Morgunblaðið - 23.01.1998, Síða 31
30 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 31,
STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
SKATTAHÆKKUN
BYGGÐ Á SPÁ
SAMKVÆMT LÖGUM skal fasteignamat endur-
spegla markaðsverð viðkomandi fasteignar í nóv-
embermánuði ár hvert. Á því mati byggjast síðan all-
ir fasteignaskattar jafnframt því, sem fasteignamatið
getur haft áhrif á aðra skattastöðu, t.d. við álagningu
eignarskatts. Loks hefur fasteignamat áhrif á hús-
næðislið vísitölu neyzluverðs og getur því haft áhrif á
verðtryggð lán, kaupmátt og þróun launamála í land-
inu. Mikið er því í húfi, að ákvörðun fasteignamats sé
rétt og í engu vikið frá lögbundinni viðmiðun.
Yfirfasteignamatsnefnd ákvað 4,5% hækkun fast-
eignamats að meðaltali fyrir íbúðarhús, íbúðarlóðir
og bújarðir ásamt íbúðar- og útihúsum frá 1. desem-
ber sl. Matið hækkaði mun meira á ýmsum þéttbýlis-
stöðum á landinu, eða frá 9-12%. Fasteignagjöld
hækkuðu í kjölfarið og óvenjumikil hækkun varð á
vísitölu neyzluverðs, eða 0,6%, milli desember og jan-
úar. Helmingur þeirrar hækkunar, eða 0,3%, var
vegna hækkunar húsnæðisliðs vísitölunnar, sem að
hluta má rekja til hækkunar fasteignamatsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkis-
ins hefur komið í Ijós, að nær engin hækkun varð á
markaðsverði á algengustu stærð íbúðarhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu, 70-110 fermetra íbúðum í fjöl-
býlishúsi, á milli áranna 1996 og 1997. Hækkunin var
aðeins 0,9%, en hins vegar ákvað yfirfasteignamats-
nefnd 4,5% meðaltalshækkun á matinu. Skýring
stofnunarinnar er sú, að sölusamningar hafi bent til
þeirrar hækkunar og fasteignamatið verið ákveðið í
samræmi við það.
Ljóst má vera samkvæmt þessu, að hækkun fast-
eignamatsins er byggð á spá. Sú spá reyndist röng en
er grunnur að hækkuðum fasteignagjöldum. Borgar-
arnir þurfa að greiða fyrir þessi vinnubrögð með
auknum útgjöldum fjölskyldunnar. Það er eðlileg
krafa, að hækkun fasteignamats verði endurskoðuð
til lækkunar í samræmi við raunverulega breytingu á
markaðsverði.
„UPPLAUSN“
FYRIRTÆKJA
ASÍÐASTA áratug var það eitt helzta einkenni á
bandarísku viðskiptalífi, að djarfir verðbréfasal-
ar tóku gífurleg lán jafnvel upp á tugi milljarða doll-
ara til þess að kaupa upp fyrirtæki, sem síðan voru
„leyst upp“ á þann veg, að þeim var skipt upp og
eignir þeirra seldar hæstbjóðendum hingað og þang-
að. Niðurstaðan varð sú, að verðbréfasalarnir högn-
uðust um miklar fjárhæðir en fyrirtækin hurfu af
sjónarsviðinu og tugir þúsunda og jafnvel hundruð
þúsunda starfsmanna þeirra sátu eftir með sárt ennið
og atvinnulausir. Með þessum hætti tókst verðbréfa-
sölunum að ná sem mestum hagnaði út úr fjárfest-
ingu sinni.
Þessir viðskiptahættir voru kynntir með sérstök-
um hætti með gerð kvikmyndarinnar „Wall Street“
og sá sem mestum árangri náði í þessari viðskipta-
grein var að lokum dæmdur til fangelsisvistar.
í viðskiptablaði Morgunblaðsins í gær er sagt frá
grein, sem birtist í riti, sem Kaupþing hf. gefur út.
