Morgunblaðið - 24.03.1998, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
310 milljóna króna
tap hjá Islensk-
um sjávarafurðum
íslenskar
sjávarafurðir
Úr reikningum ársins 1997
Rekstrartekjur
Rekstrargjöld
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld)
Reiknaður tekjuskattur
2.765,7
(2.816,1)
(108,5)
95,2
2.620,8
(2.274,1)
(84,8)
!3M
+5,5%
+23,8%
+28,0%
Samtals rekstrargjöld
Hagnaður (tap) afreglulegri startsemi
(2.829,4)
(63,7)
(2.395,5)
225,4
+18,1%
Aðrartekjurog (gjöld)
(246,6)
(65,0)
+279,4%
Hagnaður (tap) ársins
(310,3)
160,4
Efnahagsreikningur 31. des.
1997
1996
Breyt.
Eipnir: \
Milljónir króna
Fastafjármunir
Veltufjármunir
Eignir samtals
i Skuidir op eigið 1é:
Langtímaskuldir
Skammtímaskuldir
Eigið fé
Skuldir og eigið fé samtals
4.576,3
8.137,7
2.332,0
7.085,2
+96,2%
+14,9%
12.714,0
9.417,2
+35,0%
Milljónir króna
2.732,6
8.027,6
1.953,8
847,7
6.344,1
2.225,4
+222,4%
+26,5%
■12,2%
12.714,0
9.417,2
+35,0
Kaupfélag Borgfírðinga í Borgarnesi
Kaupfélagsstjóri
segir upp störfum
LIÐLEGA 310 milljóna króna tap
varð af rekstri samstæðu Islenskra
sjávarafurða hf. á síðasta ári en ár-
ið áður var 160 milljóna kr. hagn-
aður. Munurinn er 470 milljónir kr.
Skýrist tapið af kostnaði við lokun
fískréttaverksmiðju í Bandaríkjun-
um og flutningi í nýja, uppsögn á
samstarfssamningi IS og UTRF í
Rússlandi og kaupum og yfirtöku á
nýjum félögum. Gert er ráð fyrir
150 milljóna kr. hagnaði í ár.
Sala samstæðu Islenskra sjávar-
afurða nam 25,4 milljónum kr. á
síðasta ári og hafði minnkað um
rúman milljarð frá árinu áður. 64
milljarða kr. tap varð af reglulegri
starfsemi á móti 225 milljóna króna
hagnaði á árinu 1996. Þegar tekið
hafði verið tillit til óvenjulegra
gjalda og tekna varð tapið 310
milljónir eins og fyrr segir.
Stefnt að
hagnaði í ár
„Eins og öllum má vera ljóst eru
það stjóm og starfsmönnum Is-
lenskra sjávarafurða hf. mikil von-
brigði að félagið skuli nú í fyrsta
skipti í sjö ára starfsemi þess vera
gert upp með tapi. A það ber þó að
líta að samkvæmt áætlunum var
gert ráð fyrir tapi vegna þess
mikla átaks sem ráðist var í með
flutningi verksmiðjunnar í Banda-
ríkjunum þar sem aftur á móti
óvænt samningsslit í Rússlandi
komu félaginu í opna skjöldu," seg-
ir í fréttatilkynningu frá ÍS.
Benedikt Sveinsson, forstjóri ís-
lenskra sjávarafurða, segist ekki
geta verið annað en óánægður með
niðurstöðuna. En hann sé í sjálfu
sér ánægður með að hafa gert
grein fyrir fortíðinni og þurfa ekki
að hafa meiri áhyggjur af henni.
Það sé ágætis tilfinning að geta
hugsað um framtíðina.
Áform, áfall
og tækifæri
Rekstraráætlanir samstæðu ÍS
gera ráð fyrir stóraukinni veltu á
yfirstandandi ári, meðal annars
vegna kaupa á franska fyrirtækinu
Gelmer, og að veltan verði um 32
milljarðar. Gert er ráð fyrir að
reksturinn nái jafnvægi á nýjan
Skýrist af flutn-
ingum fiskrétta-
verksmiðju í
Bandaríkjunum og
slitum á sam-
starfssamningi í
Rússlandi
leik og samstæðan skili um 150
milljóna króna hagnaði.
Benedikt skýrir tap fyrirtækisins
með þremur orðum; áformum,
áfalli og tækifærum. Hluti af tapinu
skýrist af áformum um að snúa við
rekstrinum í Bandaríkjunum þótt
það kostaði mikið, annar hluti stafi
af áfalli vegna slita á samstarfs-
samningnum við Rússana og þriðji
hlutinn af tækifærum við kaup á
franska fyrirtækinu Gelmer.
