Morgunblaðið - 23.01.1998, Side 34
*34 FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
fundar Reagans og Gorbatsjovs í Höfða í Reykjavík 1986.
Minningargrein
HVAÐ stendur upp
úrá afmælisári?
Kannski ljóð, tón-
verk, höggmynd eða
seta nokkurra manna
í herbergi á Sögu þar
sem skálað var í
kampavíni? Tímarnir
leiða það í ljós. Fyrir-
svarsmaður og nefnd-
v«jr í fínu fötum keisar-
ans? Hjómið, fínu föt-
in gleymast skjótt og
stundum er betra að
gera ekki neitt og
vera bara í hvers-
dagsfötum eða lörf-
um. Það er þá ekki
verið að sýnast; það er
komið til dyranna eins og menn
eru klæddir og ekki verið að
blekkja eða sýnast. Oft tileinka
menn sér slagorð og leggja
^áherslur á það sem ekkert er til
að slá ryki eða glýju í augu svo
þau blindist.
Stigaþrep era mismörg upp á
næstu hæð, stundum brött, stund-
um aflíðandi og þægileg uppgöngu;
breið þrep, mjó þrep,
það er hvort tveggja
áfangi að sama marki
og stigapallurinn er á
sínum stað: áfanginn
sem stefnt var að; sem
minnst verður eftir víð-
sýninu, sjóndeildar-
hringnum sem opnað-
ist. Hús og hýbýli er
gott rit og sýnir oftast
innri mann og smekk;
opnar öðrum sýn og
gefur hugmyndir. Sum-
ir hafa ekkert að sýna
og eru þess vegna ekki
teknir inn í blaðið
nema méð kunningja-
poti og gleður þá engan
sem h'tur það augum, nema þá
helst ef greina má fallegt blóm í
glugga ef viðkomandi hefur þá til-
fínningu fyrir fegurð og ilmi þess.
Næst þegar farið verður af stað
með eitthvað sem á að sýna menn-
ingarstig og smekklega víðsýni
væri rétt að þreifa fyrir sér þar
sem fólkið býr látlaust, tilfinninga-
ríkt og smekkvíst.
Fínu fötin keisarans eru bara
hjóm - börnin sjá það best, kom-
andi kynslóðir. Tilefni minningar-
greinar þessarar er efni sem gert
var og unnið með fyrirvara og var
að mestu til í upphafi minningar-
árs. Gripur sem hlaut fyrstu verð-
laun í samkeppni sem efnt var til
1987 til að minnast Leiðtogafund-
Oft tileinka menn sér
slagorð, segir Grímur
M. Steindórsson og
leggur áherslu á það
sem ekkert er.
arins og hlaut þar fyrstu verð-
laun; var stækkaður. Þetta var
kynnt aðilum borgarstjóra, for-
manni Menningarmálanefndar
Reykjavíkur og nefnt í leiðinnvið
þá að það hefði komið fram í út-
varpinu á sínum tíma að til stæði
að stofna Friðarlund við Höfða,
þar sem þjóðhöfðingjar plöntuðu
trjám sem tákni um gróður friðar
og ætti verkið að vera í þeim
lundi.
Ég nefndi í bréfum til þessara
aðila að verkið yrði á flöt austan
við Höfða þar sem er mikið rými
og til stæði að planta þar. Kynnt
var ljóð eftir Kristjönu Elilíu Guð-
mundsdóttur ljóðskáld og tónsmíð
eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Öll
þessi verk báru heitið „Upphaf
friðar" eins og verðlaunamyndin.
Hefði þetta efni allt fengið náð hjá
fyrirsvarsmönnum afmælisársins
mætti segja að gerð hefði verið til-
raun til að nýta listsköpun við
minningu afmælisins og ævinlega
litið til þess sem eftir stæði af af-
mælisárinu.
Klæðin sem þeir bera á herðum
sér sem stjómuðu afmælisárinu
kalla ég Fínu fötin keisarans: það
er það eina sem eftir stendur,
hjómið eitt.
Höfundiir er listamaður.
VISA, stikkfrí í
samkeppninni
ÞAÐ ER viðurkennt
að óvíða ef nokkurstað-
* kr ríki í íslenskri at-
vinnugrein eins mikil
samkeppni og í versl-
un. Þessi samkeppni
hefur leitt til mikillar
framleiðni í greininni
og afar hagstæðs vöra-
verðs í flestum ef ekki
öllum greinum verslun-
ar. I nýlegri skýrslu
V erslunarmannafélags
Reykjavíkur unninni af
Hagfræðistofnun HI
kemur fram að fram-
leiðni í verslun hefur
stóraukist umfram aðr-
ar atvinnugreinar og
^pker smásöluverslunin sig úr hvað
mikla framleiðni varðar. Allt er
þetta afleiðing og árangur af
óheftri samkeppni sem er eina
trygging neytandans fyrir hag-
stæðu vöraverði.
