Morgunblaðið - 23.01.1998, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
________ERLENT_____________
Castro segir margt líkt með
hugmyndum sínum og páfa
Creutzfeldt-Jakob
Ottast
sýkingu í
Hong Kong
Hong Kong. Reuters.
YFIRVOLD í Hong Kong lýstu því
yfir í gær að 111 sjúklingar, sem
gert var lyfjapróf á fyrir nokkrum
árum, kynnu að hafa smitast af
Creutzfeldt-Jakob sjúkdómnum.
Sjö sjúklinganna eru látnir en ekki
er Ijóst hvort banamein þeirra var
téður sjúkdómur.
Fréttimar hafa vakið skelfingu í
borginni en yfirmenn sjúkrahússins
þar sem prófin voru gerð á sjúkling-
unum segja afar ólíklegt að fólkið
hafi látist úr Creutzfeldt-Jakob
sjúkdómnum. Astæðan er langur
meðgöngutími sjúkdómsins en ekki
er langt síðan prófin voru gerð.
Fólkið var sprautað með geisla-
virkum vökva en það er gert til að
greina ýmsa sjúkdóma. Grunur
leikur á að í vökvanum sem sjúk-
lingarnir 111 fengu, hafi verið efni
er innihélt sýkt prótein en efnið var
fengið frá Bretlandi.
-----------------
Samið í ein-
okunarmáli
TILKYNNT var í gær í Was-
hington að Microsoft-fyrirtækið og
dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna
hefðu náð samkomulagi um hluta
þess máls sem stjómvöld reka gegn
Microsoft vegna brota fyrirtækisins
á löggjöf um einokun.
Mun samkomulagið ganga út á að
framleiðendur einkatölva sem
kaupa Windows 95-stýrikerfið megi
þurrka út merkið fyrir Intemet-ex-
plorer-forritið, sem var svar
Microsoft við Netscape-forritinu og
fleiri slíkum, sem veita tölvunotend-
um aðgang að Netinu.
Kom tilkynningin nokkuð á óvart,
en lögfræðingar beggja aðila sögðu
frá þessari niðurstöðu á fundi með
dómaranum í málinu.
Joel Klein saksóknari lýsti sam-
komulagi þessu sem „sigri fýrir
neytendur". Það sýndi að sjálfstæð
tölvufyrirtæki þyrftu ekki að una
„einokunarvaldbeitingu" af hálfu
Microsoft-risafyrirtækisins.
GLEÐI og hátíðarstemmning ríkir á
Kúbu vegna komu Jóhannesar Páls
II páfa þangað. „Kúbanska þjóðin er
nú sú hamingjusamasta í heimi,“
sagði kona í höfuðborginni Havana
og víst er að margir taka undir það.
Um 50.000 manns vora viðstödd
messu páfa í Santa Clara í gær og
fögnuðu honum ákaflega, sungu
sálma og hrópuðu nafn páfa. Þá hef-
ur vel farið á með páfa og Fidel Ca-
stro, leiðtoga Kúbu, þrátt íyrir að
annar sé yfirlýstur andstæðingur
kommúnisma en hinn stýri einu af
síðustu kommúnistaríkjunum.
Við komuna til Havana á miðviku-
dagskvöld hvatti páfi til opnara
þjóðfélags á Kúbu og gagnrýndi
óbeint viðskiptabann Bandaríkjanna
á landið, er hann hvatti tO þess að
einangrun landsins á alþjóðavett-
vangi yrði rofin.
Páfi hefur lagt áherslu á siðferði-
leg gildi á Kúbu, ekki síst í ljósi þess
að þaggað var niður í rödd kaþólsku
kirkjunnar eftir valdatöku kommún-
ista 1959.
Minnti páfi á þá ósk kaþólsku
kirkjunnar að fá meira frelsi tO að
útbreiða fagnaðarboðskapinn en um
þriggja áratuga skeið var hvers kon-
ar trúariðkun bönnuð á Kúbu.