Fyrst er um það getið í fréttatil-
kynningu ÍS að uppbygging nýrr-
ar verksmiðju Iceland Seafood
Corporation í Newport News í
Bandaríkjunum og flutningur allr-
ar starfsemi fyrirtækisins frá
Pennsylvaníu hafi haft í fór með
sér mikinn kostnað og lakari
rekstrarafkomu þess félags, eins
og raunar hafi verið reiknað með.
Hnignandi rekstur ISC undanfarin
ár og tap af reglulegri starfsemi,
sem náði hámarki á árinu sem leið,
hafi kallað á grundvallarbreyting-
ar sem nú væru að baki með lokun
gömlu fiskréttaverskmiðjunnar og
opnun nýrrar í október. Fram
kemur að auk verulegs beins
rekstrartaps af starfsemi félagsins
hafi verið gjaldfærð í reikningum
þess 4,1 milljón dollara vegna
flutninganna en 1,5 milljónir doll-
ara hafi verið gjaldfærðar árið áð-
ur. „Þar með hefur aOur kostnaður
við flutninga, lífeyrisskuldbinding-
ar og starfslokasamninga, sem
hefði mátt dreifa á fleiri ár, sam-
tals að upphæð 5,6 milljónir doll-
ara eða um 400 milljónir króna,
verið gjaldfærður og félagið því vel
í stakk búið til að takast á við
verkefni framtíðarinnar," segir í
fréttatilkynningunni.
í annan stað er tapið skýrt með
skyndilegum og fyrirvaralausum
slitum rússneska fyrirtækisins
UTRF á samstarfssamingi við ÍS,
en samningsslitin leiddu til stór-
felldrar lækkunar á tekjum ÍS.
„Svo sem búast mátti við tók tals-
verðan tíma að draga saman þá
starfsemi sem byggð hafði verið
upp vegna verkefnisins og ná niður
kostnaði bæði heima og erlendis,
en því verki er nú lokið. Þrátt fyrir
að allar viðskiptakröfur innheimt-
ust að fullu er ljóst að áhrif samn-
ingsslitanna á rekstur ÍS voru
mjög neikvæð á liðnu ári, eins og
fram kemur í uppgjöri móðurfé-
lagsins. Verulega tókst að draga úr
rekstrarkostnaði þess, en það
dugði þó ekki til að ná jafnvægi í
rekstrinum fyrir lok ársins.“ Þrátt
fyrir tap vegna samningsslitanna
telur Benedikt að félagið hafi í
heild haft meiri tekjur en gjöld af
samningnum við rússneska fyrir-
tældð.
í þriðja lagi er nefnt að kaup ÍS
á franska framleiðslu- og dreifing-
aríyrirtældnu Gelmer SA í Boul-
ogne-sur-mer og sameining þess
við Iceland Seafood France SA hafi
haft í for með sér talsverðan kostn-
að sem hafi verið að fullu færður til
gjalda á árinu. Velta hins samein-
aða fyrirtækis er áætluð 9-10 millj-
arðar kr. á yfírstandandi ári. Þá
keyptu íslenskar sjávarafurðir hf.
80% hlut í ferskfiskfyrirtækinu
Tros ehf. í Sandgerði til að styrkja
ferskútflutning félagsins.
Hlutafé aukið
Aðalfundur íslenskra sjávaraf-
urða hf. verður haldinn á Hótel
Sögu 3. apríl næstkomandi. Stjóm
félagsins mun þar leggja til að ekki
verði greiddur arður til hluthafa. Á
hluthafafundi í desember sl. var
samþykkt heimild til stjómar fé-
lagsins um að auka hlutafé um 200
milljónir kr. að nafnverði vegna
nýrra fjárfestinga og framtíðar-
verkefna. Benedikt Sveinsson segir
að ákvörðun um hlutafjáraukningu
verði tekin af nýrri stjórn félagsins
en reiknar með að heimildin verði
nýtt að verulegum hluta. Miðað við
gengi hlutabréfa IS að undanfornu
myndi söluverð 200 miOjóna kr.
hlutafjárútboðs nema rúmum 400
milljónum kr.
0DEXIDN
ÞÓRIR Páll Guðjónsson, kaupfé-
lagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga
í Borgai-nesi, hefur sagt upp störf-
um hjá félaginu. Mun hann vinna út
sex mánaða uppsagnarfrest sinn og
sinna á þeim tíma öllum stjórnun-
ar- og trúnaðarstörfum á vegum
kaupfélagsins og dótturfélaga, að
því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá KB.
