Morgunblaðið - 23.01.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1998 3Í
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
Gerum góða
borg betri
FYRIR fjóram ár-
um gekk Reykjavíkur-
listinn til kosninga
undir kjörorðinu „Tími
til að breyta“. Fjögur
ár era ekki langur tími
í lífí borgar, en breyt-
ingarnar era miklar.
Kúvending hefur orðið
í stjómun borgarinnar
og forgangsröðun
framkvæmda hefur
gjörbreyst. I dag er
forgangsröðunin í sam-
ræmi við þá steftiu
Reykjavíkurlistans að
höfuðborgin eigi að
vera fjölskylduvæn
borg. Mikil áhersla er
lögð á skóla- og dagvistarmál,
íþróttir, umhverfísmál og öfluga at-
vinnuuppbyggingu. Minnisvarða-
pólitíkin hefur verið lögð til hliðar.
Tryggjum nýjum hugmyndum
brautargengi
í prófkjöri Reykjavíkurlistans
laugardaginn 31. janúar n.k. gefst
borgarbúum kostur á að velja þá
frambjóðendur sem verða í fram-
varðasveit Reykjavíkurlistans í
borgarstjómarkosningum í vor. I
kjöri era 28 einstaklingar með
ólíka reynslu og bakgrann. Sumir
hafa mikla reynslu af stjómmálum
og hafa setið í borgarstjóm um
áratuga skeið. Aðrir eru nýliðar á
þeim vettvangi. Það að búa yfir
mikilli reynslu og þekkingu á sviði
borgarmála verður seint ofmetið.
En það er líka nauðsynlegt að
tryggja ákveðna endurnýjum.
Tryggja nýjum hugmyndum og
sjónarmiðum brautargengi. Segja
já takk þegar ungt og hæfileikaríkt
fólk býður fram starfskrafta sína í
þágu Reykvíkinga. Einn þeirra
frambjóðenda sem hefur
hvorttveggja í farteskinu, reynslu
og nýjar hugmyndir, er Guðjón
Olafur Jónsson, aðstoðarmaður
umhverfísráðherra.
Stjómarformaður
Félagsstofnunar stúdenta
Það sem öðru fremur einkennir
Guðjón Ólaf er víðsýni og sann-
gimi. Hann hefur sýnt það með
störfum sínum að hann er góður og
hugmyndaríkur stjórnandi sem
horfir til framtíðar. Hann er einn
þeirra manna sem hefur það að
leiðarljósi í störfum
sínum að alltaf megi
gera betur. Slíkir
menn eru mikilvægir.
Jafnframt hefur Guð-
jón Ólafur mikla
reynslu af stjórnmál-
um. Hann hefur gegnt
fjölda trúnaðarstarfa
fyrir Framsóknar-
fiokkinn og var um
tveggja ára skeið for-
maður Sambands
ungra framsóknar-
manna. Hann sat í
Stúdentaráði fyrir
Röskvu, samtök félags-
hyggjufólks og er nú
stjómarformaður Fé-
lagsstofnunar stúdenta.
Ævintýraleg uppbygging
Af mörgu er að taka þegar litið
er til verka Guðjóns Ölafs sem
Það er ánægjuefni að
Guðjón Ólafur skuli
taka þátt í prófkjöri R-
listans, segir Vilhjálm-
ur H. Vilhjálmsson,
sem telur mikilvægt að
tryggja honum sæti.
stjómarformanns Félagsstofnunar
stúdenta. Uppbygging stúdenta-
garða hefur verið ævintýraleg.
Dagvistarmál hafa verið tekin fóst-
um tökum og nú rekur FS tvo leik-
skóla. Enn ein rósin bætist síðan í
hnappagat Guðjóns Ólafs og FS
fljótlega þegar atvinnumiðstöð
stúdenta tekur til starfa. Þar verð-
ur flest það sem lýtur að atvinnu-
málum stúdenta sameinað undir
einum hatti.
Það er mikið ánægjuefni að Guð-
jón Ólafur Jónsson skuli hafa
ákveðið að gefa kost á sér í próf-
kjöri Reykjavíkurlistans. Reyka-
víkurlistinn er sterkari með Guð-
jón Ólaf innanborðs. Þess vegna er
mikilvægt að tryggja honum sæti í
framvarðasveit Reykjavíkurlistans
í næstu borgarstjórnarkosningum.
Höfundur er laganemi.
HIMIÆbWW
HUGBUNAÐUR
FYRIR WINDOWS
Yfir 1200 notendur
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
www.islandia.is/keriisttiroun
Sterkur í oröi og verki
Árríi Þór
Opið hús
laugardagskvöld
RYK- & VATNSSUGUR
Urvalið er hjá okkur
Nýbýlavegur 18 • 200 Kópavogur
Sími: 510-0000 • Fax: 510-0001
Bisröl
Er þörf fyrir nýjan fram-
haldsskóla í Kópavogi?
