Morgunblaðið - 24.03.1998, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hófhornið IV
Of litlar
skeifiir land-
lægur óvani
ÁRÍÐANDI er að skeifur byrji að standa út fyrir brún hófs
þar sem hann er breiðastur.
TIL AÐ mæta framvexti hófa þurfa skeifur að standa einn til
tvo sentimetra aftur fyrir hæla hófsins, því meira sem halli
hófsins er meiri.
SKEIFNAVAL íslendinga
hefur einkennst í mörg-
um tilvikum af því að
menn járna á of litlar
skeifur. Svo virðist vera að þetta
sé arfur frá fyrri tíð, þegar skeif-
ur voru handsmíðaðar á bæjum
vítt og breitt um landið og smíða-
járn af skornum skammti. Þetta
leiddi til þess að skeifur voru of
stuttar og því tekið óeðlilega mik-
ið framan af hófum. Sömuleiðis
var járnað of þröngt, þ.e. skeifur
látnar fylgja brún hófsins að aft-
anverðu og hælar skeifnanna
stóðu lítið eða ekkert aftur af.
Þetta verklag hefur síðan verið
h'fseigt og mjög algengt er að not-
aður séu of litlar skeifur enn í
dag.
Skeifur standi
út fyrir hóf
Áður hefur verið minnst á
virkni hófsins í þessum þáttum,
en sérstaklega þarf að hafa hana
í huga þegar skeifur eru valdar
og sniðnar eftir hófnum. Mikil
hreyfing er í hófnum þegar hest-
ur stígur í fótinn. Áftasti hluti
hans gleikkar út þegar þyngdin
kemur á fótinn. Taka þarf sér-
staklega tillit til þessa þegar
skeifan er valin og sniðin. Áríð-
andi er að skeifan byrji að standa
út fyrir brún hófveggjar þar sem
hófurinn er breiðastur og standi
út af alveg aftur úr. Er þarna
verið að tala um 3 til 4 millimetra
á hliðum en síðan stendur hæll
skeifunnar einn til tvo sentimetra
aftur fyrir hæla hófsins. Hversu
mikið stendur aftur af ræðst af
því hver halli hófsins er. Því
meira aftur af sem halli hófsins
er meiri. Sömuleiðis er gott að
láta skeifuna koma örlítið út fyrir
brún hófveggjar að framanverðu.
Er þá verið að tala um 1 til 2
millimetra, en með því móti nær
skeifan að hlífa hófveggnum bet-
ur.
Heft hreyfíng og hætta
á hófmari
Ástæðan fyrir því að hafa
skeifurnar svo rúmar að aftan-
verðu er einmitt títtnefnd hreyf-
ing í hófnum. Sé skeifan látin
fylgja brún hófs aftur úr fer hóf-
urinn að þrýstast út fyrir skeif-
una strax að lokinni jámingu og
eftir u.þ.b. tvær vikur er hóf-
veggurinn kominn út fyrir aftur-
hluta skeifunnar. Skeifan er
byrjuð að gangast inn í hófínn.
Þegar svo er komið heftist eðli-
leg hreyfing hófsins og hófvegg-
urinn hættir að bera þyngd
hestsins og meiri þyngd hvílir á
hófbotni. Við það eykst hætta á
alvarlegu hófmari.
Okostimir við að járna rúmt er
sá að eftir því sem skeifan stend-
ur meira út af til hliðar og aftur
fyrir eykst hætta á að hesturinn
nái að rífa skeifuna undan sér.
Þar spilar að sjálfsögðu inn í
hversu haldgóðar hnykkingamar
em og planið undir skeifunni sé
rétt að lokinni tálgun. Með öðmm
orðum hversu vönduð jámingin
er. Áríðandi er að jámingamaður
geri sér grein fyrir því að ekki fer
alltaf saman hvað er best fyrir
hófinn og hestinn og hvað hentar
miðað við þær aðstæður sem hest-
urinn er notaður við. Sem dæmi
má taka að talsverður munur er á
hvort um er að ræða útreiðar á
góðum og sléttum reiðgötum eða
hinu hvort nota eigi hestinn í
smalamennsku í grýttu landi.
Undir slíkum kringumstæðum
þýðir lítið að láta skeifur standa
út undan. Sama gildir ef hross
ganga á sumrin á grýttu landi.
Góður járningamaður reynir að
fara bil beggja.
Þegar valin er skeifa þai-f að
gæta vel að lengd hennar. Sé hóf-
ur eðlilegur án nokkurra vaxtar-
skila er það megin reglan að
stytta hófinn ekki. Tágöt skeif-
unnar eiga að bera við hvítu línu
hófsins og hælar skeifunnar
standi eins og áður sagði 1 til 2
sentimetra aftur af.
