Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 26
X2 8PGJ fc&fltJOAaULG
26 ÞRIÐJÚDAGUR 24. MARZ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Toomas Hendrik Ilves utanríkisráðherra Eistlands í opinberri heimsókn á Islandi
ÖLL Eystrasaltslöndin þrjú, Eist-
land, Lettland og Litháen, munu
fyrr eða síðar verða aðilar að Atl-
antshafsbandalaginu. Opinber and-
staða Rússa við að það gerist mun
ekki hindra þá þróun mála. Þetta
fullyrti Toomas Hendrik Ilves, ut-
anríkisráðhen-a Eistlands, í samtali
við Morgunblaðið, en hann er
staddur í opinberri heimsókn hér-
lendis og átti í gær viðræður við
æðstu ráðamenn Islands auk þess
að halda erindi um utanríkisstefnu
Eistlands á opnum fundi Samtaka
um vestræna samvinnu.
Að sögn Ilves bar mörg mál á
góma í viðræðum hans við íslenzka
ráðamenn, Halldór Ásgrímsson ut-
anríkisráðherra, Davíð Oddsson
forsætisráðherra og utanríkismála-
nefnd Alþingis. Hæst bar þó áform-
in um stækkun NATO og viðleitni
Eistlands til að ganga í bandalagið.
Þakklátir íslendingum fyrir
stuðninginn í Madrid
„ísland er mjög hátt skrifað með-
al Eistlendinga," sagði Ilves. „Þjóð-
in er þakklát fyrir þann stuðning
sem Islendingar veittu henni er
hún barðist fyrir endurreisn sjálf-
stæðis síns 1991. í skólum landsins
er bömum kennt að Island var
fyrst til að viðurkenna sjálfstæði
Eistlands; ímynd Islands er mjög
jákvæð. Ekki spillir heldur fyrir að
Island er eina landið þar sem for-
sætisráðherrann hefur þýtt bækur
um Eistland," sagði Ilves. Hann
Rússar hindra
ekki NATO-aðild
Eystrasaltslanda
kvað tvíhliða samskipti
landanna fullkomlega
vandkvæðalaus og búið
að semja um frjáls
ferðalög fólks milli
landanna, þ.e. afnám
vegabréfaáritunar.
„Við eram mjög
þakklátir fyrir hinn
eindregna stuðning
sem við fengum frá Is-
lendingum í fyrra, þeg-
ar samið var um
stækkun NATO á leið-
togafundi bandalagsins
í Madríd. Við ræddum
ítarlegar hvernig við
sæjum fyrir okkur að
stækkunarferli NATO
ætti eftir að þróast. A
heildina litið voram við
sammála um að líta mjög jákvæð-
um augum á niðurstöðu Madríd-
fundarins. I lokayfirlýsingu hans
var tillit tekið til flestra atriða sem
við höfðum vonazt eftir að skiluðu
sér þangað, en þau atriði era fyrst
og fremst að stækkun
NATO muni halda
áfi’am eftir fyrstu lotu
og að skýrt sé téldð
fram að Eystrasalts-
löndin komi til greina
sem framtíðaraðildar-
ríki NATO.“
Það sem Eistlend-
ingar era að gera um
þessar mundir til að
vinna að því að færast
nær takmarkinu um
NATO-aðild felst að
sögn Ilves fyrst og
fremst í því að hrinda
þeim umbótum í fram-
kvæmd heima fyrir
sem era forsenda að-
ildar, þar á meðal að
samræma tæknibúnað
eistneska hersins þeim stöðlum
sem gilda í NATO-ríkjunum og
ekki sízt að þjálfa hermenn lands-
ins þannig að þeir standist þær
kröfur sem aðildin krefst.
