Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 8

Morgunblaðið - 28.05.1998, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skýrsla um ástand í ávana- og fiTmiefnamálum Fleiri selja fíkniefni en fyrir nokkrum árum í SKÝRSLU sem unnin var af starfsmönnum ávana- og fíkniefna- deildar lögreglunnar í Reykjavík ásamt sænska lögreglumanninum Carl-FOip Henriksson kemur m.a. fram að algengara er að gestir á veitingastöðum í Reykjavík séu undir áhrifum fíkniefna en í Stokk- hólmi og dæmi eru um að dyra- verðir á veitingastöðum séu undir áhrifum. Fleiri selji fíkniefni hér- lendis nú en fyrir nokkrum árum og fíkniefnin séu sterkari. Niður- staða skýrslunnar er sú að ástand fíkniefnamála hér á landi er alls ekki viðunandi og kallar á skjót viðbrögð þeirra sem málið varðar. Skýrsluhöfundar heimsóttu veit- ingastaði í miðborg Reykjavíkur og telja að ákveðið hlutfall gesta þar hafi verið undir áhrifum fíkni- efna. Skýrsluhöfundar telja að lögreglan eigi að hafa aukin af- skipti af einstaklingum á íyrstu Ástand fíkniefna- mála hérlendis kallar á skjót viðbrögð stigum neyslunnar og efla enn frekar samstarf við barnavemdar- yfírvöld. Þeir segja að fíkniefnaneyslan sé orðin nokkuð áberandi í næturlífi Reykvíkinga. Ástæða sé til að efla enn frekar samstarf við veitinga- húsaeigendur og dyraverði. Einnig leggja þeir til að gerð verði sú breyting á löggæslunni að reynt verði að þætta betur saman rannsóknir fíkniefnamála, auðgun- arbrota og líkamsmeiðinga því oft og tíðum eigi sömu aðilamir hlut að máli. Skýrsluhöfundar telja að fíkni- efni á markaði hér séu mun sterk- ari en áður og því sé ungt fólk í meiri hættu en áður. Meira magn af sterkum efnum árið 1996 hafi leitt til aukningar í innlögnum á meðferðarstofnanir árið 1997. Þeir telja mikilvægt að einstak- lingar verði kærðir fyrir að neyta fíkniefna og áfram verði barist gegn innflutningi, dreifingu og sölu á fíkniefnum. Sömuleiðis verði lögreglu sköpuð skilyrði til að hafa afskipti af þeim sem grunaðir em um fíkniefnaneyslu og færa þá til blóð- og þvagsýnistöku. Skýrsluhöfundar studdust m.a. við málaskrá lögreglunnar frá 1995-1997. Á þessum þremur ár- um hafði lögreglan bein afskipti af 2.002 einstaklingum sem höfðu fíkniefni í fórum sínum, notuðu fíkniefni, höfðu dreift þeim, selt, framleitt eða flutt inn fíkniefni, þar af voru 1.657 karlmenn og 345 konur. Barnamenning í Norræna húsinu Barnabók- menntir í Barnahellinum Ásta Valdimarsdóttir Barnahellirinn í Norræna húsinu var formlega opn- aður í janúar árið 1997. Hann er opinn öllum böm- um en þangað er leikskóla- börnum líka boðið sérstak- lega að koma í heimsókn og fræðast um starfsemi hússins og ekki síst til að kynnast norrænum barna- bókmenntum. Ásta Valdimarsdóttir er umsjónarmaður verkefnis- ins. „Lisbet Ruth sem var yfirbókavörður við bóka- safn Norræna hússins tvö undanfarin ár átti hug- myndina að opnun Bama- hellisins og því bamastarfi sem unnið er í tengslum við hann.“ -Hvað er Barnahellir- inn? „Það er herbergi í bókasafni Norræna hússins sem er sérstak- lega innréttað fyrir böm. Þar er úrval myndskreyttra barnabóka á öllum Norðurlandamálunum og áhersla er lögð á góða aðstöðu til að lesa og skoða bækur í notalegu umhverfi sem hæfir börnum. Að- ur en herbergið var tekið í notkun var efnt til samkeppni um nafnið og það var fímm ára íslenskur drengur sem átti hugmyndina að þessu nafni, Barnahellirinn.