Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998
FRÉTTIR
s
Atta skógargöngur
næstu vikur
SKÓGARGÖNGURá
höfuðborgarsvæðinu
heíjast fimmtudaginn
28. maí á vegum
skógræktarfélaganna.
Undanfarin tvö sumur
hefur verið efnt til
þessara vinsælu skóg-
arferða við góðar
undirtektir. Skóg-
argöngurnar verða
farnar á fimmtu-
dagskvöldum næstu
vikurnar og er öilum
heimil þátttaka.
Gengið verður í
hinum svokallaða
„Græna trefli", um-
gjörð höfuðborgar-
svæðisins. Einkum
verður staðnæmst í
einstaklingsreitum og
skoðaður árangur
ræktunarstarfsins
ásamt áhugaverðum
hlutum í náttúrufari
og sögu hvers staðar.
í fyrstu göngu sum-
arsins er við hæfí að
líta til árangurs frum-
kvöðulsins Hákonar
Bjarnasonar, fyrrum
skógræktarstjóra. Hann hóf
ræktun í Vatnshlíð við Hvaleyr-
arvatn fyrir um 40 árum ásamt
Qölskyldu sinni. Breytingin á
grágrýtismelunum í þann unaðs-
reit sem nú getur að líta í Vatns-
hlíð er ævintýri líkust og for-
vitnilegt og lærdómsríkt fyrir
alla að kynnast þeirri ræktunar-
sögu, segir í fréttatilkynningn.
Alls verða farnar 10 göngu-
ferðir í sumar og eru þær skipu-
lagðar í samvinnu við Ferðafélag
UR Hákonarlandi í Vatnshlíð
við Hvaleyrarvatn.
íslands og eru hluti af fræðslu-
verkefni Skógræktarfélags Is-
lands og Búnaðarbankans þeir
sem taka þátt í öllum skóg-
argöngum sumarsins fá að laun-
um jólatré.
Mæting er við bústað Hákonar
í Vatnshlíð við Hvaleyrarvatn kl.
20.30. Einnig er boðið upp á
rútuferð til Vatnshlíðar frá
Mörkinni 6, húsi Ferðafélagsins.
Brottför er kl. 20 og fargjaldi
500 kr.
Minning'arskj öldur gefínn
Sj ómannaskólanum
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUÐMUNDUR Kjærnested og Guðjón Ármann við
afhjúpun veggskjaldarins.
VIÐ stutta athöfn í anddyri Sjó-
mannaskóla Islands var þriðjudag-
inn 26. maí afhjúpaður veggskjöldur
með áletrun af skjali því sem Sveinn
Björnsson, ríkisstjóri Islands og síð-
ar fyrsti forseti Islands, lagði í
blýhólk sem var lagður og innmúrað-
ur í hornstein Sjómannaskóla Is-
lands þegar Sjómannaskólinn var
vígðm- við hátíðlega athöfn á sjó-
mannadaginn 4. júní 1944.
Pessi vígsla var mikill hátíðisdag-
ur, ríkisstjórn og fulltrúar Alþingis
voru viðstaddir og fluttu Sjómanna-
skólanum og sjómannastéttina
árnaðaróskir, segir í fréttatilkynn-
ingu.
A veggskjöldinn sem Guðmundur
Kjærnested, fyi-rverandi skipstjóri
og stjórnarmaður Hollvinasamtaka
Sjómannaskóla íslandSj afhjúpaði er
letrað: Sjómannaskóli Islands. Skól-
inn var vígður af ríkisstjóra Islands,
Sveini Björnssyni, við hátíðlega at-
höfn 4. júní 1944.1 hornstein skólans
lagði ríkisstjórinn skjal sem á var
letrað „Hús þetta er reist yfu- sér-
skóla sjómannastéttar Islands,
Stýrimannaskólann í Reykjavík,
Vélskólann í Reykjavík og aðra vél-
fræðiskóla, loftskeytaskóla og skóla
fyrir matsveina og nefnist Sjó-
mannaskóli íslands."
Uppdrætti hússins gerðu hú-
sameistararnir Sigurður Guðmunds-
son og Eiríkur Einarsson eftir að
hugmyndasamkeppni hafði farið
fram.