Þar er eftirfarandi sjónarmiði lýst af greinarhöfundi:
„Fjárfestar í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem mörg
hver virðast eiga langt í land með að geta skilað arð-
semi á endurmetið eigið fé, hljóta að fara að spyrja
sig, hvort ekki sé vænlegt að leysa þau upp og selja
eignir á meðan til eru önnur sjávarútvegsfyrirtæki,
sem eru tilbúin að borga jafnhátt verð fyrir varanleg-
ar veiðiheimildir og raunin virðist vera.“
Skyldi þetta verða næsta skrefið í kvótasögu okkar
íslendinga? Að fjárfestar „leysi upp“ sjávarútvegs-
fyrirtækin og leggi þau niður til þess að ná sem mest-
um fjármunum út úr fyrirtækjunum meðan tækifæri
er til?
Clinton í meiri
vanda en nokkru
sinni fyrr
✓
Asakanir um að Bill Clinton Bandaríkjaforseti hafi gerst sekur um
meinsæri gætu orðið honum að falli reynist þær réttar. Lagasér-
fræðingar segja að Clinton kunni hugsanlega að verða ákærður fyrir
embættisbrot og sviptur forsetaembættinu.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, klappar fyrir eiginkonu sinni, Hillary, í veislu
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti er nú í meiri vanda en
nokkru sinni fyrr á embættis-
ferlinum vegna nýrra ásak-
ana í tengslum við rannsókn máls
Paulu Jones, sem hefur sakað forset-
ann um kynferðislega áreitni. Pað mál
hefur undið upp á sig og nú er svo
komið að forsetinn á yflr höfði sér
ákæru fyrir embættisbrot verði ásak-
anirnar staðfestar.
Asakanirnar komust í hámæli þegar
skýrt var frá því að dómstóll hefði
heimilað Kenneth Starr, sem hefur
rannsakað Whitewater-málið, að rann-
saka einnig hvort forsetinn hefði gerst
sekui’ um meinsæri og tilraun til að
hindra framgang réttvisinnar.
Clinton og lögfræðingur hans,
Vernon Jordan, eru sakaðir um að
hafa knúið 24 ára konu, Monica
Lewinsky, til að undirrita eiðfesta yf-
irlýsingu þar sem hún neitaði því að
hafa átt í ástarsambandi við forsetann.
Lewinsky var í ólaunaðri starfs-
þjálfun í Hvíta húsinu 1995 og fékk
brátt launað starf á lögfræðiskrifstofu
þess. Að sögn The Washington Post
fékk Lewinsky síðan starf í varnar-
málaráðuneytinu vorið 1996 að beiðni
embættismanna í Hvíta húsinu sem
sögðust vilja losna við hana þaðan.
Blaðið segir að hún hafl látið af því
starfí í desember, eða um það leyti
sem lögfræðingar Paulu Jones óskuðu
eftir vitnisburði hennar.
The New York Times hafði eftir lög-
fræðingi Lewinsky, William Ginsburg,
að hún stæði „sem stendur" við eið-
festa yfírlýsingu sína. „Hafi forsetinn
átt í ástarsambandi við hana er hann
kvenhatari," sagði Ginsburg við frétta-
menn í Los Angeles. „Þetta er hræði-
legt. Hann ber enga virðingu fyrir
konum og enga virðingu fyrir ungum
stúlkum."
Játning hljóðrituð
með aðstoð FBI
Að sögn The Washington Post und-
irritaði Clinton einnig eiðsvarinn vitn-
isburð, um að hann hefði aldrei átt í
ástarsambandi við Lewinsky, þegar
lögfræðingar Paulu Jones yíh’heyrðu
hann á laugardag. Hann hefði hins
vegar viðurkennt að hafa fært henni
gjafír og játað í fyrsta sinn að hafa um
skeið verið í tygjum við aðra konu,
Gennifer Flowers, á áttunda áratugn-
um.
