Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
I-
Strandaglópur
í Keflavík
FLUGVÉL bandaríska flugfé-
lagsins United Airlines af gerð-
inni Boeing 777 lenti á Keflavík-
urflugvelli um miðjan dag í gær
vegna veikinda eins af 284 far-
þegum vélarinnar. Maðurinn er á
fimmtugsaldri og mun hann skv.
upplýsingum Morgunblaðsins
þjást af sykursýki .
Flugvélin var að koma frá
London og var áætlað að fljúga
beint til San Francisco. Farþegi
um borð mun hins vegar hafa
sýnt öll einkenni þess að hann
væri að fá hjartaáfall, að sögn
vaktstjóra hjá flugumsjón Fiug-
leiða á Keflavíkurflugvelli, og
þegar vélin var komin rétt suður
af landinu ákvað flugstjóri vélar-
innar, í samráði við lækna flugfé-
lagsins sem um borð voru, að
snúa við og lenda vélinni í Kefla-
vík. Fyrst mun vélin þó hafa
þurft að losa sig við nokkurt
magn eldsneytis.
I Keflavík beið mannsins
sjúkrabíll og var haldið á Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja, en mein-
ingin var að flugvélin héldi rak-
leiðis áfram vestur um haf. Elds-
neytisáfylling dróst hins vegar
og innan tíðar var maðurinn
mættur á nýjan leik tilbúinn til
brottfarar, enda höfðu læknar í
Keflavík eftir skoðun ekki metið
ástand hans alvarlegt.
Læknar United Airlines tóku
hins vegar fyrir að hann kæmi
aftur um borð, fannst öruggara
að maðurinn tæki lengri tíma í
að jafna sig þar sem um mjög
langt flug var að ræða. Hélt því
vélin áfram för sinni um klukkan
fimm í gærdag en strandaglópur-
inn eyddi nóttinni á hóteli í
Keflavík.
Seta bankaráðsmanna í stjórnum dótturfyrirtækja
Bankaráðsmenn Búnað-
arbanka taka ekki sæti
BÚNAÐARBANKI íslands lét
gera fyrir sig lögfræðiálit í janúar
síðastliðnum þar sem komist var að
þeirri niðurstöðu að seta banka-
ráðsmanna í stjórn dótturfynr-
tækja samrýmdist ekki setu þeirra í
bankaráði. Petta er sama niður-
staða og Bankaeftirlit Seðlabankans
komst að varðandi setu bankaráðs-
manna Landsbanka Islands í
stjórnum dótturfyrirtækja sem
fjallað var um í Morgunblaðinu í
gær.
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði í samtali við
Morgunblaðið að í kjölfai- lögfræði-
álitsins hefði verið ákveðið að
bankaráðsmenn tækju ekki sæti í
stjórnum í félögum sem bankinn
íslandsbanki
hefur ekki beðið
um slíkt álit
ætti aðild að, svo sem Lýsingu hf.
og greiðslukortafyrirtækjunum.
Stefán sagði að bankinn hefði lát-
ið gera lögfræðiálit eftir að það
hafði komið til álita að bankaráðs-
menn tækju sæti í stjórnum þessara
fyrirtækja en að niðurstaðan hefði
verið ótvíræð.
íslandsbanki hefur ekki beðið
um sambærilegt álit
Valur Valsson, bankastjóri ís-
landsbanka, sagði ekki mikið um
það að bankaráðsmenn sætu í
stjórnum dótturíyrirtækja. „Ég
hygg þó að í stjóm VÍB, WÍB og
stjóm Glitnis sitji einn bankaráðs-
maður.“
Valur sagði íslandsbanka ekki
hafa beðið um álit Bankaeftirlits og
kvaðst ekki gera ráð fyrir að eftir
slíku áliti yrði óskað, enda hefði
ekki verið neitt tilefni til þess. Að
öðra leyti kvaðst Valur ekki geta
tjáð sig um málið þar sem hann
hefði ekki séð álit bankaeftirlitsins
eða forsendur úrskurðarins. „Eg
geri mér ekki nokkra grein fýrir því
hvort þetta snerti okkur. Það getur
vel verið að þarna séu einhverjar
sérstakar aðstæður sem mér er
ekki kunnugt um.“
' miákik
„ - , ; | ^
Ljósmynd/Páll Ketilsson
SJÚKRABÍLL beið flugvélar United Airlines þegar hún lenti í Keflavík rétt fyrir þrjú í gærdag.
Með ellefu bflnúmer
í farangrinum
LÖGREGLAN í Kópavogi stöðvaði
akstur manns um bæinn um hádeg-
isbil í gær. Hann reyndist vera rétt-
indalaus og þar að auki voru núm-
eraplötumar á bíl hans af bfl, sem
hafði verið afskráður fyrir nokkra.
Lögreglan skoðaði bflinn nánar
og fann í honum nokkur pör af núm-
eraplötum til viðbótar. Það þótti
nóg ástæða til að kanna hagi
mannsins enn betur og fundust alls
ellefu pör af númeram í fóram
Tólf ára fslendingur teflir við Will Smith í Los Angeles
„Er alveg
rosalega
spenntur“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Páskaeggin
gleðja
ÞAÐ hýmaði heldur betur yfir
honum Amari Þór Ólafíusyni þeg-
ar honum var fært páskaegg. Am-
ar Þór dvelur nú á Barnaspítala
Hringsins, þar sem hann er í
krabbameinsmeðferð.