MIKIÐ er rætt um
nauðsyn menntunar og
skyldu stjórnvalda til
að allir þegnar lands-
ins hafí sem jafnasta
möguleika til menntun-
ar í samræmi við óskir,
hæfileika og námsgetu.
I könnunum hefur
komið fram að sterkt
jákvætt samband er á
milli menntunar og
hagvaxtar. Það er eftir
miklu að slægjast fyrir
íslendinga að búa yfír
miklum mannauði.
Stjórnvöld geta haft
áhrif á mannauðinn með
því að hvetja einstak-
linga til menntunar og með því að
búa skólastarfinu gott umhverfí.
Mikilvægt er að nemendur sem
huga á framahaldsnám geti átt
möguleika á að sækja slíka mennt-
un sem næst sínu heimili en þurfí
ekki að leita í annað sveitarfélag.
Aukin aðsókn að MK
Undanfarið hefur aðsókn að
Menntaskólanum í Kópavogi (MK)
aukist gífurlega. Skólinn starfar á
þremur meginsviðum; bóknáms-
sviði, hótel- og matvælasviði og
ferðamálasviði. Fjölgun nemenda á
bóknámsbraut MK hefur aukist úr
400 árið 1994 í um 700 árið 1997.
Auk þess era 200 nemendur í hótel-
og matvælaskólanum og 200 í
Ferðamálaskólanum. Nemendur í
MK era því nú um 1100.
Undanfarið hafa bæði ríki og
sveitarfélagið lagt mikið í stækkun
og endurbætur á MK.
En það er augljóst að
með sömu aðsókn að
skólanum er nauðsyn-
legt að fara að huga að
stækkun MK eða nýju
húsnæði undir fram-
haldsskóla í bænum.
Viðbygging
við MK
Drög að teikningum
að viðbyggingu við MK
era þegar til og lóðin
er til staðar. Það væri
því þegar hægt að
hefja framkvæmdir við
viðbygginguna. Mennta-
skólinn er í grónu hverfi
og að honum liggja góðar umferð-
aræðar og almenningsvagnaleiðir.
Viðbyggingin er nægjanlega stór til
að geta annað eftirspurn þeirra
sem ljúka grannskólanámi og
hyggja á bóklegt nám í fjölbrauta-
skóla í Kópavogi á næstu áram.
Horft til framtíðar -
nýr framhaldsskóli
Ríkið og bæjaryfirvöld hafa staðið
myndarlega að uppbyggingu
Menntaskólans í Kópavogi og er
hinn nýi hótel- og matvælaskóli til
mikils sóma. Framhaldsskólar eru
byggðir og reknir af ríkinu en sveit-
arstjómir geta haft áhrif á byggingu
nýs skóla ef sveitarstjómarmönnum
finnst það mikið hagsmunamál íyrir
sveitarfélagið.
Ljóst er að ekki verður hægt að
byrja á nyjum framhaldsskóla í
Kópavogi fyrr en eftir nokkur ár.
Aðsókn að Menntaskól-
anum í Kópavogi hefur
aukizt mikið síðustu ár-
in. Sigurrós Þorgríms-
dóttir horfír í þessari
grein til framtíðar
skólamála í KópavogK
Enn hefur ekki endanlega verið
ákveðið hvar hann verður staðsett-
ur. Þó er líklegt að bærinn leggi til
lóð undir hann í hinum nýju hverf-
um bæjarins svo hann yrði mið-
svæðis fyrir það svæði þegar það er
fullbyggt.
Ef sama aðsókn heldur áfram að
vera að MK er ólíklegt að hann
anni eftirspurn eftir u.þ.b. 10 - 15
ár. Því er ljóst að eftir þann tíma
verður að byggja annan framhalds-
skóla í Kópavogi ef það er stefna
stjómvalda að nemendur geti sófct'
framhaldsskólanám í sinni heima-
byggð. Þrátt fyrir að nýr skóli yrði
byggður í Kópavogi í framtíðinni
yrði viðbygging við MK hagstæð
fyrir stjómvöld og sveitarfélagið.
Það aukarými sem fengist með
nýrri álmu myndi í framtíðinni nýt-
ast betur undir þá starfsemi sem
fyrir er í MK.
Höfundur er varaformaður skóla-
sljórnar MK og tekur þátt í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins f Kópa-
Sigurrós
Þorgrímsdóttir
Beikon borgan,
f ranskar og kók
oá Z fvrir 1 í bíó
yýjVAG
i