Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 27
ERLENT
Ný bandarísk geimvarnaaætlun
Sögð dæmd til
að mistakast
Washington. Daily Telegraph.
OHAÐ sérfræðinganefnd hefur
gagnrýnt bandaríska varnamála-
ráðuneytið, Pentagon, og kallað
undirbúning nýrrar „stjömu-
stríðsáætlunar" klúðurslegan og
sagt áætlunina „dæmda til að
mistakast".
Frá því repúblikanar náðu
meirihluta í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings hefur mikil áhersla
verið lögð á að hrinda geim-
varnaáætlun af stokkunum. Ron-
ald Reagan forseti boðaði fyrir
15 árum áætlun um vígbúnað í
geimnum til að verja Bandaríkin
fyi-ir kjamorkuárás, en hún hef-
ur verið lögð á hilluna í millitíð-
inni.
Aætlunin, sem nú er unnið að,
er þó mun viðaminni en geim-
varnaáætlun Reagans. Engu að
síður er hún íj árfrekasta vopna-
verkefni Bandaríkjanna. Aætlað-
ur kostnaður á ári er tæpir fjórir
milljarðar dollara, jafnvirði 280
milljarða króna. Miðar hún að
því að byggja skjöld gegn skoti
kjarnorkuvopna af gáleysi eða
takmarkaðri kjamorkuárás. Er
þá miðað við allt að 20 flauga
árás.
Samþykkti fulltrúadeildin að
árið 2003 yrðu komnir á braut
skynjarar er myndu samstundis
nema ef óvinavopnum yrði skotið
á loft og bandarískar gagnflaug-
ar myndu síðan skjóta niður.
Ratsjárkerfi á jörðu niðri myndi
fóðra gagnflaugarnar á upplýs-
ingum um braut óvinaflauganna
sem grandað yrði með árekstri á
rúmlega hljóðhraða.
Óháð nefnd var skipuð til að
gera úttekt á undirbúningi áætl-
unarinnar og formaður hennar
er Larry Welsh fyrrverandi yfir-
maður bandaríska flughersins.
Er það niðurstaða hennar að
framkvæmd verkefnisins sé
skólabókardæmi um slaka skipu-
lagningu og ómarkvissa verk-
stjórn. Ein ástæðan sé sá póli-
tíski þrýstingur sem er á Penta-
gon um að hleypa geimvama-
áætluninni af stokkunum á til-
settum tíma.
Clinton bannar vitnis-
burð aðstoðarmanna
KATHLEEN Willey, sem sakað
hefur Bill Clinton, forseta Banda-
ríkjanna, um að hafa áreitt sig kyn-
ferðislega 1993,
segir, að vin-
gjarnleg bréf,
sem hún sendi
Clinton síðar,
verði að skoða í
því ljósi, að hún
var að reyna að
verða sér úti um
vinnu. Leiðtogar
repúblikana hafa
lýst yfir furðu
sinni á því, að Clinton skuli hafa
með tilvísan í sérréttindi forsetans
komið í veg fyrir, að tveir aðstoðar-
menn hans væru yfirheyrðir. Segja
þeir, að það minni mest á Waterga-
te-málið.
í viðtali við vikuritið Newsweek
segir Willey, að Hvíta húsið reyni
nú að láta hana líta út sem einhvern
„rugludall". Segir hún einnig, að
ekkert hafi verið athugavert við
bréfin, sem hún sendi Clinton eftir
að meintur atburður átti sér stað
1993.
„Með þeim var ég bara að segja
„halló, hér er ég og mig vantar
vinnu“. Ég hafði ákveðið með sjálfri
mér að láta atburðinn gleymdan og
Kathleen Willey
segir ekkert
athugavert við
bréf hennar til
forsetans
grafinn. Það var mín ákvörðun og
ég hafði fullan rétt til að taka
hana,“ sagði Willey.
Bað vinkonuna
að ljúga
Tímaritið Time sagði á sunnu-
dag, að fyrrverandi vinkona Willey,
Julie Steele, hefði skýrt FBI eða al-
ríkislögreglunni frá því, að Willey
hefði logið því upp 1995, að hún
væri ófrísk til að ná sér niðri á vini
sínum. Hefði Willey beðið hana að
ljúga því með sér og skila því til
vinarins, að hún hefði misst fóstrið.
Steele hefur áður sagt, að Willey
hafi beðið hana að ljúga til um
Clinton-málið við fréttaritara.
Útgefandinn Mike Viner, sem
Willey reyndi að fá til að gefa út
ævisögu sína, sagði í viðtali við
CWN-sjónvarpsfréttastöðina, að
hann teldi, að Willey hefði „hag-
rætt“ atburðarásinni töluvert á
þeim tíma, sem reynt var að ná
samningum. Sagði hann, að viðræð-
ur við lögfræðing Willey hefðu
byrjað í janúar og þá hefði hún ver-
ið „mjög mikill stuðningsmaður
Clintons“. Það hefði síðan breyst og
náð hámarki með viðtalinu í „60
mínútum".
Minnir á Watergate
Clinton hefur komið í veg fyrir
yfirheyrslur yfir tveimur nánum
ráðgjöfum sínum, Bruce Lindsey
og Sidney Blumenthal, og gerði það
í skjóli fremur óljósra laga, sem
leyfa, að bannað sé að skýra frá
einkasamtölum við forsetann um al-
menn stjórnarmálefni. Sá, sem
beitti þessu ákvæði síðast, var Ric-
hard Nixon, sem reyndi þannig að
komast hjá Watergate-hneykslinu.
Repúblikaninn Trent Lott, for-
seti öldungadeildarinnar, sagði um
helgina, að ákvörðun Clintons væri
röng og myndi draga úr trúverðug-
leika hans vegna samanburðarins
við Watergate. í skoðanakönnun,
sem gerð var um helgina, kemur
fram, að æ fleiri efast um siðferðis-
styrk Clintons. 43% töldu, að hann
ætti að segja af sér ef ásakanir Kat-
hleen Willey reyndust réttar.
YJUM HUSAKYNNUM A GRJOTHALSI
Hugvit, hátækni og áræðni
Hátæknifyrirtækið Össur hf. var stofnað 1971. Fyrirtækið hannar, framleiðir og selur stoðtæki,
og er leiðandi í heiminum á sviði óhefðbundinna stoðtækjalausna. Össur hf. á þrjú dótturfyrirtæki
erlendis og vinnur markaðs- og sölustarf í yfir 50 löndum. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 90 manns.
Þú ert aufúsugestur!
OSSUR