Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
skólar/námskeið
tölvur____________________
■ Tölvunámskeið hjá Tölvu- og
verkfræðiþjónustunni
Urval áhugaverðra námskeiða — leitið
nánari upplýsinga f síma 520 9000 eða
http://www.tv.is/
Windows NT nctstjórnun I:
Frábært námskeið fyrir þá sem vilja stjóma
NT netum.
Tími: 21. apríl—2. maí kl. 13.00—16.00,
36 kennslustundir.
Windows NT netstjómun II.
Mjög ítarlegt framhaldsnámskeið fyrir þá
sem Jtegar hafa grunnþekkingu á NT net-
stjómun. Forkröfur NT netstjómun I eða
sambærilegt.
Tími: 25. mars—27. apríl, tvisvar í viku
kl. 16.15—19.15, 36 kennslustundir eða
Tími: 2,—16. apríl kl. 9.00—12.00, 36
kennslustundir.
Macintosh og Claris Works:
Nauðsynlegt námskeið fyrir alla þá sem
nota Macintosh. Stýrikerfi, ritvinnsla,
gagnagmnnur, teikning og töflureiknir.
Tími: 6,—15. apríl kl. 16.15—19.15, 22
kennslustundir eða Windows, Word og
Excel:
Mjög gott námskeið fyrir þá sem em að
stíga fyrstu skrefin og vilja komast langt á
stuttum tíma.
Tími: 30. mars — 3. apríl kl. 16.15—
19.15, 22 kennslustundir eða
Tími: 14,—20 apríl kl. 13.00—16.00, 22
kennslustundir.
Excel:
Einstakt námskeið um þennan frábæra
töflureikni sem við höfum boðið síðan
1986 — lengst allra.
Tími: Tími: 17.—24. apríl kl. 9.00—
12.00, 22 kennslustundir.
Word:
Námskeið sem er miklu meira en byijenda-
námskeið — allir læra eitthvað nýtt.
Tími: Tími: 14,—17. aprfl kl. 9.00—
12.00, 18 kennslustundir.
Access:
Þetta námskeið er eitt alvinsælasta nám-
skeiðið nú um stundir. Allir vilja læra á
gagnagmnninn Access. Frábærir kennarar.
Tími: 30. mars—3. apríl kl. 13.00—16.00,
22 kennslustundir.
Access framhaldsnámskeið:
íeöa námtóð beair rriklu \ið þekkingu
þeirra semhafa sótt Aocess nárrKkdð ddœr.
Tími: 14,—17. apríl kl. 13.00—16.00, 22
kennslustundir.
Visual Basic for Access forritun:
Ef þú vilt ná alla leið er þetta námskeið
sem þú verður að sækja. Aðeins fyrir þá
sem hafa góða þekkingu á Access. Kennari
fneð Microsoft Certified Professional
gráðu frá Microsoft. Kennslubók frá
Mcrosoft fylgir.
Tími: 20,—30. apríl kl. 9.00—12.00, 36
kennslustundir.
Filemaker gagnagrunnurinn:
Skyldunámskeið fyrir alla þá sem nota
þennan öfluga og þægilega gagnagmnn.
Tími: 4.-8. maí kl. 13.00—16.00, 22
kennslustundir.
Intemetið, upplýsingahraðbrautin:
Allt sem þú þarft að vita til þess að byija á
Intemetinu á einu námskeiði.
Tími: 30.-—31. mars kl. 13.00—16.00 eða
21.—22. apríl kl. 16.15—19.15, 9 kennsl-
ustundir.
Tökum hópa á mjög hagstæðu verði (8 eða
fleiri).
Vefsíðugerð fyrir byrjendur: Aliir em
með vefsíður — af hveiju ekki þú?
Tími: 1,—3. apríl kl. 13.00—16.00, 13
kennslustundir eða
Tími: 27.-29. apríl kl. 16.15—19.15, 13
kennslustundir.
Visual C++ forritun:
Mjög vandað námskeið um þetta mikil-
væga forritunarmál. Kennari með langa
reynslu af kennslu í Visual C++ í Banda-
ríkjunum.
