Morgunblaðið - 24.03.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 23
1. Til afhendingar og leigu húsnæði sem hefur verið notað fyrir
hárgreiðslustofu í áratugi, glæsilegt og vel staðsett húsnæði.
Langur leigusamningur. Flestar innréttingar til staðar en ekki
tæki. Laust strax.
2. Hreingerningarþjónusta með mikið af föstum viðskiptasambönd-
um og verksamningum. Mikið af tækjum. Bíll fylgir. Næg vinna
fyrir duglegt fólk og góðar tekjur.
3. Kvenfataverslun við Laugaveginn til sölu. Vel þekkt og með eigin
innflutning sem hægt er að stórauka og hafa heildsölu út um
allt land í sama húsnæði. Gott tækifæri fyrir smart fólk.
4. Söluturn með lottókassa, ísvél og öllum tækjum sem þarf á svona
stað. Velta 2,3 millj. pr. mán. Gamall og vel staðsettur söluturn.
Til afhendingar strax.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
F.YRIRTÆKIASALAN
SUÐURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRIMSSON.
Frábær fyrirtæki
Morgunblaðið/Kristinn
Stærsti saltfarmurinn
HAFNARBAKKI hf. er þessa dagana að taka á móti
10.600 tonna saltfarmi og mun það vera stærsti
saltfarmur, sem komið hefur til landsins. Saltið fer
fyrst í stað allt í geymslur hjá Hafnarbakka, en fyr-
irtækið er með 6.500 tonna geymslu í Hafnarfirði
og 4.500 tonna geymslu í Keflavík. Saltið kom með
skipi frá Bahamaeyjum í lok síðustu viku og er
hægt að landa um 2.000 tonnum á sólarhring. Það
tekur því um fimm og hálfan sólarhring að landa
öllu saltinu, en það er flutt á færibandi frá skipshlið
inn í geymslu og fara þar um 100 tonn á klukku-
tíma inn í geymslur. Helgi Þórisson, framkvæmda-
sfjóri Hafnarbakka, segir að saltið sé keypt frá
Bahamaeyjum, en þaðan kaupi Hafnarbakki allt sitt
salt. „Þetta er mjög gott salt, hvítt og ríkt af kals-
íum og hentar því vel til fisksöltunar," segir Helgi.
Saltið fer allt til fiskverkunar og segir Helgi að
þetta séu tveggja til þriggja mánaða birgðir.
Verðmunur er lítill á góðum
og lakari físki á mörkuðum
Komdu áður en
allt er búið!
Hólf & Gólf
---B REIDDINN I-
SLA 4
W
MIKILL meirihluti fiskkaupenda
á íslenskum fiskmörkuðum, eða
86%, telja að ekki sé nægjanlegur
verðmunur á góðum og lélegum
fiski, samkvæmt niðurstöðum
markaðskönnunar, sem gerð var
meðal 200 viðskiptavina fiskmark-
aða innan vébanda Reiknistofu
fiskmarkaða, auk þess sem tekin
voru tólf munnleg viðtöl við við-
skiptavini. Um var að ræða bæði
stór og smá fyrirtæki, sem eru
dreifð um allt land. Markaðskönn-
unin var send bréfleiðis til við-
skiptavina RSF og var svörun
mjög góð, eða 25%. Niðurstöðurn-
ar eru birtar í skýrslu, sem út er
komin á vegum Rannsóknastofnun-
ar fiskiðnaðarins, og ber heitið
Upplýsingakerfi fiskmarkaða.
Markmið verkefnisins var að
kanna hvaða upplýsingar kaupend-
ur á fiskmörkuðum nota aðallega
til að meta óséðan fisk. I framhald-
inu var kannað hvaða viðbótarupp-
lýsingar menn vildu helst sjá inn í
kerfi RSF. Um 25% af öllum bol-
fískafla Islendinga eru seld í gegn-
um fiskmarkaði á landinu og hafa
markaðir innan RSF-keðjunnar
um 50% markaðshlutdeild á þeim
markaði.
