Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 SKOÐUN fólk hefur látið frá sér fara í fjölmiðlum á undanförnum árum. Þar hefur umfjöllun um þeirra eigin erfíðleika verið mjög áber- andi. Því miður geta flestir sagt frá hvers konar áföllum sem þeir hafa orðið fyrir í lífinu. En það eru ekki margir sem hafa smekk fyrir að tíunda slíka hluti frammi fyrir þjóðinni árum saman því þetta eru oft tilfinningar sem fólk vill eiga útaf fyrir sig. Greinaskrif, viðtöl í útvarpi, sjónvarpi, tímaritum, fréttaskeyti, tilkynningar með tilheyrandi myndbirtingum er orðið slíkt fár að mörgum ofbýður. Ég leyfí mér hér með að birta lítið sýnishorn úr Morgunblaðinu 16. febrúar 1996. Þar segjast þau Þuríður og Gunn- ar ætla að reisa 700 fermetra kúluhús á jörð sinni, þar sem áformað sé að reka dvalarheimili fyrir langveik börn. „Húsið verð- ur á þremur hæðum með innig- arði, lyftum, nuddaðstöðu, ljósa- bekkjum, sjúkraherbergi, mötu- neyti o.fl. Þar yrði aðstaða fyrir 4-5 börn og tvær til fjórar fjöl- skyldur, auk þess sem í húsinu væri íbúð fyrir staðarhaldara." Við skulum reikna með að hægt sé að þvæla út peningum til að byggja slíka höll (svo ég kveði ekki fastar að orði). En hvað með reksturinn á fyrirtækinu, er það ef til vill aukaatriði? Ruglið í kringum þetta er orðið slíkt að með ólíkindum er. En fjölmiðlar upplýsa fleira merki- legt, sem er að gerast í Hvammi II. Þar mun vera í gangi hvers konar „námskeiðahald" að óg- leymdri kremverksmiðju sem Ríkissjónvarpið gerði frægt sl. vetur. Nú eru grösin í Hvammi II og þar með talið illgresið (sbr. stórmerkileg frétt frá búnað- arráðunaut í A-Hún. Morgun- blaðið 5. desember 1996) orðin slík heilsulind að úr þeim eru fram- leiddar heilsuvörur. Það er af sem áður var: Þegar haft var eftir þeim Þuríði og Gunnari, að allur gróður á bújörð þeirra væri eitraður og gripir hefðu drepist af völdum hans. Þáttur í Ríkissjón- varpinu sem kallast „Dagsljós“ gerði út leiðangur að Hvammi II sl. vetur þar sem á áberandi hátt var kynnt, „Ný búgrein í Vatns- dal“. Þar skýrði húsfreyjan Þuríð- ur svo frá að vegna rafsegulsviðs i fjósinu hefðu gripir þeirra drepist og vegna þess hefðu þau orðið að snúa sér að kremverksmiðjunni. Þar kom líka fram að starfsemi sem reka á í kúluhúsinu mikla, sem er ýmist kallað Fjóluhvamm- ur eða Fjólulundur, á að fá hvorki meira né minna en 5% af andvirði framleiðslunnar. Það er mikil rausn við gott málefni! (Venjuleg- ur staðgreiðsluafsláttur). Það er mér umhugsunarefni hvað Ríkissjónvarpið gerði sér mikið far um að lýsa afbrigðileg- um sveitabúskap og afkáralegum vinnubrögðum sem vill þá oft tengjast slíkum búskap. Það er ekki mjög langt síðan ég heyrði í „Þjóðarsálinni" að framkvæmda- stjóri innlendrar dagskrárgerðar kvartaði sáran undan peninga- leysi. Núna, þegar mikið er talað um ferðalög sem farin eru á kostnað skattborgaranna, er ekki úr vegi að spyrja Ríkissjónvarpið. Hvað kosta ferðir með þáttagerð- armenn eða fréttamenn með til- heyrandi tæknibúnaði t.d. til Vestfjarða eða norður í Húna- vatnssýslu svo að aðeins tveir landshlutar séu nefndir? Því miður er allstór hópur af fólki í landinu sem er andsnúinn bændum og skilur ekki eðli land- búnaðar og hvað hann er þýðing- armikill fyrir þjóðina. Öll afskræming á þeim störfum sem unnin eru í sveitum landsins