Morgunblaðið - 28.05.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 1998 65
FOLK I FRETTUM
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó og Stjörnubíó hafa tekið til sýninga myndina The Wedding
Singer með Adam Sandler og Drew Barrymore í aðalhlutverkum.
ADAM Sandler leikur Robbie í gamanmyndinni The Wedding Singer.
DREW Barrymore leikur þjónustustúlkuna Julia.
Brúðkaup
og ást
ROBBIE og Julia kynnast þegar þau vinna saman í
brúðkaupsveislum annarra.
Frumsýning
ROBBIE Hart (Adam Sandler) er
tónlistarmaður sem dreymir um
að semja vinsæl lög en neyðist til
þess að vinna íyrir sér með því að
syngja í brúðkaupum í úthverfí
stórborgar þar sem Robbie og
hljómsveitin hans dæla út úr sér
slögurunum.
Robbie er frábær í þessum
bransa alveg þangað til hann lend-
ir í því í sínu eigin brúðkaupi að
brúðurin mætir ekki að altarinu.
Við þá reynslu breytist hann í
martröð allra brúðhjóna,
skemmtikraft sem reynir allt sem
hann getur til þess að eyðileggja
það sem átti að vera fullkominn
dagur í lífi brúðhjónanna. Hann
gerir grín að brúðhjónum, móðgar
gesti og lendir í áflogum við föður
brúðarinnar.
En til allrar hamingju er vin-
kona hans, þjónustustúlkan Julia
(Drew Barrymore), nærstödd til
þess að bjarga honum út úr
klemmunni og í þakklætisskyni
tekur Robbie að sér að hjálpa
henni við að undirbúa hennar eig-
in brúðkaup. Þegar hann hjálpar
henni við að æfa kossinn uppi við
altarið gneistar á milli þeirra og
Robbie gerir sér grein fyrir því að
hann er ástfanginn af Julia og að
uppinn kærastinn hennar er auli
sem heldur fram hjá henni.
Robbie verður staðráðinn í því að
sýna vinkonu sinni fram á að hún
sé að fara að gera mistök áður en
það verður of seint.
Aðalleikari myndarinnar, Adam
Sandler, vakti fyrst á sér athygli
sem leikari í gamanþáttunum
bandarísku Saturday Night Live.
Sandler hefur nýlega leikið í
myndunum Happy Gilmore og
Billy Madison. Drew Barrymore
hefur verið fræg síðan hún lék
litlu stelpuna í stórmyndinni E.T.
Undanfarin ár hefur hún m.a. leik-
ið í Everyone Says I Love You,
Scream, Boys on the Side og Mad
Love.
Sandler og Barrymore eru
aðdáendur hvort annars. „Það var
svo ánægjulegt að vinna með
manni sem er svona ekta og svo
frumlegur og sannur í því sem han
gerir,“ segir hún um hann. Hann
segir um hana: „Eg elska Drew.
Allir elska Drew. Mamma mín
elskar hana og fuglarnir í garðin-
um mínum elska hana.“
Leikstjóri myndarinnar heitir
Frank Coraci, skólabróðir og vin-
ur aðalleikarans, Adams Sandler.
Þeir vinna nú saman að gerð nýrr-
ar myndar sem heitir The Water-
boy.
m
m
buxur,
engar venjulegar buxur.
Otrúlegur styrkur...
/ til útivistar
/\ í veibiferbina
Vj til daglegra nota.
<?03T
W0L E I G A N ■
ÚTIVISTARBÚÐIM
við Umferðarmiðstöðina
Sími: 551 9800
http://www.mmedia.is/~sporti
6.
Sumarskólinn sf.
stai^
Við emm réynslumestír og ódýiastiT
Um 50 matshæfir framhaldsskóiaáfangar eru í boði.
kennsla fer fram í júní. Verð frá kr. 9.900.
Skráning er virka daga frá 18. til 29. maí, kl. 17:00-19:00 í
Odda, Háskóla íslands og í símum 565-6429 og 565-9500.
I blaðaukanum Húsinu og garðinum verður að finna ýmsan fróðleik um viðhald húsa
og garðrækt en nú fer í hönd mikill annatími hús- og garðeigenda.
ýj • Viðhald húsa
Z • Fjármögnun á endurbótum húsa
UJ • Sumarbústaðir
^ • Heitir pottar
Q • Dúkkukofar og leiktæki
^ • Gróðurhús
• Þakefni og málning
• Lýsing við hús og í görðum
• Sólpallar og skjólgirðingar
• Hellulagnir
• Blóm, tré og annar garðagróður
• O.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 þriðjudaginn 2.júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á söludeild sérauglýsinga í síma 569 I 139.
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is