Steðjinn tákn fagmennskunnar
Mjög aigengt er að notaðar séu
skeifur númer 11,5 þegar við hæfi
er að nota skeifur númer 12,0.
Þegar notaðar eru stærri skeifur
er meiri þörf á að sm'ða skeifuna
eftir hófnum á steðja eða með
beygjutækjum sem járningamenn
eru farnir að nota í ríkum mæli.
Að sníða skeifu á hóf hefur lengi
vel verið annaðhvort að gleikka
skeifu eða þrengja hana. Til þess
þarf einungis léttan slaghamar og
járnhlunk eða bara steingólf. I
dag færist mjög í vöxt að þeir sem
járna noti steðja, enda fag-
mennska í járningum að aukast.
Hestavörur fyrir 100
milljónir fluttar út árlega
TALIÐ er að verðmæti útfluttra vara og þjón-
ustu, sem tengjast íslenska hestinum, nemi um
100 milljónum króna á ári. Þetta kemur fram í
skýrslu nefndar sem Finnur Ingólfsson iðnaðar-
og viðskiptaráðherra skipaði í nóvember 1996.
■^ÁIarkmið nefndarinnar var að kanna mögleika á
auknum útflutningi framleiðslu sem tengist eða
má tengja íslenska hestinum.
Mest er flutt út af reiðtygjum og skyldum
vörum en aðrir helstu vöruflokkar eru fatnaður,
fóðurvörur, gjafavörur og annað, en undir það
flokkast meðal annars tölvuforrit og fylpróf.
Samtals eru framleiðendur vara sem tengjast
hestinum um 80. Þessum aðilum var sendur
spumingalisti og kom m.a. fram í svörum þeirra
að mikill meirihluti þeirra flytur nú þegar vörur
til útlanda eða stefnir að því. Einnig kemur
fram að nokkuð margir reiðkennarar og tamn-
ingamenn hafa atvinnu af því að kenna og temja
i^wrlendis.
Nefndarmenn komast að þeirri niðurstöðu að
til eflingar útflutnings sé mjög mikilvægt að
seljendur og framleiðendur hafi yfir að ráða
upplýsingum og þekkingu á erlendum mörkuð-
um. Einungis hafa verið gerðar markaðskann-
anir fyrir þessar vörar í Þýskalandi og í Svíþjóð.
Framleiðendur telja að það sem helst vanti til
^jð auka útflutning séu markaðsupplýsingar og
^^jármagn og era þeir hlynntir sameiginlegu
átaki í sókn á erlenda markaði. Auk þess telja
Talið að hægt sé að auka
útflutning umtalsvert
þeir þörf á að bæta tungumálakunnáttu þeirra
sem standa að útflutningi og með því að styðja
framleiðendur dyggilega sé hægt að auka út-
flutning umtalsvert.
fslenskar hestavörur verði
ávallt þær eftirsóttustu
í skýrslunni leggja nefndarmenn n'ka áherslu
á að Island verði „Mekka“ íslenska hestsins og
hingað leiti útlendingar upplýsinga, kaupi vörar
og þjónustu sem tengist íslenska hestinum, fái
ráðgjöf eða annað sem hefur hér sérstöðu; að
þjónusta og vörar frá Islandi sem tengjast ís-
lenska hestinum verði ávallt þær eftirsóttustu í
hugum þeirra sem þekkja íslenska hestinn.
Til þess að ná þessu fram telur nefndin að
mikilvægast sé að halda markaðsathugunum
áfram í löndum þar sem margir íslenskir hestar
era, kortleggja óskir neytenda um vörur og
þjónustu, athuga dreifileiðir og kauphegðun,
gefa út sameiginlegan kynningarbækling, nýta
alnetið og miða markaðssetningu íslenskrar
vöra við að hún sé gæðavara og bæta ímynd
hennar sem slíkrar.
Nefndin leggur auk þess m.a. til að framleið-
endur kynni sér hvaða stuðningur stendur til
boða til að efla markaðsstarf og innra starf. Þá
þurfi að efla stuðning við greinina, tryggja að-
gang erlendra ferðamanna að íslenskum hesta-
vöram og efla samstarf þar að lútandi, kanna
ónýtta möguleika á framleiðslu á vöram sem nú
era fluttar inn og tengjast hestamennsku og er
nefndur reiðfatnaður sem dæmi, auk alls kyns
„hestasnyrtivara“ og annarra vara sem mikið
eru notaðar eins og hóffjaðra, kamba, hnakk-
dýna, méla, ístaða o.fl.
Alþjóðleg hesta- og
hestavörusýning 1999
Lagt er til að halda alþjóðlega hesta- og
hestavörusýningu á íslandi og að stefnt skuli að
því að halda shka sýningu, ISLANDICA ‘99, og
að iðnaðarráðherra í samvinnu við ráðuneyti
samgöngumála og landbúnaðar beiti sér fyrir
því að nefnd um málið taki til starfa sem fyrst.
