Morgunblaðið - 23.01.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 25
LISTIR
Ljósið,
það er til
BÆKUR
Ljððatúlkanir
STJÖRNUBJART
túlkanir Gylfa Gröndai á ljóðum eftir
Bo Setterlind. Skákprent prentaði og
gaf út. Reykjavík 1997. 85 bls.
ÞAÐ er alltaf ánægjulegt þegar
maður fær í hendurnar vandaðar
nýjar þýðingar á erlendum skáld-
verkum. Þýðingai- eru sjálfsagt van-
þakklátt verk í
veraldlegum
skilningi en þær
gefa bæði þýð-
andanum og les-
endum mikið af
öðru sem ekki
verður metið til
fjár. Gylfi Grön-
dal vill reyndar
heldur nota orðið
túlkanir um ís-
lenskun sína á
ljóðum Bo Sett-
erlind sem gefin
hafa verið út á lít-
illi bók. Gylfi seg-
ir að ljóðaþýðing
sé jafnan endur-
sköpun og því
hafi hann kosið
að nota orðið
túlkun fremur en
þýðingu. „Sum
ljóðanna gátu raunar íylgt frumtext-
anum eftir nákvæmlega, en önnur
urðu hins vegar að lokum býsna
fjarri honum, og í nokkrum tilvikum
er ef til vill fremur um tilbrigði að
ræða en túlkun," segir Gylfi enn-
fremur.
Segja má að Setterlind sé við-
kvæmt rómantískt skáld. Hann kom
fyrst fram á sjónarsviðið árið 1948
með bók sem þverskar módernism-
ann sem þá var yfirgnæfandi í
sænskum skáldskap. Hann orti í
fyrstu hefðbundið en vék svo smátt
og smátt inn á aðrar brautir einnig.
Langflest ljóða hans eru þó einföld
og ljóðræn, ólíkt skáldskap margra
sænskra skáldsystkina hans af sömu
kynslóð. Sömuleiðis er lífs- og
heimssýn ljóða hans önnur en
þeirra, jákvæðari enda er tónninn
yfirleitt bjartur þótt stundum falli
skuggi á.
Gylfi hefur ekki valið þessi ljóð til
birtingar efth- neinni fyrirframgef-
inni forsendu annam en þeh'ri að
þau höfðuðu til hans, eins og hann
segir sjálfur í inngangi að bókinni.
Þó skiptir hann ljóðunum í fjóra
kafla og má í Jieim kenna undirliggj-
andi þemu. I fyrsta kaflanum eru
einkum trúar- og tilvistarleg ljóð. I
þessum ljóðum er tónninn stundum
svolítið dimmur en vonin er þó alltaf
nærri. Ljóðið Ljós hljóðar svo:
Ég opna dyr
inn í rayrkur.
Það logar á sjöarma kertastjaka
við kolsvart þil.
Ég sé lítið
en ljósið
það er til.
I öðrum kaflanum eru nokkur ljóð
sem svipar nokkuð til japönsku
hækunnar í formi og efni; stuttar
einfaldar myndir - oft úr náttúrunni -
sem segja langa sögu. Fyrsta ljóðið
heitir Upprisa og er sérlega
skemmtilegt:
Grasstrá eru sterk
þegar storma lægir
rísa þau aftur
upp.
í þriðja kaflanum eru ljóð sem
hlíta ekki jafn þröngu og ströngu
formi en fjalla oft um skáldskapinn,
galdur hans og vanda listarinnar.
Fjórði kafli kallast svo á við hinn
fyrsta en þar er aftur vikið að hinum
tilvistarlega vanda og dauðanum.
Þau lýsa oft einsemd og jafnvel böl-
sýni. Tónninn er oft þungur, svo sem
í fyrsta ljóðinu sem nefnist Aðeins
eitt skip:
Engir mávar
aðeins eitt skip
á reginhafi
stefnir hingað
með svört seg!
og dregur
djúpa þögn.
En trúin, vonin, birtan eru aldrei
Iangt undan og í síðasta Ijóði bókar-
innar er horft á dauðann af æðru-
leysi: „Afram áfram / eftir dauða
minn / stöðugt áfram.“
Gylfi lýsir skáldinu í inngangi sín-
um að bókinni og þai’ koma fram
einmitt þessar andstæður og átök
milli birtu og kulda. Með ljóðatúlk-
unum sínum hefur Gylfa tekist vel að
varpa ljósi á þessa grunnbaráttu í
skáldinu og um leið á samsetningu
höfundarverks hans. Og eins og sjá
má af ofangreindum tilvitnunum í
bókina hefur Gylfa einnig tekist að
koma ljóðum Setterlinds til skila í
hinum einfalda og ljóðræna stfl sem
einkenndi skáldið. Meira er ekki
hægt að krefjast af túlkanda/þýð-
anda.
