Morgunblaðið - 24.03.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 35
stjdrninni frá
forsætisráðhen’a, var vikið frá í sér-
stakri tilskipun og það bendir til þess
að hann verði ekki í næstu stjórn.
Tsjúbajs sagði þó síðar að Jeltsín
vildi halda honum í Kreml þótt ekki
væri vitað hvaða hlutverki hann ætti
að gegna. „Hvað umbótasinna varðar
eru horfurnar nokkuð góðar, jafnvel
betri en áður,“ sagði hann og kvaðst
búast við því að flestir ráðherranna
yi-ðu í næstu stjórn.
Aðspurður kvaðst Tsjúbajs telja að
Jeltsín hefði ákveðið að víkja stjórn-
inni frá vegna óánægju með fram-
göngu hennar í efnahagsmálum en
bætti við að því færi fjarri að Rússar
stæðu frammi fyrir kreppu.
Oljóst er hvað verður um Borís
Nemtsov, fyrsta aðstoðarforsætis-
ráðherra, en hann kvaðst hafa samið
við Jeltsín um að vera áfram í stjórn-
inni í að minnsta kosti ár til viðbótar.
Prímakov enn
utanríkisráðherra
Embættismenn í Kreml sögðu að
Jevgení Prímakov hefði verið beðinn
um að gegna embætti utanríkisráð-
heira áfram þar til ný stjórn verður
mynduð. Þeir bættu við að engar
breytingar yrðu á utanríkisstefnunni.
Heimildarmenn í höfuðstöðvum
Atlantshafsbandalagsins í Brussel
sögðu líklegt að Prímakov og ígor
Sergejev varnarmálaráðherra héldu
embættum sínum eftir uppstokkun-
ina þar sem forsetinn væri ánægður
með störf þeirra að undanförnu.
Prímakov er álitinn hafa staðið sig vel
í deilunni um vopnaeftirlit Sameinuðu
þjóðanna í Irak og hefur gegnt veiga-
miklu hlutverki í að hindra tilraunir
Bandaríkjastjórnar til að refsa Ser-
bum, bandamönnum Rússa, vegna
blóðsúthellinganna í Kosovo.
Heimildarmennirnir sögðu einnig
að svo virtist að Sergejev varnar-
málaráðherra hefði haft betur í
valdabaráttu við Anatolí Kúlíkov inn-
anríkisráðherra, sem Jeltsín vék frá í
sérstakri tilskipun í gær. Kúlíkov
hefur sætt gagnrýni að undanfömu
vegna harðorðra yfirlýsinga um
Tsjetsjníju.
„Það er engin stjómarkreppa"
Tsjernomyrdín tók brottvikning-
unni vel og lýsti henni sem „eðlilegri
ráðstöfun“ sem hefði ekki áhrif á um-
bótastefnuna. „Þetta er ekki stórslys.
Það er engin stjórnarkreppa í land-
inu,“ sagði hann.
Tsjernomyrdín hafði verið forsæt-
isráðherra frá árinu 1992 og Jeltsín
notaði tækifærið til að sæma hann
orðu. Litið var á hann sem dyggan
bandamann Jeltsíns og traustan for-
sætisráðherra, sem hefði hvergi
hvikað frá umbótastefnunni þrátt
fyrir mótlæti.
Brottvikningin kom mjög á óvart,
enda virtist stjórnin vera nokkuð föst
í sessi síðustu mánuði. Lítið hefur
farið fyrir kröfum stjórnarandstæð-
inga um að þingið lýsi yfir vantrausti
á stjórnina og „ungu umbótasinnarn-
ir“ tveir, Tsjúbajs og Nemtsov, voru
taldir hafa styrkt stöðu sína.
Þingið leyst upp?
Ekki er vitað hvern Jeltsín hyggst
tilnefna forsætisráðherra þegar hann
myndar nýja stjórn en frétta-
skýrendur í Moskvu sögðu að Ivan
Rybkín aðstoðarforsætisráðherra
væri á meðal þein-a sem kæmu til
greina í embættið. Talsmaður forset-
ans sagði líklegt að Kíríjenko yrði
fyiir valinu. A meðal annarra sem
koma til greina í embættið eru Jegor
Strojev, forseti efri deildar þingsins,
_________ Borís Nemtsov, fyrsti að-
stoðarforsætisráðherra,
Dmitrí Ajatskov, héraðs-
stjóri Saratov, Júrí
Luzhkov, borgarstjóri
Moskvu og Grígorí Javl-
ínskí, leiðtogi Jabloko-flokksins, sem
er í stjórnarandstöðu.
