Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Páfí ræðir
mannréttindi
JÓHANNES Páll páfí II lauk í
gær þriggja daga heimsókn sinni
til Nígeríu og sagði að virðing
fyrir manneskjunni og grund-
vallarréttindum yrði að vera
hornsteinn nýrrar og betri Níg-
eríu. I heimsókn sinni kvaðst
páfi hafa áhyggjur af því að
mannréttindi væru fótum troðin
í Nígeríu.
Hvatti páfi herstjórnina í land-
inu til þess að láta lausa pólitíska
fanga, en Vatíkanið hefur birt
nigerískum yfirvöldum lista yfír
90 fanga sem það vill að verði
sleppt úr haldi. Á sunnudag Iýsti
páfí blessun nígeríska munksins
Cyprian Tansi.
Ranariddh
snýr heim
eftir náðun
Bangkok. Reuters.
NORODOM Ranariddh prins, annar
tveggja forsætisráðherra Kambódíu,
hyggst snúa heim úr útlegð sinni 30.
marz nk., eftir að faðir hans,
Norodom Sihanouk konungur, náð-
aði hann. Talsmaður konungsins
greindi frá þessu í gær.
Á laugardag náðaði Sihanouk son
sinn, sem fyrr í þessum mánuði var
að undirlagi Huns Sens, helzta
keppinauts Ranariddhs um völdin í
landinu, dæmdur fyrir glæpi gegn
öryggi ríkisins.
Tveir herdómstólar höfðu dæmt
prinsinn, að honum fjarstöddum, til
samtals 35 ára fangelsisvistar fyrir
að smygla vopnum og leggja á ráðin
um valdarán. Ennfremur var honum
uppálagt að greiða sem nemur 50
milljónum Bandaríkjadala (um 3,6
milljarða króna) í bætur fyrir þann
skaða sem í júlí í fyrra hlauzt af
vopnaskaki hermanna sem voru hlið-
hollir honum og annarra stjómar-
hermanna sem fylgdu Hun Sen að
málum.
Ranariddh forðaði sér frá höfuð-
borginni Phnom Penh áður en Hun
Sen bolaði honum frá og dvelur nú í
Bangkok í Tælandi. Náðunin gefur
honum tækifæri til að snúa heim
tímanlega til að fylkja sínu liði fyrir
þingkosningar 26. júlí nk.
Forseta- og þingkosningar í Kosovo fóru friðsamlega fram
Serbar og Albanir
semja um skólamál
Pristina. Reuters.
SERBNESK stjórnvöld og Albanir
í Kosovo-héraði náðu í gær sam-
komulagi um skólastefnu, sem von-
ast er til að verði til þess að al-
bönsk böm og unglingar sæki op-
inbera skóla að nýju en þau hafa
gengið í albanska skóla sl. sjö ár.
Þá fóru kosningar Albana í Kosovo
um helgina friðsamlega fram og
serbnesk yfirvöld höfðu ekki af-
skipti af þeim. Hins vegar gætir
vaxandi óánægju og spennu á með-
al Serba í Kosovo, en þeir era um
tíundi hluti íbúanna þar.
Samningurinn um skólastefnuna
í Kosovo er fyrsta samkomulagið
sem Albanir og Serbar í héraðinu
hafa náð frá því að átök hófust þar
í byijun mánaðarins en þau kost-
uðu að minnsta kosti áttatíu manns
lífið. Leiðtogar Albana hunsa hins
vegar enn viðræður við fulltrúa
serbneskra stjómvalda um framtíð
Kosovo.
Skömmu eftir að sjálfstjóm
Kosovo var tekin af Albönum árið
1989 tóku þeir börn sín úr skóla
þar sem þeir fullyrtu að þau nytu
ekki sömu réttinda og serbnesk
böm. Settu AJbanir upp hálfgert
neðanjarðarskólakerfi, þar sem
böm þeirra hafa stundað nám sitt
frá árinu 1991. Samkvæmt sam-
komulaginu nú snúa bömin aftur
til náms í serbneskum skólum í
júní. Munu þau sækja skóla eftir
hádegi en serbnesk böm á morgn-
ana. Þá verður háskólinn í Pristina
opinn nemendum af báðum þjóð-
emum frá og með næstu mánaða-
mótum.
