Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ ÁÉG MARGAR erfiðar spurningar vakna í tengslum við lagafrumvarp heil- brigðisráðherra um gagnagrunna á heilbrigðissviði. Siðaráð landlæknis hefur samið álitsgerð um málið og birtir hér grein byggða á henni. Byi-jað verður á að skoða spurning- una: Hvað er gagnagrunnur? Mikil- vægt er að taka afstöðu til þessarar spurningai’ til að geta sett þau skil- yrði sem gagnagrunnar eiga að lúta. Einnig verður fjallað um rétt- inn til einkalífs og hugsanleg áhrif frumvarpsins á trúnaðarsamband sjúklings við þá sem stýra meðferð hans. Hvað er gagnagrunnur? í frumvarpsdrögunum er gagna- grunnur skilgreindur sem: „Safn gagna er hefur að geyma heilsufarsupplýsingar og aðrar upplýsingar þeim tengdar sem skráðar eru með samræmdum kerf- isbundnum hætti í einn miðlægan gagnagrunn sem ætlaður er til úr- vinnslu og upplýsingamiðMnar." í 10. gr. er talað um hagnýtingu grunnsins, en þar segir m.a.: „Upplýsingar, sem skráðar eru eða aflað er með úrvinnslu í gagna- grunni á heilbrigðissviði, má nýta til þess að þróa nýjar eða bættar aðferðir við heilsueflingu, forspá, greiningu og meðferð sjúkdóma, til að leita hagkvæmustu leiða í rekstri heilbrigðiskerfa, í þágu skýrsMgerðar á heilbrigðissviði eða í öðrum sambærilegum tilgangi á heilbrigðissviði." Samkvæmt þessum greinum er gagnagunnurinn safn heilsufars- upplýsinga sem nota á bæði til að fá tölfræðilegar upplýsingar um heil- brigðiskerfið, til að ná betri stjórn á því og til að safna upplýsingum úr sjúkraskrám einstaklinga í því skyni að „bæta aðferðir við forspá, greiningu og meðferð sjúkdóma". Til að ná síðari markmiðunum hlýt- ur að vera mikilvægt að geta fylgt eftir sjúkdómssögu og greint afdrif einstakra sjúklinga og fjölskyldna. Einnig þarf í einhverjum tilvikum að tengja saman blóðprufur úr þessum einstaklingum og heilsu- farssögu þeirra til að geta séð hvaða gen fylgja tilteknum sjúk- dómum. Þar með verða upplýsing- amar að vera persónugreinanlegar. Til að vernda einkalíf þeirra sem hér um ræðir verða allar heilsufars- upplýsingar í grunninum skráðar undir leyninúmeri í stað nafns og kennitölu. Tengsl við raunverulegt nafn og kennitölu eru þó ekki rofin heldur er til greiningarlykill fyrir upplýsingamar sem getur breytt þeim í persónuupplýsingar. Upp- lýsingarnar í gagnagi-unninum eru þar með „mögulegar persónuupp- lýsingar“. Aður en lengra er haldið er rétt að vekja athygli á því að mikilvæg- ur munur er á markmiði (a) þeirra sem vinna með upplýsingar úr sjúkraskrám sjúkiinga við meðferð annars vegar og hins vegar (b) þeirra sem vinna með upplýsingar úr sjúkraskrám í vísindarannsókn- um. a) Inni á heilbrigðisstofnunum er litið á sjúkrasögu sjúklings sem forsendu fyrir réttri greiningu og hún er því mikilvægt hjálpartæki við meðhöndlun sjúkiingsins. Heil- brigðisstéttir hafa framskyldu við sjúklinginn sjálfan og hagsmunir hans eru í fyrirrúmi. Gildir hér einu hvort sjúkrasagan er kunn einum eða tvö hundrað, þeir sem þurfa að kynna sér hana starfs síns vegna hafa allir hagsmuni sjúklingsins sjálfs að leiðarljósi og endanlegt markmið með starfi þeirra er ævin- lega að lækna sjúklinginn eða líkna honum. b) Við vísindarannsóknir á heil- brigðissviði er markmiðið ekki að MITT EINKALÍF? Ástríður Vilhjálmur Stefánsdóttir Árnason lækna tiltekinn einstakling eða líkna honum heldur er markmiðið að afla þekkingar á gangi sjúk- dóma og gildi meðferðar í þeim til- gangi að auðvelda lækningu þeirra sem veikjast í framtíðinni. I þessu samhengi verður einnig að hafa í huga að vísindarannsóknir geta skapað atvinnu og verið arðvænleg fjárfesting. I því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar birtist einmitt þetta hliðamarkmið vís- indarannsóknanna. Fram að þessu hefur þótt sjálfsagt að nýta heil- brigðisupplýsingar til að reyna að finna lækningu fyrir sjúklinginn sem veitir