HUGBÚNAÐUR
FYRIR WINDOWS
Traust þjónusta
Rómaöar lausnir
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/kerfisthroun
Það sem helst kemur
í veg fyrir að meiri ár-
angur náist í verslun er
að í mörgum greinum
samfélagsins ríkir ekki
sú sama samkeppni og
ríkir í versluninni. Má
þar nefna flutninga-
starfsemi, bankastarf-
semi, greiðslukorta-
miðlun, eftirlitsstarf-
semi, raforkudreifingu
o.fl.
í nýbirtri niðurstöðu
Samkeppnisstofnunar
varðandi greiðslukort,
en greiðslukortastarf-
semi er einmitt star-
semi þar sem ríkir sam-
keppnisleysi eða í besta falli fá-
keppni, er reglan um bann við mis-
mun lýst ógild, en þessi regla í
samningi greiðslukortafyrirtækja
við verslanir kemur í veg fyrir að
kostnaði við kortanotkun sé bætt
við staðgreiðsluverð. Þetta veldur
því að kortanotendur geta ekki
með neinum vitrænum hætti gert
sér grein fyrir þeim kostnaði sem
þeir valda með notkun korta, sem
hefur síðan Ieitt til þess að korta-
notkun hérlendis er sú mesta í
heimi.
Það er athyglisvert að í nýlegu
viðtali við forstjóra VISA Island
kom fram að að hans mati skipti
það verslunina engu máli hvað hún
greiði í þjónustugjöld til kortafyr-
irtækjanna þar sem verslunin velti
þeim kostnaði hvort sem er yfir á
viðskiptavini sína. Þetta lýsir afar
vel hugsanagangi manna sem
starfa í einokun eða fákeppni.
Með sama hætti skipti það þá
Haukur Þór
Hauksson
væntanlega verslunina engu máli
hve há t.d. flutningsgjöld væru eða
húsaleiga verslunar eða skattar
þar sem viðskiptavinirnir borguðu
hvort sem er allt.
Niðurstaða Samkeppnisstofnun-
ar er rétt, hún leiðir til samkeppni á
sviði greiðslumiðlunar og er neyt-
endum til hagsbóta, að vísu veldur
hún því að verslunin verður sýnileg-
ur innheimtuaðili greiðslukortafyr-
irtækjanna sem kaupmenn hafa í
sjálfu sér ekki áhuga á, en líta má á
niðurstöðuna sem áfanga á þeirri
leið að greiðslukortafyrirtækin
semji beint við sína korthafa og lagt
Framleiðni í verslun
hefur stóraukist um-
fram aðrar atvinnu-
greinar, segir Haukur
Þór Hauksson, og þar
sker smásöluverslunin
sig úr.
verði bann við því að greisluviðtak-
endum verði gert að standa undir
notkun greiðslukorta.
Samkeppni er gífurleg í verslun á
íslandi, framleiðni í verslun er mikil
og íslensk verlsunarfyrirtæki hafa
tileinkað sér nýjustu hugmyndir og
tækni. Allt hefur þetta orðið neyt-
endum til hagsbóta, en það hlýtur
að vera til umhugsunar fyrir neyt-
endur og verslunina að hálfopinber
gi’eiðslukortafyrirtæki hafa með
andsamkeppnislegum tilburðum
komið sér hjá því að keppa á mark-
aðinum, heldur laumað sér inn í
vöraverðið með viðskiptaskilmálum
sem einungis taka mið af hagsmun-
um þeirra sjálfra, eins og segir í
niðurstöðu Samkeppnisstofnunar.
Höfundur er kaupmaður i Reykja-
vík og varaformaður Samtaka versl-
unarinnar.
Sjávarútvegs-
sýningin velkomin í
athafnabæinn Kópavog
AÐ SJÁLFSÖGÐU
bjóðum við Kópavogs-
búar sjávarútvegssýn-
inguna, velkomna í bæ-
inn okkar. Það er mjög
ánægjulegt að hið virta
alþjóðafyrirtæki Nexus
Media Ltd. skuli sjá
möguleikana sem
íþróttasvæðið í Smáran-
um hefur upp á að
bjóða. Samanlagt eru
tennishöllin og íþrótta-
húsið í Smáranum meira
en 1.000 fm stærri en
sýningarsvæðið í Laug-
ardalnum, þ.e. Laugar-
dalshöllin og Skauta-
höllin. Við höfum einnig næg bíla-
stæði og aðkoman er síst verri en í
Laugardalnum. Auk þess taka allar
raf- og símalagnir mið af nýjustu
Kópavogur, sem er
stærsti bær landsins,
segir Ármann Kr.
Olafsson, er orðinn
raunverulegur valkost-
ur á móti Reykjavík.
ki'öfum, sem er mikill kostur.
Kópavogur, sem er stærsti bær
landsins, er orðinn raunverulegur
valkostur á móti Reykjavík. Mesta
eftirspurn eftir byggingarsvæði á
höfuðborgarsvæðinu er hér í Kópa-
vogi, hvort um er ræða fyrir ein-
staklinga eða fyrirtæki.
Fasteignaverð íbúðar-
húsnæðis hefur hækkað
meira hér í Kópavogi
en annars staðar og
ljóst er að verslunin
veðjar á Kópavoginn
sem sitt framtíðar upp-
byggingarsvæði. Enda
er Kópavogur miðja
höfuðborgarsvæðisins.
