Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Póstverslunin
Svanni 10 ára
15% af-
sláttur
af undir-
fötum
UM þessar mundir eru tíu ár
liðin frá því að póstverslunin
Svanni hóf starfsemi sína.
Fyrirtækið hefur dreift vöru-
listum og verið með á lager
kvenfatnað frá BON’A
PARTE sem er dönsk póst-
verslun og hefur á síðustu ár-
um haslað sér völl í Svíþjóð,
Hollandi og Þýskalandi.
í fréttatilkynningu frá
Svanna segir að nú sé vorlist-
inn 1998 kominn til landsins
og vor- og sumarvörur komn-
ar fram í verslunina. I listan-
um er fatnaður í stærðum
36-52 en Svanni selur einnig
vörur frá Ozone sem eru til í
stærðum 42-54 og fatnað frá
Toubro fyrir verðandi mæður.
Þá eru í Svanna seldir skart-
gripir frá Dyrberg/Kem.
Dagana 23. mars - 2. apríl
bjóða forsvarsmenn Svanna
afmælisafslátt af mörgum
vörutegundum og 15% afslátt
af öllum undirfötum. Svanni
er til húsa að Stangarhyl 5 og
verslunin er opin virka daga
frá kl. 10-18 og á laugardög-
um frá 10-14.
NÝTT
Sængurlín úr
lífrænt rækt-
aðri bómull
ÚT er kominn nýr vörulisti frá
versluninni Líni & lérefti ehf. I list-
anum er að finna sængurlín, sæng-
ur, kodda, handklæði, náttfatnað
og baðsloppa ásamt ýmsum fylgi-
hlutum m.a. fyrir ungböm. I
fréttatilkynningu frá Líni & lérefti
kemur fram að meðal nýjunga
megi nefna sængurlín úr lífrænt
ræktaðri bómull ásamt handklæð-
um, náttsloppum, náttfótum,
heilsukoddum og fleiri vömtegund-
um sem flokkast undir vistvænan
vefnað. Vörumar em framleiddar í
Austurríki og era án allra litar- og
aukefna. Vöralistinn þjónar aðal-
lega viðskiptavinum á landsbyggð-
inni og öðram þeim sem kjósa kosti
heimaverslunar. Vöram er dreift
með pósti á landsbyggðina en á
höfuðborgarsvæðinu er boðið upp á
heimsendingarþjónustu. Lín & lé-
reft er til húsa í Kjörgarði við
Laugaveg í Reykjavík.
Rafrænn
afsláttur!
H6IMS
M6NN
LflUGBV€GUR 41
veitir öllum sem fEQW greiða með
VISA kreditkorti ^ /0 Tafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
FRÍÐINDAKLÚBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
SPURT OG SVARAÐ
Er ógerilsneydd mjólk
hollari en sú gerilsneydda?
Spurning: Er hollara að drekka
ógerilsneydda mjólk en geril-
sneydda og hefur fitusprengingin
áhrif á hollustu? Þá hefur heyrst að
mjólkurdrykkja geti ekid komið í
veg fyrir beinþynningu. Er það
rétt?
Svar: Tilgangur gerilsneyðingar er
að eyða skaðlegum gerlum sem
kunna að leynast í mjólk og draga
úr virkni þeirra gerla sem valda því
að mjólk skemmist," segir Bryn-
hildur Briem næringar- og mat-
vælafræðingur en hún á sæti í
Manneldisráði.
„Gerilsneyðingin eykur því
geymsluþol mjólkur. Ohjákvæmi-
lega verður lítilsháttar breyting á
mjólkinni við gerilsneyðingu, t.d.
eyðileggst hluti af C-vítamíni og
eitthvað af B-vítamínum hennar.
Talið er að innan við 10% af mysu-
próteinum eyðileggist en ekkert af
ostapróteinum. Þetta era smámunir
miðað við ávinninginn sem ger-
ilsneyðing hefur haft í baráttunni
við fæðuborna sjúkdóma. Ger-
ilsneyðingin á ekki að hafa nokkur
áhrif á nýtingu kalks.“
Fitusprenging mjólkur
Brynhildur segir að í fituspreng-
ingu séu fitukúlur mjólkurinnar
smækkaðar. Sé það ekki gert segir
hún að rjóminn setjist ofan á mjólk-
ina. Eftir fitusprenginguna eru fitu-
kúlurnar um einn míkrómetri í
þvermál en það er einmitt svipuð
stærð og fitukúlurnar í móðurmjólk.