þær (a), og einnig hafa þær verið notaðar til vísindarann- sókna (b). Það að nota upplýsing- amar sem verslunarvöru og sem atvinnuskapandi fjárfestingu er á hinn bóginn ný hugsun sem vekur margar siðferðilegar spurningar. Má sem dæmi nefna að þegar nota á upplýsingar eins og þar væri um að ræða iðnaðarhráefni verður að- kallandi að úrskurða hver eigi þær og hvort greiða þurfi fyrir þær. Væri hugsanlega rétt að bjóða sjúklingum gjald fyrir að leggja upplýsingar í grunninn? Ef ágóði er af vinnslu og sölu upplýsinganna á þá að greiða arð til þeirra er lögðu til hráefnið? Þessi nýja vídd skapar einnig nýtt starfsumhverfi þar sem miklir fjármunir era í húfi og þá er viðbúið að fjárhagslegir hagsmunir hafi veruleg áhrif á markmið þess starfs sem unnið er. Þótt greinilegur munur sé á markmiði þeirra sem vinna að með- ferð sjúklings og hinna sem vinna við vísindarannsóknir þá er hvorum tveggja umhugað um afdrif sjúk; lingsins eða þátttakandans. í Helsinkiyfirlýsingunni er tekið fram að sá sem framkvæmir vís- indarannsókn beri ábyrgð á velferð þess sem gengst undir rannsókn- ina. I frumvarpsdrögunum er ekki ljóst hvernig sambandi þess sem lætur í té upplýsingar og rannsak- anda yrði háttað þegar unnið yrði úr upplýsingum miðlæga gagna- gi-unnsinns. Sú spurning vaknar hvort hér sé um trúnað að ræða þar sem rannsakendur bæra að ein- hverju leyti ábyrgð á velferð þátt- takenda, eða hvort afdrif þeirra sem leggja til upplýsingar í gagna- gi-unninn yrðu rannsakendum al- gerlega óviðkomandi? I fyrstu gæt- um við sagt: Augljóslega ber rann- sakandi enga ábyrgð á velferð þein-a sem leggja til upplýsingar í grunninn. Rannsakandi getur ein- faldlega ekki borið ábyrgð á þeim fjölda einstaklinga sem lagt hafa til upplýsingar í gagnagrunninn. En nú gerist málið flóknara: Sú stað- reynd að til verður greiningarlykill að þeim upplýsingum sem hér um ræðir og þar með að hægt verði að hafa uppi á einstökum persónum gerir þetta að siðferðilegum vanda. Hugsum okkur dæmi þar sem rannsókn leiðir í Ijós að barn er með gen sem mun valda banvænum sjúkdómi síðar á ævinni. Með ákveðnum lífsstíl, til dæmis réttu mataræði, má koma í veg fyrir sjúkdóminn. Á að brjóta kóðann í þessu tilviki og koma upplýsingun- um á framfæri svo koma megi í veg fyrir sjúkdóminn? Eða á einfald- lega að segja: „Þetta er ekki okkar mál, við skiptum okkur ekki af þessu?“ Þetta dæmi sýnir hve mik- ilvægt það er að tekin sé skýr af- staða til þess hvernig sambandinu á milli rannsakanda og þátttakanda verður háttað áður en miðlægum gagnagrunni af þessu tagi yrði komið á fót. Þar sem til er greiningariykill sem ráðið getur kóðann í gagna- grunninum þá era upplýsingarnar þar persónugreinanlegar. Líta verður svo á að tilvist greiningar- Það er skoðun greinar- höfunda, Ástríðar Stefánsdóttur og Vilhjálms Árnasonar, og Siðaráðs landlæknis, að tilteknir hlutar frumvarps til laga um gagnagrunn á heil- brigðissviði geti skaðað trúnaðarsamband heil- brigðisstarfsfólks og sjúklinga. lykilsins og ástæða þess að hægt verður að rekja upplýsingamar til tiltekinna einstaklinga sé íyrst og fremst til að afla megi frekari þekk- ingar á eðli og meðferð sjúkdóma en ekki hluti af meðferð sjúklings- ins. Færsla upplýsinganna í grann- inn kemur því sjúklingi ekki beint til góða en gæti hugsanlega falið í sér einhverja áhættu fyrir hann þar sem mögulegt er að nálgast og samkeyi’a gríðarlegt magn upplýs- inga um hans einkalíf. Þetta tvennt gerir það að verkum að því að láta upplýsingar um sig renna í gagna- grunn má fremur líkja við þátttöku í vísindarannsókn en það að tala um t.d. ópersónutengda ski-áningu heil- brigðisupplýsinga. Sú skráning sem hér um ræðir er þar með annars eðlis og verður að lúta öðram lög- málum. Þessi niðurstaða hefur í for með sér að gæta verður mun betur að hagsmunum sérhvers einstaklings sem lætur upplýsingar um