Þröstur Helgason
Gylfí Gröndal
Bo Setterlind
ASKJA - vettvangur fyrir umhverfislist. Líkan af listhúsi og útivistarsvæði í gryfjunum í Öskjuhlíðinni eftir
Halldóru Vífilsdóttur.
Sýning nýrra
arkitekta og hönnuða
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra opnar sýninguna Vaxtar-
broddar í Ráðhúsi Reykjavíkur, í
dag, föstudag, kl. 17. Um er að
ræða sýningu á lokaverkefnum ný-
útskrifaðra arkitekta, landslags-
arkitekta, innanhúss- og iðnhönn-
uða, en öll hafa þau stundað nám
erlendis, bæði í Evrópu og Norð-
ur-Ameríku. Þeim er jafnframt
frjálst að sýna önnur verk.
í tilefni sýningarinnar var dans-
myndin „I heimsókn" gerð og
verður hún sýnd meðan sýningin
stendur yfir. Myndina gerðu dans-
höfundurinn Katrína Olafsdóttir,
leikkonan Pálína Jónsdóttir og
kvikmyndagerðarmaðurinn Reynir
Lyngdal og er spunnin á heimilum
sýnenda. Magnús Jónsson samdi
tónlistina
Þeir sem sýna eru arkitektarnh'
Halldóra Vífilsdóttir, Gunnar Páll
Kristinsson, Þorleifur Eggertsson,
Gunnar Örn Sigurðsson, Orri
Árnason, Dagur Eggertsson,
Tryggvi Þorsteinsson og Sigríður
Ólafsdóttir. Landslagsarkitektarn-
ir Ulla Rolf Pedersen, Birkir Ein-
arsson og Hermann Georg Gunn-
laugsson. Iðnhönnuðirnir Ólafur
Þór Erlendsson, Björn Jónsson og
Óli Björn Stephensen.
Styrktartón-
leikar í Borg-
arneskirkju
TÓNLISTARSKÓLI Borgarfjarðar
stendur fyrir styrktartónleikum í
Borgameskirkju laugardaginn 24.
janúar kl. 14.
Tilefni tónleikanna er að safna fyr-
ir kennslugögnum og -tækjum fyrir
skólann. Tónlistarskóli Borgarfjarð-
ar hefur starfað í 30 ár, en sl. haust
fékk skólinn húsnæði fyrir hluta af
starfsemi sinni, þ.e. skrifstofu íyrir
skólastjóra og einnig kennslusal.
Á tónleikunum koma fram nem-
endur og kennarar úr tónlistarskól-
anum, Barnakór Borgarness og Kar-
lakórinn Söngbræður. Á dagskrá
verða m.a. atriði úr Kátu ekkjunni
eftir Lehár, Ungverskur dans eftir
Brahms, leikinn fjórhent á píanó, og
tvö verk eftir kennara skólans,
Gunnai- Ringsted.
Dagskrá um
N óbels ver ðlaunahafa
ÍTALSKA leikhús-
manninum Darío Fo
voru sem kunnugt er
veitt Nóbelsverðlaunin
í bókmenntum 1997. Af
því tilefni verður dag-
skrá Listaklúbbsins
næst komandi mánu-
dagskvöld helguð hon-
um og eiginkonu hans
Fröncu Rame.
Halldóra Friðjóns-
dóttir, dagskrárgerðar-
maður og leikhúsfræð-
ingur, talar um Fo og
Rame og sýnir mynd-
bandsupptökur af sýn-
ingum þeirra þar sem
þau hjónin eru í aðal-
Reuter
DARIO Fo
hlutverkum. Vala Þórs-
dóttir, leikkona, leikles
einleikinn Nauðgunin
og Jóhanna Jónas, leik-
kona, leikles brot úr
einleiknum Við höfum
allar sömu sögu að
segja. Einnig mun Gísli
Rúnar Jónsson, leikari,
flytja brot úr leikritinu
Við borgum ekki, við
borgum ekki, sem leik-
ið hefur verið á íslandi
við gífurlegar vinsæld-
ir.
Dagskráin hefst kl.
20.30 en húsið er opnað
kl. 19.30. Miðasala er
við innganginn.
Gríptu tækifærið
°9 gerðu frábær
Greiðslukjör við allra hæfi
Wð erum I r>ées^a
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
áíslandi
Stærsla heimilis-og raftækjaverslunarkeðja f Evrópu
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
á laugardag