Blaðið skýrði ennfremur frá því í
gær að bandaríska alríkislögreglan
FBI hefði að beiðni Starrs aðstoðað
við að hljóðrita samtal í vikunni sem
leið þar sem Lewinsky er sögð hafa
játað að hafa átt í ástarsambandi við
forsetann. Hún hefði einnig sakað
hann um að hafa fengið sig til að bera
ljúgvitni um samband þeirra.
Lewinsky er sögð hafa játað þetta
fyrir konu, Lindu Tripp, sem starfaði
með henni í varnannálaráðuneytinu.
Tripp mun hafa hljóðritað lýsingar
Lewinskys á sambandi hennar og for-
setans, sem er sagt hafa staðið í rúma
18 mánuði.
„Ég hef logið allt mitt líf“
Newsweek bhti grein á alnetinu um
málið og segist hafa hlustað á nokkrar
af þessum hljóðritunum. Lewinsky
hafi þar lýst sambandi sínu við forset-
ann og farið niðrandi orðum um hann,
kallað hann „stóra karlinn" og „kvik-
indið“.
„Ég hef logið allt mitt líf,“ á hún
einnig að hafa sagt og Newsweek seg-
ir að ýmis ummæli hennar hafi gefið
tilefni til efasemda um trúverðugleika
hennar. Ritstjórar Newsweek ákváðu
því að birta ekki grein um málið í
nýjasta hefti tímaritsins, sem kom út á
sunnudag, til að geta rannsakað það
frekar.
Að sögn Newswaek hafði Lindu
Tripp verið stefnt til að bera
vitni í máli Paulu Jones.
Hún hefði lent í deilu við
lögfræðinga sína og talið að
þeir væru á bandi Clintons
og lögfræðinga hans. Hún
mun þá hafa farið til Kenneth Starrs
og skýrt honum frá því að Lewinsky
hefði játað að hafa átt í ástarsambandi
við forsetann. Nokkrum klukkustund-
um síðar voru saksóknai’ar og emb-
ættismaður frá FBI komnir á skrif-
stofu Starrs til að hlýða á frásögn
hennar.
Tripp óttaðist að hún myndi lenda í
erfíðri aðstöðu ef hún þyrfti að bera
vitni; annaðhvort yrði hún að þegja yf-
ir játningu Lewinskys og gerast
þannig sek um meinsæri eða segja
sannleikann og hætta á að missa starf
sitt í varnarmálaráðuneytinu. Hún
ákvað því að hljóðrita samtöl sín
við Lewinsky til að tryggja að
lögfræðingar Clintons gætu ekki
vefengt vitnisburð hennar.
Starr hefur þessar hljóðritanm
undir höndum, að sögn
Newsweek, sem segir að aðstoð-
armenn hans hafí sett Tripp úr-
slitakosti; annaðhvort féllist hún
á samvinnu við saksóknarana og
vitnaði gegn Clinton eða hún yrði
sjálf ákærð fyrir meinsæri.
„Hugsanlega endalok
forsetaferilsins"
Bandarískh’ lagasérfi’æðingar
segja að erfitt kunni að verða að
færa sönnur á ásakanirnar á
hendur Clinton, einkum þá að
hann hafi hvatt Lewinsky til að
bera ljúgvitni.
Þótt margt sé enn á huldu um þetta
mál og líklegt sé að það skýrist ekki í
bráð eru lögin mjög skýr í þessum efn-
um. Þeir sem bera Ijúgvitni, jafnvel í
skriflegum og eiðsvörnum vitnisburði í
einkamáli, hafa gerst sekir um mein-
særi, samkvæmt bandarískum lögum.
Fræðilega kann Clinton að verða
ákærður fyrir meinsæri reynist það
rétt að hann hafi átt í ástarsambandi
við Lewinsky og síðan neitað því í eið-
festum vitnisburði.
Verði það staðfest að Clinton hafí
fengið Lewinsky til að bera ljúgvitni
kann hann einnig að verða
ákærður fyrir að hvetja til
meinsæris og hindra fram-
gang réttvísinnar.
