Morgunblaðið - 24.03.1998, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Sjö hreppar
í Mýrasýslu
sameinast
Morgunblaðið/Ingimundur
SVEITARSTJÓRNARMENN úr Álftaneshreppi, Borgarhreppi, Borgarbyggð eftir að hafa gengið frá sam-
einingn sveitarfélagana. Með þeim á myndinni er Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu, fyrrum sveitarstjdri f Borgarnesi.
Borgarnesi - Föstudaginn 13. mars
sl. samþykktu sveitarstjórnir Alfta-
neshrepps, Borgarbyggðar, Borg-
arhrepps og Þverárhlíðarhrepps að
sameinast í eitt sveitarfélag að und-
angengnum kosningum.
Fyrir fjórum árum sameinuðust
Borgarnesbær, Hraunhreppur,
Stafholtstungnahreppur og Norður-
árdalshreppur í eitt sveitarfélag
sem hlaut nafnið Borgarbyggð.
Annað skrefið í enn meiri samein-
ingu í Mýrasýslu var stigið fóstu-
daginn 13. mars sl. er endanlega var
gengið frá sameiningu allra sveitar-
félaga í Mýrasýslu, nema Hvítár-
síðuhrepps, í eitt sveitarfélag.
Ferillinn hófst 22. september á
síðasta ári er sveitarstjómir í
Mýrasýslu komu saman til fundar
og ræddu sameiningarmál. Fljót-
lega dró Hvítársíðuhreppur sig út
úr. En mynduð var samstarfsnefnd
hinna fjögurra sveitarfélaganna.
Kosið var um sameininguna 14.
febrúar og var hún samþykkt í öll-
um sveitarfélögunum. Kosningar
fóru þannig:
Sveitarfélag á kjörskrá era 68.
Já sögðu 37, nei 24, auðir og ógildir
voru engir. Borgarbyggð: Kjósend-
ur 486. Já sögðu 412, nei 64, auðir
eða ógildir 10, Borgarhreppur:
Kjósendur 67. Já sögðu 49, nei 16,
auðir og ógildir 2, Þverárhlíð:
Kjósendur 50. Já sögðu 31, nei 17,
auðir og ógildir 2. Samtals:
Kjósendur 664. Já sögðu 529, nei
121, auðir og ógildir 4.
í samþykkt sveitarstjóma hinna
fjögurra sveitarfélaga í Mýrasýslu
kemur fram:
1. Sameining sveitarfélaganna
tekur gildi 7. júní 1998. 2. Kosning
til sveitarstjórnar hins sameigin-
lega sveitarfélags fer fram laugar-
daginn 23. maí 1998, sbr. 13. gr.
sveitarstjórnarlaga. 3. Fulltrúar í
sveitarstjórn hins sameiginlega
sveitarfélags skulu vera 9. 4. Nafn
hins sameinaða sveitarfélags skal
vera Borgarbyggð. 5. Hið nýja
sveitarfélag skal taka yfir allt land
sem nú tilheyrir áðurgreindum
sveitarfélögum. 6. Eignir, skuldir,
réttindi og skyldur sem tilheyra
þessum fjórum sveitarfélögum
skulu falla til hins nýja sveitarfé-
lags. 7. Skjöl og bókhaldsgögn
hinna fjögurra sveitarfélaga skulu
afhent hinu nýja sveitarfélagi til
varðveislu.
Viljayfirlýsing sveitarstjórn-
anna:
í viljayfirlýsingu sem fylgir með
segir einnig meðal annars: „I sam-
eiginlegu sveitarfélagi verði reynt
að tryggja öllum íbúum sveitarfé-
lagsins jafna aðstöðu til þeirrar
þjónustu sem sveitarfélagið býður
upp á.