sig renna í grunninn en gert er ráð fyr- ir í því framvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi. Verður nú vikið að þeim siðferðilegu ki’öfum sem eðli- legt er að gera. Rétturinn til einkalífs I því frumvarpi sem nú liggur fyrir þinginu er gert ráð fyrir að sjúklingur geti hafnað því að upp- lýsingar um hann renni í miðlægan gagnagi’unn á heilbrigðissviði. Til þess þarf hann þó sjálfur að hafa framkvæði. Það er ekki gert að skilyrði að til þess að upplýsingar fari í granninn liggi fyrir leyfi sjúk- lingsins en á þessu tvennu er mikill munur. Ýmis rök hníga að því að rétturinn til að neita feli ekki í sér nægjanlega sterk ákvæði til vernd- ar rétti einstaklingsins til að ákveða hvaða upplýsingum um sjálfan sig hann deilir með öðrum. Má hér nefna að staða allra þeirra sem ekki geta tekið ákvarðanir um eigin mál verður afar óljós eins og til dæmis staða barna, þroska- heftra, geðsjúkra og fíkniefnaneyt- enda, en í mörgum tilvikum er einmitt sérstaklega brýnt að vernda einkalíf þeiira einstaklinga. Sá réttur sem hér er vísað til er venjulega kallaður réttur til einkalífs og er varinn bæði í stjórnarskrá, mann- réttindayfirlýsingum og landslögum, þar á meðal í lögum um réttindi sjúklinga. Þessi réttur hefur á síðustu áratugum ver- ið hornsteinninn í sið- fræði rannsókna og er nefndur krafan um „upplýst og óþvingað samþykki“ þátttak- enda. I þessu felst að leita þarf eftir sam- þykki sjúklinga fyrir þátttöku í vísinda- rannsókn og að þátttakandi þarf einnig að hafa verið upplýstur um tilgang rannsóknar, þ.e. í hvaða skyni verið er að safna um hann upplýsingum og hvernig eigi að nota þær og hvaða áhætta og ávinningur kunni að fylgja því. Velta má fyrir sér hvers vegna þessari kröfu er ekki fylgt eftir í frumvarpinu. a) Nærtækasta skýringin er ef- laust sú að samkvæmt frumvarpinu muni miðlægi gagnagrannurinn ekki geyma neinar persónuupplýs- ingar. En eins og rök vora færð fyrir hér að ofan eru dulkóðaðar upplýsingar alltaf „mögulegar per- sónuupplýsingar". Jafnframt era líkur á því að hægt verði að auð- kenna einstaklinga eftir heilsufars- upplýsingum, ekki síst þegar þær hafa verið tengdar upplýsingum um erfðir og ættfi-æði eins og hug- myndin er. Þetta undirstrikar mikl- vægi þess að upplýsingar um ein- staklinga séu ekki fluttar í miðlæg- an gagnagrann án þess að sam- þykki þeirra liggi fyiTr. Afar ei’fitt verður að tryggja að samþykki þeiiTa einstaklinga, sem heimila það að upplýsingar um þá verði fluttar í miðlæga gagnagrunninn, verði upplýst því engin leið er að skýra það fyllilega í hvaða skyni heilsufarsupplýsingarnar verða notaðar eða þá áhættu sem því kann að fylgja fyrir einstaklinga. Hér er því í raun farið fram á „op- ið“ samþykki. Það flækir þetta mál enn frekar að erfðafræðilegar upp- lýsingar um einstakling veita jafn- framt upplýsingar um nánustu skyldmenni hans. b) Önnur skýring gæti verið að gert sé ráð fyrir að gera megi ráð fyrir samþykki (e. presumed con- sent) vegna þess að einstaklingum sé gefinn kostur á að hafna því að heilsufarsupplýsingar um þá verði fluttar í gnmninn. En eins og fram kom hér að ofan bendir margt til þess að það að eiga möguleika á að hafna þátttöku nægi engan veginn til að tryggja samþykki einstak- linga. Útfærsla þessa ákvæðis er ekki nógu afgerandi í frumvarpinu. Þar segir að þegar sjúklingur neit- ar þátttöku „skal athugasemd þess efnis þegar lögð með sjúkraskrá viðkomandi á heilbrigðisstofnun eða hjá sjálfstætt starfandi heil- brigðisstarfsmanni". Ef útfærsla neitunar verður með þessum hætti á sérhver einstaklingur afar erfitt með að koma í veg fyrir að upplýs- ingar um sig fari í grunninn. Það er nánast ómögulegt fyrir venjulegt fólk að hafa yfirlit yfir alla þá aðila innan heilbrigðisþjónustunnar sem það hefur leitað til og biðja um að upplýsingar um það verði ekki fluttar í gagnagranninn. Hér er