Samkvæmt rússnesku stjórnar-
skránni verður öll stjórnin að víkja ef
forsætisráðherrann fer frá. Forset-
inn verður að tilnefna nýjan forsætis-
ráðherra innan hálfs mánaðar og
þingið fær viku til að fjalla um til-
nefninguna. Neiti þingið þrisvar
sinnum að samþykkja tilnefningu
forsetans getur hann skipað forsæt-
isráðherra sjálfur, leyst þingið upp
og boðað til nýrra kosninga.
|ði með
jr um-
;tefnu
Ríki í norðri og suðri ekki á eitt sátt um bann við skordýraeitrinu DDT
Ávinningur að leitað
verði annarra kosta
Samningaviðræður um bann við þrávirkum
lífrænum efnum hefjast 1 Genf í sumar og
má búast við að þar verði heitar umræður
um efnið DDT. Islendingar hafa haft ákveð-
ið frumkvæði að því að nú er gengið til
samninga um þessi efni. Karl Blöndal
kynnti sér málið.
SKIPTAR skoðanir eru um
það milli ríkja í norðri og
suðri hvort leggja eigi algert
bann við skordýraeitrinu
DDT. Islendingar hafa verið í þeim
hópi, sem hefur beitt sér fyrir
verndun sjávar fyrir þrávirkum líf-
rænum efnum og í grein um DDT-
deiluna í tímaritinu New Scientist er
haft eftir Tryggva Felixsyni, defld-
arstjóra alþjóðadeildar umhverfis-
ráðuneytisins, að banni fylgi sá
ávinningur að reynt verði fyrir al-
vöru að finna aðra kosti.
DDT var upphaflega beitt til að
vernda gróður fyrir ágangi skordýra
en í upphafi sjöunda áratugarins var
það úthrópað á Vesturlöndum vegna
hættunnar af því í umhverfinu og
víða bannað. Um þessar mundir er
það enn notað í landbúnaði í ýmsum
þróunarlöndum, en það er einnig
notað til að drepa mýflugur og hefta
útbreiðslu sjúkdóma á borð við
malaríu og mýgulusótt víða, þar á
meðal Belize, Brasilíu, Ekvador,
Eþiópíu, Indlandi, Kenýa og
Tælandi. Um 270 milljónir manna fá
árlega sjúkdóma, sem mýflugan ber
með sér.
Gagnlegt,
hættulaust og ódýrt
„Mér er þvert um geð að verja
efni, sem veldur svo hræðilegum
vandamálum í umhverfmu," sagði
Renato Gusmáo hjá Heilbrigðissam-
tökum Ameríkuríkja, sem er hluti af
Alþjóða heilbrigðisstofnuninni
(WHO), í samtali við New Scientist.
„En það er gagnlegt, hættulaust
[fyrir menn] og ódýrt.“
I júní hefjast samningaviðræður
110 ríkja um alþjóðlegt bann við
DDT og öðrum þrávirkum lífrænum
efnum á vegum umhverfisstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (UNEP).
Fyrsti samningafundurinn verður í
Genf og sá næsti í Kanada. I sam-
þykkt UNEP segir að samningavið-
ræðunum eigi að ljúka árið 2000 og
hafa Islendingar lagt fram fé tfl
stofnunarinnar til að svo megi verða.
Síðan þurfa einstök ríki að staðfesta
hann þannig að samningurinn gæti
tekið gildi snemma á næstu öld.
„Það hefur verið baráttumál Is-
lendinga frá árinu 1990 að koma á
slíkum samningi," sagði Tryggvi í
samtali við Morgunblaðið. „I iðn-
væddum löndum, þar sem loftslag
er oft kaldara en víða í þróunarlönd-
um, hafa mörg af þessum hættulegu
efnum þegar verið bönnuð. Ástæðan
var að menn komust að því að þeim
fylgdu hliðarverkanir og einnig
fundust önnur efni eða gátu leyst
þau af hólmi, þótt vissulega sé of
mikið að segja að við höfum alger-
lega hreinsað tfl.“
Búist er við mikilli andstöðu við
banni meðal hitabeltisríkja. Fulltrú-
ar þeirra segja að DDT sé aðeins
notað í litlum mæli á afmörkuðum
svæðum. Umhverfistjónið sé tak-
markað og mannslífum bjargað.
Malaría í Belize
Belize í Suður-Ameríku hefur ver-
ið notað sem dæmi. Þegar hætt var
STUNGUMY getur borið með sér
malariu, mýgulusótt og ýmsa
aðra sjúkdóma.
að nota DDT þar fyrir sex árum
hafði malaríu nánast verið útrýmt.
