Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 44

Morgunblaðið - 28.05.1998, Síða 44
MORGUNBLAÐIÐ 44 FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 ii ■■ ■■■ — imi ... AÐSENDAR GREINAR ÚTVEGSMENN vilja leggja Sjóslysa- nefnd niður. Það er ekki vegna þess að niður- stöður nefndarinnar komi illa við þá, eða þá að þær séu ræddar ,mjög opinberlega. Nei, þeir vilja ráða því sjálfir hvemig sjóslys eru rædd og aðstæður um borð eru. Þeir hafa ekki gagnrýnt að Sjóslysa- nefnd skilar seint og illa frá sér niðurstöðum sín- um og þeir hafa ekki gagnrýnt alþingismenn- ina fyrir að hafa ekki veitt fjármagn til að gefa út niðurstöður Sjóslysanefnd- ar. Útvegsmenn vilja skýra þessi mál sjálfir og ákveða sjálfir hvemig skip og bátar eru búnir, almennt og einnig með tilliti til björgunartækja. Öðruvísi verður áróður útvegs- J>nanna gegn Sjóslysanefnd ekki skilinn. Slys í nefnd Sjóslysanefndin hefur verið hálf- gerð homreka í kerfinu mörg und- anfarin ár. I fyrsta lagi hefur hún ekki fengið það fé sem þarf til að reka hana. Alþingismenn hafa látið gott heita. Fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykjavíkur hefur til að mynda ekki beitt flokkspólitískum áhrifum sínum á Friðrik flokksfélaga sinn Sophus- son, eða Halldór flokksfélaga sinn Blöndal, til að skaffa fé til útgáfu skýrslu Sjóslysanefndar. Og ekki er mér kunnugt um, að nokkrir for- ystumenn sjálfstæðismanna í sam- tökum sjómanna, hafi beitt flokks- legum áhrifum sínum, til dæmis á Davið Oddsson til að koma bókinni út á ári hverju. í öðm lagi virðist þess hafa verið vandlega gætt þeg- ar formaður Sjóslysanefndar hefur verið skipaður að hafa hann annað hvort nátengdan stórútgerðinni í landinu, eða þá undirmann sam- gönguráðherra sem skipar formanninn, nema hvort tveggja sé, eða þá að skipa í embættið nákomna ættingja þess sem skip- ar. Þetta hljóta að vera slys í nefnd. Samgöng- uráðherra kastar örugglega ekki svo höndum til skipunar í svo mikilvæga nefnd. Er honum hér með bent á, að hann skipaði skrifstofustjóra sinn formann fyrir nokkrum árum. Skrifstofustjór- inn er nátengdur stjómarmanni í stórút- gerðaríyrirtæki. Núverandi for- maður Sjóslysanefndar er bróðir samgönguráðherra. Þetta upplýsist hér með. Slysavörn Þótt hörðustu stuðningsmenn núverandi valdhafa séu þeirrar skoðunar að öll stjómsýsla hafi Þegar hitastig undir ábyrgðarmönnum öryggismála sjómanna hækkar, segir Jóhann Páll Símonarson, halda þeir ráðstefnur. breyst og batnað er það enn þannig, að ráðuneytin svara ekki bréfum. Ekki samgönguráðuneytið um Sjóslysanefnd að minnsta kosti. Undirritaður sendi ráðuneytinu smákveðju fyrir nokkrum mánuðum og situr enn svaralaus uppi. Það virðist þvi vera í því fólgin slysa- vöm, og hugsanleg réttarbót, að flytja Sjóslysanefndina frá sam- gönguráðherra til dómsmála. Nefndin er að mörgu leyti betur komin undir hatti dómsmálaráðu- neytis en samgönguráðherra. Minni hætta er á að dómsmálaráðherra sé beintengdur við útgerðina í landinu í starfi sínu til lengri tíma litið. Auðvitað er engin slysavörn í þvi fólgin að flytja Sjóslysanefndina til sjávarútvegs- og dómsmálaráðherr- ans Þorsteins Pálssonar, en þegar dómsmálaráðherra bjargar sér úr björgum