al- menningi gert mjög erfitt fyrir. Réttara væri að beita þeirri hug- mynd sem fram hefur komið hjá Þorgeiri Örlygssyni, formanni tölvunefndar, að þeir sem vilji neita geti sent bréf til eins aðila, t.d. landlæknis, og mundi sá aðili gera ski’á sem þeim sem vinna að gagna- grunnsgerð væri skylt að fletta upp í áður en þeir skrá heilsufarsupp- lýsingar. c) Þriðja skýringin kann að vera sú að ef flutningur í miðlægan gagnagrunn er háður samþykki einstaklinga þá verði alltaf einhver afföll þar sem tilteknir einstakling- ar eða jafnvel sjúklingahópar muni neita að láta skrá upplýsingar um sig í gagnagrunninn og hafi það í för með sér skekkju í niðurstöðum. En þetta eru ekki marktæk rök í siðfræði rannsókna, þar sem höf- uðatriðið er samþykki einstak- linga. I núverandi framvarpi er gert ráð fyrir að skrá heilbrigðisupplýs- ingar um alla þjóðina sem nauðsyn- legar era til að koma í veg fyrir skekkju í úrvinnslu upplýsinga fyr- ir almenna stýringu heilbrigðis- kerfisins og til að vinna megi far- aldsfræðilegar upplýsingar um heilsufar þjóðarinnar úr grannin- um. Það þýðir með öðram orðum að hluti heilsufai’supplýsinganna um þá sem neita þátttöku mun samt sem áður renna í granninn en per- sónuupplýsingar um þá einstak- linga munu á hinn bóginn ekki vera skráðar á greiningarlykilinn. Rétt- urinn til að neita þátttöku verður því háður ákveðnum takmörkunum til að ná fram betri nýtingu á gagnagranninum. Þegar unnið er með persónu- greinanlegar upplýsingar er ávallt skylt að leita samþykkis vísinda- siðanefndar fyrir rannsókninni. Hlutverk vísindasiðanefnda er í þeim tilvikum m.a. að gæta að því að rannsóknin byggist á réttri að- ferðafræði og að koma í veg fyrir að rannsóknin ógni hagsmunum tiltek- inna sjúklingahópa. Engan slíkan vamagla er að finna í núverandi framvarpi, þar sem ekki er gert ráð fyrir neinu eftirliti af hálfu vísinda- siðanefndar. Það er því ekkert sem hindrar það að rannsóknir sem gætu grafið undan hagsmunum þjóðarheildarinnar eða grafið und- an hagsmunum einstakra sjúk- lingahópa verði framkvæmdar. Þessu er mikilvægt að breyta. d) Fjórða mögulega skýringin er að ekki þurfi að leita samþykkis einstaklinga vegna þess að þeir eigi ekki heilsufarsupplýsingar um sig. Þær séu í vörslu heilbrigðisstofn- ana sem einungis þurfi að veita samþykki sitt fyrir flutningi þeirra í miðlæga gagnagranninn. Vandinn við þessa skýringu er að eignarrétt- ur á heilsufarsupplýsingum á varla við í þessu samhengi. Nær væri að tala um ráðstöfunaiTétt og hann hlýtur að vera háður vilja einstak- lingsins sem veitti þær og heil- brigðisstarfsmannsins sem aflaði þeiiTa. Framvarpið tiyggir þennan rétt engan veginn nógu vel heldur veitir það heilbrigðisráðhen’a og stjómendum heilbrigðisstofnana óeðlilega mikið vald til að heimila aðgang að heilsufarsupplýsingum. Þar með er raunar vegið alvarlega að trúnaðarsambandi heilbrigðis- starfsfólks og sjúklinga. Samband læknis og sjúklings Homsteinn sambands læknis og sjúklings er sá trúnaður og það traust sem þarf að ríkja á milli þeirra. Mikilvægt er fyrir sjúkling- inn að finna að hann geti treyst lækninum og þeim sem annast hann í veikindum hans. Ýmislegt getur ógnað þessu trúnaðarsam- bandi sem hér um ræðir. Má þar nefna málaferli þar sem sýnt er fram á vanhæfni lækna í starfi, um- fjöllun um forgangsröðun í heil- brigðiskerfinu þar sem sjúklingi getur fundist að hann sé látinn mæta afgangi með vandamál sín, og aukin ásókn í upplýsingar um sjúk- linga innan heÚbrigðiskerfisins. Hin aukna ásókn í upplýsingar um heilsufar sjúklinga, t.d. í rannsókn- arskyni, getur haft þau áhrif að sjúklingur telji sig vera að afhenda viðkvæmar upplýsingar um sig inn á „markaðstorg" fremur en að af- henda þær í trúnaði lækni þar sem hann á að njóta ákveðinnar frið- helgi. Sjúkragögn sjúklinga hafa hing-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.