Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens ■
í ÞÚ l/EJSr/ÍÐ /)&SÓkW//j/>£>
/ HuhjpunUa^ ÓJchfó ^‘sröeuór
V/ÐÆTTVM MNNS>KJAbT\
\ &JÓM 5TVTr£&n4B0L-i j
Grettir
Ljóska
ÉG er að æfa mig í að skrifa HVAÐ?
spurningarmerki . . . spurning-
armerki eru mikilvæg ef maður
skyldi þurfa að segja ...
l'M PRACTIC1N6 MV QUE5TI0N
MARK5.. QUE5TION MARK5
ARE IMPORTANT IN CA5E
YOU MAVE TO SM..
|Wi8irgMg|tltol>í&
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Handbók fyrir hita-
kerfin er krafa fólksins
Frá Kristjáni Ottóssyni:
í MORGUNBLAÐINU þriðjudag-
inn 17. mars sl. birtist í Bréfi til
blaðsins grein frá formanni Félags
pípulagningamanna, undir yfir-
skriftinni „Handbókin hennar
Jónínu minnar“.
í grófum dráttum byggist grein-
in á skömmum, órökstuddum til-
vitnunum og lítilsvirðingu fyrir
góðum skilum á frágangi á hita-
kerfum til húseigenda.
Formaðurinn segir: „Sjaldan eða
aldrei hef ég orðið jafn gáttaður og
þegar grein Kristjáns Ottóssonar
framkvæmdastjóra Hita- og loft-
ræstiþjónustunnar og Lagnafélags
íslands birtist í DV.“ Ekki er að
undra að maðurinn verði hissa, því
þar er sett saman í léttum dúr
samskipti hjóna (húsbyggjenda)
við hönnuðinn og pípulagninga-
meistarann og leit þeiiTa að Hand-
bókinni yfir hitakerfið sem nýbúið
var að selja þeim hjónum. Þar gat
maður lesið um þá erfiðleika sem
fólk hefur við að stríða við að reyna
að skilja hvernig á að nota hita-
kerfið sem engar uppýsingar fylgja
með.
Hitakerfin
drabbast niður
Staðreyndin er sú að það gleym-
ist að afhenda húseiganda upplýs-
ingar um hvernig hann geti og eigi
að nota hitakerfið. Við þessar að-
stæður og þessa samskiptaerfið-
leika gefst fólkið upp og hitakerfin
drabbast niður.
Það er aðeins vitað um eina
Handbók yfir einbýlishús, sem tek-
in hefur verið saman af pípulagn-
ingameistara.
Þessi Handbók var unnin af Páli
Bjamasyni pípulagningameistara
og syni hans, og fengu þeir feðgar
viðurkenningu fyrir þetta lofsverða
lagnaverk frá Lagnafélags íslands
fyrir árið 1996, handverkið og
Handbókin var gerð fyrir Berg-
þórugötu 4 í Reykjavík.
Þeir sem þess óska geta fengið
að sjá bókina eða ljósrit af henni
hjá Lagnafélagi þslands.
Þessi umrædda Handbók var
birt í Fréttabréfi Lagnafélags Is-
lands 7. tbl. 1997 og Fasteignablaði
Morgunblaðsins þriðjudaginn 27.
janúar 1998. Þar fær fólk svör við
spurningum sínum varðandi erílð-
leika með að átta sig á ofnhitakerf-
inu og heita og kalda kranavatninu
ásamt hlutverki hinna ýmsu krana
í húsum sínum.
Viðurkenning veitt á hverju ári
Lagnafélag íslands hefur veitt
viðurkenningu fyrir lofsvert lagna-
verk á hverju ári frá árinu 1990. Öll
þau verk hafa verið í stórum bygg-
ingum, viðurkenninguna hafa hlot-
ið: Pípulagningameistarar, blikk-
smíðameistarar, hönnuðir og við-
komandi húseigandi. Þá hefur síð-
ustu þrjú árin verið veitt viður-
kenning fyrir sérstaklega gott
handverk á minni verkum, og hafa
hlotið þá viðurkenningu einn jám-
smiður og tveir pípulagningameist-
arar, báðir afbragðs fagmenn.
Formaður pípulagningameistara
segir að svona bók eigi ekki rétt á
sér, það nægi „að Handbók í ein-
býlishúsum og öðmm litlum kerf-
um væri lítið annað en skýringar-
tafla upp á vegg í kyndiklefa, sem
ég veit að fer vaxandi meðal pípu-
lagningamanna að skilja eftir“.
Atvinnurekandandinn
í stóra húsinu
Staðreyndin er sú að hitagrind
er nákvæmlega eins, hvort sem
hún er í einbýlishúsi, tólf hæða
blokk eða verksmiðjuhúsi, mark-
miðið á að vera, bemm ekki síður
virðingu fyrir launþeganum sem
setur aleigu sína eina í íbúð, en at-
vinnurekandanum í stóra húsinu.
Tókuð þið eftir því að formaður-
inn sagði „sem ég veit að fer vax-
andi meðal pípulagningamanna að
skilja eftir". Hvað er formaðurinn
að segja? Jú, hann viðurkennir að
verkunum eigi að skila til húseig-
enda með betri frágangi en verið
hefur, og slík yfirlýsing hjá for-
manninum er til fyrirmyndar, en
framkvæmdin verður að fylgja á
eftir.
Orðið athvarf
Formaður pípulagningamanna
segir í niðrandi setningu um
Lagnafélag íslands: „Ég er með
tillögu í framhaldi af þessu um nýtt
nafn í Lagnafélaginu, hvernig lýst
ykkur á Lagnaathvarfið."
Því er tfi að svara að Lagnafélag
íslands er fyrir fólkið í landinu,
Lagnafélag Islands er ekki „at-
hvarf* fyrir þá sem ekki vilja bæta
sig í gæðum við afhendingu á hita-
kerfum til fólks sem er að eyða al-
eigu sinni í hitakei’fi í íbúð fyrir
fjölskylduna.
KRISTJÁN OTTÓSSON,
vélstjóri/blikksmíðameistari, ft-am-
kvæmdastjóri Hita- og loftræstiþjón-
ustunnar og Lagnafélags Islands.
Virðing við Halldór Laxness
Frá Sigurgeiri Orra Sigurgeirssyni:
MORGUNBLAÐIÐ og Ríkissjón-
varpið eiga hrós skilið fyrir þá virð-
ingu sem þau sýndu Halldóri Lax-
ness við andlát hans. Umfjöllun
blaðsins var því til afar mikils sóma
og sjónvarpsþættimir einstakir.
Einnig verður að hrósa DV fyrir að
gera útfór og minningu fraktskips-
ins Vikartinds engu verri skil en
skáldsins. Það er til vitnis um að
blaðið gerir sér grein fyrir mikil-
vægi Vikartinds í menningarsögu
okkar.
Að lokum ætla ég að stinga upp
á því við Ríkissjónvarpið að það
sýni viðtalsþættina, sem voru uppi-
staðan í heimildaþáttunum, í heild
sinni aftur. Betri skemmtun en að
horfa á Halldór er vandfundin.
SIGURGEIR ORRI
SIGURGEIRSSON,
Kirkjutorgi 6,101 Reykjavík.
AUt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.