Ákvörðun um refsiaðgerðir
á morgun
Um helgina fóra fram forseta- og
þingkosningar Albana í Kosovo,
sem serbnesk yfirvöld hafa lýst
ólöglegar. Þátttaka var allt að 95%
og er talið að kröfur um sjálfstæði
Kosovo muni aukast að nýju í kjöl-
far þeirra. Búist er við að stærsti
stjórnmálaflokkur Albana, Lýð-
ræðisfylking Kosovo, fái yfirgnæf-
andi hluta atkvæða þar sem tals-
menn flestra annarra flokka kváð-
ust óttast að kosningamar myndu
gera Vesturlöndum erfiðara fyrir
að þvinga Slobodan Milosevic til að
slaka á klónni gagnvart Albönum.
Fimmveldin; Rússland, Bandaríkin,
Bretland, Frakkland og Þýskaland,
auk Italíu, munu ákveða á morgun,
miðvikudag, hvort grípa eigi til
hertra aðgerða gagnvart Serbum,
vegna ástandsins í Kosovo.
Serbneski minnihlutinn í Kosovo
hefur miklar áhyggjur af sjálfstæð-
isbaráttu Albana í héraðinu. Var i
gær efnt til mótmælaaðgerða í
Pristina, höfuðstað Kosovo, til að
krefjast þess að héraðið yrði áfram
hluti af Serbíu, en það var enginn
annar en þjóðemissinninn Vojslav
Seselj, sem stóð að baki aðgerðun-
um.
Reuters
Staðnæmdist í fátækrahverfi
ÞRÍR menn biðu bana er þota
flugfélagsins Philippine Airlines
fór fram af flugbraut f lendingu á
flugvellinum í Bacolod á Filipps-
eyjum á sunnudag. Voru þeir íbú-
ar kofahverfís sem fátæklingar
höfðu liróflað upp 100 til 200
metrum frá enda flugbrautarinn-
ar. Um borð í þotunni, sem var af
gerðinni Airbus 320, var 121 far-
þegi og sex manna áhöfn. Komust
þeir allir lífs af úr brotlending-
unni en fjöldi þeirra hlaut minni-
háttar meiðsl. Ástæða slyssins
mun vera sú að flugmennirnir
lentu þotunni alltof innarlega á
brautinni til þess að geta stöðvað
hana á brautinni sjálfri.
Komið upp um meint tilræði Alsíringa gegn HM í knattspyrnu
Mikið af sprengi-
efni í Brussel
London. Daily Telegraph.
KOMIST hefur upp um samsæri al-
sírskra öfgamanna um sprengjuher-
ferð í tengslum við heimsmeistara-
mótið í knattspymu í Frakklandi í
sumar. Er uppljóstranin m.a. ár-
angur handtöku sjö liðsmanna al-
sírskra hryðjuverkasamtaka í Brass-
el fyrr í mánuðinum.
Mennimir sjö vora handteknir
eftir skotbardaga við hús þeirra í
Brassel. í því fundust upplýsinga-
bæklingar um leikvanga sem notað-
ir verða undir heimsmeistaramótið í
knattspyrnu og mikið af sprengi-
efni. Franska lögreglan sagði í gær,
að mánuðum saman hefðu áætlanir
um öryggisvörslu við keppnisstaði
HM verið í undirbúningi. Þannig
yrði t.a.m. mesti lögregluvörður í
franskri sögu viðhafður er Englend-
ingar leika gegn Túnis 15. júní.
Mennimir höfðu komið til Brass-
el á nokkurra mánaða tímabili frá
m.a. Danmörku og Svíþjóð. Lög-
reglan sat um húsið í hálfan sólar-
hring áður en henni tókst að yfir-
buga Alsíringana alla. Skaut einn
þeirra m.a. á lögregluna af Colt .44-
skammbyssu. Leyndist hann uppi á
háalofti en var um síðir svældur út
með táragasi.
1 húsinu fannst sprengiefnatunna
falin í stórri tösku sem við fyrstu
sýn virtist full af myndböndum.
Einnig fannst kveikibúnaður í fimm
sprengjur, Kalashníkov-riffill og
jafnvirði 1,2 milljóna króna í gjald-
eyri.
