Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 29
AÐSENDAR GREINAR
kjarasamninganna um könnun á
áhrifum launakerfisins á kynbund-
inn launamun og reglubundnar
upplýsingar um launaþróun að-
greint eftir kyni nái tilgangi sínum,
að þau séu skilin í samræmi við
ákvæði jafnréttislaga og alþjóðleg-
ar skuldbindingar okkar.
Eftir stendur vissulega vanda-
málið að afmarka hvaða störf eru
sambærileg og jafnverðmæt.
Hvort störf lækna og hjúkrunar-
fræðinga séu það er spuming sem
svo sannarlega væri áhugavert að
fá svar við. Víst er að í hugum okk-
ar flestra er stétt hjúkrunarfræð-
inga hefðbundin kvennastétt og
stétt lækna hefðbundin karlastétt
þótt vissulega hafi konum fjölgað
þar. Akveðið mat liggur nú þegar
til grundvallar því hvemig þessi
störf em launuð. I mínum huga er
það ótvírætt að sérhver vinnustað-
ur verður að tryggja innbyrðis
samræmi milli mismunandi starfs-
greina á vinnustaðnum. Dreifstýrt
launakerfi kallar því á faglega um-
ræðu og umfjöllun um það mat sem
við höfum lagt til grundvallar og
þar með hvort sá munur sem er á
kjömm mismunandi faghópa hjá
sama atvinnurekanda sé eðlilegur
launamunur eða kynbundið launa-
misrétti. Fræðsla um ákvæði jafn-
réttislaga, umfang þeirra og tak-
markanir er því ákaflega brýn.
Höfundur er lögfræðingur og
framkvæmdusijóri Jafnréttis-
ráðs.
Hlutaskipti sjómanna
I YFIRSTAND-
ANDI kjaradeilu sjó-
manna við LIÚ, er að-
alkrafa sjómanna að
verðmyndun (verðlagn-
ingu) sjávarafla verði
kómið í viðunandi horf.
Þ.e. að allur afli, sem á
land kemur, hverju
nafni sem pefnist, verði
verðlagður með sama
hætti á löndunarstað,
hvar sem aflanum er
landað, óháð því hvað
um þennan afla verður,
aðeins að um innan-
lands úrvinnslu sé að
ræða.
Sjómannaforustan
hefur, ef ég hef skilið málið rétt,
boðið upp á a.m.k. fjórar mismun-
andi aðferðir til að framkvæma
umrætt hráefnismat, er síðan lægi
til grundvallar útteikningi á afla-
hlut sjómanna.
Forusta LÍÚ hefur til þessa,
blásið á allar þessar hugmyndir
með þeim rökum að einhverjar
ímyndaðar afmarkaðar aðstæður
geti oirðið þess valdandi að sú
verðmyndun, sem sjómannaforust-
an hefur stungið upp á, verði
ómarkviss og ónothæf.
An þess að skilgreina frekar
Þráinn
Sigtryggsson
andmæli LÍÚ forust-
unnar, sem lesa má um
og heyra í ljósvakafjöl-
miðlum, leyfi ég mér að
hafna umræddum and-
mælum sem full-
kominni rökleysu,
ósamboðna LIÚ for-
ustunni.
Astæða þessarar
fullyrðingar er að við
sem sjáum Morgun-
blaðið reglulega vitum
að blaðið birtir á hverj-
um degi töflur um með-
alverð á öllum sjávar-
afla sem seldur er á
hinum ýmsu fiskmörk-
uðum frá degi til dags,
sem segir okkur að fullkomið kerfi
heldur nú þegar utan um aðalþátt
þessa máls.
A tölvuöld, sem við lifum á, er
minnsta mál að setja þetta kerfi
þannig upp að lesa megi út meðal-
verð hverrar einustu fisktegund-
ar, sem á markað hefur komið,
síðustu tvo, þrjá, fjóra eða fimm
daga. Eg gef mér að Morgunblað-
ið muni fúslega birta svona töflu
til viðbótar þeim upplýsingum,
sem þegar enj birtar á síðum
blaðsins og hér hefur verið rætt
um.
Eignarhlut áhafnarínn-
ar á að gera upp sam-
kvæmt meðalverði sem
í gildi er við löndun,
segir Þráinn Sigtryggs-
son, síðan hefur útgerð-
in fullan ráðstöfunarrétt
um meðferð aflans.
Sjómenn, „áhöfn veiðiskips“,
eiga ákveðinn hlut af heildarafla-
verðmæti þess afla, sem skip landa
samkvæmt hefðbundinni hluta-
skiptareglu.
Það gæti verið samningsatriði
við hvaða meðalverð undangeng-
inna tveggja þriggja, fjögurra eða
fimm daga ætti að miða þegar túr-
inn væri gerður upp.
Aðalatriðið er að eignarhlutur
áhafnarinnar, hver sem hann er,
verði gerður upp samkvæmt þessu
umrædda meðalverði, sem í gildi er
þann dag sem löndun fer fram.
