Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998 4lS
AÐSENDAR GREINAR
Að standa
vörð um konur
NYVERIÐ ritaði yf-
irlæknir og prófessor
kvennadeildar grein í
Morgunblaðið, þar sem
hann fjallar um að
nýta þyrfti betur þjón-
ustu vegna fæðinga og
kvensjúkdóma.
Það er að sjálfsögðu
eðlilegt, að miðstöð
kvensjúkdóma, með
öllu, sem þar í felst,
ásamt tæknifrjóvgun
og tækniaðgerðum sé á
einum og sama stað.
Til þeirrar þjónustu
þarf sérmenntað fólk, Hulda
sem stöðugt þarf að Jensdóttir
vera í þjálfun og end-
urþjálfun. Að auki þarf að endur-
nýja tæknibúnað bæði hratt og
oft, á tímum framfara. Allt þetta
kostar mikla peninga sem nýtast
illa of dreifðir . . . Heilbrigð verð-
andi móðir og eðlilegar fæðingar
eru svo hin hlið málsins. Vel má
vera að hægt sé að hagræða í
þjónustunni úti á landsbyggðinni
frá því sem nú er, en það er ekki
hagræðing að senda allar konur til
Reykjavíkur.
Verðandi móðh- og fæðandi
kona er ekki tækniundur. Hún er
lífsundur, sem á að fæða börn sín
á eigin forsendum í eigin um-
hverfi, þar líður henni best og þar
verða vandamálin minnst. Hér er
ekki verið að tala um fjárfúlgur
ekki um tækni eða tæki, heldur til-
finningaveru, konu sem fyrst og
síðast þarf á því að halda að vera í
faðmi fjölskyidu sinnar á þeirri
stóru stundu sem barnsfæðing er,
hvort sem fæðingin fer fram í
Reykjavík í þorpi úti á landi eða í
sveit . . . Konan þarf frið - stuðn-
ing - án truflana, án afskiptasemi.
Þegar kona með eðlilega með-
göngu er drifin inná tæknivædda
fæðingadeild er hætt við að inn-
grip verði meiri en eðlilegt má
teljast.
A íslandi, sem og annars staðar,
er nauðsyn að eiga tæknivætt
sjúkrahús - það er ljóst, eins og
áður segir. En það er rangt eins
og nú er, að margar konur á
landsbyggðinni þora ekki annað
en fara til Reykjavíkur til að eiga
sín börn. Hræðsluáróður útaf fyrir
sig, getur auðveldlega leitt til
vandamála.
Þótt ísland eigi góða fæðingar-
deild og afburðagott starfsfólk,
sem allt gerir sitt besta, þá er galli
á gjöf Njarðar það er sú sjálfhelda
sem íslensk fæðingarhjálp er kom-
in í um þessar mundir. Þegar ein
stofnun ræður ríkjum í hug-
myndafræði og er í raun eina leið-
andi aflið, hversu góð sem hún
annars er, er sú hætta fyrir hendi
að farvegur myndist fyrir ein-
stefnu og þröngsýni. Hagsmuna-
potið er þá ekki langt undan.
Þetta er þekkt fyrirbæri og þarf
því ekki að koma á óvart. Þegar
einstefnuhugmyndafræðin snýst
um fæðingarhjálp, er alvara á
ferð.
Tilraun pólitískra flokka, sér-
ílagi fyrir kostningar, til þess að
jafna hlut íslenskra kvenna í þess-
um málum, hefur ekki borið ár-
angur, enda erfitt að deila við
harða mótspyrnu og þann sem
vaidið hefur. Öllum má þó ljóst
vera að það er dýrt fyrir samfé-
lagið að allar konur fæði á tækni-
væddri fæðingardeild, helst af öllu
landinu, en sú hugmynd hefur oft
skotið upp kollinum eins og marg-
ir vita. Vel má vera að einhverjum
detti nú í hug MFS einingin (með-
ganga, fæðing, sængurlega) að
hún hafi komið í stað Fæðingar-
heimilisins á sínum tíma og líkist
mjög heimafæðingum - MFS ein-
ingin er góð svo langt sem hún
nær, og gott fólk þar
við störf, en hún er
undir stjórn kvenna-
deildar sem stýrir
framvindunni, henni
er sniðinn þröngur
stakkur og hún er svo
smá að sl. ár komust
aðeins 200 konur að. A
Fæðingarheimilinu
fæddust eitt þúsund
og tvö hundruð (1200)
börn þegar best lét og
því ekki saman að
jafna.