útvegsmanna væri það til bóta. Sniglast áfram Tvennt er sameiginlegt með ferðahraða snigilsins og framþróun í öryggismálum sjómanna. Með ber- um augum virðist hvort tveggja standa í stað. Fyrir ellefu árum var Sjóslysanefndinni bent á, að ekki væri allt með felldu varðandi end- ingartíma lofts í reykköfunartækj- um og full ástæða til að kanna það mál frekar. Ekki er vitað til þess að það hafi verið gert, eða bréfi viðkomandi svarað. Fyrir nákvæm- lega fjórum árum dröslaði ég með mér fjögurra manna gúmmibáti af Lifeguard-gerð, uppblásnum, upp á fjórðu hæð í Hafnarhúsinu. Afangastaðurinn var samgöng- uráðuneytið. Með þessu vildi ég sýna ráðuneytisköllum og kellingum staðreyndir málsins. Þau tóku mér ljúfmannlega, það vantaði ekki, en Lifeguard-bátarnir eru enn í notk- un. Staðreyndir málsins voru þær, að undirritaður hefur rökstuddar grunsemdir um, að líming bátanna sé gölluð. Iðntæknistofnun kannaði málið og niðurstöðumar eru sláandi. Er í þessu sambandi vísað beint á skýrslu stofnunarinnar. Fyrir stuttu var undirritaður skammaður í Hafnarfirði fyrir að hafa ekki látið vita af þessum niður- stöðum Iðntæknistofnunar. Það get- ur aldrei orðið í mínum verkahring. En spyrja má: Hvers vegna hefur samgönguráðuneytið, eða Sjóslysa- nefndin, ekki upplýst smábátaeig- endur um ástand bátanna svo dæmi sé tekið? Eða hafa þeir kannske þegar gert það? Eg dró bátinn inn á gólf hjá Blön- dal veturinn 1994, Iðntæknistofnun skiiaði niðurstöðum sínum í mars 1995. Hvaða dagsetningar skyldu vera á viðvörun Sjóslysanefndar? Umbúðir og innihald Þegar hitastig undir ábyrgðar- mönnum öryggismála sjómanna hækkar þá halda þeir ráðstefnur. Þær eiga að staðfesta áhugann á málefnunum og leiða athygli fjölmiðlamanna frá aðalatriðum að aukaatriðum. Ég hef áður sagt, að mér finnist starf flugslysanefndar til mikillar fyrirmyndar. Ég man ekki til að þeir haldi ráðstefnur eins og samgönguráðuneytið hélt í Veitinga- sölum ríkisins að Borgartúni 6, 29. september 1995. Út úr þeirri ráðstefnu kom minna en ekki neitt. Það átti að vísu að gefa út bók með fyrirlestrunum, en hún hefur ekki komið út að því er virðist og sýnist mér útgáfuhraðinn vera sá sami og á skýrslum Sjóslysanefndar. Kannske ætti sam- gönguráðuneytið ekkert að vera í bókaútgáfu. Þama var meira hugsað um um- búðir en innihald. Sá ósiður er að vísu að verða landlægur, og ótrúlegt að menn skuli hafa viljað greiða fyr- ir herlegheitin. Það kostaði þrjú þúsund krónur inn í Veitingasal rík- isins í Borgartúni 6 þennan mánu- dag í september 1995. í þrjú þúsund kallinum var að vísu innifalið „kaffi og kruðerí" svo vitnað sé í ritfæran mann, en hafi menn ætlað að komast að niðurstöðum, eða kryfja til mergjar málin þá mistókst það. Kannske er það vegna þess sem engin er út komin bókin með fyrir- lestrunum. Svo illa er nú komið í öryggismál- um sjómanna á íslandi, að sá sem þetta ritar, og hefur hingað til ekki gefið mikið fyrir reglugerðarríki evrópsku krataflokkanna sem þeir kalla Evrópusambandið, óskar þess nú að Island gangi í sambandið. Inn- gangan myndi nefnilega þýða, að fjórar lykiltilskipanir ESB um öryggismál sjómanna tækju þegar í stað gildi. Þá myndi mjög vænkast hagur íslenskra