Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Framkvæmdir við Borgarbraut á leið í útboð
Stærsta verk á
Norðurlandi í ár
ÁKVEÐIÐ hefur verið að bjóða
út framkvæmdir við Borgarbraut
á Akureyri i fyrstu viku apríl-
mánaðar nk. Um er að ræða
vegaframkvæmdir, alls um 1450
metra að lengd, frá gatnamótum
Glerárgötu og Ti-yggvabrautar
upp með Glerá að Hlíðarbraut,
þar sem verður hringtorg, og
smíði tveggja samsíða brúa þar
sem Borgarbraut liggur yfir
Glerá.
Að sögn Sigurðar Oddssonar,
yfirtæknifræðings framkvæmda-
deildar Vegagerðarinnar á Akur-
eyri er þetta stærsta verk sem
boðið verður út á Norðurlandi á
árinu. Borgarbraut er þjóðvegur
en það eru Vegagerðin og Akur-
eyrarbær sem standa að útboð-
inu, sem verður auglýst sem
Hlíðarfjallsvegur um Borgar-
braut. Langmesti kostnaðurinn
fellur á ríkið en það mun koma í
hlut bæjarins að greiða kostnað
við göngustíga og fleira. Stefnt
er að því að verkinu verði lokið í
ágúst á næsta ári.
Sjónræn áhrif
takmörkuð
Nýi vegurinn mun liggja yfir
svæði sem þegar er raskað af
mannavöldum en er ekki talinn
hafa veruleg áhrif á gróður og
dýralíf á svæðinu. Töluverð áhrif
verða hins vegar á landslag
vegna sprenginga og fyllinga við
vegstæðið. Einnig mun lagning
brúar yfir Glerá hafa mótandi
áhrif á ásýnd Glerárgils sem er á
Náttúruminjaskrá. Sjónræn
áhrif mannvirkja og rask í gilinu
hafa verið takmörkuð með því að
velja brúarstæðið þar sem gilið
er þröngt.
I framtíðinni er gert ráð fyrir
því að tengja Dalsbraut frá Þing-
vallastræti inn á Borgarbraut og
að þetta verði aðalakstursleiðin
bæði frá Brekkunni og Glerár-
þorpi í miðbæ og á athafnasvæð-
ið á Oddeyri. Borgarbraut og
tenging Dalsbrautar við hana
styttir vegalengdir innanbæjar
umtalsvert og er talin spara bfl-
eigendum í bænum um 40 millj-
ónir króna á ári í beinan rekstr-
arkostnað, miðað við fyrirliggj-
andi forsendur.
Útför
Stefáns
Valgeirs-
sonar
IJTFÖR Stefáns Valgeirssonar
bónda og alþingismanns frá Auð-
brekku í Hörgárdal var gerð frá
Akureyrarkirkju í gær. Séra Pét-
ur Þórarinsson í Laufási jarð-
söng. Organisti og kórstjóri var
Hjörtur Steinbergsson, en félag-
ar úr Kór Ákureyrarkirkju
sungu, m.a. Eg kveiki á kertum
mínum, Hærra minn Guð, til þín,
f bljúgri bæn og Blessuð sértu
sveitin mín. Hrönn Hafliðadóttir
söng einsöng, m.a. Vögguvísu við
texta Halldórs Laxness. Jarðsett
var í Möðruvallakirkjugarði í
Hörgárdal. Elstu barnabörn Stef-
áns báru kistu hans úr kirkju,
þau Stefán Torfí Höskuldsson,
Gunnhildur Fjóla Valgeirsdóttir,
Hjalti Valþórsson, Davíð Rúdolfs-
son, Valgeir Valsson og Kjartan
Smári Höskuldsson.
AÐALFUNDUR
SAMVINNUSJÓÐS ÍSLANDS
Aðalfundur Samvinnusjóðs Islands hf. verður
haldinn mánudaginn 30. mars 1998 kl. 15
á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt 17. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
4. Tillaga um heimild til félagsstjórnar til kaupa
á eigin hlutabréfum í félaginu.
5. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Stjórn Samvinnusjóðs Islands hf.
Samvinnusióður Islands hf.
Fjárfestingarbanki
Morgunblaðið/Kristján
Kiðagil í Giljahverfí að fullu tekið í notkun
Morgunblaðið/Kristján
MARTEINN og Alma Karen sem bæði eru tveggja ára voru að fá sér
brauð með osti þegar ljósmyndara bar að garði í leikskólann Kiðagil
sem nú hefur að fullu verið tekinn í notkun.
