Morgunblaðið - 23.01.1998, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Batnandi hagur Básafells síðustu mánuði ársins 1997
18 milljóna króna tap
af reglulegri starfsemi
HAGNAÐUR af rekstri sjávarút-
vegsfyrirtækisins Básafells hf. á
ísafirði nam 51 milljón króna á
fyrstu þremur mánuðum nýs
rekstrartímabils eða frá 1. sept-
ember til 30. nóvember 1997 sam-
kvæmt árshlutauppgjöri sem nú
liggur fyrir. Tap af reglulegri
starfsemi nam 18 milljónum
króna en óreglulegar tekjur um-
fram gjöld námu 69 milljónum.
Þetta er töluverð breyting til
batnaðar miðað við fyrstu átta
mánuði liðins árs en þá nam tap af
reglulegri starfsemi 366 milljón-
um króna. í frétt frá Básafelli
segir að vinna við endurskipu-
lagningu og hagræðingu sé farin
að skila árangri.
Rekstrartekjur Básafells námu
747 milljónum króna en rekstrar-
gjöld 604 milljónum. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnskostn-
að var 143 milljónir. Afskriftir
námu 90 milljónum og fjármagns-
kostnaður 70 milljónum króna.
Tap af reglulegri starfsemi var því
18 milljónir króna. Óreglulegar
tekjur umfram gjöld námu 69
milljónum og varð því hagnaður af
rekstri Básafells 51 milljón króna
á umræddu þriggja mánaða tíma-
bili. Þessar óreglulegu tekjur eru
tilkomnar vegna söluhagnaðar á
vélum og tækjum úr fiskvinnslu fé-
nJ 1- BÁSAFELL HF.
Úr árshlutauppgjöri 1. sept.-30. nóv.1997
Rekstrarreikningur 1997
Rekstrartekjur Milljónir króna 747 Rekstrargjöld (604)
Hagn. f. afskriftir og fjárm.kostn. 143 Afskriftir (90) Fjárm.qiöld umfram fjárm.tekjur (71)
Tap at reglulegri starfsemi (18) Óreqluleqar tekiur umfram qiöld 69
Hagnaður/(tap) tímabilsins 51
Efnahagsreikningur 30/11 '97
I Einnir: |
Fastafjármunir Milljónirkróna 5.i8o
Veltufjármunir 1,052
Eignir samtals 6.232
I Skuiclir op eipiO fé: | Eigiðfé 1680 Langtímaskuldir ^ 3 533
Skammtímaskuldir 1.014
Skuldir og eigið fé samtals 6.232
Kennitölur 30/11 '97
Veltufjárhlutfall 1,04 Eiginfjárhlutfall 0,27
lagsins, sem hefur verið lokað, og
vegna sölu á Styrmi IS, 200 tonna
línubát.
Verðmæti rækjuafurða 1,1
milljarður króna
A almanaksárinu 1997 öfluðu
skip félagsins samtals um 7.600
tonna af sjávarafla að verðmæti
um 750 milljónir króna en þar af
var rækja 3.800 tonn.
Framleiðsla rækjuverksmiðju
félagsins var um 1.600 tonn af
frystum afurðum og um 3,7 millj-
ónir dósa af niðursoðinni rækju.
Heildarverðmæti rækjuafurða var
um 1.100 milljónir króna. I bolfiski
var framleiðsla um 1.600 tonn af
afurðum að verðmæti um 480
milljónir króna.
Þá segir í fréttinni að áfram sé
unnið hörðum höndum að stefnu-
mótun og endurskipulagningu á
rekstri Básafells. Viðræður standa
nú yfir vegna sölu á skipunum
Jónínu og Páli án aflaheimilda og
er áætlað að söluverðmætið nemi
85 milljónum króna. I athugun er
að selja Gylli IS ásamt einhverjum
aflaheimildum. „Einnig er í athug-
un sala á eignarhlutum Básafells í
öðrum félögum. Stöðugt er verið
að kanna möguleika á sölu eða
hagkvæmari nýtingu á öðrum
fastafjármunum félagsins."
Morgunblaðið/Golli
PÁLL Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins,
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráðherra og Arnar Sigurmundsson, for-
maður stjórnar Nýsköpunarsjóðs ræddu málin við opnunina í gær.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
Fjárfestingar
gætu numið 400
milljónum á ári
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR atvinnulífsins þarf líklega um 100 til 150 um-
sóknir um fjármögnun á ári til að hafa nægjanlega mörg fjárfestingarverk-
efni. Er þá gengið út frá því að fjárhagsleg geta sé til að fjárfesta fyrir um
400 milljónir króna á ári í 15 til 20 málum. Erlendis er reynslan sú að
áhættufjármagnsfyrirtæki fjárfesti í 10 til 15% þeirra mála sem koma inn á
borð þeirra í formi fullbúinna umsókna. Hinsvegar fá um 40 til 50% slíkra
mála fjármögnun. Þetta kom fram í ávarpi Páls Kr. Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Nýsköpunarsjóðs, við formlega opnun sjóðsins í gær.
Aukning í flestum
VELTA heildsöluverslunar jókst um
11% fyrstu tíu mánuði síðasta árs
miðað við sama tíma á árinu á undan
og velta smásöluverslunar jókst um
tæp 5%. Aukning varð í flestum
verslunargreinum samkvæmt flokk-
un Þjóðhagsstofnunar.
Þjóðhagsstofnun hefur birt heild-
aiveltu án virðisaukaskatts í versl-
unargreinum á tímabilinu frá janúar
til október 1997 og samanburð við
sama tímabil árið 1996. Þar kemur
fram að velta heildverslunarinnar á
þessu tímabili var nærri því 148
milljarðar kr., án virðisaukaskatts,
og hafði aukist um 15 milljarða eða
sem svarar til 11,1% frá árinu 1996.
