Morgunblaðið - 24.03.1998, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
I
í
f
I
i
I
í
l
I
j
i
I
t
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
JELTSIN
STOKKAR UPP
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti verður seint sakaður um
að nota hefðbundnar stjórnunaraðferðir. Hann hefur
löngum þótt óútreiknanlegur og útspil hans hafa gjarnan
komið jafnvel nánustu samstarfsmönnum í opna skjöldu. Sú
ákvörðun forsetans að reka alla ráðherra ríkisstjórnarinnar,
er hann mætti til vinnu á mánudagsmorgun, virðist þannig
hafa komið öllum á óvart. Jeltsín hefur á undanförnum mán-
uðum gefið í skyn að hann væri óánægður með árangur
stjórnarinnar og að til greina kæmi að skipta út nokkrum ráð-
herrum. A síðustu vikum benti hins vegar flest til að aukinn
stöðugleiki væri að komast á í rússneskum stjórnmálum og að
sátt væri að nást um það, jafnt í þinginu sem forsetahöllinni,
að æskilegt væri að stjórn Viktors Tsjernómyrdíns sæti áfram
fram að næstu kosningum.
Jeltsín, sem undanfarna daga hefur verið frá vinnu vegna
veikinda, hefur hins vegar greinilega skipt um skoðun. Sú
ástæða sem hann gefur fyrir ákvörðun sinni er að ekki hafi
verið staðið við loforð um að greiða ríkisstarfsmönnum
ógreidd laun og að meiri kraft vanti í efnahagslegar umbætur.
Eðlilega vakna spurningar um það að hve ígrunduðu máli
forsetinn ræðst í jafnróttækar breytingar og tilkynntar voru í
gær. Ráðherrabreytingar eru viðtekin venja í flestum lýðræð-
isríkjum. Það að reka fyrirvaralaust heila ríkisstjórn á einu
bretti er hins vegar vart til marks um stöðugleika og lýðræð-
islegan þroska. Markmið Jeltsíns virðast heldur ekki skýr né
leiðirnar sem hann hyggst fara til að ná þeim. í fyrstu lýsir
hann því yfir að hann hyggist sjálfur gegna embætti forsætis-
ráðherra fyrst um sinn. Nokkrum klukkustundum síðar skip-
ar hann forsætisráðherra í starfsstjórn.
Umbótasinnar virðast, ef eitthvað er, styrkja stöðu sína við
þessa róttæku uppstokkun, þótt enn eigi eftir að koma endan-
lega í ljós hver niðurstaðan verður. Hinn afturhaldssinnaði
innanríkisráðherra Kúlakov hverfur úr stjórninni en hinn um-
bótasinnaði Boris Nemtsov virðist ætla að styrkja stöðu sína
verulega. Uppstokkunin virðist ekki ætla að hafa nein áhrif á
markaðsumbætur í Rússlandi og jafnframt bendir flest til að
utanríkisstefnan verði áfram óbreytt
Það sem vekur hins vegar hvað mesta athygli er brotthvarf
Tsjernómyrdíns, sem hefur verið einn tryggasti bandamaður
Jeltsíns. Hann hefur hins vegar ekki farið leynt með það að
hann stefnir á forsetaembættið í næstu forsetakosningum.
Jeltsín gaf í gær greinilega til kynna að hann lítur ekki á
Tsjernómyrdín sem æskilegan arftaka sinn sem leyft yrði að
nota forsætisráðherraembættið til að byggja sig upp fyrir for-
setakjörið. Það er svo annað mál hvort það kemur
Tsjernómyrdín illa að losna undan væng Jeltsíns fyrir þann
slag.