Arið 1994 voru greind tíu þúsund
malaríutilfelli í landinu og höfðu þau
aldrei verið fleiri í sögu landsins.
íbúar Belize eru um 200 þúsund.
Þar var byrjað að nota DDT á nýjan
leik árið 1996 og hefur malaríutflfell-
um fækkað síðan.
Donald Roberts, sem starfar við
heilbrigðisháskóla í Bethesda í Mar-
yland, hefur stundað rannsóknir í
Belize og hann heldur því fram að
malaría muni færast i aukana verði
DDT bannað. Roberts leggur
áherslu á að ekki sé hægt að bera
saman notkun DDT til að vinna á
mýflugum og í landbúnaði. Hann
bendir á að jafn mikið DDT þurfi til
að bera á í heimilum í allri Guyana í
Suður-Ameríku, sem er 215 þúsund
ferkílómetrar, og til að bera á fjög-
urra ferkílómetra baðmullarekru á
einu uppskerutímabili. Þá megi
bæta því við að eitrið sé aðeins notað
innan dyra til að hefta útbreiðslu
malaríu.
Umhverfissinnar og ríkisstjórnir í
norðri halda því hins vegar fram að
allsherjarbann á DDT muni þvinga
menn til að kanna hættuminni leiðir
til að hefta sjúkdóma, sem berast
með mýflugum.
„Eitt umdeildasta málið í viðræð-
unum verður það hvort við höfum
aðra og öruggari kosti en þessi efni í
heilbrigðisþjónustu,“ sagði Tryggvi
og bætti við að reynslan hefði sýnt
að þegar þrýst væri á um að gera
breytingar næðist árangur: „Það
hefur komið í Ijós með efni, sem
eyða ósonlaginu. Það er ekki hægt
að sætta sig við samkomulag, sem
verður fullt af smugum. Þá yi'ði eng-
in hvatning til að leita annarra
kosta.“
Hver borgar?
Hann sagði að umræðan myndi
snúast um það hvort til væru stað-
genglar, sem gætu leyst þessa notk-
un DDT af hólmi og ef svo væri á
hvaða kjörum.
„DDT er lyf, sem hefur verið þró-
að og er tiltölulega ódýrt, en ýmis-
legt bendir til þess að staðgenglar
kunni að verða dýrari,“ sagði
Tryggvi. „Eins og oft vill ver ða í um-
hverfismálum vaknar spurningin
hver eigi að greiða þennan kostnað."
Þegar verið var að stöðva notkun
MALARÍA er skæður sjúkdómur. 1994 geisaði skæður malaríufarald-
ur á Indlandi og mynduðust biðraðir við heilsugæslustöðvar.
ósoneyðandi efna var stofnaður sjóð-
ur, sem Islendingar leggja meðal
annarra í fé. Úr sjóðnum hafa verið
greiddir styrkir til þróunarlanda til
að auðvelda þeim að leysa ósoneyð-
andi efni af hólmi.
„Nú þarf ef til vill að grípa til svip-
aðra ráða,“ sagði Tryggvi. „Til dæm-
is að stofna sjóð til að liðka fyrir
breytingum. Jafnframt standa vonir
til þess að um leið og myndast þrýst-
ingur til að finna umhverfisvænni
staðgengla muni efnaiðnaðurinn
bregðast við. En þetta verður senni-
lega erfitt viðfangsefni í þessum
samningaviðræðum. Útbreiðsla
malaríu hefur nefnilega vaxið og
margir hafa viljað bera því við að
DDT sé ekki notað jafn mikið og áð-
ur. Aðrir segja hins vegar að aðrir
þættir hafi þar áhrif, slakað hafi ver-
ið á í heilsugæslu og fleira. Það er
ekki mitt að skera úr um hvað er
rétt í því, en það verður að koma
skýrt fram í samningaviðræðunum
hvort til séu aðrar leiðir til að draga
úr malaríu.“
Sums staðar hefur verið reynt að
nota til dæmis lífræn fosfötsambönd
og efni einangruð úr tryggðablóm-
um í stað DDT. Þau brotna hraðar
niður og hverfa úr umhverfinu, en
eru hættuleg þeim, sem nota þau.
Þau eru einnig dýrari vegna þess að
það þarf að bera þau oftar á og eru
ekki jafn afkastamikfl. Því hefur
einnig verið haldið fram að stungu-
mý byggi fljótt upp ónæmi fyrir
helstu staðgenglum DDT.