sjómanna. Samvinnusjóður íslands hf. I Fjárfestingarbanki Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþingi íslands VÞÍ hefur samþykkt að taka neðangreind skuldabréf Samvinnusjóðs íslands hf. á skrá 1. júní 1998. Útgefandl: Samvinnusjóður (slands hf. kt: 691282-0829, Sigtúni 42,105 Reykjavík. Flokkur: 1. flokkur v-1997 Nafnverð: Heiidamafnverð 1. flokks v-1997 var 300 milljónir króna. SSIutímabil: Sölu skuldabréfanna er lokið. Sölutímabilið var frá 1. janúar 1998 til 1. apríl 1998 og seldist heildarútgáfan í lokuðu útboði til fjárfesta. Skráning og milliganga við Verðbréfaþing íslands: Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka bréfin á skrá og verða þau skráð 1. júnl 1998. Verðbréfastofan hf. hefur milligöngu um skráningu bréfanna á Verðbréfaþingi íslands (VÞl). Hlutabréf Samvinnusjóðs (slands hf. eru skráð á VÞÍ. Fyrirkomulag sölu: Skuldabréfin voru seld og afhent gegn staðgreiðslu. Skráningarlýsing og önnurgögn um útgefanda og skuldabréfin iiggja frammihjá Verðbréfastofunni hf. VERÐBREFASTOFAN Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 533-2060 Slysalega nefndin - - nokkur orð um Sjóslysanefnd Jóhann Páll Símonarson Fjárhagsleg stjórn mín á sýslumanns- embættum á Húsa- vík og Akranesi ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráðherra hef- ur í bréfi, dags. 11. maí s.l., tilgreint þá ástæðu fyrir nauðungarflutn- ingi mínum til Hólma- víkur, að sýslumanns- embættið á Akranesi búi við uppsafnaðan rekstrarhalla upp á 26 millj. kr. og ég ráði ekki við fjármálalega stjórn þess. Aður hafði hann sagt í sjónvarpsviðtali, að einu ástæður flutn- ingsins væru mætingar mínar á skrifstofu og ÞÞ-málið. Hann er því orðinn tvísaga um, hvað fyi’ir honum vakir. Dómsmálaráðherra tekur allar stærri ákvarðanir um tekjur og útgjöld sýslumannsembætta Dómsmálaráðherrar hafa tekið allar ákvarðanir, sem máli skipta, um tekjur og gjöld sýslumanns- Sýslumannsembættið á Akranesi hefur, að mati Sigurðar Gizurarson- ar, fengið hlutfallslega mun lægri fjárveitingar en önnur embætti. embætta. Með því að gera mig ábyrgan fyrir fjárhagsstöðu Akra- nesembættisins hefur Þorsteinn Pálsson með öflun falsgagna og rangfærslum uppi rangar sakar- giftir, sem varðar við 148. gr. al- mennra hegningarlaga nr. 19/1940. Aldrei hefur verið sýnt fram á, að málefnaleg könnun liggi til grund- vallar fjárlagatillögum dómsmál- aráðherra. Þær hafa á undanföm- um árum einkennzt af handahófi, sem brýtur í bág við rannsóknar- reglu 10. gr., jafnræðisreglu 11. gr. og andmælareglu 12. gr. stjórn- sýslulaga nr. 37/1993. Undantekn- ingarlaust fer fjárlaganefnd Alþingis þó eftir þeim tillögum, þegar hún semur frumvörp sín til fjárlaga. Hvernig gekk rekstur sýslu- mannsembættisins á Húsavík? Á árunum 1974-85 var ég sýslu- maður Þingeyjarsýslna og bæjarfógeti á Húsavík. Árið 1979 gerði Ríkisendurskoðun skýrslu um fjárlagagerð, rekstrarkostnað og starfsmannamál embætta sýslumanna og bæjarfógeta. Þar sagði um Húsavíkurembættið: „Hækkun útgjalda embættisins skv. ársreikningum 1976-79 nam 10%, 16.6% hjá embættunum í heild og 12.6% hjá ríkinu miðað við fast verðlag ársins 1976...hlut- ur þess í heildarútgjöldum embættanna skv. ársreikningum minnkaði úr 5.4% árið 1976 í 5.1% árið 1979. Enda þótt rekstrar- kostnaður hjá embættinu hækki hlutfallslega miklu minna en hjá embættunum yfirleitt, fór það þó talsvert fram úr fjárlögum 1979 eða 73.4% á móti 55.5% hjá embættunum í heild.