SAMVERA FORELDRA
OG BARNA
IFRÉTTASKÝRINGU hér í blaðinu síðast liðinn sunnudag
er m.a. fjallað um bókina „Vímuefnaneyzla ungs fólks - Um-
hverfi og aðstæður", sem Rannsóknarstofnun uppeldis- og
menntamála stendur að. Þar kemur ótvírætt fram að því betra
sem samband foreldra og barns eða unglings er, því meiri
tíma sem foreldri og barn eða unglingur verja saman, þeim
mun minni líkur eru á því að unglingurinn falli fyrir vímuefn-
um. Það eru m.ö.o. sterk tengsl milli samverutíma foreldra og
unglinga og þess, hvort ungviðið neytir vímuefna eða ekki.
Sveiflur í vímuefnaneyzlu ungs fólks virðast að vísu eiga
sameiginlegar alþjóðlegar rætur. Staðreynd er engu að síður
að umhverfi og aðstæður vega þungt á þessu sviði. Þær ráðast
m.a. af styrk eða veikleika viðkomandi fjölskyldu og skóla.
Sem og af því hvort til staðar eru fyrirbyggjandi varnir, svo
sem fræðsla og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf. „Niður-
stöður okkar gefa til kynna,“ segja höfundar bókarinnar, „að
fyllsta ástæða er til að gefa skipulagi æskulýðs- og tóm-
stundastarfs ungs fólks gaum í tengslum við forvarnir og
vímuefni."
Meginniðurstaðan er þó vafalaust sú að sterk tengsl eru á
milli þess hve miklum tíma foreldrar og börn verja saman og
vímuefnaneyzlu unglinga. Góðar heimilisaðstæður og sterk til-
finningaleg tengsl milli unglinga og foreldra draga úr líkum á
slíkri neyzlu. Samfélagið þarf að stuðla að meiri og betri sam-
vistum foreldra og barna, styrkja heimili og skóla til að taka á
vandanum, bæta félagslegt umhverfi ungmenna og efla fram-
boð á heilbrigðu tómstundastarfi. Og sérhvert ábyrgt foreldri
þarf að spyrja sjálft sig: hvað get ég betur gert til að bægja
vímuefnavandanum frá börnunum?
Jeltsín víkur Tsjernomyrdín og allri rússnesku ríkis
Reuters
SERGEJ Kírfjenko, orkumálaráðherra Rússlands, og Borís Jeltsín takast í hendur eftir að forsetinn undirritaði til-
skipun um að Kírý'enko gegndi embætti forsætisráðherra þar til ný stjórn yrði mynduð.
Yill blása nýju lífi í
efnahagsumbætur
Sergej Kíríjenko orkumálaráðherra verður
forsætisráðherra Rússlands þar til ný stjórn
verður mynduð. Búist er við að Prímakov ut-
anríkisráðherra og Sergeijev varnarmálaráð-
herra haldi embættum sínum en óvíst er
hvað verður um aðstoðarforsætisráðherrana
Borís Nemtsov og Anatólí Tsjúbaís.
Moskvu. Reuters.
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, vék Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráð-
herra og allri ríkisstjórn
hans frá í gær og sagði að markmiðið
væri að blása nýju lífi í efnahagsum-
bætumar. Akvörðun forsetans kom
mjög á óvart en Anatolí Tsjúbajs,
fráfarandi aðstoðarforsætisráðherra,
sagði að staða umbótasinna í Kreml
væri enn sterk og jafnvel sterkari en
áður.
Jeltsín sagði í fyrstu að hann
myndi sjálfur gegna embætti forsæt-
isráðherra til bráðabirgða í stað
Viktors Tsjernomyrdíns en undirrit-
aði síðar tilskipun um að Sergej
Kíríjenko orkumálaráðherra yrði for-
sætisráðherra þar til ný stjórn yrði
mynduð.
Falið að skipuleggja
kosningar
Flestir höfðu talið að Jeltsín vildi
að Tsjernomyrdín yrði næsti forseti
Rússlands en talið er að staða hans
hafi veikst mjög eftir brottvikning-
una. Jeltsín fól Tsjernomyrdín að
skipuleggja þingkosning-
arnar á næsta ári og for-
setakosningarnar ári síðar
og það verkefni er jafnvel
talið geta orðið til þess að
hann gefi ekki kost á sér í
forsetaembættið.