Að hagræða í heil-
brigðiskerfinu eru all-
ir sammála um að sé
bæði rétt og skylt, en
svo virðist sem hagræðingin fram
að þessu hafi litlu skilað nema
vandræðum. Ef menn vilja spara í
fæðingarhjálp, er rétt rekið fæð-
ingarheimili og heimafæðingar
fyrir þær konur sem þess óska,
leiðin til sparnaðar. Allar rann-
sóknir á þessu sviði til margra
ára, benda til þess að því eðlilegra
og heimilislegra sem fæðingarum-
hverfið er því færri vandamál.
Konur á íslandi eiga því kröfu á
þessum valmöguleikum, auk þess
sem það mundi spara skattborgar-
anum stórar peningafúlgur.
Þegar einstefnuhug-
myndafræðin snýst um
fæðingarhjálp, segir
Hulda Jensdóttir, er
alvara á ferð.
Ég sem þetta rita hef starfað við
fæðingarhjálp í tugi ára, tekið á
móti og séð mikinn fjölda bama
fæðast. Ekki úr fjarlægð, heldur í
nánd, fylgst með hverju andartaki
þessa mesta undurs sköpunar-
verksins. Allt sem truflar þennan
lífsryþma að óþörfu er rangt gagn-
vart konunni, gagnvart baminu og
lífinu sjálfu. Eg er ekki ein um
þessa skoðun. Margar rannsóknir
benda til hins sama. Nýleg rann-
sókn undir stjórn Ole Olsen dós-
ents við socialmedisinsku deild
Kaupmannahafnarháskóla sýnir
t.d. fram á að ekki er hættumeira
að fæða börn heima hjá sér en á
tæknivæddu sjúkrahúsi. Þvert á
móti sýnir þessi rannsókn að böm
sem fæðast heima era hressari,
hafa betri Apgar. Helmingi fleiri
börn sem voru sjúkrahúsfædd
höfðu lægri (lélegri) Apgar, en
heimafæddu börnin. Hið sama var
með inngrip í fæðinguna, þau vora
helmingi færri hjá þeim konum
sem fæddu heima, miðað við
sjúkrahúshópinn. Um þetta segir
Ole Olsen dósent: „ýmislegt, sem
gert er á sjúkrahúsunum hefur
sýnt sig vera meira til ógagns en
gagns .. . „ 0. Olesen dósent segir
fleira, en ég læt þetta nægja.
Þessi samanburðarrannsókn á
heima- og sjúkrahúsfæðingum fór
fram í sex mismunandi svokölluð-
um „meta-analys“ vísindarann-
sóknum, sem náðu til 24.000
kvenna frá mismunandi löndum.
Fleiri viðurkenndar rannsóknir
hafa leitt til sömu niðurstöðu.
Að lokum langar mig til að nefna
athyglisverða frétt frá gamla
vinnustaðnum mínum í Svíþjóð
(Suðursjúkrahúsið í Stokkhólmi -
SÖS). Þar hefur verið tekin upp sú
aðferð að hafa svokallaðar „doulor"
við fæðingamar, sem þegar hefur
sýnt sig gefa góða raun. „Doula er
grískt orð, sem þýðir kona með
reynslu, sem hjálpar öðrum kon-
um.“ Þetta er ekki fagmanneskja
en þroskuð róleg kona sem hittir
móðurina, foreldrana fyrir fæðing-
una. Hugmyndin að þessu nú er
komin frá Bandaríkjunum en eins
og allir vita er þetta þekkt frá upp-
hafi vega. Þrjár ljósmæður á SÖS
vinna nú að samanburðarrannsókn
á 150 frambyrjum við sama fjölda
frambyrja, sem fæða á hefðbundin
hátt á sjúkrahúsinu.
Tölur frá Bandaríkjunum segja
að þessi ófaglega aðferð hafi lækk-
að keisaratíðni um 50%, stytt fæð-
ingartímann um 25%, minnkað
þörf fyrir deyfingu um 30%, og
óskir um mænudeyfingu um 60%.
