Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 24. MARZ 1998 21
________VIÐSKIPTI_______
179 Airbus pantaðar í
Rómönsku Ameríku
París. Reuters.
AIRBUS Industrie hefur fengið
pantanir í 179 flugvélar frá þremur
félögum í Rómönsku Ameríku og
verður þar með helzti seljandi flug-
véla í heimshlutanum í stað Boeing
Co.
Að sögn Airbus sömdu flugfélög-
in um að kaupa í sameiningu allt að
179 Airbus Industrie flugvélar af
gerðunum A319 og A320 og þar af
var samið um kauprétt á 89 flugvél-
um. Sameiginleg pöntun LanChile,
TACA í Mið-Ameríku og TAM í Br-
azilíu er sú næststærsta, sem fyrir-
tæki hefur fengið.
Listaverð A319 og A320 flugvéla
er á bilinu 41-49 milljónir dollara,
þannig að heildarverðmæti pöntun-
arinnar er nálægt 4 milljörðum doll-
ara.
Samningurinn er sigur í viður-
eign Airbus við keppinautinn
Boeing, sem hefur alltaf ráðið lög-
um og lofum á markaðnum í Róm-
önsku Ameríku. Hann dregur
einnig úr erfiðleikum vegna afpant-
ana eða seinkana asískra flugvéla
vegna fjármálakreppunnar.
Að sögn Airbus eykst farþegaflug
í Rómönsku Ameríku um 4,8% á ári
og flugvélafloti flugfélaga um 3,5%.
LanChile er nýr viðskiptavinur
Airbus og pantar 40 A320 vélar til
að leysa af hólmi gamlar Boeing
737-200 vélar. TACA pantar 64
A320 og TAM vélar. Brazilíska flug-
félagið verður þar með helzti við-
skiptavinur Airbus í Rómönsku
Ameríku.
Talsmaður Boeing sagði í síðasta
mánuði að það fyrirtæki hefði reynt
að tryggja sér pöntunina, en gerði
ekki ráð fyrir sigri. „Við erum
vonsviknir. Við gerðum okkar
bezta,“ sagði talsmaðurinn.
Airbus hafði sagt að samningur-
inn mundi sýna að A320 flugvélam-
ar sæktu inn á markað Boeing 737.
f Stíllanleg sætishæð 40-53 sm.
Fæst með bláu eða dökkgráu
áklæði.
r
Stillanleg sætíshæð 38-49 sm.
Fæst með svörtu eða grænu
áklæði.
( Stillanleg sætishæð 44-54 sm.
Fæst með gulu eða dökkgráu
áklæði.
13.200KR
( Stiilanleg sætishæð 39-54 sm.
Fæst með svörtu, gráu, dökk-
bláu, dökkgrænu, dökkrauðu
eða bláu áklæði.
■400kr
* HN flRHft
24.500 KR.
_____________HflXXHflL
^3asdempari stillir sætíshæð frá I
40-52 sm. Fæst með svöitu, grau,
dökkbláu, dökkgrænu, dökk-
rauðu eða bláu áklæði. Fæst
einnig með leðri á 32.400 kr.
FfiflBfEflflR
FERMXNGR
GJRFIR
STORGOTT VERÐ, HONNUN,
ÚRVRL 06 NOTflGILDI
Góö vinnuaðstaða getur skipt
sköpum um árangur.
Skrifborðsstólamir í IKEA eru
þægilegir, vandaðir og á mjög góðu
verði. Þess vegna er engin spuming
hvar þú kaupir stólinn. Skrifborðs-
stólamir í IKEA henta einnig mjög
vel til fermingargjafa.
Láttu okkur taka frá sœti fyrir þig.