í þessari viku munu öll krabba-
meinssjúk börn á sjúkrahúsum fá
páskaegg frá umboðs- og heild-
versluninni Sjónarhóh i Hafnar-
firði.
TÓLF ára íslenskur drengur,
Hlynur Hallgrímsson, teflir æf-
ingaskák við leikarann, rappar-
ann og sjónvarpsstjörnuna Will
Smith í Los Angeles í dag. Hlyn-
ur er búsettur í Los Angeles
ásamt fjölskyidu sinni og æfir
fótbolta og skák af kappi. Skák-
þjálfari Hlyns þjálfar einnig Will
Smith og bauð hann Hlyni að
tefla við stórstjörnuna.
„Ég er alveg rosalega spenntur
og hlakka mikið til,“ sagði Hlyn-
ur í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Ég hef séð þrjár bíómyndir
með Will Smith og horfl oft á
þættina hans hér í sjónvarpinu."
„Will Smith er að taka upp
nýja mynd um þessar mundir
sem heitir „Enemy of the State“.
Ég tefli við hann þegar hann tek-
HLYNUR Hafliðason teflir við
Will Smith í dag.
WTLL Smith æfir skák á milli
atriða í upptökum.
ur sér hlé frá tökum svo ég fer á
tökustað í fylgd þjálfarans míns,
en engir aðrir fá að fljóta með
því eftirlitið er nyög strangt."
Aðspurður sagðist Hlynur ætla
að reyna að sigra Will f skákinni,
en bætti við að skákin væri meira
til gamans en hitt. Þess má geta
að Will Smith er með um 1000
ELO stig en Hlynur með 1752, en
hann hefur orðið íslandsmeistari
í skák í flokki tíu ára og yngri.
Á NETINU:
www.mbl.is
SÉRBLÖÐ I DAG
Uppbygging,
náttúruvernd
► Uppbygging og náttúruvernd
haldast í hendur í Bessastaða-
hreppi, en þar er nú verið að
kynna deiliskipulag að nýju
hverfi með 58 lóðum vestan
Sjávargötu. Jafnframt er aug-
lýst nýtt skipulag fyrir Kast-
húsaljörn og svæðið í kring.
Þættir eins og Markaðurinn,
Smiðjan, Lagnafréttir og Gróð-
ur og garðar eru þar líka á sín-
um stað auk frétta um fasteign-
ir, sem eru til sölu.
Grindavík úr leik
► Skagamenn komu geysilega á
óvart með því að slá deildar- og
bikarmeistara Grindavíkur út úr
íslandsmótinu í
körfuknattleik í
gærkvöldi. Þá
komst Valur í
undanúrslit 1. deildar kvenna í
handknattleik með stórsigri á
Gróttu/KR á Seltjarnarnesi og
mætir liði
=SarL?í . :r=.
II ll h I tí „
íl I* i •*!$*■ «■£±8 f JLtm
íuémR
Stjömunnar, sem
sló Fram út um
helgina.
Heimsókn utanríkis-
ráðherra Eistlands
Ræðis-
manns-
skrifstofa
opnuð
TOOMAS Hendrik Ilves, utan-
rfldsráðherra Eistlands, opnar
í dag aðalræðismannsskrif-
stofu Eistlands í Reykjavík.
Ráðherrann er í opinberri
heimsókn hérlendis og átti í
gær viðræður við íslenzka
ráðamenn, auk þess að halda
erindi um utanrfldsstefnu
lands síns og stækkun Atlants-
hafsbandalagsins á opnum
fundi Samtaka um vestræna
samvinnu.
Jón Sigurðarson, forstjóri
Fiskafurða hf., hefur verið
skipaður ræðismaður Eist-
lands á Islandi og verður ræð-
ismannsskrifstofan til húsa í
húsnæði fyrirtældsins í Skip-
holti. „Þar sem nú þegar er
starfandi ræðismaður íslands í
Tallinn erum við ánægðir með
að hafa nú okkar ræðismann
hér á landi," sagði Ilves í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Sendiherra Eistlands á íslandi
hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn en sendiherra Islands í
Eistlandi í Stokkhólmi.
íslendingar hafa fjárfest í
fiskvinnslu í Eistlandi og sagð-
ist ráðherrann vonast til að
framhald yrði á slíkri þátttöku
Islendinga í atvinnuuppbygg-
ingu í landinu. „Ég vona að við
munum áfram njóta samstarfs
og ráðgjafar íslendinga
þessu sviði og ég held að þar
liggi góðir möguleikar fyrir ís
lenzk fyrirtæki til útþenslu í
erlendum markaði,“ sagði Ilv
es.
I
mannsins, öll af bílum sem höfðu
verið afskráðir.
Lögreglan hefur svo sem áður
stöðvað bíla með ólöglegar númera-
plötur og í einhverjum tilvikum hef-
ur ökumaðurinn átt aukapar. Lög-
reglumenn í Kópavogi rekur hins
vegar ekki minni til að hafa tekið
ellefu númer af einum og sama
manninum. Rannsókn stendur yfir
á því hvemig hann komst yfir plöt-
umar.
I Afstaða Rússa/26