Menningarlíf er hér í
miklum blóma og mun
bygging tónlistarhúss,
sem er hafin, setja bæ-
inn á enn hærri stall.
Kraftmikið íþróttastarf
er í bænum og óhætt að
segja að bæði Breiðablik og HK
auki sífellt hróður bæjarins og er þó
fátt eitt talið.
Það ei' af sem áður var þegar
Kópavogur var kallaður „svefnbær-
inn“. Nú stendur Kópavogur fylli-
lega undir því að vera kallaður „at-
hafnabær". Við skulum því nýta
okkur það tækifæri sem felst í við-
urkenningu Nexus Media Ltd. Það
sýnir okkur að full ástæða er til
þess að leggja enn meira í markaðs-
setningu á Smáranum sem raun-
verulegs valkosts til sýningarhalds.
Ef vel tekst til getur sú markaðs-
setning orðið grundvöllur fyrir upp-
byggingu ferðaþjónustu í Kópavogi
og hver veit nema langþráður
draumur um hótel rætist í kjölfarið.
Höfundur er stjórnmálafræðingur
og býður sig fram í 4. sæti ípróf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins i Kópa-
vogi.
Ármann Kr.
Ólafsson
Milli himins
og jarðar
VELFERÐ og lífsaf-
koma þjóða er háð um-
hverfislegum skilyi'ðum,
ekki síst á Islandi. Á al-
þjóðavettvangi hafa aðild-
arríki Sameinuðu þjóð-
anna verið afl í þágu vit-
undarvakningar um mik-
ilvægi þess að storka ekki
náttúrunni - sem og eigin
lífsafkomu - með mengun
í lofti og á láði. Umhverf-
isráðstefnurnar í Rio de
Janeiro í Brasilíu 1992 og
í Kyoto í Japan 1997 eru
til vitnis um það. En þótt
slíkir alþjóðafundir hafi
mikið vægi er mikilvæg-
ast að hver og einn hugi að umhverf-
ismálum - ekki síst sveitarstjórnh'.
Það era meðlimir Reykjavíkurlistans
meðvitaðir um og 1997 varð Reykja-
vík aðili að samtökum borga í Evrópu
sem skuldbinda sig til að vinna að
stefnumótun í umhverfismálum sem
tekur mið af ákvæðum áætlunar sem
samþykkt var á ofannefndu umhverf-
is- og þróunarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í Brasilíu 1992.
Endui-vinnsla &
umhverfisvitund
Á vegum Reykjavíkurlistans vinn-
ur nefnd að mótun stefnu í sorp-
hirðumálum, enda er það hlutverk
stjórnvalda að hvetja - og skapa
þegnunum skilyrði - til umhverfis-
vænnar hegðunar. Eins og staðan er
í dag getur hver og einn farið með
endurvinnanlegt sorp í endurvinnslu-
stöðvar eða gáma á þeirra vegum, en
í því augnamiði að auka endurvinnslu
og efla umhverfisvitund yrðu allir að
hafa aðgang að sorptunnum fyrir
flokkað sorp við heimili sín sem Sorp-
hirða Reykjavíkur myndi síðan hirða
og flytja í endurvinnslu.
Vetni & hjól
Áhrif mengunar af völdum gróður-
húsalofttegunda - sem fyrst og
fremst má rekja til notkunar bens-
íns, olíu og kola sem
orkugjafa - eru hvorki
einhlít né að fullu kunn.
Með öðrum orðum get-
ur mengun sjávar sem
og loftmengun haft mis-
munandi verkun á veð-
ur- og hitaskilyrði -
sums staðar geta hfs-
skilyrði orðið betri,
sums staðar verri.
Verstu vísindalegu spár
fyrir Island er að eyjan
verði óbyggUeg með
öllu í kjölfar mikillar
kólnunar. Mergur máls-
ins er að vísindaleg
þekking manna er ekki fullkomin en
þó verður að grípa í taumana til að
stemma stigu við mengun af manna
völdum því þrátt fyrir allt eru menn
sammála um eitt: Mengun er skað-
valdur.
Minni bílanotkun og/eða notkun
bíla sem knúðir eru vetni/rafmagni
sem og aukin hjólreiðanotkun leggst
Avegum Reykjavíkur-
listans, segir Magnea
Marinósdöttir, vinnur
nefnd að mótun stefnu í
sorphirðumálum.
allt á eina sveif: minni mengun. Það
er því mikilvægt að leggja reiðhjóla-
stíga samsíða helstu samgönguæðum
Reykjavíkur til að skapa reiðhjóla-
mönnum örugg skilyrði í umferðinni.
Ennfremur er mikilvægt að hefja
notkun rafmagns- og/eða vetnisbíla
um leið og það verður mögulegt -
ekki síst í tengslum við almennings-
samgöngur.
Ef hugur og hönd fara saman er
allt mögulegt.
Höfundur er frambjóðandi ípróf-
kjöri R-listans.
Magnea
Marinósdóttir