„Því hefur verið haldið fram að eftir
VÁKORTALISTI ^
að búið er að minnka fitukúlumar
eigi fitan auðveldari leið út í blóðið
þar sem hún valdi skaða. En eins og
ég sagði hér fyrr verða fitukúlumar
ekki minni en í móðurmjólk og ættu
því ekki að hafa önnur áhrif í líkam-
anum en sú fita. Fita í mjólk er hörð
fita en mikil neysla á slíkri fitu get-
ur stuðlað að hækkun á blóðfitu eða
kólesteróli í blóði. Fitan í mjólk hef-
ur þessi áhrif hvort sem hún er fitu-
sprengd eða ekki. Þetta er ein meg-
inástæða þess að æskilegt er að
nota frekar fituskertar mjólkurvör-
ur í stað fullfeitra."
Beinþynning mjólk
Brynhildur segir að varðandi fyr-
irspum um beinþynningu og mjólk
séu orsakir beinþynningar margar.
„Erfðir, magn hormóna í líkaman-
um, hreyfing og kalkneysla eiga hlut
að máli. Rétt er að benda á að mikil-
vægust era uppvaxtarárin og fram
undir tvítugt á meðan beinin era að
vaxa og þéttast. í nýrri rannsókn
Gunnars Sigurðssonar á beinmagni
íslenskra kvenna sem greint var frá
í Læknablaðinu nýlega kom fram að
þær stúlkur sem borðuðu minnst
kalk vora með minna beinmagn en
aðrar. í mjólk er kalk þannig að með
mjólkurneyslu má vinna gegn þess-
um þætti. Nýlega var í grein í Morg-
unblaðinu vísað í niðurstöðu rann-
sóknar sem leiddi í ljós að konum
sem drakku tvö eða fleiri glös af
mjólk á dag væri hættara við bein-
þynningu en öðram og því er til að
svara að hægt er að benda á ótal
rannsóknir sem sýna að kalk sé
nauðsynlegt til uppbyggingar beina
og að í mjólk er kalk og að kalkið í
mjólkinni nýtist líkamanum að öllu
jöfnu vel. Ekki má þó gleyma því að
til þess að kalkið nýtist er nauðsyn-
legt að fá D-vítamín samtímis.
Engin þjónusta
innifalin?
dags. 24.03.’98 Nr. 291
5414 8300 2688 7108
5414 8304 1123 5103
5411 3900 0438 2104
5414 8304 0766 5107
5414 8301 0413 1205
5414 8304 0985 2117
Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5.000
fyrir þann sem nær korti
og sendir sundurklippt
til EUROPAY íslands
EUROPAY (sland.
Ármúla 28—30
108 Reykjavík sími 550 1500
Viðskiptavinur BT keypti þar GSM
síma á dögunum. Mikil örtröð var í
búðinni og engin leið að fá starfs-
mann til að kenna á símann. Leið-
beiningar á ensku fylgdu með sím-
anum en þegar heim kom lenti við-
skiptavinurinn í erfíðleikum með
takka sem sér um númerafíutning.
Hann hringdi í BT til að fá aðstoð
en þeir bentu viðkomandi á að
hringja í símaþjónustu Tækni-
vals/BT. Þar á bæ var uppgefíð að
þjónusta ísíma kostaði 500 krónur
jafnvel þó um væri að ræða nokk-
urra mínútna leiðsögn. Er kennsla
á símtækið ekki innifalin í verði
símans?
„Við hjá BT getum því miður ekki
aðstoðað alla okkar viðskiptavini við
uppsetningu á tækjum eða gefið
upplýsingar um hvemig þau virka
hvort sem verið er að kaupa tölvur,
síma, tölvuleiki eða annað,“ segir
Samúel Jónasson hjá BT. „Það er
það mikið að gera að við önnum
engan veginn slíkri þjónustu. Hún
er ekki innifalin í verði vörannar þó
við reynum að þjónusta alla eftir
mætti. BT er deild innan Tæknivals
og þar er starfandi sérstök síma-
þjónusta sem við bendum fólki á.
Að sögn ívars Harðarsonar, for-
stöðumanns þjónustusviðs hjá
Tæknivali, fylgir tvennt með í kaup-
um ef verið er að kaupa t.d. tölvu
hjá Tæknivali. „Heimsókn er inni-
falin þar sem kennt er á tölvubún-
aðinn og reiknað er með rúmlega
klukkustundar heimsókn. Þá fylgja
þrjú þjónustusímtöl næstu sextíu
dagana en sérstakir starfsmenn
sinna þessari þjónustu. Eftir þann
tíma er hægt að hringja í símaþjón-
ustu og fá aðstoð og hún kostar 500
krónur fyrsta korterið og síðan
bætast 500 krónur við.
Hjá BT era sölumenn sem sýna
helstu notkun í búðinni ef hægt er
að koma því við. BT er ódýrari
verslun en Tæknival og þar á móti
kemur að minni þjónusta er veitt.“