Til að tryggja góðan framgang
sameiningar og tengsl við stjórn-
kerfi sveitarfélagsins ráði sveitar-
stjóm þjónustufulltrúa eða trúnað-
armann í hinum íyrri sveitarfélög-
um a.m.k. eitt kjörtímabil eftir
sameiningu. I sameiginlegu sveitar-
félagi verði reknir tveir grunnskól-
ar, í Borgarnesi og á Varmalandi og
sæki nemendur í sveitarfélaginu í
þá skóla. öflugur tónlistarskóli
verði rekinn í sveitarfélaginu. Sa-
meinað sveitarfélag mun fyrir sitt
leyti leggja til að félagsheimili verði
rekin með sama íyrirkomulagi og
nú er gert. Aðaláhersla eftir sam-
einingu verður lögð á að bæta sam-
göngur og þá fyrst og fremst að
lagfæra snjóastaði. Lögð verði
áhersla á að vegir í dreifbýli verði
lagfærðir. Réttur jarðar til upp-
Revía
byggð
á bæjar-
málum
Hveragerði - Revía sem ber heit-
ið „Hver gerði“ var frumsýnd
hjá Leikfélagi Hveragerðis síð-
astliðið föstudagskvöld. Höfund-
amir em þrír félagar í Leikfé-
laginu, þau Margrét Ásgeirs-
dóttir, Guðmundur Garðar Guð-
mundsson og Anna Jómnn Stef-
ánsdóttir en hún er jafnframt
leiksljóri. f revíunni er gert góð-
látlegt grín að fjölskrúðugum
innanbæjarmálum Hvergerð-
inga síðustu misserin. Eins og
flestum ætti að vera kunnugt er
efniviður til revíugerðar ærinn í
Hveragerði og ef dæma má af
viðbrögðum frumsýningargesta
féll grínið í góðan jarðveg. Eins
og hæfir góðri revíu er mikið
sungið í sýningunni og eru text-
ar laganna hver öðmm fmm-
FÉLAGAR í Karlakómum
Heimi úr Skagafírði bmgðu und-
ir sig betri fætinum fyrir stuttu
er þeir héldu í tónleikaferð suður
yfir heiðar. Ferðin hófst í Reyk-
holti í Borgarfirði, kvöldið eftir
sungu þeir á Laugalandi í Holta-
og Landsveit í Rangárvallasýslu
og enduðu síðan í Langholts-
kirkju og skemmtistaðnum
Broadway í Reykjavík. Á öllum
þessum stöðum söng kórinn fyrir
fullu húsi og komust jafnvel
færri að en vildu.
Föstudagskvöldið 13. mars
söng kórinn fyrir troðfullu húsi á
Laugalandi í Holta- og Land-
sveit, en um sex til sjö hundmð
manns komu víða að af Suður-
landi til að hlýða á sönginn. Á
dagskránni vora mörg skemmti-
leg og leikandi létt sönglög sem
áheyrendur kunnu vel að meta,
rekstrar á tiltekinn afrétt verði
óbreyttur frá því sem nú er sbr.
breytingu á lögum um afréttamál-
efni og fjallskil nr. 6/1986. íbúar
sameinaðs sveitarfélags hafi allir
jafnan aðgang að félagsþjónustu
þeirri sem í boði er. Vegna fjar-
lægðar í mörgum tilfellum verði
sérstaklega athugað hvernig koma
megi til móts við íbúa sveitarfélags-
ins. Brýnt er að bæta ástand sorp-
eyðingar í héraðinu og verður unn-
ið að lausn þess. Byggingafulltrúa-
embættið verður sameinað í eitt
legri. Næstu sýningar verða
föstudaginn 27. og laugardaginn
28. mars. Aðeins verður um
þessar tvær sýningar að ræða.
Sýnt er á Hótel Björk en þar
enda var kórinn margklappaður
upp. Með kórnum sungu bræð-
urnir frá Álftagerði, þeir Gísli,
Pétur og Sigfús Péturssynir, og
einsöng sungu þeir Einar Hall-
dórsson og Oskar Pétursson. All-
ur söngur og framkoma kórfé-
laga einkenndist af sannri gleði
sem skilaði sér óheft til þakk-
látra áheyrenda. Stjórnandi
kórsins var Stefán R. Gíslason,
en undirleikari á píanó Thomas
Higgerson og á harmoníku Jón
S. Gíslason. Karlakór Rangæ-
inga bauð síðan kórfélögum upp
á kaffi og tertur að loknum tón-
leikum. Að sögn formanns kórs-
ins, Þorvaldar G. Óskarssonar,
era kórfélagar himinlifandi yfir
þeim frábæra mótttökum sem
þeir hlutu hvarvetna enda að-
sókn framar þeirra björtustu
vonum.
embætti í stjórnsýslu hins samein-
aða sveitarfélags."