“ Skýring á því, að rekstrarkostn- aður Húsavíkurembættisins jókst minna en annarra embætta, var sú, að hvorki beiddist ég né fékk leyfi til fjölgunar á starfsmönnum. Skýring á vaxandi fjárlagahalla embættisins þrátt fyrir minni vöxt þess en almennt gerðist, var hins vegar sú, að í mikilli verðbólgu voru fjár- veitingar til þess aukn- ar mun minna en til annarra embætta. Dómsmálaráðherra kemur í veg fyrir sparnaðarráðstafanir Dómsmálaráðherra, Þorsteinn Pálsson, hef- ur með þvergirðings- hætti komið í veg fyrir fjárhagslega endur- skipulagningu og sparnað hjá sýslu- Sigurður mannsembættinu á Gizurarson Akranesi. I lok nóv. 1994 fór ég þess á leit við ráðherrann, að mér yrði heim- ilað að leggja niður stöðu stað- gengils sýslumanns. Beiðninni var ekki svarað. I marz 1995 mæltist ég til þess, að mér yrði heimilað að leggja niður stöðu annars löglærða fulltrúans við embættið. Því var hafnað. I maí 1995 beiddist ég heimildar til að segja upp öllu starfsfólki skrifstofunnar til að knýja fram niðurskurð 10 klst./mán. á óunninni yfirvinnu. Því var hafnað. Með lögum nr. 70/1996 um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkis- ins áleit ég, að vald til að skera niður kostnað hefði verið fært í hendur mínar frá ráðuneytinu. Hinn 28. nóv. 1996 lagði ég niður stöðu staðgengils sýslumanns. En 9. des. 1996 ógilti dómsmál- aráðherra þá ákvörðun mína með svohljóðandi rökstuðningi: „Ráðu- neytið lítur svo á, að skipulags- breytingar á embættinu sem hafa hlotið sérstakt samþykki ráðu- neytisisins s.s. um hvort starf stað- gengils skuli vera við embættið þurfi einnig að leita samþykkis ráðuneytisins ef falla á frá slíkri tilhögun. Ráðuneytið getur því ekki fallist á að ákvörðun yðar um að leggja niður starf staðgengils verði metin gild.“ Hvernig er Akranesembættið rekið? Sýslumannsembættið á Akranesi fær hlutfallslega miklum mun lægri fjárveitingu en önnur embætti. Það er ólögmæt mismun- un, sbr. jafnræðisreglu 11. gr. stjómsýslulaga nr. 37/1993. Um 88% útgjalda embættanna eru laun, svo að fjöldi stöðugilda ræður mestu um kostnað þeirra. Lítum á fjárlög ársins 1998: Sýslumanns- cmbætti Akranes Isafjörður Sauðárkrókur Vestmannaeyjar Ibúa tala 5127 4672 4544 4640 Stöðu gildi 22.5 25 17 22.91 Fjárv. i millj. 84.1 106.1 68.4 96.8 Akranesumdæmið er fjölmenn- ast nefndra fjögurra umdæma. Samt fær Akranesembættið 22 millj. kr. lægri fjárveitingu en Isa- fjarðarembættið, sem hefur lægri íbúatölu, er nemur 455, og 12.7 millj. kr. lægri fjárveitingu en Vestmannaeyjaembættið, sem hef- ur lægri íbúatölu, er nemur 487. Ef fjölda stöðugilda er deilt í heildarútgjöld embættis, reynist Akranesembættið vera ríkinu ódýrast. Að meðaltali koma á stöðugildi 3.737 millj. kr. hjá Akra- nesembættinu, 4.244 millj. kr. hjá Isafjarðarembættinu , 4.023 millj. kr. hjá Sauðárkróksembættinu og 4.225 millj. kr. hjá Vestmannaeyja- embættinu. Höfundur er sýslumaður. Höfundur er sjómaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.