Morgunblaðið - 24.03.1998, Side 19

Morgunblaðið - 24.03.1998, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 19 Tengsl atvinnulífs og menn- ingar VERSLUNARRÁÐ íslands efnir til morgunverðarfundar á morgun um hlutverk at- vinnulífsins í menningu og list- um og tengsl þessara þátta þjóðlífsins. Fundurinn verður haldinn í Sunnusal (Atthaga- sal) Hótels Sögu og stendur frá kl. 8-9:30 A fundinum verður m.a. leitað svara við eftirfarandi spumingum: • Gegnir atvinnulífið hlut- verki í íslenskri menningu? • Eru forráðamenn fyrir- tækja hræddir við samtíma- list? • Lifa listaverkin lengur en fyrirtækin? • Hvað gera menning og listir fyrir atvinnulífið? • Eiga fyrirtækin eða ríkið að vera bakhjarlar listamanna? Framsögumenn á fundinum verða Sigurður Gísli Pálma- son, framkvæmdastjóri Hofs sf. og Stefán Baldursson Þjóð- leikhússtjóri. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða, auk framsögumanna: Agúst Ein- arsson alþingismaður, Edda Jónsdóttir framkvæmdastjóri Gallerís Ingólfsstræti 8, Eirík- ur Þorláksson forstöðumaður Kjarvalsstaða og Friðrik Þór Friðriksson framkvæmda- stjóri Islensku kvikmynda- samsteypunnar ehf. Bankaráðsformaður Islandsbanka telur brýnt að hagræða frekar í bankakerfínu Sjálfsagt að skoða sameiningu Landsbanka og Islandsbanka KRISTJÁN Ragnarsson, formaður bankaráðs Islandsbanka, segir að sjálfsagt sé að skoða alla kosti sem geti leitt til hagræðingar í banka- kerfinu, jafnt sameiningu Islands- banka við Landsbankann sem og sameiningu við Búnaðarbankann sem áður hefur verið rætt um. Þörf sé á djörfum, pólitískum ákvörðun- um til að stjómvöld glati ekki því tækifæri sem þau hafi til að styrkja og bæta íslenska bankakerfið. Kristján gerði að umtalsefni þann árangur sem hefur orðið í rekstri bankans á undanfomum árum og sagði að hann hefði aðeins náðst vegna stöðugrar vinnu við að bæta þjónustu en gera reksturinn um leið hagkvæmari. Með afnámi fjár- magnsflutninga milli landa blasti hins vegar ný staða við og ljóst væri að enn yrði að leita nýrra leiða til að draga úr kostnaði og halda sam- keppnishæfni. „Samanburður við helstu samkeppnislönd sýnir að hér á landi em of margir bankar, of margar afgreiðslur og of margt starfsfólk. Við eigum því engra kosta völ. íslenska bankakerfið þarf í næstu framtíð að geta boðið íslensk- um atvinnurekstri og almenningi ódýrari bankastarfsemi en kostur er á í dag. Ódýrari rekstur verður ekki nema með sammna banka. Um þetta er ekki lengur deilt og virðast bankastjórar ríkisbankanna vera okkur sammála um nauðsyn sam- rana banka.“ Á undanfomum tveimur aðalfund- Morgunblaðið/Árni Sæberg FJÖLMENNI sótti aðalfund íslandsbanka í gær. Ríkti góður andi meðal fimdarmanna enda skilaði bankinn methagnaði f fyrra. um íslandsbanka hefur Kristján varpað fram hugmyndum um sam- einingu íslandsbanka og Búnaðar- bankans og í gær ítrekaði hann þessa skoðun sína. Sameining bank- anna væri tiltölulega einfalt verk og með slíkri aðgerð sýndi ríkisstjórnin raunhæfan vilja til að draga úr af- skiptum rfldsins í fjármálastarfsemi. Ríkisafskipti fjötur um fót Kristján tjáði sig einnig um nýleg ummæli Kjartans Gunnarssonar, frá- farandi formanns bankaráðs Lands- bankans, um augljóst hagræði þess að sameina tvo stærstu bankana, Landsbankann og íslandsbanka. , J>að er að vísu mun stærri aðgerð og umfangsmeiri en hefði jafnframt þá tvo kosti, að flýta til muna því að rík- ið dragi sig út úr fjármálastarfsemi og ná fram miklu hagræði í banka- kerfinu. Við fognum öllum hugmynd- Erfítt ár að baki hjá Kælismiðjunni Frosti hf. Tapið nam 63 milljónum króna TAP Kælismiðjunnar Frosts nam 63 milljónum króna á síðastliðnu ári en árið 1996 varð rúmlega þriggja millj- óna króna hagnaður af rekstrinum. Rekstrartekjur fyrirtækisins námu tæpum 639 milljónum króna og juk- ust um 19% milli ára. Rekstrargjöld án fjármagnskostnaðar og afskrifta námu samtals 683 milljónum