„Þetta eru hugsanlega
endalok forsetaferilsins,
reynist þetta rétt,“ sagði Stephen
Saltzburg, lagaprófessor við George
Washington-háskóla og fyrrverandi
saksóknari í Iran-Kontra málinu.
Er hægt að leiða
forseta fyrir rétt?
I fyrstu vai’ Starr aðeins falið að
rannsaka Whitewatermálið, sem snýst
um meint fjármálamisferli forsetahjón-
anna þegar Clinton var ríkisstjóri
Ai'kansas, en rannsókn hans er nú orð-
in miklu viðameiri. Stai’r kann að hafa
safnað gögnum um meint samband for-
setans og Lewinsky áður en hann fékk
sem haldin var í Hvíta húsinu í fyrrakvöld.
Monica Linda
Lewinsky Tripp
heimild dómstólsins til að rannsaka
málið, en lagasérfræðingar segja að
hann eigi samt að geta lagt gögnin fyr-
ir rétt.
Óljóst er hvort Starr getur ákært
forsetann þótt hann hafi undir höndum
óyggjandi gögn sem benda til þess að
Clinton hafi gerst sekur um meinsæri.
Spurningin hvort hægt sé að lögsækja
forseta Bandaríkjanna meðan hann
gegnir embættinu er „ein af stærstu
spurningum sem ósvarað er í stjórn-
lögum Bandaríkjanna," sagði Akhil
Amar, lagaprófessor við Yale-háskóla.
Amar og fletri fræðimenn eru sam-
mála bandaríska dómsmálaráðuneyt-
inu í því mati að forsetinn gegni ein-
stöku hlutverki sem æðsti embættis-
maðui’ framkvæmdavaldsins og því sé
ekki hægt að leiða hann fyrir rétt
nema þingið finni hann sekan um emb-
ættisbrot og víki honum frá.
Meinsæri ástæða til
embættissviptingar
Stjórnarskrá Bandaríkjanna kveður
á um að víkja beri forseta úr embætti
verði hann ákærður og fundinn sekur
um „föðurlandssvik, mútuþægni eða
aðra alvarlega glæpi og misgjörðir".
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur
vald til að leggja fram ákærur á hend-
ur forsetanum um embættisbrot en
öldungadeildin á síðan að fjalla um
þær. Tveir þriðju þingmanna deildar-
innar þurfa að samþykkja sakfellingu.
Stjórnarskráin tilgreinir ekki
hvað telja beri „alvarlega glæpi“
og þingmennirnir verða því sjálf-
ir að meta hvaða lögbrot falla
undir þá skilgreiningu. Saltzburg
og fleiri lagasérfræðingar telja
að meinsæri, hvatning til mein-
særis og tilraun til að hindra
framgang réttvísinnar hljóti að
teljast alvarlegh’ glæpir.
Samþykki þingið að víkja for-
, seta úr embætti á hann yfír höfði
sér „lögsókn, réttarhöld, sakfell-
ingu og refsingu", samkvæmt
stjórnarskránni, nema honum
verði veitt sakaruppgjöf, eins og
Richard Nixon eftir Watergate-
hneykslið.
Henrý J. Hyde, formaður
laganefndar fulltrúadeildarinnar,
gaf fyrst út varfærnislega yfírlýsingu
um nýju ásakanirnar á hendur Clinton,
sagði þær „mjög alvarlegar" og kalla á
„rækilega rannsókn". Seinna sagði
hann í viðtali við CNN-sjónvarpið að
ákæra um embættisbrot gæti komið til
greina.
Meinsærisákærur
sjaldgæfar
Lewinsky á einnig yfir höfði sér
ákæru fyrir meinsæri vegna eiðfestrar
yfirlýsingar sinnar og hljóðritanirnar
gætu gert Starr kleift að knýja hana til
samstarfs með því að bjóða henni frið-
helgi frá lögsókn.