Umburðarlyndi í trúmálum
Er Castro tók á móti páfa líkti
hann afstöðu sinni til félagslegra að-
stæðna fólks við afstöðu páfa. „Ekki
er annað land betur til þess faUið að
skOja hugmynd yðar sem var svo vel
orðuð ... að jöfn skipting auðs og
samstaða með mönnum og þjóðum
eigi að ná til heimsins alls,“ sagði
Castro. „Afstaða okkar tO margra
mikOvægra málefna dagsins í dag er
sú sama og afstaða yðar. I öðrum
málum eru skoðanir okkar ólíkar en
við berum mikla virðingu fyrir
sterkri sannfæringu yðar fyrir þeim
hugmyndum sem þér standið fyrir.“
Castro sagði að Kúbverjar myndu
„deyja þúsund sinnum fremur en að
hverfa frá sósíalískri byltingu".
Hann kvaðst engu að síður ákveðinn
í að sýna fram á að Kúba væri land
þar sem umburðarlyndi ríkti í trú-
málum. Hefur Castro látið skipu-
leggja komu tuga þúsunda manna á
þá staði sem páfi messar á, fánar
Páfagarðs og Kúbu blakta hvar-
vetna við hún, myndir af páfa og
tengdar kirkjunni hanga víða uppi
og verkamönnum var gefið frí dag-
inn sem páfi kom tO Kúbu.
Þrátt fyrir að staða kaþólsku
kirkjunnar hafi ekki verið mjög
sterk fyrir byltinguna 1959 sem kom
Castro til valda, er gleði margi-a
vegna komu páfa óblandin. „Ég er
svo hamingjusöm. Hann vekur von-
ina til lífsins," sagði gömul kona sem
fylgdist með komu páfa. Trúleysi
var lögboðið þar tO fyrir sex árum
en kaþólska kirkjan á Kúbu stendur
þó enn tiltölulega veikum fótum.
Binda forvígismenn hennar miklar
vonir við komu páfa og vona að hún
verði til þess að styrkja stöðu henn-
ar, auk þess sem hún kunni jafnvel
að verða til þess að kalla á löngu
tímabærar breytingar á Kúbu.
Kyrrt í Zimbabwe eftir óeirðir
Reynt að hafa hemil
á verðhækkunum
Efnahagslíf í Indó-
nesíu að stöðvast
Jakarta, Hong Kong. Reuters.
ÁSTANDIÐ í Indónesíu versnar
með degi hverjum og efnahagslífið
er að því komið að stöðvast að mati
efnahagssérfræðinga vegna gengis-
hruns gjaldmiðilsins, fjárskorts og
gífurlegra skulda. Gengi rúpíunnar
féll um 20-30% þegar markaðirnir
opnuðu í gær en rétti síðan nokkuð
við eftir að indónesíski seðlabank-
inn greip í taumana með dollara-
sölu. Gengi verðbréfa og annarra
gjaldmiðla í Asíu lækkaði í kjölfarið.
Vaxandi svartsýni gætir í Hong
Kong vegna uppsagna hjá fyrir-
tækjum og gjaldþrots verðbréfafyr-
irtækja.
Þegar markaðimir opnuðu í
Indónesíu í gærmorgun féll gengi
íúpíunnar í 17.000 á móti dollara en
það samsvarar 86% gengisfalli frá
því um mitt síðasta ár. Rétti það
síðan aftur úr kútnum vegna mildll-
ar dollarasölu seðlabankans og var í
12.000 til 12.500 þegar markaðsdeg-
inum lauk. Bankamenn segja, að
flestir séu í raun búnir að afskrifa
rúpíuna, meðal annars vegna vax-
andi fjárskorts í indónesískum
bönkum og vegna þess, að enginn
veit hvemig tekið verður á gífurleg-
um skuldum fyrirtækja í landinu.
Gengi annarra gjaldmiðla í Asíu
lækkaði einnig í gær að undanskildu
japanska jeninu, sem styrktist
nokkuð, og gengi verðbréfa lækkaði
alls staðar.
Fá ekki erlend aðföng
Efnahagssérfræðingar sögðu í
gær, að í raun væm öll skráð fyrir-
tæki í Indónesíu gjaldþrota. Skulda-
súpan ylli því, að þeim fyrirtækjum,
sem þyrftu á erlendum aðföngum
að halda, yrði að loka með tilheyr-
andi fjöldauppsögnum. Eriendir
bankar væm hættir að taka mark á
lánsheimildum indónesískra banka.