Tími: 30. mars—2. maí, kl. 9.00—12.00,
58 kennslustundir.
Afsláttur til þeirra sem sækja fleiri en eitt
námskeið.
Frábær staðsetning og næg bflastæði.
Símaþjónusta í 1 mánuð innifalin í öllum
námskeiðum.
Sémámskeið fyrir fyrirtæki.
3.000 nemendur sóttu námskeið hjá okkur
1997 — vilt þú bætast í hópinn?
Tölvu- og verkfræðiþjónustan,
Grensásvegi 16,108 Reykjavík.
Sími: 520 9000.
Vefur: http://www.tv.is/
http://www.tv.is/
Þekking í þína þágu
- kjarni máhins!
MENNTUN
Listgreinar Handavinna, myndmennt og tónmennt eru skyldugreinar í grunnskólum og
felst gildi þeirra m.a. í að virkja hæfíleika nemenda. Gunnar Hersveinn greindi kvíða
listgreinakennara fyrir að greinarnar fái of lítinn tíma í nýrri skólastefnu.
Hlutskipti
listgreina
• Tvær stundir á viku eru forsenda
til að ná markmiðum listgreina
• Menntun í tónlist hefur áhrif á
málþroska og lestrarkunnáttu
LISTIR eru kenndar í
grunnskólum og sam-
kvæmt nýrri skólastefnu
verður skylda kenna böm-
um handavinnu, myndlist og tónlist
en einnig á að þætta hönnun, leiklist
og dans inn í aðrar greinar eða bjóða
þær í valáföngum. Smíðar flokkast
núna með tæknimenntum. En hvert
er markmiðið með því að kenna listir
og hvernig verður þeim náð?
„Öll listgreinakennsla miðast að
því að þroska sköpunargáfu, efla
sjálfsvitund og auka menningar-
skilning nemenda," stendur í skýrslu
forvinnuhóps endurskoðaðrar aðal-
námskrár um markmið listkennslu í
grunn- og framhaldsskólum, og nem-
endur eiga að læra að skynja, greina
og leggja mat á list og einnig að
skapa, túlka og tjá með henni.
Gildi listnáms er viðurkennt í sam-
félaginu og í skólum landsins. Það á
m.a. að stuðla að tilfinningaþroska,
efla sköpunargáfu og sjálfsmynd, og
þroska tjáningarmátann.
Markmið með listgreinum
Handavinna í nýrri skólastefnu
tekur mið af textílhönnun, textíl-
framleiðslu og listrænum handiðnaði
og eiga nemendur m.a. að tileinka
sér form- og litafræði, efnisfræði
textíla og hönnunarferli og læra að
prjóna, sauma og vefa.
Myndlist: Nemendur eiga m.a. að
læra að nýta sér þekkingu á lögmál-
um og aðferðum myndlistar til skiln-
ings á verkum annarra og til um-
ræðu um myndlist. Þeir eiga að læra
að þekkja og nota efnivið og áhöld
þessa miðils og að þróa verk frá hug-
mynd til útfærslu.
Tónlist: Nemendur eiga m.a. að
læra að iðka tónlist og að njóta henn-
ar og kennurum ber að vekja áhuga
og efla áhuga þeirra og skilning á
tónlist. Markmiðið er flutningur
hennar, sköpun, hlustun og greining.
Dans, hönnun og leiklist: Hönnun í
grunnskóla á að rúmast innan
handavinnu og myndlistar. Með
dansi eiga nemendur m.a. að læra að
tjá sig með líkama sínum og öðlast
betri skilning á menningu eigin þjóð-
ar og annarra. Leiklistin á m.a. að
kenna nemendum að setja sig í spor
annarra, að yfírvinna tilfinningaleg-
ar og líkamlegar hömlur og þróa
sjálfstraust.
Tónlist, gleði og huggun
I grunnskólum eiga handavinna,
myndlist og tónmennt að vera
skyldunám frá 1.-8. bekk en valgrein-
ar í 9.-10. bekk. Til að ná markmiðun-
um sem sett eru telur forvinnuhópur
að endurskoðaðri aðalnámskrá nauð-
synlegt að nemendur fái ávallt tvær
kennslustundir á viku. Forsendur
þess að ná markmiðunum eru að-
stæður, tími og hæfir kennarar.