Þótt bandarísk lög um
meinsæri nái til einkamála,
eins og máls Paulu Jones, er
sjaldgæft að saksóknarar
ákæri menn fyrir slík lög-
brot. Málsaðilar og dómarar eru yfir-
leitt látnh’ um að skera úr um það
hverjir beri ljúgvitni og grípa til við-
eigandi aðgerða. „Væri ég saksóknar-
inn, sem fengi þetta mál, myndi ég
hafna ákæru vegna þess að ég tel að
ekki beri að ákæra forseta Bandaríkj-
anna fyrir brot sem litli maðurinn á
götunni væri ekki ákærður fyrir,“
sagði bandaríski lögmaðurinn Robert
Luskin.
John Q. Barrett, lagaprófessor við
St. John’s-háskóla, var á öndverðum
meiði. „Meinsæri er mjög alvarlegur
glæpur og þegar hátt settir embættis-
+
menn eiga í hlut er það sérlega alvar-
legt;“
Meinsærismenn eiga allt að fimm
ára fangelsisdóm yfir höfði sér. Clinton
og lögfræðingur hans, Jordan, kunna
einnig að verða ákærðir fyrir að hindra
framgang réttvísinnar, sem telst alvar-
legri glæpur og varðar allt að tíu ára
fangelsi.
Erfítt kann þó að reynast að færa
sönnur á þá ásökun þar sem samtöl
Clintons og Jordans við Lewinsky
kunna að hafa verið margræð, auk
þess sem ólíklegt er að vitni hafi verið
að þeim. Saksóknararnir þyi’ftu að öll-
um líkindum að fá Jordan og Lewinsky
til að staðfesta þessa ásökun til að geta
ákært Clinton.
Clinton vísaði því algjörlega á bug í
viðtali við bandaríska sjónvarpið PBS
á miðvikudagskvöld að hann hefði
fengið Lewinsky til að bera ljúgvitni.
Hann svaraði hins vegar ekki spurn-
ingum um hvort hann hefði rætt við
hana um rannsókn máls Paulu Jones.
Mikið í veði fyrir Starr
Þótt spjótin beinist nú að Clinton er
einnig mikið í veði fyrir Starr, sem
stuðningsmenn forsetans saka um að
draga taum repúblikana og leggja of-
urkapp á að fínna eitthvað sem gæti
orðið Clinton að falli.
Stephen Hess, bandarískur frétta-
skýrandi sem hefur oft gagnrýnt Clint-
on, sagði að Starr virtist ekki hafa haft
ástæðu til að láta nýjar ásakanir til sín
taka þar sem það væri yfrið nóg fyrir
hann að leiða Whitewater-málið til
lykta. „Það er farið að hvarfla að mér
að það sé rétt að til séu menn sem
reyni að koma forsetanum á kné.“
Clinton hefur sýnt að hann er að
mörgu leyti snjall stjórnmálamaður og
hefur staðist margar eldraunh’, sem
hefðu orðið öðrum stjórnmálamönnum
að falli. Fréttaskýrendur eru þó á einu
máli um að Clinton hafí aldrei staðið
jafnhöllum fæti og nú.
Dee Dee Myers, fyiTverandi tals-
maður Clintons, sagði í viðtali við
NBC-sjónvarpið að Clinton hefði þeg-
ai’ beðið mikinn hnekki vegna þessa
máls, óháð því hvort ásakanirnar væri
réttar, og mjög erfitt yi’ði fyrir fprset-
ann að standast þessa eldraun. „Ég tel
að afleiðingarnar yi’ðu hreint óskap-
legar," sagði hún þegar hún var spurð
hvað myndi gerast ef Clinton yrði stað-
inn að meinsæri.
George Stephanopoulos, annar fyrr-
verandi samstarfsmaður Clintons, tók í
sama sti-eng. „Ef ásakanirnar eru rétt-
ar valda þær ekki aðeins pólitískum
skaða, því þær geta einnig leitt til
ákæru,“ sagði hann í viðtali við morg-
unþátt ABC.