Þórir Páll hefur gegnt starfinu
bráðum í tíu ár. „Eg er búinn með
kvótann,“ segir hann um ástæður
uppsagnarinnar. Með þessum orð-
um vísar kaupfélagsstjórinn til þess
að hann hafi í upphafi verið stað-
ráðinn í því að eyða ekki allri
starfsævinni í þessu starfi. Hann
segist hafa talið tíu ár algert há-
mark en hafi ætlað að hætta fyrr.
„En ég hef gleymt mér í starfinu.
Nú vil ég standa við það gagnvart
HALDINN verður kynningarfund-
ur á vegum Rannsóknarráðs Is-
lands um Tæknimenn í fyrirtæki.
Fundurinn verður haldinn á morg-
un, klukkan 15-16.30 í sal 2 í Borg-
artúni 6 í Reykjavík.
Árið 1994 hóf Rannsóknarráð ís-
lands (Rannís) að veita nýja tegund
af styrkjum, sem ætlað er að styðja
ráðningu tæknimanna í fyrirtæki.
Þessir styrkir eru ætlaðir fyrir-
tækjum sem eru að vinna að ný-
sköpun og hafa lítið af háskóla-
menntuðu starfsliði í þjónustu
sinni, en hafa að öðru leyti bolmagn
til þess að stunda nýsköpunarstarf.
Frá 1994 hafa verið veittir 16
styrkir til fyrirtækja og er árangur
þessa starfa að koma í ljós. Eitt
fyrirtæki, íslenskt franskt á Akra-
nesi, hefur notið stuðnings í þrjú
ár, en það er hámarksstyrktími
þessa styrkjaflokks. Á þessu ári
munu þrjú fyrirtæki til viðbótar
hafa notið stuðnings í þrjú ár og ár-
ið 1998 fjögur.
Um síðastliðin áramót lauk nýrri
umsóknarhrinu um tæknimenn í
fyrirtæki. Tuttugu og níu umsóknir
bárust, þar af voru óvenjumargar
frá starfandi fyrirtækjum er hyggj-
ast leggja í átak á sviði nýsköpunar.
sjálfum mér og minni fjölskyldu að
hætta,“ segir hann.
Tengist ekki Afurðasölunni
Þórir Páll var gagnrýndur harð-
lega á nýafstöðnum aðalfundi Af-
urðasölunnar Borgarnesi hf. og þar
kom krafa um afsögn kaupfélags-
stjórans fram í ræðum tveggja for-
ystumanna bænda. Þórir neitar því
að uppsögn sín tengist þessum um-
ræðum og bendir í því sambandi á
að hann hafi verið búinn að afhenda
stjórnarformanni uppsögn sína fyr-
ir síðustu mánaðamót og það hafi
stjórnarmönnum í kaupfélaginu
verið kunnugt um.
Fram kemur í fréttatilkynningu
Kaupfélags Borgfirðinga að leit að
nýjum kaupfélagsstjóra muni hefj-
ast fljótlega og að starfíð verði aug-
lýst.
Rannsóknarráð hefur samþykkt að
veita 11 nýja styrki og af þessu til-
efni er boðað til kynningarfundar-
ins nk. miðvikudag.
Verðbréfaþing
Enn met-
mánuður
VIÐSKIPTI í marsmánuði eru
þegar orðin meiri en verið hef-
ur í einum mánuði í sögu Verð-
bréfaþings Islands. Heildarvið-
skipti eftir daginn í gær voru
rúmir 31,3 milljarðar kr. sem
er heldur meira en í febrúar
öllum þegar seld voru verðbréf
fyrir tæpa 31,2 milljarða.
I gær námu viðskipti með
hlutabréf á Verðbréfaþingi 51
milljón kr. Mest var selt í
Vinnslustöðinni, fyrir 17,5
milljónir, og Haraldi Böðvars-
syni. Gengi hlutabréfa í
Vinnslustöðinni lækkuðu lítil-
lega en annars urðu litlar
breytingar á verði hlutabréfa.
■■■ | '
SEMENTSBUNDIN
FLOTEFNI
Uppfylla ströngustu gæðakröfur
• Rakaheld án próteina « Níösterk
• Hraðþornandi • Dælanleg eða handílögð
• Hentug undir dúka, parket og til ílagna
147 PR0NT0
Smlðjuvegur 72, 200 Kópavogur
Símar: 564 1740, Fax: 554 1769
Kynningarfundur um
tæknimenn í fyrirtæki