Er nema von að spurt sé, er ekki
kominn tími til að taka aftur upp
virðinguna fyrir nærkonunni (sem
alltaf var nálæg), yfirsetukonunni
(sem alltaf sat yfir, traust og ör-
ugg), ljósmóðurinni og jarðarmóð-
urinni, sem var tengd Gæju órofa-
böndum. Ljósið, jörðin, lífið VIÐ
= Allt órofaheild, að trufla það
ferli er mistök. Farsælasta leiðin
til farsælla fæðinga er góð heilsa
og jákvætt hugarfar. Gott eftirlit,
góður undirbúningur til að takast
á við stórbrotið ferli, þar sem kon-
unni er hjálpað til að skilja sjálfa
sig, hæfileikann og kraftinn, sem
býr hið innra. Til þess þarf hvorki
sterk ljós né tæki, stöðugar skoð-
anir og óþægilegar stellingar,
heldur innra jafnvægi sem má
styrkja með nánum tengslum, já-
kvæðu umhverfi, með dansi, með
söng, með slökun og jafnvæg-
isöndun, að þekkja sinn eigin takt.
Ró eða læti, sitjandi, standandi,
allt eftir því sem hentar hverri og
einni. Barnsfæðing er lífið í há-
marki, tilfinningalega og líkam-
lega. Hárfínt viðkvæmt ferli, sem
ekkert má trufla. Heilög stund.
Okkar er að styðja konuna til þess
að finna sjálfa sig - að vera hún
sjálf.
Megi íslenskar konur bera gæfu
til að þekkja sinn vitjunartíma, taka
fæðingu bama sinna meira í eigin
hendur, og standa vörð um það helg-
asta, sem þeim hefur verið gefið.
Höfundur er fyrrverandi yfir[jós-
móðir og forstöðukona.
Konur hlusta
Laugardagana 21. og 28. mars verða konur um nýjan
valkost á ferð um landið. Hvar brennur eldurinn
heitast? Konur við eldhúshorðið, við færibandið, í
kennslunni, í umönnun, kirkjunni, kvenfélögunum,
saumaklúbbunum, við stjórnun og konur hvarvetna
eru hvattar til að koma og láta Ijós sitt skína
Akranes 21. mars.
Eskifjörður 21. mars.
Selfoss 21. mars.
Reykjavik 24. mars.
Hafnarfjorður 24. mars
»igr
i Baldvinsdóttir
tir funda með
rium í Fjörgyn,
30.
Jóhanna Sigurðardóttir. Bryndís Hlöð-
versdóttir, Steinunn V. Oskarsdóttir og
Guðný Aradóttir funda með Kópavogs-
konum í kvenfélagssalnum, Hamraborg
10, 2. hæð kl 20.00.
GBBi
Svanfríður Jónasdóttir, Guðný Guðbjörns-
dóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir halda
fund i Alþýðuhúsinu, 4. hæð
kl. 10.00-12.00.
Jóhanna Sigurðardóttir, Margrét Frí-
mannsdóttir og Steinunn V. Oskarsdóttir
funda með konum í veitingastaðnum Glóð-
inni kl. 11.00-13.00.
íimmmaMim
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Sigríður
Jóhannesdóttir og Ása Richardsdóttir
funda á Eyrinni kl. 11.30-13.30.
Bryndís Hlöðversdóttir, Rannveig Guð-
mundsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir
funda á Kaffi Krók kl. 13.00-15.00.
Svanfríður Jónasdóttir, Guðný Guðbjörns-
dóttir og Anna Kristín Gunnarsdóttir funda
á Rauða torginu, Hótel Húsavik
kl. 14.00-16.00.
Samstaða kvenna í þágu jafnaðar,
kvenfrelsis og félagshyggju
mmóru smávélarnar frá
ámmmmYMumR
Eigum fyrirliggjandi B15 (1,6 tonn) beltagröfu
á mjög hagstæðu verði.
Einnig beltavagn með sturtum á 3 vegu.
Beltagröfur 0,5 - 7 tonn
Liðstýrðar hjólaskótlur 1 - 3,5 tonn
Beltavagnar 0,5 - 8 tonn
Dffl&œiyjK:
V Skútuvogi 12a Sími 568 1044