Uves telur of snemmt að nokkuð
Morgunblaðið/Þorkell
TOOMAS Hendrik
Ilves, utanríkisráð-
herra Eistlands.
sé sagt um það hvaða ríki í Mið- og
Austur-Evrópu séu líklegust til að
fá að ganga í bandalagið í næstu
stækkunarlotu, á eftir Póllandi;
Tékklandi og Ungverjalandi. „I
sumum NATO-löndum era nú þeg-
ar farnar að heyi’ast raddir sem
vilja reka áróður fyrir forgangi
þessa eða hins landsins þegar kem-
ur að því að ákveða hvaða lönd
verða með í annarri stækkunarlot-
unni. Það er of snemmt að setja
upp einhverja slíka forgangsröð.
Eg tel skynsamlegast að bíða með
umræðu um hvaða ríki verði næst í
röðinni þar til á leiðtogafundi
NATO á næsta ári.“
Möguleikar á NATO-aðild ekki
minni en annarra ríkja
Ilves segir litla ástæðu til að álíta
að neikvæð afstaða rússneskra
ráðamanna til NATO-aðildar
Eystrasaltsríkjanna, sem um 45 ára
skeið tilheyrðu Sovétríkjunum, sé
tilefni til þess að álíta möguleika
þeirra á NATO-aðild minni en hinna
fyrrverandi austantjaldslandanna. I
fyrsta lagi hafi Rússar undirritað
samstarfssamning við NATO, þar
sem skýrt er kveðið á um að hverju
og einu fullvalda ríki sé í sjálfsvald
sett hvort og hvaða varnarbanda-
lögum það tilheyrir. I öðra lagi
standi, samkvæmt skoðanakönnun-
um, yfirgnæfandi meirihluta rúss-
nesks almennings „hjartanlega á
sama“ um það hvort Eystrasalts-
löndin ganga í NATO eða ekki.
Sigur
jafnaðar-
manna í
Slésvík
JAFNAÐARMENN unnu
sigur á Kristilegum demókröt-
um, flokki Helmuts Kohls,
kanslara Þýskalands, í kosn-
ingum í Slésvík-Holtsetalandi
á sunnudag, samkvæmt bráða-
birgðaniðurstöðum kosning-
anna. Hálft ár er í þingkosn-
ingar í Þýskalandi, þar sem
Jafnaðarmenn vonast til þess
að hafa sigur af Kohl.
Jafnaðarmenn juku fylgi
sitt um 2,9%, upp í 42,4% en
Kristilegir demókratar hlutu
39,1%, sem er fylgisaukning
um 1,6%.
Lestarslys
á Italíu
EINN maður fórst og allt að
fimmtíu slösuðust í lestarslysi
á Mið-Ítalíu í gær. Slysið varð
er hraðlest á leið til Bologna
rakst á lest er var á leið til
Empoli og er talið að mistök-
um í merkjaboðum til lestar-
stjóranna sé um að kenna.
I
OFLUG ÞJONUSTA OSSURAR HF. I
r
Ört vaxandi umsvif Össurar hf. hafa leitt til þess að fyrirtækið hefur flust í nýtt húsnæði á Grjóthálsi 5 í Reykjavík.
í þessu rösklega 4.000 m2 framtíðaraðsetri sameinar fyrirtækið alla starfsemi sína hérlendis undir einu þaki:
Stoðtœkjaverkstœði, Hjálpartœkjabankann, þróunardeild, framleiðsludeild og skrifstofur fyrirtœkisins. Ljóst er að
verulegt hagræði hlýst af því þegar öll þjónustu-, markaðs-, iðnaðar- og útflutningsstarfsemi fyrirtækisins er komin í
nábýli með þessum hætti.
Þægindi viðskiptavina í öndvegi
Á Grjóthálsi 5 verður allt kapp lagt á góða aðstöðu fyrir viðskiptavini fyrirtækisins. Nýja húsnæðið er m.a. hannað með
þarfir fatlaðra og sjúkra í huga og hefur þá sérstöðu að öll þjónusta við þessa hópa verður á einum stað.