“ - Hafa mörg Ieikskólabörn heimsótt ykkur? „Við bjóðum leikskólabömum á aldrinum 3-5 ára í heimsókn í fylgd með kennurum sínum. Á síðasta ári komu um 500 börn frá 15 leikskólum. Þau böm sem heimsóttu okkur í fyrra sáu brúðuleikhús frá Norðurlöndun- um. Núna hefur Norræna ráðherra- nefndin veitt bókasafni Norræna hússins sérstakan styrk til að kaupa vandað norrænt bamaefni á myndböndum. Starfsemin í ár hefur því að miklu leyti verið helguð myndbandamiðlinum." Ásta segir að bömin byrji á að skoða Norræna húsið og mynd- listarsýningar í sýningarsölum þess. Þeim er í stuttu máli sagt frá starfsemi hússins og gildi þess sem menningarmiðstöðvar. At- hygli barnanna er vakin á norrænum tungumálum og barnabókum. „I Barnahellinum byrjum við á að sýna þeim landakort og bend- um þeim á Norðurlöndin og spjöllum við þau um verk þekktra bamabókarithöfunda og söguper- sónur sem þau þekkja eins og Einar Áskel, Múminálfana, fólk og ræningjana í Kardimommubæ og Emil í Kattholti. Þá sýnum við þeim myndskreyttar bækur og útskýrum að þær séu til á fleiri tungumálum en íslensku. Mynd- irnar tala máli sem nær til allra. Síðan er boðið upp á mynd- bandasýningar í Barnahellinum." Ásta segir að sög- uþráð myndanna sem börnin horfa á af myndbandi þurfi að útskýra en oftast skýrir efnið sig sjálft. „Börnin hafa gaman af því að reyna að skilja einstaka orð þegar þau leggja við hlustir. Síðan syngja þau saman áður en þau fara og gæða sér á ávaxtasafa og Múminálfakexi." Hún bendir á að margir for- eldrar sem hafa verið búsettir með börnin sín á hinum Norður- löndunum komi með þau á safnið og fái að láni bækur eða mynd- bandsspólur til að bömin rifji upp ► Ásta Valdimarsdóttir er fædd að Núpi í Dýrafirði árið 1942 og þar ólst hún upp. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla íslands árið 1963 og hefur kennt við grunnskóla Reykjavíkur í áratugi, lengst af í Hvassaleitis- skóla. Ásta lærði söng í Söngskólan- um í Reykjavík og tók söng- kennarapróf árið 1985. Ásta hefur undanfarið numið bókasafnsfræði við Háskóla Is- Iands. Hún hefur starfað við bókasafn Norræna hússins frá árinu 1987 og sinnt þar ýmsum verkefnum. Ásta var gift Hannesi N. Magnússyni sem lést árið 1992 og eignuðust þau tvö böm. Sam- býlismaður Ástu er Herman Berthelsen ritstjóri í Noregi. og gleymi ekki málinu. „Þá er einnig nokkuð um að foreldrar vilji aðstoða barn sitt í að ná árangri t.d. í dönsku og komi með því að velja bækur eða spólur. En á bókasafninu ero ekki aðeins myndbönd og bækur heldur einnig tónlist og sögur á geisla- diskum." -Er eitthvað um að bömin komi í heimsókn eftir að hafa komið með leikskólanum og þá með foreldrum sínum? „Já, við höfum einmitt tekið eftir því að böro eru að draga for- eldra sína inn í bókasafnið og teyma þau um að skoða það sem þeim var sýnt, ekki síst Barna- hellinn. Með þessu sjáum við að vinnan hefur skilað sér til baka því ef börnin hafa gaman af því að koma á safnið er áhugi væntanlega vak- inn á því sem er norrænt. Það er von okkar að áhuginn haldist áfram og bömin heimsæki safnið fram á fullorðinsár." -Hafa börnin sem- sagt gaman af því að koma íheimsókn? „Já, mjög svo og það er einstaklega gaman að sýna þeim bókasafnið, myndlistarsýningam- ar og húsið því þau eru svo áhugasöm." Ásta segir að Barnahellirinn sé ætlaður öllum bömum. Hann er opinn á sama tíma og bókasafnið og þau minnstu koma í fylgd full- orðinna. Ef um hópa er að ræða þurfa forráðamenn að hringja á undan sér. Hún bendir á að í dag, fimmtu- dag, er síðasti dagurinn sem leikskólabörn koma í heimsókn fyrir sumarfrí, en í haust heldur starfsemin áfram af fullum krafti. Hlutu styrk til að kaupa vandað barnaefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.