Mesta aukningin er í byggingavöru-
verslun og sölu á bílum og bílavör-
um, 16-18%.
Sala í smásöluverslun var á sama
tímabili liðlega 90 milljarðar kr. sem
er 4 milljörðum eða 4,7% meira en
fyrstu tíu mánuði ársins á undan.
Aukning er sögð 1 öllum greinum
smásöluverslunar nema fiskverslun
og sölu á tóbaki, sælgæti og gos-
drykkjum.
Arkitektar, rafhönnuðir
og rafverktakar!
Munið GIRA
vörukynninguna í dag
kl 17.30 að
Auðbrekku 9-11.
Jacob de Muijnck, sölustjóri GiRA,
kynnir fjöimargar markveröar nýjungar.
S. GUÐJÓNSSON ehf.
Lýsinga- og rafbúnaður
Auðbrekka 9-11 • Sími: 554 2433
verslunargrein um
Heildarvelta
í verslunargreinum
janúar til október 1996 og 1997
(í millj.kr., án vsk., a verðlagi hvers ars) ian _okt jan.-okt. Veltu-
Heildsöludreifing áfengis 1996 1997 breyting
og tóbaks, smásala áfengis 7.610,6 7.862,1 +3,3%
Heildsölu- og smásöludreifing
á bensíni og olíum 23.039,3 25.688,3 +11,5%
Byggingavöruverslun 9.145,5 10.803,8 +18,1%
Sala á bílum og bílavörum 17.674,2 20.560,9 +16,3%
Önnur heildverslun 75.501,9 82.868,1 +9,8%
Heildverslun samtals: 132.971,5 147.783,2 +11,1%
Fiskverslun 767,1 662,3 -13,7%
Kjöt- og nýlenduvöruverslun,
mjólkur- og brauðsala 25.417,0 27.316,0 +7,5%
Sala tóbaks, sælgætis
og gosdrykkja 6.847,9 6.237,7 -8,9%
Blómaverslun 1.270,6 1.279,3 +0,7%
Sala vefnaðar- og fatavöru 4.695,0 5.107,1 +8,8%
Skófatnaður 598,2 608,2 +17%
Bækur og ritföng 2.660,9 3.155,9 +18,6%
Lyf og hjúkrunarvara 3.711,6 3.915,2 +5,5%
Búsáhöld, heimilis-
tæki, húsgögn 8.515,8 9.585,7 +12,6% §
Úr, skartgripir, Ijós- 1
myndavörur, sjóntæki 942,7 1.005,0 +6,6% |
Snyrti- og hreinlætisvörur 539,5 917,5 +70,1% 1
Önnur sérverslun, s.s. sportvörur, 1 •g
leikföng, minjagripir, frímerki 0. fl. 3.128,9 3.181,3 +1«7% !
Blönduð verslun 26,917,4 27.110,8 +0,7% I
Smásöluverslun samtals: 86.012,5 90.081,9 +4,7% |
VERSLUN SAMTALS: 218.984,0 237.865,2 +8,6% I 1
Páll benti á að Nýsköpunarsjóður
væri nú eini aðilinn sem fjárfesti í
fyrirtækjum sem verið væri að
stofna eða óskráðum félögum, þar
sem verkefnið er frá 4 og upp í 8 ár
frá væntanlegri markaðsfærslu fyr-
irtækisins eða sölu á hlutabréfum
þess á opnum markaði. Því mætti
gera ráð fyrir að hlutfall sam-
þykktra verkefna yrði ívið hærra
hjá sjóðnum en tíðkast erlendis, eða
um 20-25% af þeim málum sem
koma inn á borð til sjóðsins.
„Bandaríska aðferðin"
Páll vék að þeirri ákvörðun
stjórnar Nýsköpunarsjóðs að
byggja starfsemi hans á svipaðri að-
ferðarfræði og beitt hefur verið á
þessu sviði í Bandaríkjunum. Sú að-
ferðarfræði byggir á því að efla ný-
sköpun í atvinnulífinu með ákveðnu
ferli sem hefst með beinni þátttöku
ríkisins í fjárfestingum í hlutabréf-
um í einstökum félögum og lýkur
með því að ríkið dregur sig út úr
þessari starfsemi.
„í dag koma um 20% af öllu fjár-
magni á áhættufjármagnsmarkaði í
Bandaríkjunum, sem skilgreint er
sem hugmyndafé (Seed Capital),
upphafsfé (Start Up) og frumstigsfé
(First stage finance) í gegnum starf-
semi ríkisins á þessu sviði. Um 600
sjóðir starfa í Bandaríkjunum á
þessum vettvangi og er áætlað að
heildarfjárfesting þeirra á sl. ári,
nemi um 8 milljörðum bandaríkja-
dala.“
------------------
Námskeið um
sölutækni
FJÖLMENNT ehf. heldur námskeið
mánudaginn 26. janúar nk., í sam-
starfi við bandaríska fyrirtækið Zig
Ziglar Corp., sem sérhæfir sig í
þjálfun sölutækni. Námskeiðið kall-
ast á ensku „Winning Sales Strateg-
ies“ og fyrirlesari verður Krish
Dhanam, framkvæmdastjóri þróun-
ar- og alþjóðasamvinnudeildar ZZC.
Zig Ziglar hefur þróað og kynnt
aðferðafræði sína síðustu þrjá ára-
tugi. Hann er m.a. höfundur bókar-
innar Closing the Sale.
Námskeiðið verður haldið á Hótel
Loftleiðum nk. mánudag kl. 8- 17.
Allar nánari upplýsingar veitir Fjöl-
mennt ehf., í síma 568 9750.