króna og hækkuðu um 168,8 milljónir eða 32,8% á milli ára. Óskar Þórðarson, framkvæmda- stjóri Kælismiðjunnar Frosts, segir að rekja megi versnandi afkomu þrátt fyrir aukin umsvif til nokkiura þátta í starfsemi fyrirtældsins. „Ym- is stórverkefni, aðallega tilboðsverk, skiluðu mun verri afkomu en reiknað var með. Meðalútkoma tilboðsverka félagsins var mun verri í fyrra en ár- ið áður. Einnig drógust þjónustu- tekjur saman þrátt fyrir fjölgun starfsmanna og aukinn kostnað. I raun má segja að fyrirtækið hafi ver- ið ofmannað miðað við verkefnastöðu stóran hluta ársins. Þá reyndist óhjákvæmilegt að afskrifa 10 millj- óna króna viðskiptakröfur og 12,7 milljónir vegna ábyrgðarverka. Segja má að um uppsafnaðan vanda hafi verið að ræða sem óhjákvæmi- legt reyndist að takast á við.“ Víðtæk endur- skipulagning Eftir því sem leið á árið varð ljóst að ekki myndi verða hagnaður á starfseminni og var þá gripið til að- gerða sem nú eru óðum að skila sér, að sögn Óskars. „Við höfum farið yf- ir alla þætti rekstrarins og endur- skipulagt hann frá gmnni. Starfs- mönnum hefur verið fækkað um fimmtán, úr 55 í um 40. Við eram því að fækka veralega í fóstu starfsliði ? ■ -.-y ::-y.,v .,■: .'V.y . dyv ; UÆ ■■ ■ M ■ §h JL 1 J Kæhsmiojan Frost hl Úr reikningum ársins 1997 ■ Rekstrarreikningur Miiijóntr króna 1997 1996 Breyting Rekstrartekjur 638,7 535,1 +19,4% Rekstrargjöld 697,7 524,9 +32,9% Hagnaður (tap) án fjárm.kostnaðar (59,0) 10,3 Fjármagnskostnaður (6.5) (4,4) +47,7% Hagnaður (tap) fyrir skatta (65,5) 5,9 Reiknaðir skattar 2,4 (2.6) Hagnaður (tap) ársins (63,1) 3.3 Efnahagsreikningur Miiijónir króna 1997 1996 Breyting ' ~Eignir: | Veltufjármunir 254,5 312,4 -18,5% Fastafjármunir 77,8 71,5 +8,8% Eignir samtals 332,4 383,9 -13,4% i Skuidir og eipið fé:! Skammtímaskuldir 214,7 278,5 -22,9% Langtímaskuldir 48,2 40,2 +19,9% Eigið fé 69,4 62,9 +10,3% Þar af hlutafé 80.9 49.5 +83.4% Skuldir og eigið fé samtals 332!4 383,9 -13,4% Kennitölur 1997 1996 Breyting Veltufé frá rekstri Milljónir króna 49,7 11,6 +328,5% en munum þó ekki minnka umsvifin. Það hjálpaði fyrirtækinu veralega að tveir stærstu hluthafar félagsins, Eignarhaldsfélag Alþýðubankans og hf. og Sabroe+Söby í Danmörku ákváðu í desember síðastliðnum að styðja við bakið á því með því að leggja fram nýtt hlutafé að upphæð 75 mifljónir króna. Félagið stendur því í raun fjárhagslega sterkara nú en það gerði fyrir ári, þrátt fyrir að hafa orðið fyrir þessu áfalli. Þessi stuðningur stærstu eigendanna gerði það að verkum að við fengum ráðrúm tfl að ganga í þessa endur- skipulagningu af krafti og það virðist þegar vera farið að skila sér.“ Góð verkefnastaða Óskar segir að verkefnastaða fyr- irtækisins sé góð og reiknað sé með hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins. „Við sjáum nú þegar að fyrstu tveir mánuðirnir hafa komið vel út. Annar um sem til gagns geta orðið og telj- um að þennan kost eigi að skoða gaumgæfilega eins og aðra.“ Kristján vék að Fjárfestingar- banka atvinnulífsins og sagði að við kynningu frumvarps um hann hefði áhersla verið lögð á hagræðingarhlið málsins og að starfsmönnum myndi fækka. „Allt annað hefur komið á daginn. Ekki aðeins hefur starfs- mönnum fjölgað svo um munar, held- m- hefur komið í Ijós að til viðbótar við hefðbundna lánastarfsemi er í raun verið að stofna nýtt verðbréfa- fyrirtæki í þessum nýja rfldsbanka með tilheyrandi kostnaði. Nú er mál að linni. Engin eftiahagsleg rök era fyrir nauðsyn rfldseignar á fjármála- markaðnum. Hin djúptæku áhrif og eignaraðfld rfldsins á þessum mark- aði era honum nú fjötur um fót.