I kynningaiTÍti menntamálaráðu-
neytis „Enn betri skóli“ sem nýlega
var dreift til almennings stendur að
áætlað sé að listir; myndmennt,
hannyrðir og tónmenntir fái saman
fjórar stundir á viku í grunnskólum
landsins. Þess ber einnig að geta að
skólar geta einnig ráðstafað stund-
um í vali til listgreinakennslu. Lista-
greinakennarar virðast kvíða því að
fá ekki nægar stundir til að ná mark-
miðunum sem kennslunni er sett.
Tónmenntakennarar eru meðal
þehra sem bera kvíðboga fyrir tón-
menntakennslu næstu kynslóðar.
Tónmenntakennsla á samkvæmt
markmiðum að veita nemendum inn-
sýn í fagurfræðileg verðmæti menn-
ingararfs þjóðarinnar. Einnig á hún
að auka skilning nemenda fyrir
áhrifavaldi tónlistar í samfélaginu.
Tónlist er viðurkennd sem sérstakur
Morgunblaðið/Þorkell
ÞAÐ þarf að tryggja hveiju íslensku barni menntun í tónlist, til að
njóta og til að nota, segja Hildur og Soffía.
þáttur í mannlegri greind sem hægt
er að þroska með markvissri kennslu
og þjálfun. Tónmennt hefur líka
áhrif á málþroska ungra barna og
lestrarkunnáttu. „Hún veitir nem-
endum lífsfyllingu, gleði, styrk og
huggun," sendur í skýrslu forvinnu-
hópsins á sviði listgreina.
Ein eða tvær stundir af tónlist
„Sparaaður í skólakerfinu undan-
farin 10 ár hefur bitnað harkalega á
listgreinum,“ segir Hildur Jóhannes-
ardóttir, formaður- tónmenntarkenn-
arafélags Islands, og að tímar til tón-
menntakennslu í gi'unnskólum hafi
því verið í lágmarki. „Tvær stundir á
viku eru það minnsta sem dugar til
að ná markmiðunum sem tón-
menntakennslu eru settar.“
Hún segir að samkvæmt skiptingu
kennslustunda á greinar í grunn-
skóla skólaárið 2001-2002 sem gefið
er sem dæmi í bæklingnum „Enn
betri skóli“ líti út fyrir að tónmenntii'
fái eina stund á viku og ef til vill
þriðjung úr annarri. „Ljóst er að
mörg börn fá samkvæmt þessu eina
stund og að það er komið undir
áhugasviði skólastjóra í hverjum
skóla hvort meira verði til umráða
fyrir tónmennt," segir Hildur, „ein
stund á viku nægir ekki til að ná
settum markmiðum“.
Soffia Vagnsdóttir tónmennta-
kennari segir að forvinnuhópurinn
hafi einnig gert ráð fyrir að tón-
menntir væru skylda í 9. bekk en svo
verði ekki samkvæmt töflu á blað-
síðu 9 í „Enn betri skóli“. „Faglegt
inntak forvinnuhópsins er samþykkt
en forsendunum kippt undan því
með of fáum kennslustundum á
viku,“ segir hún, „og það veldur okk-
ur, og öðrum listgreinakennurum
fyrir hönd sinna greina, verulegum
áhyggjum. Það segir einnig sína
sögu að úr tónmenntakennaradeild
Tónlistarskóla Reykjavíkur liðið vor
fór enginn útskrifaður nemandi til
vinnu á grunnskólastigi."
Hildur segir að það sé hægt að
stunda árangursríkt tónlistaruppeldi
í grunnskólum en það verði ekki gert
með áætluðum tímafjölda. „Tónlistin
er bnmnur sem margar aðrar grein-
ar leita í,“ segir hún og nefnir sem
dæmi íslensku með kvæðin og lögin.