og fólkinu sem þar býr er vatn á myllu þessa hóps og skaðar ímynd bændastéttarinnar. Sem betur fer blasir glæsilegur búskapur víða við þegar farið er um landið. En Ríkissjónvarpið virðist bara fara þar framhjá. Ein af ástæðunum fyrir því að ég skrifa þessa grein er sú að stöðugt er verið að spyrja mig um þetta stóra kúluhús í Hvammi II og hvað þar séu margir vistmenn o.fl. í þeim dúr. Er það nokkur furða þótt spurt sé? Er það nokk- ur furða þótt spurt sé eftir allt auglýsingabröltið? Það sem ég veit er að eftir að ég fór frá Hvammi II hefur engin nýbygg- ing verið reist, ég veit líka að all- ur framleiðsluréttur jarðarinnar hefur verið seldur, eins og áður hefur komið fram og þar er eng- inn bústofn nema ef telja skyldi fáein útigangshross. Það hefur alla tíð verið metnað- armál íslenskra bænda að reyna að búa svo um hnútana að ættar- leifð þeirra gangi ekki úr ættinni. Þegar farið er yfír sögu íslenska bændasamfélagsins kemur vel í ljós hvað fjölskyldur hafa sýnt mikla fórnarlund og tilhliðrunar- semi og stuðlað þannig að því að þessi metnaðarfulla hefð geti haldist sem lengst. Þegar ég stóð frammi fyrir þeirri staðreynd að þurfa að velja vandalaust fólk til að halda áfram búskap á ættarjörð minni verð ég að viðurkenna að mér mistókst hrapallega. Ég ætla ekki að tíunda hér hugsanir mínar og tilfinning- ar. En enginn hefur orðað þær betur en skáldbóndinn úr Borg- arfírði Guðmundur Böðvarsson. Hér bjó afi og amma eins og pabbi og mamma eina ævi og skamma eignast hver um sig, stundum þröngan stig. En þú átt að muna alla tilveruna að þetta land á þig. Höfundur er fyrrv. bóndi og hrepp- stjóri { Hvammi. Ármúla 13- Sími 575 1220 • Skiptiborí 575 1200 • Fax 568 3818 Verð aðeins frá kr. j œESŒBl #(&> HYunor - til framtíóar NÝR SENDIBÍLL Fjárfestingar á heimsmælikvarða • Friends Provident eru í fremstu röð breskra líftryggingarfélaga. • Bretland er ein helsta miðstöð veraldar í tryggingum og fjármálaþjónustu. • Starfsemi um víða veröld og samstarfsfélög í 6 evrópulöndum. • Frá stofnun 1832 hefur félagið eflst með ári hverju. • í sjóðum þess eru nú yfir £22.000.000.000, eða 2640 milljarðar króna. Tryggingartakar og fjárfestar eru yfir 2.500.000. ^ Fríends bjóða íslendingum nú að reyna: • Úrval persónutrygginga sem sameina vernd og sparnað. • Sveigjanlega samninga og úrvals þjónustu sem er verðlaunuð fyrir gæði í Bretlandi og víðar um veröld. • Ávöxtun með því besta sem þekkist í 14 sjóðum á heimsmarkaði. Þitt er valið. Við bjóðum þér að eflast með árunum í félagsskap með okkur. Upplýsingar hjá tryggingamiðlurum. FRIENDS &PROVIDENT ----------------^ INTERNATIONAL United Kingdom House, Castle Street, Salisbury, Wiltshire SPI 3SH England UK. Tel: 0044 1722 411411 Fax: 0044 1722 332005 Principal and Head Officc: Pixham End, DOrking, Surrey RH4 ÍQA England Incorporated by Act of Parliament in the Unitcd Kingdom with limited liability and registered in England No. Zcl 15 Member of the Association of International Life Offices. FRIENDS PROVIDENTINTERNATIONALIS THE TRADING NAME FOR BUSINESS CONDUCTED OUTSIDE OF THE UNITED KINGDOM OF FRIENDS PROVIDENT LIFE OFFICES Verð á internetþjónustunni Mótald 11.190 kr. ISDN 64 11.690 kr. ISDN 12812.190 kr. Tveir mánuðir fríir við skráningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.