Morgunblaðið - 24.03.1998, Síða 62
,62 ÞRIÐJUDAGUR 24. MARZ 1998
FERMINGARTILBOÐ
FOLK I FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Nýja myndastofan
Laugavegi 18,
sími 551 5125
Útiskilti
Vatnsheld og vindþolin
Allar stærðir og gerðir
Margir litir - gott verð
JbOfnasmiðjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sfmi 511 1100
Verksmiðja Ratahrauni 13 • Sími 555 6100
Gullna hindberið
Vafasamur
heiður
Póstmannsins
KVIKMYNDIN Póst-
maðurinn með Kevin
Costner í aðalhlutverki
fékk þann vafasama
heiður að vera kjörin
lélegasta kvikmynd
ársins 1997 á afhend-
ingu gullna hindbersins
sem fram fór á Roos-
evelt-hótelinu í
Hollywood síðastliðið
sunnudagskvöld.
Rodman komst
áblað
Sigurvegarar kvölds-
ins, sem hafa aldrei lát-
ið sjá sig á afhending-
unni, eru valdir af um
500 kvikmyndafræð-
ingum, áhangendum og
blaðamönnum frá átta
löndum. Póstmaðurinn
fékk tilnefningu i fímm
flokkum og vann þá
alla, þ.e. lélegustu
mynd, slakasta leik-
stjóra, slakasta leikara,
lélegasta handrit og lé-
legasta söng.
Þar með hafði hún
betur en Batman og
Robin sem fékk ellefu
tilnefningar. Einu verð-
launin sem Batman og
Robin hreppti var fyrir
versta kvenleikara í
aukahlutverki sem var
valin Alicia Silverstone
fyrir frammistöðu sína
sem Leðurblökustúlkan.
Sú mynd sem komst
næst Póstmanninum
var hasarmyndin
„Double Team“. Hún
hreppti tvö hindber.
Vandræðaseggurinn
Dennis Rodman úr liði
Chicago Bulls í NBA
fékk hindber fyrir
versta leik í aukahlut-
verki og sem versti ný-
liði.
Moore varð aftur
fyrir valinu
Demi Moore varð
fyrsta leikkona í áratug
til að vera valin léleg-
asta leikkona í aðal-
hlutverki tvö ár í röð.
Hún vann í fyrra fyrir
frammistöðu sína í
myndinni „Striptease“
og endurtók leildnn í ár
með frammistöðu sinni
í „G.I. Jane“.
„Speed 2: Cruise
Control“ var valin lé-
legust í flokki endur-
gerðra og framhalds-
mynda og Con Air
vann í nýjum flokki fyr-
ir mesta vanvirðingu
við mannslíf og al-
menningseignir.
Póstmaðurinn
með Kevin
Costner í aðal-
hlutverki vann
til flestra verð-
launa á af-
hendingu
gullna hind-
bersins.
Alicia Silver-
stone fékk
hindber fyrir
frammistöðu
sína í stór-
myndinni Bat-
man og Robin.
*I
v
Nú gefst tækifæri til að skoða búnað þremenninganna sem gengu á Suðurpólinn,
á sýningu sem sett hefur verið upp í anddyri Morgunblaðshússins í Kringlunni 1.
Ólafur Örn Haraldsson alþingismaður, sonur hans Haraldur Örn Ólafsson lögfræðingur og Ingþór
Bjarnason sálfræðingur gengu á sklðum 151 dag á Suðurskautslandinu og drógu á eftir sér þunga
sleða með öllum búnaði og nauðsynjum.
Göngugarparnir náðu takmarki sínu á nýársdag og voru þá búnir að leggja að baki 1.100 kílómetra
í 20-30 gráðu frosti.
Á sýnlngunni má sjá tjald þeirra félaga, sleða, fatnað, mataráhöld og ýmsa
persónulega muni og á Ijósmyndum má skyggnast inn í baráttu suðurskautsfaranna
við óblfða náttúru,
Sýningin er öllum opin og stendur til föstudagsins 27. mars.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma blaðsins kl. 8:00-18:00 virka
daga og kl. 8:00-12:00 laugardaga.
MYNDBÖND
Vægð-
arlaus
spilling
Eftirlýstur
(Most Wanted)
Hasarmynd
★★★
Framleiðandi: Eric L. Gold. Leik-
stjóri: David Glenn Hogan. Handrits-
höfundur: Keenen Ivory Wayans.
Kvikmyndataka: Mark Reshovsky.
Tónlist: Paul Buckmaster. Aðalhlut-
verk: Keenen Ivory Wayans, Jon
Voight og Jill Hennessy. 100 mín.
Bandarisk. New Line Cinema/Mynd-
form, mars ‘98. Bönnuð áhorfendum
yngri en 16 ára.
JAMES Dunn (Wayans) er land-
gönguliði sem bíður aftöku fyrir að
drepa yfirmann sinn sem reyndi að
neyða hann til að
aflífa saklaust barn
í Persaflóastríðinu.
Á leið í fangelsi er
honum rænt og
boðið að ganga í
leynilegar aftöku-
sveitir hersins í
stað þess að stikna
í rafstólnum. Hann
velur að lifa og
drepa aðra í þágu
öryggis þjóðar sinnar. Ekki vill þó
betur til en svo að eftir fyrsta verk-
efni er hann eftirlýstur fyrir morð á
forsetafrú Bandaríkjanna (saklaus
að vanda) og á hlaupum með tíu
milljónir dala til höfuðs sér.
,Eftirlýstur“ er ekki frumleg kvik-
mynd, heldur hrein formúlumynd og
dæmigerður afrakstur bandarísks
afþreyingariðnaðar. Hún er hinsveg-
ar fín afþreying. Wayans skilar sínu
með prýði, bæði hvað varðar leik og
handrit. Stríðshetjunni Dunn er
fylgt eftir hvert fótmál sem gerir það
að verkum að Wayans er nánast í
mynd allan tímann, en hann spilar
vel úr hlutverkinu og nær að skapa
skemmtilega, og nægilega trúverð-
uga persónu sem ekki ætti að fara í
taugarnar á neinum. Jon Voight leik-
ur að sjálfsögðu vonda kallinn og
gerir það með miklum glans. Wood-
ward hershöfðingi er fullkomlega
siðlaus skíthæll sem ánægjulegt er
að hata með hetjunni.
Aðeins glittir í boðskap inn á milli
ofsalegra sprenginga og hamagangs.
Alnetið er til dæmis lykillinn að far-
sæld í stjórnmálum, því spilling
þrífst ekki í upplýsingaflæðinu.
Imynd sköllótta svertingjans er jafn-
framt mjög áberandi og ákveðinn
leikur fer fram í kringum stereótýp-
ur og fordóma. Eins leika menn sér
að árekstrum ólíkra stofnana ríkis-
valdsins sem geta skapað sannleik-
ann eins og hann birtist almenningi
eftir eigin höfði. Hver er hetja og
hver er illmenni? Það fer eftir henti-
semi hverju sinni.
I þessari gerð kvikmynda er leyfi-
legt að víkja frá raunveruleikanum
að vissu marki, sem „Eftirlýstur"
óneitanlega gerir. Ruglinu er þó
haldið í skefjum og plottið er í senn
skemmtilega snúið og hæfilega trú-
verðugt. I heild er þetta fyrirtaks af-
þreying og nokkuð yfir meðallagi í
sínum flokki.
Guðmundur Ásgeirsson
cjítwesá! ISEtr
1
»mi:»
Brandtex fatnaður
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður
Nybylavegi 12, simi 554 4433