Hildur og Soffía telja það ekki
duga að tónmenntir í skólum séu
háðar velvild skólastjómenda. „Það
verður að tryggja hverju íslensku
barni menntun í tónlist, bæði til að
geta notið hennar og notað hana,“
segja þær, „við viljum skapa betri að-
stæður í grunnskólum handa bömum
til að kenna þeim tónmenntii'.“
Dans- og leiklist
Dans/líkamstjáning og leiklist/leik-
ræn tjáning verða ekki skylda í
grunnskólum samkvæmt nýrri skóla-
stefnu en fremui’ samþættar öðram
greinum. Einnig má hugsanlega nota
valið sem skólar hafa til umráða til að
kenna þær, en þær eru taldar öflugar
fyrir einstaklinga til að tjá og túlka
líkama og sál og líka til að geta notið
þessara listgreina.
Nemendur eiga samkvæmt mark-
miðum að öðlast þekkingu á undir-
stöðuatriðum danslistar og tileinka
sér grunntækni leiklistar. Bent
hefur verið á að núna feli almenn
kennaramenntun ekki í sér þekkingu
á þessum listgreinum, og kalla ný
markmið á endurmenntun og nýj-
ungar í Kennaraháskólanum.
Stærðfræði
sem tómstundir
✓
Nýstárlegt námskeið á vegum Iþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur og Laugarnes-
skóla skapar langar umræður um stærð-
fræði. Nemendur og foreldrar glíma
saman í skólastofunni við dæmin.
ÞAÐ era fjórtán,“ hrópar
drengur í stofu 21 á þriðju
hæð í Laugarnesskóla í
Reykjavík. Hann er á námskeiði um
stærðfræði með móður sinni. Leið-
beinandi kannar hvernig hann komst
að niðurstöðunni og tilkynnii' hana
rétta.
Stærðfræðin getur orðið að tóm-
stundagamni. Hugrún Harðardóttir
og Guðlaug Bjarnadóttir kennarar
eru leiðbeiðendur á námskeiðinu
sem er frá klukkan 16.30-18.00, sex
miðvikudaga í röð. „Við byggjum á
bandarísku efni sem heitir Family
math (stærðfræði handa fjölskyld-
unni),“ segir Hugrún og að það virki
mjög spennandi á þátttakendur og
veki áframhaldandi umræður þegai'
heim er komið.
Þær hafa þýtt og staðfært verk-
efnin og eru tímarnir settir saman af
styttri og lengri dæmum. Markmiðið
er að nemendur og foreldrar fái að
glíma við þau á eigin forsendum og
aðferðir eru ekki þvingaðar upp á
einn né neinn.
I stofunni síðastliðinn miðvikudag
voru nemendur með teninga og vasa-
reikna og fletri hjálpartæki. Börnin
virðast vera sérlega sæl með að eiga
ótruflaða stund með foreldrum sín-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HANN er stundum góður í stærðfræði en ekki oft, segir Jörgen um
Agúst fóður sinn.
um. Hér truflar ekkert, segir Guð-
laug „og þau vinna saman að ákveðn-
um verkefnum og leika sér.“ Hugi'ún
segir að þau geti fengið aukaverkefni
heim ef þau geti ekki hætt en á nám-
skeiðinu eru 7 börn með 7 foreldrum.
Gæðastund með foreldrum
Jörgen situr einbeittur með
Agústi föður sínum. „Þetta er bara
skemmtilegt,“ segir hann. „En getur
pabbi þinn eitthvað?" „Hann er
stundum góður en ekki oft,“ svarar
Jörgen og glímii' við verkefni um að
81 krakki eigi að fá glas af kókó-
mjólk en hver ferna dugar í 6 glös.
Hvað þarf að kaupa margar fernur?
Agúst Jörgenson faðir hans segist
kunna vel við sig á þessu námskeiði,
„það þjálfar bæði rökhugsun og
skapandi hugsun,“ segir hann, „þetta
byggist á því að koma saman og
glíma við stærðfræði á lifandi hátt.“
Kennararnir fara um stofuna og
sjá að allir hafa leyst dæmin rétt en
fáir notað sömu aðferðina til að finna
lausnina og það finnst þeim áhuga-
verðast.