Gefendur eru útskriftai’nemendur
farmannadeildar Stýrimannaskólans
1978, 4. stigs vélstjórar útskrifaðir
frá Vélskóla íslands árið 1978 og
nemendur fískimannadeildar Stýri-
mannaskólans 1977.
Við afhjúpun veggskjaldaidns
bauð Guðjón Armann Eyjólfsson,
skólameistari Stýrimannaskólans í
Reykjavík, gesti velkomna og vitnaði
þá m.a. í ræðu Sveins Björnssonar,
þar sem hann sagði: „Það eru fremur
öðrum íslenskir sjómenn sem hafa
aflað þess fjár, sem gerir ríkinu
kleift að reisa þessa myndarlegu
byggingu. Og enginn ágreiningur
mun vera um það að íslenska sjó-
mannastéttin hefur til hennar unnið
einnig á annan hátt. Með tápi sínu og
dugnaði í sífelldri glímu sinni við
Ægi hefur hún sýnt og sannað að
hún er verðug slíkrar menntastofn-
unar.“
Guðjón Armann sagði að íslenskh-
sjómenn væru enn verðugir slíkrar
menntastofnunai-, það sýndu þeir og
sönnuðu með framlagi sínu til þjóð-
arbúsins. Sjómannaskóli íslands
hefði á sínum tíma verið þeim
helgaður.
Hilmar Snorrason, skólastjóri
Slysavarnaskóla sjómanna, flutti
ávarp fyrir hönd gefenda og afhenti
skólameisturum veggskjöldinn sem
hann vonaði að mætti verða þarna
um alla framtíð og ætíð minna á þá
mörgu sjómenn er hefðu lært í Sjó-
mannaskóla Islands frá stríðslokum
en húsið var tekið í notkun til
kennslu 13. október 1945. Skólahúsið
væri öllum eldi’i nemendum kært.
Hilmar lýsti sérstakri ánægju yfir að
20 nemendur Stýrimannaskólans og
Vélskólans hefðu sameinast unr
þessa gjöf.
Að lokum tók til máls Björgvin
Þór Jóhannsson, skólameistari
Vélskóla Islands, og þakkaði gjöfina
fyrh- hönd Vélskólans. Hann sagði
það mikils virði að þessir tveir skólar
undirstöðuatvinnuvegar þjóðarinnar
fengju að þróast í friði í Sjómanna-
skólanum þar sem Stýrimannaskól-
inn og Vélskólinn hefðu verið til húsa
í yfir hálfa öld en frá Vélskólanum
hefðu á þessu tímabili útskrifast um
1.800 vélstjórar með 4. stigs próf auk
þeirra sem hafa lokið lægii stigum
vélstjóraréttinda.
Athugasemd frá
utanríkisráðuneytinu
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi athugasemd
frá utanríkisráðuneytinu:
„Utanríkisráðuneytið vísar al-
farið á bug frétt sem birtist í DV
þriðjudaginn 26. maí 1998 þar
sem skýrt er frá fréttaflutningi
um að íslensk stjórnvöld styðji
svokallaðar nýbúanjósnir á vett-
vangi Vestur-Evrópusambandsins
(VES). Fréttin er algerlega úr
lausu lofti gripin og þetta málefni
hefur ekki komið til umfjöllunar
eða umræðu á vettvangi VES-
ráðsins.
Ráðuneytið harmar þennan mál-
flutning sem er til þess fallin að
vekja grunsemdir meðal nýbúa
gagnvart íslenskum stjórnvöld-
Harrodsdagar í
Kringlunni
SVOKALLAÐIR Harrodsdagar
hefjast í Kringlunni í dag. Fyrirtæki í
Kringlunni bjóða viðskiptavinum upp
á ýmiskonar kynningar og ráðgjöf
fimmtudag, föstudag og laugardag,
m.a. mun Heiðar snyrtir veita við-
skiptavinum góð ráð í lita- og fata-
vali.
Ymsar kynningar verða í gangi,
s.s. vínkynning, kaffikynning,
konfektkynning, kynning á nýjum
kryddblöndum, skrautskrifari veitir
ráðleggingar, ráðgjöf verður í hár-
vörum og förðun, skó- og fótasér-
fræðingur gefur ráð, kokkar frá
Hótel Borg elda sælkeravörur í
Heilsuhúsinu og gefa smakk,
Kringlusól kynnir nýja Ergoline
ljósabekki og Eurowave og ýmislegt
fleira verður í boði.