“ Er tindi hagsveiflunnar náð? Kristján rakti almennt þróun mála í efnahagslífinu hér á landi á liðnu ári og sagði að ýmislegt benti nú til að tindi hagsveiflunnar væri náð. „Samningsbundnar launahækkanir í þjóðfélaginu á næstu misserum verða töluverðar og það þarf mikla framleiðniaukningu tfl að rísa undir þeim. Það mun því reyna á aðlögun- arhæftii atvinnulífsins og við þær að- stæður er mikilvægt að mark- aðsvextir á Islandi lækki og nálgist markaðsvexti í helstu samkeppnis- löndum. Sú þróun hefur nú hafist og í gær lækkuðu langtímavextir hjá okkur í Islandsbanka um 30-50 punkta. Miklu máli skiptir að rflds- sjóður er nú rekinn hallalaus og er hættur skuldasöfnun. Við núverandi aðstæður er hins vegar mikflvægt að auka þjóðhagslegan spamað og í þeim efnum vegur þyngst að stjóm- völd nái afgangi á rfldssjóði og hefji niðurgreiðslu skulda. Stóraukin sjálfvirkni íslandsbanki og dótturfyrirtæki skfluðu methagnaði á síðasthðnu ári eða 1.047 milljónum króna og var arðsemi eiginfjár 21,1%. Valur Vals- son bankastjóri þakkaði þennan ár- angur góðu árferði og margvíslegum aðgerðum sem gripið var til í því skyni að bæta reksturinn og gera hann hagkvæmari. M.a. jukust gjald- eyrisviðskipti um tæp 70%, skulda- bréfaviðskipti um 60% en hluta- bréfaviðskipti meira en tvöfolduðust. Með tilkomu Fríkortsins og með sér- stöku söluátaki fjölgaði nýjum debetreikningum um 7.700 á árinu, notendum greiðsluþjónustu fjölgaði um helming og notendum spamaðar- þjónustu um þriðjung svo eitthvað sé nefnt. Valur fjallaði um hinar miklu tækniframfarir sem orðið hafa í bankaviðskiptum á undanfomum ár- um og sagði að ekki væri enn séð fyrir endann á þeim. Árið 1990 vora 5% allra færslna í bankanum sjálf- virkar eða gerðar með sjálfsaf- greiðslu, t.d. í hraðbönkum, en 95% handunnar. í fyrra vora hins vegar 55% færslna sjálfvirkar en 45% handvirkar. Valur sagði að reikna mætti með því að um aldamótin verði um 85% færslna sjálfvirkar. Finnskur fjárfestir á fundinum FJOLMENNI sótti aðalfund fs- landsbanka í gær og virtust hlut- hafar almennt vera sáttir við af- komu bankans á síðasta ári. Með- al fundarmanna var finnskur fjárfestir, Taito Tuunanen, sem gerði sér sérstaka ferð hingað til lands til að sækja aðalfundinn. Tuunanen sagði í samtali við Morgunblaðið að hann væri atvinnufjárfestir og hefði fjár- fest í fyrirtækjum í tuttugu lönd- um víðs vegar um heim. Hann býr í Finnlandi en ferðast til útlanda að meðaltali einu sinni í mánuði til að líta eftir fjárfest- ingum sinum, oftast til að sækja aðalfundi hlutafélaga sem hann hefur Qárfest í. Fyrir um ári fékk hann áhuga á íslenska hlutabréfamarkaðnum vegna mikiila hækkana hlutabréfa á honum og var ráðlagt að kaupa hlutabréf í íslandsbanka og Flug- leiðum. Hann sagðist vera afar ánægður með þá ávöxtun sem ís- landsbankabréfin hefðu skilað sér og spurði blaðamann óspart ráða um frekari hlutabréfakaup á Islandi. ársfjórðungur skilar oft minnstu í þessum rekstri en verkefnastaðan er samt góð miðað við árstíma. Áætlan- ir okkar gera ráð fyrir 560 mflljóna króna veltu í ár og 10-11 milljóna króna hagnaði." Á síðustu mánuðum hefur margt verið gert til að efla vöraþróun fyrir- tækisins og hefur m.a. verið unnið að þróun ísvéla, ísverksmiðja, plötu- frysta, sjókælikerfa og lausfrysta. Óskar segir að markmiðið sé að skapa grandvöll að útflutningi á næstu áram með framleiðsluvöram sem byggðar era á reynslu af þjón- ustu við íslensk sjávarútvegsfyrir- tæki. ,Á næstunni mun Kælismiðjan Frost kynna nýjar ísvélar ásamt ís- verksmiðjum en nýlega lukum við smíði alsjálfvirkrar ísverksmiðju hjá SR-Mjöli á Seyðisifrði. Þrjár ísvélar hafa þegar verið seldar á þessu ári og þar af voru tvær seldar til Suður- Afríku," segir Óskar. Windows NT netstjómun I 36 kennslust. ÍlWiFgl Frábært námskeið fyrir þá sem vilja sjálfir stjóma NT neti. Windows NT netstjómun II 36 kennslust. Mjög ítarlegt framhaldsnámskeið fyrir þá sem hafa þekkingu á NT netstjómun. NT netstjómun I og II 72 kennslust. 79.900 stgrl Bæði námskeiðin í mjög hagstæðum pakka. Tölvu- og verkfræðiþjónustan Grensásvegi 16 'Avww.lv.is/skdli/ sem auðvelt er að muna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.