Forstjóri alþjóðalögreglunnar
Interpol segir að svo virðist sem
mennirnir sjö tilheyri stuðnings-
samtökum er útvega alsírskum
hryðjuverkamöntium fölsuð vega-
bréf, vopn og peninga.
Meðal hinna handteknu var
Farid Melouk, 33 ára Alsíringur,
sem dæmdur var í sjö ára fangelsi í
Frakklandi í febrúar fyrir aðild að
sprengjuherferð þar í landi árið
1995, en sjö manns biðu bana og
180 slösuðust í sprengjutilræðun-
um.
Talið er að mennirnir séu liðs-
menn klofningshóps úr hinum her-
skáu hryðjuverkasamtökum Her-
sveitir íslams (GIA), sem talin eru
hafa staðið á bak við fjölda hryðju-
verka í Alsír. Klofningssamtökin
hafi fyrst og fremst á prjónunum að
vinna spellvirki í Evrópu. Vitað er
um stuðningsmannahópa þeirra í
Bretlandi, á Italíu og á Norðurlönd-
um. Frönsk yfirvöld telja að for-
sprakkar klofningshópsins leynist í
norðurhluta London þar sem stór
samfélög brottfluttra Alsíringa hafa
myndast. Mun leiðtogi þeirra vera
Hassan Hattab.
N-Kórea
álasar
Bandaríkj-
unum
NORÐUR-Kóreumenn sök-
uðu í gær Bandaríkjamenn
um að hafa siglt viðræðum
kóresku ríkjanna í Genf í
strand. Sagði talsmaður n-
kóreska utanríkisráðuneytis-
ins að stjóm sín vildi viðræð-
ur við bandarísk stjómvöld
án þátttöku Suður-Kóreu-
manna um brottflutning
bandarísks herliðs frá S-
Kóreu og tvíhliða friðarsamn-
ing.
Flýðu heittrú-
armenn
TVÆR alsírskar stúlkur
sluppu úr haldi heittrúar-
manna fyrir viku er þeim
tókst að rota vörðinn sem
gætti þeirra. Stúlkumar urðu
að skilja vinkonu sína eftir en
hún var þunguð. Þær segja
heittrúarmenn lifa við kröpp
kjör, þeir nærist aðallega á
baunum og sofi ekki lengur
en tvær nætur á hverjum
stað. Skæruliðar heittrúar-
manna hafa rænt hundrað
stúlkna og haldið þeim sem
kynlífsþrælum, fullyrt var í
síðustu viku að þær væra um
500. Flestar eru myrtar að
nokkram vikum liðnum.
Margar verða barnshafandi
og íhuga klerkar í Alsír nú að
gefa út tilskipun um að stúlk-
ur sem sleppi úr haldi heit-
trúarmanna megi gangast
undir fóstureyðingu.
Robinson í
samgöngu-
ráðuneytið?
GEOFFREY Robinson, ráð-
herra í breska fjármálaráðu-
neytinu, er sagður líklegur
eftirmaður Gavins Strang í
samgöngumálaráðuneytinu.
Búist er við að Tony Blair
forsætisráðherra stokki upp í
stjórn sinni í sumar. Robin-
son var gagnrýndur fyrr í
vetur fyrir skattamisferli.
Hann þykir snjall fjánnála-
maður og er talið að honum
verði fengið það verkefni að
fá einkafyrirtæki til að fjár-
magna hluta almenningssam-
gangna.
19 létust á
tónleikum
NÍTJÁN manns, þar af þrett-
án á táningsaldri, létu lífið á
rokktónleikum á síðasta ári,
flestir vegna mikils troðnings.
Dauðsfóllum á tónleikum fer
fjölgandi með hverju árinu og
var 1997 metár. Flestir létust
í Brasilíu og Perú.
Rafmagns-
stóll í notkun
MAÐUR sem játaði á sig
morð á 41 konu, var tekinn af
lífí í rafmagnsstól á Florída í
Bandaríkjunum í gær. Stóll-
inn, sem er 75 ára og kallaður
„Gamli neisti“, hefur ekki
verið notaður í fjögur ár. Nú
er ætlunin hins vegar að taka
fjóra fanga af lífi í stólnum á
næstu átta dögum.