Einnig verða m.a. til skemmtunar
tvær listsýningar. Nítján listamenn í
Leirlistafélaginu sýna verk sín og
Orn Þorsteinsson sýnir skúlptúrverk.
Fundvís fékk
ferð að launum
BT og Samvinnuferðir Landsýn
stóðu fyrir feluleik í versluninni í
Skeifunni laugardaginn 9. maí. Leit
stóð yfir að hvítri mús og mættu
margir og freistuðu þess að finna
hina földu mús. Sá sem hreppti
hnossið, Andri Björgvin Halldórs-
son, fékk í fundarlaun ferð fyrir tvo
til Riminí á Ítalíu frá Samvinnuferð-
um Landsýn.
LEIÐRÉTT
Rangur myndatexti
í FRÉTT í blaðinu í gær er frá sögn
af skólaslitum Fjölbrautaskólans við
Ármúla. Rangt er farið með nafnið í
myndatexta. Nemandinn á myndinni
er Aðalheiður Sigfúsdóttir að taka
við verðlaunum sínum fyrir mjög
góða kunnáttu í móðurmáli og öllum
félagsgreinum. Iris Traustadóttir var
dux scholae, eins og fram kemur í
myndartextanum, en hún er ekki á
myndinni.
Arleg
sölusýning
hrossa
HROSSARÆKTARDEILD Sörla
og Sóta heldur sína árlegu opnu
sölusýningu í dag, fimmtudaginn 28.
maí, kl. 20. Söluhrossum verður
skipt í þrjá fiokka: Þæga fjölskyldu-
hesta, betri hesta, minna tamið.
Hrossaræktardeild Sörla og Sóta
er þriðja stærsta deildin innan
Hrossaræktarsamtaka Suðurlands
sem eru stærstu hrossaræktarsam-
tök landsins með um 900 félaga.
Þessi sölusýning deildarinnar er lið-
ur í að efla innanlandsmarkað fyrir
söluhross þar sem áherslan hefur
hingað til verið meiri á hross seld úr
landi, en vegna útflutningsbannsins
hefur útflutningur legið niðri frá því
snemma í vetur, segir í fréttatil-
kynningu.
Þulur á sýningunni verður Hali-
mar Sigurðsson leikstjóri og er hún
ölium opin.
Niðjamót Boga
Sigurðssonar í
Búðardal
NIÐJAR Boga Sigurðssonar,
bónda og kaupmanns í Búðardal,
ætla helgina 11. og 12. júlí að koma
þar saman. Stefnt er að því að
. snæða hádegisverð í Dalabúð á
laugardeginum. Hlýtt verður á
messu hjá sóknarprestinum í
Hjarðarholtskirkju kl. 14 á sunnu-
deginum og síðdegiskaffi drukkið á
Edduhótelinu á Laugum í Sælings-
dal á eftir.
Nánari upplýsingar um niðjamót-
ið veita sr. Gunnar Björnsson} Karl
Ágúst Úlfsson, leikskáld, Olafur
Gunnarsson, rithöfundur, Ragnar
Þorsteinsson, fyrrverandi kennari á
Reykjaskóla í Hrútafirði, og Ragn-
heiður Sigurðardóttir, húsfreyja, og
annast þau einnig skráningu þátt-
takenda.
Freddie Filmore
prédikar
í Kefas
FREDDIE Filmore gestaprédikari
í Kefas, kristnu samfélagi, Dalvegi
24, Kópavogi, laugardaginn 30. maí.
Freddie Filmore er
forstöðumaður og stofnandi
Freedom Ministries sem er og
óháður söfnuður á Flórída. Hann
kemur nú hingað í annað sinn ásamt
eiginkonu sinni Carroll Filmore.
Hann er mörgum kunnur af
sjónvarpsþáttunum Frelsiskallinu
(A Call to Freedom) sem sýmdir eru
á sjónvarpsstöðinni Omega, segir í
fréttatilkynningu. Samkoman
hefst kl. 14 og eru allir hjartanlega
velkomnir.
LIOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN
STEINAR WAAGE
Mikið úrval af breiðum Lloyd skóm
SKOVERSLUN
D0MUS MEDICA - KRINGLUNNI
TEL PADUA
Verð 12.990
Litur: Vínrautt