Stjómvöld í Indónesíu spá því, að
verðbólga á þessu ári verði um 20%
og hagvöxtur enginn en aðrir telja
líklegt, að samdrátturinn í efnahgs-
lífinu verði veralegur eða allt að
10%. Segja þeir, að það muni fyrst
sýna sig eftir nokkra mánuði hve
ástandið er grafalvarlegt og spá því,
að þegar fólk snýr almennt aftur til
vinnu eftir frí í fostumánuði
múslima, um næstu mánaðamót,
muni margir koma að lokuðum dyr-
um.
Stjómvöld í Indónesíu búast við,
að einni milljón manna verði sagt
upp störfum á árinu en fyrir eru 2,7
milljónir skráðra atvinnuleysingja.
Þá er átt við uppsagnir hjá skráðum
fyrirtækjum en auk þess era millj-
ónir manna í tímabundnum störfum
eða hlutastörfum, sem hvergi koma
fram opinberlega. Ofan á allt saman
er talið, að fyrirtækin muni knýja
fram launalækkanir hjá þeim, sem
halda vinnunni.
Svartsýni í Hong Kong
Aukinnar svartsýni er farið að
gæta í Hong Kong vegna gjaldþrots
nokkurra verðbréfafyrirtækja og
þykir víst, að viðskiptavinir þeirra
muni tapa miklu fé. Gengi margra
verðbréfa hefur fallið mikið eða um
allt að 50% og fasteignir fallið í
verði. Vegna ástandsins heldur fólk
almennt að sér höndum með öll
fjárútlát og vegna samdráttarins
hafa smásalar krafist lægri leigu
fyrir verslunarhúsnæði. I skoðana-
könnunum kemur fram, að óttinn
við yfirráð Kínverja hefur minnkað
meðal íbúa í Hong Kong en 62%
segja lífskjörin hafa versnað síðan
Bretar slepptu af þeim hendinni og
traust á yfirvöldum og opinberri
þjónustu hefur snarminnkað.
Harare. Reuters.
ÞRÍR menn týndu lífi í óeirðunum,
sem urðu í Harare, höfuðborg
Zimbabwe, á mánudag og þriðju-
dag en þá mótmæltu þúsundir
manna miklum verðhækkunum á
flestum nauðsynjum. Ríkisstjórnin
hefur heitið að hafa hemil á hækk-
ununum en jafnframt skipað hern-
um að aðstoða lögregluna við lög-
gæslu.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að eitt barn hefði troðist undir,
annað orðið íyrir bíl þegar það flýði
undan lögreglunni og í þriðja lagi
hefði maður verið skotinn er hann
reyndi að ræna verslun. Sagði
hann, að um 2.000 manns væra enn
í haldi lögreglunnar og þar af hefðu
378 verið ákærðir fyrir þjófnað.
Óeirðimar, sem lítt kunn sósí-
alistasamtök segjast bera ábyrgð á,
eru harðasta atlagan að Robert
Mugabe, forseta Zimbabwe, á 17
ára valdaferli hans. Að loknum
skyndifundi ríkisstjórnarinnar í
fyrradag sagði talsmaður hennar,
að almenningur hefði rétt á að mót-
mæla 20% verðhækkun á helstu
nauðsynjum á þessu ári og Mugabe
hefur sldpað kornfyrirtækjum að
hætta við 21% hækkun á maísmjöli.
Mugabe sagði í gær, að rætt yrði
við bændur og fulltrúa erlendra
ríkja, sem aðstoðað hefðu Zimb-
abwe, um þá áætlun stjórnvalda að
taka land af 1.503 hvítum bændum
og skipta því upp á milli landlausra
blökkumanna. Hefur þessi áætlun
verið fordæmd erlendis og Bretar
hafa hótað að hætta fjárstuðningi
við Zimbabwe komi hún til fram-
kvæmda.
------♦♦-♦-----
Unabomber
hyggst játa
Washington. Reuters.
THEODORE Kaczynski, sem grun-
aður er um að vera svonefndur
Unabomber, hefur, samkvæmt
dómssátt, játað sig sekan, gegn því
að verða ekki dæmdur til dauða, að
því er bandaríska dómsmálaráðu-
neytið greindi frá í gær.
Tafir hafa orðið á því að réttar-
höld í máli Kaczynslds hæfust, en
honum er gefið að sök að hafa orðið
þrem að bana og sært fleiri með því
að senda þeim bögglasprengjur.
Samkvæmt dómssáttinni verður
hann dæmdur í lífstíðar fangelsi.