Verði þessari aðferð beitt, hefur
útgerð skipsins fullan ráðstöfunar-
rétt um meðferð aflans og öllu rétt-
læti er fullnægt.
Sjómenn! Eg hef sett þessar
hugmyndir á blað til að vekja at-
hygli á því hve auðveldlega má
leysa þann vanda, sem LÍÚ forust-
an telur standa í vegi fyrir því að
verða við sanngjörnum kröfum
ykkar.
Um leið og ég lýsi eindregnum
stuðningi við sanngjarnar kröfur
ykkar, hvet ég ykkur til að standa
fast á kröfunni um að úthlutaður
kvóti verði veiddur af viðkomandi
veiðiskipi.
Höfundur er vélfræðingur.
Barnaskoutsala
,bO
Smáskór
Sérverdun með bamoskó
Sími 568 3919
Lífeyrissjóðir í
lykilhlutverki
Annað atriði sem ég vil nefna er
sjóðsöfnunin og krafan um viðvar-
andi jafnvægi milli éigna og skuld-
bindinga lífeyrissjóða. Breytingar á
lögum um lífeyrisréttindi opinberra
starfsmanna fyrir rúmu ári skiptu
sköpum íyrir þá sátt sem hefur
náðst um þessa mikilvægu forsendu
íslenska h'feyriskerfisins. Það er
grundvallaratriði og forsenda
sveigjanleika á vinnumarkaði að
sjóðsöfnun eigi sér stað hjá öllum
lífeyrissjóðum í stað svokallaðs
gegnumstreymis þar sem iðgjöld
hverju sinni eru notuð til greiðslu
eftirlauna. Margar Evrópuþjóðir
standa frammi fyrir gríðarlegum
vandræðum vegna þess að eftir því
sem öldruðum fjölgar og vinnandi
fólki fækkar hlutfallslega hefur
þurft að hækka iðgjaldagreiðslur
verulega til að standa undir lífeyris-
greiðslum.
Þriðja atriðið, sem ég vil drepa á,
er að nýju lögin eiga að tryggja að
sjóðirnir hámarki ávöxtun eigna
með tilliti til áhættu og leiðist ekki
út í óskylda atvinnustarfsemi. Þetta
þykir eðlileg krafa ekki síst í Ijósi
gríðarlegs umfangs lífeyrissjóð-
anna. Lífeyrissjóðakerfið mun á
næstu áratugum gegna lykilhlut-
verki í auknum langtímasparnaði.
Framreikningar sýna að næstu 40
árin má géra ráð fyrir að lífeyris-
sparnaður verði meiri en útborgað-
ur lífeyrir. Þannig er gert ráð fyrir
að árið 2040 samsvari lífeyrissparn-
aður a.m.k. 150% af landsfram-
leiðslu.
Það eru hagsmunir þjóðarinnar
allrar að efla lífeyriskerfi, sem
grundvallast á sjóðsöfnun og örvar
jafnframt frjálsan langtímasparn-
að. Aukinn langtíma- og lífeyris-
sparnaður opnar möguleika fyrir
sveigjanlegri starfslokum en nú
tíðkast. Með samþykkt þessara
nýju laga hefur verið stigið stórt
skref í þá átt. Ný lögin draga úr út-
gjaldaþörf ríkisins, stuðla að sátt
milli kynslóða og leggja þannig
grunn að farsælu þjóðlífi á næstu
öld.
Höfundur er fjármdlaráðherra.
BURSTAMOnUR
Hhd
Úrvalið er hjá okkur
iw Jýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Gœðavara
GjaídVdra — mdldr og kaííistell. Heim
Allir verdflokkar. ^ m.a.(
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsírægir hönnuðir
m.a. Gianni Versate.
Reykjavík, nýjar lausnir í
umferð og skipulagi.
Opinn fundur
á morgun, laugardaginn 24. janúar í
Sunnusal (áður Átthagasal)
Hótels Sögu kl. 14.30.
Dagskrá:
Baldur Guðlaugsson, formaður Varðar — Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík flytur inngangsorð.
Nýjar lausnir í skipulagi:
Byggingarsvæði til framtíðar,
Ingibjörg Guðlaugsdóttir, deildarstjóri hjá Borgarskipulagi.
Framtíðarbyggð á Geldinganesi,
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarfulltrúi.
Framtíðarbyggð í Álfsnesi og á Kjalarnesi,
Pétur Friðriksson, oddviti Kjalarneshrepps.
Nýjar lausnir í umferð:
Sundabraut, tengingar við Grafarvog, tengingar við Miklubraut,
Ólafur Bjarnason, aðstoðarborgarverkfræðingur.
Fyrirspurnir og samantekt, Árni Sigfússon, borgarfulltrúi.
Fundarstjóri: Sólveig Pétursdóttir, alþingismaður.
Allir velkomnir
Vörður — Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
« HAGKAUP
qþiiYFIABUÐ
Mosfellsbæ
Nicorette nikótínplástrar
á heildsöluverði
l
Tilboðið gildir 25. janúar
„ HAGKAUP
d þliYFIABUÐ
■i