vegna skorts á fræðslu um
skaðsemi þeirra. Nú er hins vegar
unnið að þvi að gera þróunarríkm
betur í stakk búin til þess að taka
þátt í samningaviðræðum og
tryggja þannig að allar þjóðir verði
með í takmörkunum á notkun
þeirra.
Magnús segir að gera megi ráð
fyrir því að í samningnum verði
krafa um fjárhagslega og tæknilega
aðstoð við þróunarríkin en samsvar-
andi ákvæði er að finna í samningn-
um um vemdun ósonlagsins.
Magnús segir einnig að íslend-
ingar hafi frá upphafi átt gott sam-
starf við önnur Norðurlönd um
þetta mál og að þau greiði m.a. í
sameiningu laun sérfræðings sem
vinni að undirbúningi málsins í
Sviss. Þá hafi Norræna ráðherra-
nefndin látið gera margar greinar-
gerðir til þess að vinna þessu máli
fylgi á alþjóðavettvangi.
Sófasettum
stolið úr gámi
Borðuðu
þorramatinn
utanhúss
„Hádegishópurinn" í Iþróttamið-
stöðinni í Borgarnesi hélt sitt ár-
lega þorrablót 21. janúar sl. Mun
þetta vera í tólfta sinn'sem blótið
er haldið.
HÚSGÖGNUM var stolið úr gámi
við Síðumúla í Reykjavík í gær-
morgun. Stóð hann við húsgagna-
verslun þar.
Stolið var tveimur sófasettum og
tveimur stólum úr gáminum. Lög-
reglan hafði engar spumir haft af
þýfinu síðdegis í gær en málið var í
rannsókn.
Morgunblaðið/Ingimundur
Hækkun á gjaldskrá Sorpu bs.
54,7% umfram byg,g,mg,avísi-
tölu fyrir almennan úrgang
UM ÁRAMÓT hækkaði gjaldskrá
Soi-pu bs. fyrir almennan úrgang
um 4,7% umfram byggingavísitölu.
Að sögn Ögmundar Einarssonar,
íramkvæmdastjóra Soi’pu, hefur
gjaldskráin verið miðuð við bygg-
ingavísitölu og verið óbreytt frá
1993. I frétt frá Kaupmannasam-
tökunum kemur fram að gjald
vegna bylgjupappa hækki um tæp
100% og fórgun dagblaða og tíma-
rita um tæp 57% á sama tíma og
byggingavísitalan hafi hækkað um
tæp 4%.
„Við eram að leiðrétta okkar
gjaldskrá vegna uppsafnaðs frá-
viks frá byggingavísitölu," sagði
Ögmundur. Sagði hann að hækk-
unin væri meðal annars tilkomin
vegna launabreytinga við síðustu
kjarasamninga, þar sem launa-
greiðslur hjá fyrirtækinu hefðu
hækkað umfram það sem bygg-
ingavísitalan sýndi.
Dregið hefur úr
sorpi til Sorpu
„Við erum einnig með samninga
við verktaka, sem eru með hærra
verðbótarákvæði en byggingavísi-
talan,“ sagði hann. „Og loks hefur
dregið úr sorpi sem hingað kemur
vegna útstreymis af svæðinu, sem
þýðir að við fáum færri tonn inn til
að bera upp okkar kostnað.“
Ögmundur sagði að nokkuð væri
um að einkaaðilar tækju að sér að
flytja sorp til urðunar á urðunar-
stað í Kirkjuferjuhjáleigu í Ölfusi
og væri gjaldskrá Sorpu höfð til
hliðsjónar þegar samið væri um
flutningana. „Því er ekki að neita
að gjaldskrá okkar breytist meðal
annars vegna þessa,“ sagði hann.
Jafnframt var gjaldskrá fyrir
pappa og dagblöð breytt veralega
en heimsmarkaðsverðið heíúr fallið
á þeirri vöra og sagði Ögmundur
það umhugsunarefni fyrir íslensk
stjórnvöld hvort halda ætti áfram
að flokka pappírinn frá öðra sorpi.
Þórarinn Guömundsson matreiöslumeistari - áöur hjá Múlakaffi
„Við sendum þér
þorraveisluna neim
eða þú sækir matinn
til okkar“
ÞORRABAKKAR
ALLA FÖSTUDAGA OG LAUGARDAGA
Við afgreiðum þorramat að eigin vali, í bökkum á 1.100- krónur/kg.
Þú velur þinn uppáhalds þorramat og færð rófustöppuna frítt með.
Afgreitt föstudaga frá kl. 12-14 og 17-20. Laugardaga frá 12-20.
í kaffiteriunni við hliðina á Hans Petersen.
ÞORRAVEISLUNA HEIM í STOFU
Veislur fyrir 4 eða fleiri sendum við heim, verð frá 1.490 á mann.
Kynntu þér málið. Pantið tímanlega.
ÁRSHÁTIÐ OG ÞORRAVEISLA í SALNUM OKKAR
Á okkar glæsilega þorrahlaðþorð eru 24 réttir. Par á meðal er:
Nýr og súr þorramatur, saltkjöt, hangikjöt, hákarl, harðfiskur, ekta
nautakjötspottréttur, síldarsalöt og fjölbreytt meðlæti.
Eigum lausa laugardaga og föstudaga á þorranum.
C 0
.... —^ ---------------------=
VEISLUSMIÐJAN
Veislur og veitingar, Álfheimum 74, Glæsibæ, Rvík. sími 588-7400