Tekið við eins
árs börnum
LEIKSKÓLINN Kiðagil í Gilja-
hverfi hefur nú að fullu verið
tekinn í notkun, en fram að síð-
ustu mánaðamótum deildi hann
húsnæði með Giljaskóla. Skólinn
varð tilbúinn í byijun febrúar og
þá fluttu börnin sig yfir úr leik-
skólahúsnæðinu. Síðasta mánuð
hafa staðið yfir breytingar á hús-
næði leikskólans og er þeim ný-
lega lokið.
Arnar Eyfjörð leikskólasljóri
sagði að í kjölfar þess hefði leik-
skólinn fengið um helmingi
meira pláss til umráða og eru nú
íjórar deildir starfandi þar. Þær
heita Sóley og Gleym mér ei, og
eru þær fyrir yngstu börnin, en
deildir þriggja til sex ára barna
heita Engjarós og Smári.
Giuggakarmar, hurðir og fleira
innanstokks er málað í litum
blómanna.
Mikil
eftirspurn
Eftir þessa stækkun Kiðagils
er nú mögulegt að taka eins árs
börn inn á leikskólann og er það
í fyrsta skipti sem svo ungum
börnum býðst leikskóladvöl á
Akureyri. Arnar sagði að eftir-
spurn eftir leikskólaplássi fyrir
eins árs börn væri mikil og væru
þau fyrstu nú í aðlögun. Alls er
81 rými á Kiðagili, en nokkuð er
um að börn skipti á milli sín rým-
um, eru ýmist fyrir eða eftir há-
degi, þannig að alls eru um 110
börn á leikskólanum.
Mikið um
hraðakstur
LÖGREGLA hefur stöðvað
marga ökumenn síðustu daga
sem ekið hafa alltof hratt.
Þannig voru tveir ökumenn
sem óku of hratt stöðvaðir, en
þeir áttu alveg eins bíla og
voru að reyna hvor þeirra
kæmist hraðar. Þeir sluppu
með skrekkinn og héldu skír-
teinum sínum en þurfa vænt-
anlega að greiða einhverja
sekt auk þess sem þeir fá
refsipunkta fyrir tiltækið.
Auk þeirra sem óku of hratt
stöðvaði lögregla fjóra öku-
menn sem voru ölvaðir við
akstur, en höfðu ekki valdið
slysum þegar för þeirra var
stöðvuð. Þrjátíu og átta öku-
menn og farþegar voru kærðir
fyrir að nota ekki öryggisbelti
og einn var kærður fyrir að
aka eftir að hafa verið sviptur
ökuleyfi. Tveir óku gegn rauðu
ljósi og sautján virtu ekki
stöðvunarskyldu.
Skilríki
að láni
FJÖLDI fólks var á skemmti-
stöðum bæjarins um helgina
og mikil ölvun þannig að
nokkrir þurftu að gista fanga-
geymslur lögreglunnar.
Eitthvað var um að fólk
væri tekið með röng skilríki,
en dyraverðir vínveitingahúsa
eru duglegir að stöðva þá sem
hafa fengið „skilríki að láni“.
Ef um er að ræða bankakort
og slík skilríki afhendir lög-
regla viðkomandi bönkum þau,
en þeir sem fara óvarlega með
slík skilríki geta búist við að
verða sviptir þeim. Einnig
voru nokkrir kærðir fyrir að
reyna að fara með vín inn á
vínveitingahús, en það er með
öllu óleyfilegt.
Ferðafélag
Akureyrar
Gönguferðir
til Nepal
DAVID Oswin og Helgi Bene-
diktsson sýna myndir og
kynna göngu- og ævintýra-
ferðir fyrir Islendinga í Nepal
á vegum Ferðafélags Akureyr-
ar næstkomandi fimmtudags-
kvöld. Myndasýningin verður í
húsnæði Flugbjörgunarsveit-
arinnar á Akureyri, Galtalæk,
og hefst hún kl. 20.30.
Þeir Helgi og David hafa
mikla reynslu sem fararstjórar
og skipuleggjendur á göngu-
ferðum um Nepal og víðar og
hafa frá mörgu að segja, í máli
og myndum.
Aðgangseyrir ásamt kaffi-
veitingum er 400 kr.
Fimm á
slysadeild
FIMM ungmenni voru flutt á
slysadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri eftir bíl-
veltu sem varð á Eyjafjarðar-
braut við bæinn Rifkelsstaði
fyrir miðnætti aðfaranótt laug-
ardags. Bfllinn lenti utan veg-
ar og skemmdist mikið, en
hann var fjarlægður af slys-
stað með kranabíl. Tveir far-
þegar úr bílnum voru fluttir á
slysadeild með sjúkrabfl sem
kallaður var til en aðrir fóru á
slysadeild með lögreglubfl.
Betur fór en á horfðist því
ungmennin voru öll í öryggis-
beltum.