Þegar farið var að grennslast
fyrir um ástæður þess mats svar-
enda, að ekki sé nægur verðmunur
milli góðs og lélegs fisks, kom í ljós
að kaupendur töldu m.a. um að
kenna að hér ríkti seljendamarkað-
ur, þ.e. að meiri eftirspurn væri á
markaði en framboð. Skorturinn
leiði því til þess að menn geti ekki
valið um hráefni og þurfi því að
kaupa það sem í boði er. Þannig
skapist ekki pressa á þá útgerðar-
aðila, sem ekki skila góðu hráefni,
að bæta frágang afla, því þó svo að
þeir leggi aukna vinnu í bætta
meðferð, fái þeir ekki hærra verð
fyrir vikið, að sögn Ragnars Egils-
sonar, verkefnisstjóra og starfs-
manns Rf.
Bæta þarf meðferð
Það er álit meirihluta kaupenda
á fiskmörkuðum að bæta þurfi
meðferð afla, stærðarfiokkun og
dagmerkingar, að sögn Ragnars.
„I flestum tilfellum eru kaupendur
á mörkuðum að kaupa vöru, sem
þeir hafa ekki séð. Því skiptir það
lykilmáli að kaupendur fái réttar
upplýsingar og geti treyst því að
þær séu áreiðanlegar. Þær upplýs-
ingar, sem gefnar eru upp á upp-
boðslýsingu hjá RSF, eru allar
mikið notaðar af kaupendum.
Areiðanleika þessara upplýsinga er
að mati kaupenda oft á tíðum
ábótavant. Þær upplýsingar sem
eru hvað óáreiðanlegastar, eru
upplýsingar um stærð fisksins.
Líklega má að einhverju leyti
kenna lélegri eða ónægri stærðar-
flokkun um.“
Einnig var spurt um hvaða upp-
lýsingar mönnum fyndist helst
vanta inn í uppboðslýsingu. Aug-
ljóst var að kaupendur vilja að
gæðamat verði tekið upp á fisk-
mörkuðum, en Ragnar segir að
erfitt geti reynst að taka upp
gæðamat þar sem fiskmarkaðirnir
eigi að vera óháðir aðilar milli selj-
enda og kaupenda. Gæðamat yrði
hinsvegar alltaf að hluta til hug-
lægt og því umdeilanlegt.
Batnandi þjónusta
Fram kom í könnuninni að ýmis-
legt þarf að bæta varðandi sölu afla
á fiskmörkuðum. Þar þurfi bæði
útgerðarmenn og fiskmarkaðir að
koma að máli. „Fiskmarkaðir eru í
raun ungir að árum en ánægjulegt
var að sjá að kaupendur telja að
þjónusta fiskmarkaða hafi batnað
með tímanum. Markmið allra hlýt-
ur að vera það að skila til vinnslu
besta mögulega hráefninu, því það
eru jú hráefnisgæðin sem skipta
lykilmáli þegar framleiða á gæða-
afurð. Því betra hráefni sem að
landi kemur, þeim mun meiri hluti
þess fer í verðmætustu afurðimar.
Af þeim sökum þarf að efla gæða-
vitundina í allri keðjunni, þ.m.t.
veiðar, vinnslu og flutning. Rekjan-
leiki vörunnar þarf að vera í lagi,
enda kom það í ljós að meirihluti
kaupenda á fiskmörkuðum er sam-
mála því að þeirra viðskiptavinir
komi til með að leggja aukna
áherslu á rekjanleika vöra á kom-
andi misseram," segir Ragnar
Egilsson.
lnternetid
uelur é milli tueggja leida:
ÓtaHmarHadur adgangur - VJj/ ebHert stofngjald [Efþú notar netið mikiö] TYlímjtugjald [Efþú notarnetið lítið]
Mótald: Stofngjald 623 kr., mánaðargjald 374 kr., mínútugjald 1,12 kr. ISDN: Stofngjald 1.868 kr., mánaðargjald 1.245 kr., mínútugjald 1,97 Notendurá mínútumœldum ISDN-aðgangi sem nota 128 Kbps flutning greiða tvöfalt mínútugjald eða 3,94 kr.
Mótald: 1.190 kr. ISDN 64: 1.690 kr. ISDN 128:2.190 kr.
LANDS SIMINN
ý* $■■&!&%&■ 3Í