Samstarfsnefndin var þannig
skipuð:
Einar Ole Pedersen, Álftanes-
hreppi, Jóhannes M. Þórðarson,
Álftaneshreppi, Guðmundur Guð-
marsson, Borgarbyggð, Sigrún
Símonardóttir, Borgarbyggð, Stef-
án Ólafsson, Borgarhreppi, Þorkell
Fjeldsted, Borgai'hreppi, Ragn-
heiður Ásmundsdóttir, Þverárhlíð-
ai'hreppi, Vilhjálmur Diðriksson,
Þverárhlíðarhreppi.
hefur salnum verið breytt í eins-
konar kaffíhús meðan á sýningu
stendur og geta sýningargestir
notið léttra veitinga fyrir, sem
og á meðan á sýningu stendur.
B-listi nýs
sveitarfé-
lags austan
Lagarfljóts
PRÓFKJÖR fór fram á föstudag og
laugadag vegna uppröðunar á B-
listann vegna komandi sveitar-
stjórnarkosninga í nýju sveitarfé-
lagi austan Lagarfljóts. Við samein-
inguna renna saman i eitt sveitarfé-
lag Egilsstaðabær, Vallahreppur,
Skriðdalshreppur, Eiðaþinghá og
Hj altastaðaþinghá.
Alls kusu 283 í prófkjörinu. Úr-
slitin urðu eftirfarandi:
1. Broddi Bjamason, 2. Katrín
Ásgrímsdóttir, 3. Halldór Sigurðs-
son, 4. Vigdís Sveinbjörnsdóttir, 5.
Eyþór Elíasson, 6. Björn Armann
Ólafsson, 7. Stefán Sveinsson, 8.
Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir,
9. Ástvaldur Erlingsson, 10. Gunnar
Sigbjömsson, 11. Benedikt Ólason
og 12 Gunnar Hannesson.
GFjölbrautaskólinn í Garðabæ
við Skólabraut, 210 Garðabæ, sími 520 1600, fax 565 1957
íbúar Garðabæjar, Bessastaða-
hrepps og aðrir landsmenn!
Opið hús verður í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
fimmtudaginn 26. mars nk. kl. 8.00-16.00. Þá gefst
fólki kostur á að ganga um skólann undir leiðsögn
starfsmanna. Kennsla verður í fullum gangi og
verða kennslustofur opnar. Tækifæri gefst til að
ræða við kennara og aðra starfsmenn skólans.
Hraðskákmót verður haldið í skólanum miðviku-
dagskvöldið 1. apríl nk. kl. 20.00. Umhugsunartími
er 5 mín á skák. Góð verðlaun í boði. Fólk á öllum
aldri er hvatt til að koma og hafa með sér töfl og
klukkur. Ekkert þátttökugjald.
Internet námskeið. Námskeiðið verður haidið þrjá
laugardagsmorgna í röð kl. 10.00-12.00, fyrst laug-
ardaginn 18. apríl nk. Kennd verður notkun í vef-
skoðun, tölvupóstkerfi og ráðstefnum. Kennari er
Björn Hólmþórsson. Verð kr. 7.500.
Excel námskeið. Byrjendanámskeið verður haldið
sex miðvikudagskvöld í röð kl. 20.00-22.00, fyrst
miðvikudaginn 15. apríl. Kennd verður notkun á
töflureikninum Excel. Kennari er Stefán Árnason.
Verð kr. 7.500.
Fatasaumur. Námskeið í fatasaumi verður haldið
sex mánudagskvöld í röð kl. 19.00-22.00, fyrst
mánudagskvöldið 20. apríl. Kenndur fjölbreyttur og
hagnýtur fatasaumur. Kennari er Ásdís Jóelsdóttir.
Verð kr. 9.500.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 520 1600.
Ennfremur upplýsingar á heimasíðu skólans:
http://rvik.ismennt.is/~fg/
Komið og njótið kennslu með fullkomnum
búnaði, s.s. tölvubúnaði, í nýju og glæsilegu
húsnæði skólans við Skólabraut!
Skólameistari.
Karlakórinn Heim-
ir á faraldsfæti