Telur nefndin að slík sýning muni draga til sín
fjölmörg erlend fyrirtæki og eigendur og að-
standendur íslenska hestsins erlendis muni
flykkjast hingað.
Einar Bollason var formaður nefndarinnar en
auk hans sátu í henni Ami Gunnarsson, Bene-
dikt G. Benediktsson, Einar Öder Magnússon,
Guðný Káradóttir, ritari, Hulda G. Geirsdóttir,
Ingi Björn Albertsson, Sigurbjörn Bárðarson
og Sæmundur Runólfsson.
Vilja að
stofnað
verði
hlutafélag
um mótið
HLUTAFÉLAGSHUGMYND
Fáksmanna hefur fallið í grýttan
jarðveg hjá hestamannafélögum á
Suðurlandi. Hafa félögin gefið loðin
svör við spumingum um hvort þau
hafi áhuga á þátttöku í hlutafélagi
um landsmót í Reykjavík árið 2000.
Flest vilja hestamannafélögin
eiga aðild að rekstri mótsins með
gamla laginu, þ.e. að leggja til
vinnukraft við undirbúning og móts-
haldið sjálft og fá þá hlut í hagnaði
mótsins eða taka þátt í að greiða
upp tap ef um slíkt yrði að ræða.
Fáksmenn sendu Landssambandi
hestamannafélaga bréf nýlega þar
sem lýst var yfir að félagið tæki því
aðeins þátt í rekstri landsmóts að
stofnað yrði hlutafélag um rekstur
þess.
Mörgum spumingum þykir ósvar-
að um hlutafélagshugmyndina og
greinir menn þar á um ýmislegt. Ef
hlutafélag verður stofnað telja sum-
ir að greiða verði 30% skatt af hagn-
aði en ekki ef mótið verður haldið
sem íþróttamót. Hlutafélagsmenn
fullyrða á móti að ekki þurfi að
greiða slíkan skatt. Þá efast margir
um að LH geti án samþykktar árs-
þings ráðstafað mótinu til einhvers
hlutafélags eða að stjóm samtak-
anna geti ákveðið þátttöku í hlutafé-
lagi án samþykktar ársþings.
Á sunnudag funduðu fáksmenn
með fulltrúum LH vegna þessa máls
og var þar ákveðið að boða til fundar
með fulltrúum hestamannafélaga á
Suðurlandi, en slíkur fundur var
haldinn í endaðan janúar og var
mæting á hann frekar dræm. Menn
eru famir að ókyrrast þar sem ekki
er búið að skipa framkvæmdanefnd
fyrir landsmótið 2000 og þykir tím-
inn farinn að verða knappur ef ekki
verður skipuð nefnd fljótlega.
Það þykir skrýtin staða að félag
sem sótti um landsmót skuli vera til-
búið að standa utan við rekstur móts
en leggja hinsvegar til mótsstaðinn.
Fáksmenn hafa boðið svæðið fyrir
15% af hverjum greiddum aðgöngu-
miða, sem þykir mjög hagstætt, en á
síðasta landsmóti var tekið 29% fyr-
ir mótssvæðið.
--------------
Hallgrímur
Jónasson ráð-
inn fram-
kvæmdastjóri
HALLGRÍMUR Jónasson hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Landssambands hestamannafélaga
og mun hann taka við starfinu 1. apr-
íl nk. Hallgrímur er vel kunnur innan
raða hestamanna, vai- um árabil for-
maður Gusts í Kópavogi og farar-
stjóri íslenska landsliðsins í hesta-
íþróttum á heimsmeistaramótinu í
Sviss 1995.
Á þriðja tug manna sóttu um starf-
ið en eftir er að ráða starfskraft í
hálft starf og hafa um 80 manns sótt
um. Fráfarandi framkvæmdastjóri,
Sigurður Þórhallsson, verður í starfi
hjá samtökunum til 1. júlí nk. Ingi-
björg Jónsdóttir sem verið hefur í
hálfu starfi hjá samtökunum hefur
sagt upp og mun hverfa til annarra
starfa.
Skrifstofa LH var flutt í ný húsa-
kynni í Iþróttamiðstöðinni í Laugar-
dal um síðustu mánaðamót. Er þar
um að ræða 100 fermetra aðstöðu
sem Ólympíunefnd íslands hafði fyr-
ir sameininguna við ÍSÍ. Þykir að-
staðan mjög góð, þrjár skrifstofur
auk fundarherbergis. Landssam-
bandið gamla var sem kunnugt er til
húsa í Bændahöllinni við Hagatorg
en HIS var með skrifstofuaðstöðu á
öðrum stað í Iþróttamiðstöðinni.