Skyggir á heimsmálin
Málið hefur valdið miklu uppnámi og
fjölmiðlafári í Washington og skyggt á
sögulega heimsókn páfa til Kúbu. Að-
alfréttaþulir allra stóru sjónvarps-
stöðvanna voru á Kúbu og hugðust
senda út fréttir þaðan fram yfir helgi
en hröðuðu sér til Bandaríkjanna til að
geta fjallað um ásakanirnar á hendur
Clinton.
Evrópskir stjórnarerindrekar telja
að dragist rannsókn málsins á langinn
kunni það að verða til þess að forset-
inn geti ekki gegnt forystuhlutverki
sínu á alþjóðavettvangi og tekið á
ýmsum vandamálum, sem steðja að
heiminum.
Nokkrir þeirra sögðu að ásakanirn-
ar á hendur forsetanum væru þegar
farnar að hafa áhrif á stöðu Clintons á
alþjóðavettvangi og gætu torveldað
Bandaríkjastjórn að framfylgja stefnu
sinni í heimsmálunum.
„Hættan er sú að bragðarefir eins
og Saddam Hussein [Iraksforseti]
freistist til þess að athuga hversu langt
þeir geti gengið til að notfæra sér það
að hann er upptekinn af
vandamálunum heima fyr-
ir,“ sagði Donald Cameron
Watt, prófessor við London
School of Economics.
Philip Gordon, sérfræð-
ingur í alþjóðamálum við Alþjóðaher-
fræðistofnunina (IISS), kvaðst óttast
að forsetinn gæti ekki tekið á ýmsum
vandamálum, sem þyrfti að leysa á
næstu sex mánuðum. Hann nefndi
m.a. þráteflið í friðarumleitunum í
Miðausturlöndum, deiluna um vopna-
eftirlit í írak og úrlausnarefni varð-
andi stækkun Atlantshafsbandalags-
ins.
Þingið hefur reynt að binda hendur
forsetans í ýmsum málum og frétta-
skýrendur spáðu því að staða andstæð-
inga hans þar myndi styrkjast vegna
þessara nýju ásakana.
Mesta eld-
raun Clintons
til þessa
Hefur skyggt
á Kúbuheim-
sókn páfa
Utanríkisráðherra fundar með framkvæmdastjórn ESB
Schengen-málið verður
erfiðara en búizt var við
_ Reuters
HALLDOR Ásgrímsson utanríkisráðherra á fundi með Hans van den
Broek, varaforseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins,
í Brussel í gær.
Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra átti í
gær viðræður við fram-
kvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, meðal ann-
ars um málefni
Schengen-vegabréfa-
samstarfsins og Kyoto-
bókunina um gróður-
húsalofttegundir. Olafur
Þ. Stephensen ræddi við
utanríkisráðherra.
ERFIÐARA og seinlegra
verður að ná samkomulagi
við Evrópusambandið um
aðild íslands og Noregs að
breyttu Schengen-vegabréfasam-
starfi en búizt hafði verið við. Þetta
er mat Halldórs Asgrímssonar utan-
ríkisráðherra eftir viðræður við
framkvæmdastjóm Evrópusam-
bandsins í Brussel í gær.
Utanríkisráðherra hitti að máli
fimm framkvæmdastjórnarmenn
Evrópusambandsins og ræddi við þá
um samstarf EFTA og ESB, en Is-
land fer nú með formennsku í EFTA,
og jafnframt sérmál Islands. Halldór
hitti að máli Hans van den Broek,
sem fer með utanríkismál í fram-
kvæmdastjóminni, Sir Leon Brittan,
sem fer með utanríkisviðskiptamál,
Ritt Bjerregaard, sem fer með um-
hverfismál, Anitu Gradin, sem fer
með dóms- og innanríkismál, þar á
meðal málefni Schengen, og Erkki
Liikanen, sem fer með fjár- og
starfsmannamál framkvæmdastjórn-
arinnai’.