Einnig hefur verið þrýst á þau
ríki, sem nota DDT til að stemma
stigu við útbi’eiðslu mýflugunnar, til
að nota ekki efnasambönd heldur
reyna aðrar leiðir. Stungumý fjölgar
sér í hreyfingarlausu vatni og með
því að tryggja rennsli þar sem hætt-
an er mest á byggðu bóli megi ná
árangri. Einnig sé hægt að nota fisk,
bakteríur og fleira til að eyða lirfum
flugunnar. Helsta gagnrýnin á slíkar
aðferðir er að erfitt sé að beita þeim
á vettvangi þótt vissulega séu þær
lofsverðar.
Þrávirk efni berast
norður á bóginn
Ástæðan fyrir því að Norðurlönd
knýja á um að sett verði bann er sú
að ýmis þrávirk lífræn efni, sem not-
uð eru á suðlægum slóðum, gufa þar
upp, berast norður á bóginn og þétt-
ast og falla niður á yfirborð lands
eða sjávar þar sem kaldara er. Efnin
komast þar inn í fæðuhringinn. Þau
hlaðast upp í spendýrum og er til
dæmis mikið af þeim í selum.
I sumum byggðarlögum fyrir ofan
heimskautsbaug, til dæmis á Græn-
landi og í Kanada, er ástandið þegar
orðið þannig að konur hafa mun
meira DDT og önnur þrávirk efni í
brjóstamjólk og blóði, sem fer um
naflastreng, en hættumörk segja til
um.
„Á einstaka stöðum er þetta kom-
ið á það stig að það geti farið að hafa
áhrif á heilsufar," sagði Tryggvi.
„Sem betur fer er það mjög tak-
markað og það hefur ekki verið talin"f
ástæða til þess að vara fólk við
neyslu á ákveðnum afurðum úr
ákveðnum dýrum. Efnin virðast hins
vegar safnast fyrir í fituvefjum og á
þeim stöðum, sem neysla hvalkjöts,
selkjöts og feitmetis úr sjó, mælast
þessi efni í meira magni en annars
staðar.“
Hér við land hafa greinst þrávirk
lífræn efni í fugli og sjávardýrum.
„í sumum tilfellum hefur magnið
verið nokkuð hátt, en yfirleitt er það
mjög lágt og fýrir neðan öll hættu-
mörk,“ sagði Tryggvi. „En bara sú
staðreynd að þetta greinist hér, svo
fjarri öllum uppsprettum, veldur
vitaskuld áhyggjum og það er ástæð-
an fyrir því að við viljum taka á
þessu.“
Hann sagði að ekki mætti hins
vegar valda óþarfa áhyggjum hér á
landi og fyndust þrávirk efni til
dæmis í miklu minna mæli hér við
land en í Eystrasaltinu.
Listin yfir þrávirk efni er langur,
en hættulegustu efnin, sem tekin
verða fyrir í samningaviðræðunum,
eru 12. Ekkert þeirra er framleitt á
Islandi, en tvö geta orðið til við^
bruna, díoxín og fúron.
„Það eru sennilega helst þau efni,
sem gætu orðið til hér og þá við
ófullkominn bruna,“ sagði Tryggvi.
„Það gæti verið ef sorpbrennsla er
ekki við eðlilegar aðstæður. En það
er mjög takmarkað magn, sem hugs-
anlega fer út í andrúmsloftið. En
DDT og ýmis önnur efni, sem eru á
þessum lista, eru nú þegar bönnuð
hér á landi.“
ísland aflvaki
Islensk stjómvöld hafa tekið
ákveðið frumkvæði í því að koma á
banni við þrávirkum lífrænum efn-
um.
„Það má segja að við höfum haft
svolítil áhrif í þessu máli á alþjóða-
vettvangi,“ sagði Tryggvi. „Við kom-
um að þessu áður en flest önnur ríki
voru farin að leggja fram samning
um alþjóðasamning. Við fengum
fljótlega skilning hjá Norðurlöndun-
um og tókst að koma á norrænu
samstarfi, sem skilaði sér síðan hjá
Evrópusambandinu. Einnig höfum
við átt mjög gott samstarf við
Bandaríkin og myndað góð tengsl
við ýmis þróunarlönd, sem sýndu
málinu skilning.“ v
I upphafí var aðeins um að ræða
pólitískar yfirlýsingar og ályktanir,
en síðan færðist áherslan á lagalega
bindandi samkomulag.
„Þetta er dæmi um mál þar sem
Island hefur lagt svolítið á vogar-
skálarnar, þótt ekki sé landið stórt í
alþjóðlegu samhengi," sagði hann.,.
„Við vorum svolítill aflvaki í að koma
þessu á.“