Jeltsín sagði að brottvikning
Tsjernomyrdíns gerði honum kleift
að einbeita sér að undirbúningi for-
setakosninganna árið 2000 án þess að
útskýra það frekar. Tsjernomyrdín
sagði á blaðamannafundi að ekki
væri tímabært að greina frá þvi
hvort hann hygðist gefa kost á sér í
forsetaembættið.
Fréttaskýrendur telja að þótt
Tsjernomyrdín geti nú einbeitt sér
að því að undirbúa kosningarnar
hafi staða hans veikst mjög við að
missa forsætisráðherraembættið.
Erfitt verði fyrir hann að halda sér í
sviðsljósinu og það dragi úr sigurlík-
um hans ákveði hann að gefa kost á
sér.
Nokkrir fréttaskýrendurnir sögðu
að staða Tsjernomyrdíns hefði verið
mjög sterk á síðustu mánuðum og
það kynni að hafa skapraunað forset-
anum.
Réð ekki við
úrlausnarefnin
„Brottvikning stjórnarinnar þýðir
ekki að breyting verði á stefnu okk-
ar,“ sagði Jeltsín í sjónvarpsávarpi
eftir að hafa undirritað tilskipun um
brottvikningu stjórnarinnar. „Þetta
er tilraun til að gera efnahagsum-
bæturnar kröftugri og árangursrík-
ari, gefa þeim pólitískan kraft, nýjan
drifkraft."
Jeltsín sagði að þótt stjórnin hefði
áorkað miklu hefði henni ekki tekist
að leysa ýmis vandamál og umbætur
hennar síðustu fimm árin hefðu ekki
bætt kjör almennings. „Stjórnin réð
því miður ekki við ýmis
úrlausnarefni," sagði for-
setinn.
Milljónir starfsmanna
ríkisfyrirtækja hafa ekki
fengið laun sín greidd í
marga mánuði og margir Rússar
hafa þurft að ganga í gegnum þreng-
ingar vegna umbótanna. Jeltsín hef-
ur oft látið í ljós vonbrigði með ár-
angurinn af umbótastefnunni á síð-
ustu mánuðum.
Kíríjenko
vel tekið
Gengi rússneskra verðbréfa lækk-
aði um rúm 3% að meðaltali eftir að
stjórninni var vikið frá en hækkaði
aftur eftir að tilkynnt var að Kíríj-
Reuters
VIKTOR Tsjernomyrdín á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær.
enko tæki við af Tsjernomyrdín.
Fjármálasérfræðingar sögðu að
markaðirnir hefðu tekið tilnefningu
Kíríjenkos vel.
Jeltsín hélt aftur til starfa í
Kreml á föstudag eftir að hafa dreg-
ið sig í hlé í viku vegna sýkingar í
öndunarfærum. Nokkrir frétta-
skýrendur sögðu að með ákvörðun
sinni vildi Jeltsín vekja athygli á því
að hann væri aftur kominn til starfa
og það væri hann sem væri við
stjórnvölinn.
Eftir að Jeltsín vék stjórninni frá
hélt hann í embættisbústað sinn ná-
lægt Moskvu. Sergej Jastrzhembskí,
talsmaður forsetans, sagði ________
að Jeltsín væri við „frá- Vonbric
bæra“ heilsu og fyrirhug- áranai
uðum fundi hans með . ..a
Helmut Kohl, kanslara
Þýskalands, og Jacques
Chirac, forseta Frakklands, yrði ekki
frestað. Ráðgert er að leiðtogarnir
þrír komi saman nálægt Moskvu á
morgun.
Staða umbótasinna sögð sterk
Samkvæmt stjórnarskránni verður
að víkja allri stjórninni frá þegar for-
sætisráðherra fer frá og líklegt er að
margir ráðherrar haldi embættum
sínum þegar ný stjórn verður mynd-
uð.
Anatolí Tsjúbajs, fyrsta aðstoðar-
Brottvikning-
in kom mjög
á óvart