Sum aðildarríki
skilningsríkari en önnur
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið að fundunum loknum að
staðan í málefnum Schengen-vega-
bréfasamstarfsins hefði verið mik-
ilvægasta málið, sem var til um-
ræðu. „Samningaviðræður eru enn
ekki komnar af stað og það er orðið
Ijóst að þetta mál verður umfangs-
meira og vandasamara en við höf-
um gert ráð fyrir,“ segir Halldór.
„Við þurfum ekki aðeins að ræða
það hér í Brussel, heldur líka við
aðila í höfuðborgum aðildarríkja
ESB. Meðal annars í þeim tilgangi
var haldinn fundur í París fyrir
nokkrum dögum, þar sem íslenzkir
og franskir embættismenn ræddu
saman."
Island og Noregur þurfa að semja
á ný við Evrópusambandið um aðild
sína að vegabréfasamstarfinu, eftir
að ákveðið var að Schengen-samn-
ingurinn yrði hluti af stofnsáttmála
ESB. Ríkin hafa viljað breyta sem
minnstu frá samstarfssamningum
þeim, sem gerðir voru við
Schengen-ríkin fyrir rúmu
ári. Slíkt hefði í fór með
sér að Island og Noregur
yi’ðu að fá undanþágur frá
valdsviði yfirþjóðlegra
stofnana ESB og telur
nefnd íslenzkra lagaprófessora að án
slíkra undanþágna standist nýr sam-
starfssamningur ekki stjórnar-
skrána. Af hálfu Evrópusambandsins
hefur hins vegar komið fram að ekki
sé hægt að taka stofnanafyrirkomu-
lagið í samstarfssamningunum upp
óbreytt, því að það myndi hafa í för
með sér breytingar á sáttmálum
ESB sjálfs.
Halldór segist ekki hafa fengið
skýi’ svör frá framkvæmdastjórninni
um það hversu langt ESB væri reiðu-
búið að ganga til móts við ísland og
Noreg. „Við teljum að það sé fullur
vilji til að leysa þessi mál og koma til
móts við okkar óskir,“ segir hann.
„Ég held að þetta sé allt saman
hægt, það er fyrst og fremst spurn-
ing um vilja aðildarríkjanna. Sum
aðildarríki eru skilningsbetri en önn-
ur, eins og gengur, sérstaklega fé-
lagar okkar á hinum Norðurlöndun-
um.“
Ráðherrann segist því sannfærður
um að málið leysist, en það muni
áreiðanlega taka tíma. Halldór sagð-
ist fyrir skömmu vona að hægt yrði
að ná niðurstöðu í nýjum viðræðum
um Schengen á fyiTÍ hluta þessa árs.
„Ég held að það hafi því miður ekki
verið alveg raunsætt mat hjá mér,“
segir hann.
Vinnuhópur Evi’ópusambandsins í
Schengen-málum hóf í gær fund,
sem á að ljúka í dag. Halldór segist
vona að að þeim fundi loknum
skýrist hvenær viðræður við Island
og Noreg geti hafizt.
EFTA-rfldn fái aðild
að stækkunarferlinu
A fundum með framkvæmdar
stjórnarmönnum ræddi Halldór
jafnframt um framkvæmd samn-
ingsins um Evrópskt efnahags-
svæði. „Við fjölluðum um stækkun
Evrópusambandsins og hvaða áhrif
hún hefur á EFTA-ríkin. Við verð-
um að sjálfsögðu að fylgjast mjög
vel með viðræðum um stækkunina,
því að þær snerta okkur beint. Þau
lönd, sem ganga í Evrópusamband-
ið, verða í framhaldinu aðilar að
Evrópska efnahagssvæðinu með
öllu sem því fylgir, til dæmis ferða-
frelsi og frelsi til fjárfestinga. Þetta
eru því hlutir sem skipta okkur
miklu máli,“ segir utanríkisráð-
herra.
EFTA-ríkin hafa sótzt eftir aðild
að svokallaðri Evrópuráðstefnu
ESB, þar sem fjalla á um stækkun
sambandsins.
Evrópusam-
bandið hefur enn
ekki fallizt á
slíkt. „Það kom
fram fullur
skilningur á að
setja yrði í gang vinnu, sem tryggði
okkar aðild að þessu ferli með ein-
hverjum hætti, en síðan er eftir að
ganga frá því,“ segir Halldór.
Samið beint við N-Ameríku
ef ESB vill ekki samstarf
Annað mál, sem tengist stækkun
ESB, varðar tolla á síldarafurðum í
væntanlegum aðildarríkjum. Engir
tollai’ eru á íslenzkri síld í t.d. Eist-
landi og Póllandi vegna fríverzlunar-
samninga EFTA við þessi ríki. I
ESB eru hins vegar sumar síldaraf-
urðir tollaðar og hafa íslenzkir út-
flytjendur haft áhyggjur af að síldar-
markaðir í Austur-Evrópu tapist
þegar þessi ríki ganga í ESB. Hall-
dór segist hafa tekið þessi mál upp
við Leon Brittan.
Halldór upplýsti Brittan jafnframt
um fyi’irhugaðar viðræður EFTA og
Kanada um gerð fríverzlunarsamn-
ings. „Við höfum óskað eftir því að
vera meira með í viðræðum Evrópu-
sambandsins við ríki Norður-Amer- ^
íku, en ekki hefur orðið af þvi. Við
sögðum frá því að við yrðum að sjálf-
sögðu að byggja upp sambönd okkar
á þessu sviði, vegna þess hversu
mikilvæg þau væru okkur. Ef við
gætum ekki gert það í samstarfi við
Evrópusambandið myndum við gera
það beint á vettvangi EFTA,“ segir
Halldór. „Brittan sagðist af sinni
hálfu alveg tilbúinn til samstarfs á
þessu sviði.“
Bjerregaard lieitir samstarfi
í loftslagsmálum
Við Ritt Bjerregaard ræddi Hall-
dór um vinnu aðildarríkja loftslags-
samnings Sameinuðu þjóðanna í
framhaldi af ráðstefnunni í Kyoto, ^
þar sem samþykkt var að draga úr
útblæstri gróðurhúsalofttegunda á
næstu árum. „Við ræddum sérstöðu
Islands í þeim efnum og þá stað-
reynd að við búum yfir miklum auð-
lindum, sem eru endurnýjanlegir
orkugjafar, og ætlum okkur að nýta
þá. Eg tel að þessi fundur hafi verið
mjög góður. Bjerregaard lýsti yfir
vilja til að starfa með okkur að þess-
um málum. Við lögðum áherzlu á að
ísland yrði að sjálfsögðu að leggja
sitt af mörkum eins og allar aðrar
þjóðir, en við byggjum yfir sérstöðu,
sem við vildum að þeim væri ljós.
Mér fannst koma fram ágætur skiln-
ingur á því af hennar hálfu,“ segir
Halldór.
Hann segir að Island bindi vonir
við útfærslu bókunar, sem
gerð var í Kyoto, um að
taka megi sérstakt tillit til
stórra framkvæmda í litl-
um hagkerfum, sem geti
aukið útblástur gróður-
húsalofttegunda mjög
mikið. Enn sé eftir að útfæra þá
bókun fyrir næstu loftslagsráð-
stefnu í Buenos Aires síðar á þessu
ári. „Evrópusambandið gegnir lykil-
hlutverki í undirbúningi ráðstefn-
unnar,“ segir Halldór. „Því starfi er '
langt í frá lokið og við þurfum á að
halda góðu samstarfi við Evrópu-
sambandið, Bandaríkin og fleiri riki
um þetta mál, ef við eigum að hafa
einhverja von um að ná lausn sem
við getum staðið að. Það er okkur
mikilvægt að geta átt aðild að þess-
um samningi, en þá verður að taka
tillit til sérstöðu okkar.“
Schengen
mikilvægasta
málið sem var
til umræðu
Ekki fengust
skýr svör frá
framkvæmda-
stjórninni