Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.09.1998, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN KOMMIJNISMIER SAMFÉLAGSÁSTAND KOMMÚNISMI er samfélagsá- stand þar sem fólk á saman það sem þarf til lífsins, það vinnur hæfilega mikið og fær í hendur það sem það hefur þörf fyrir. Hér er um að ræða óskmynd, mikla and- stöðu við þann raunveruleika sem fólk býr við, og sérstaklega gífur- leg andstæða raunveruleika fjöld- ans á þeim tíma sem kommúnism- inn fékk á sig skýra mynd í póli- tískri baráttu og fræðilegri útlegg- ingu um og uppúr miðri 19. öld. (Kommúnistaávarpið kemur út 1849, Auðmagnið I 1867.) Ýmsir sáu þetta sældarástand í hillingum eins og eðlilegt var, samfélagsá- standið fyrir vinnandi fók var víð- ast hvar skelfilegt á þessum tíma, hávaxtarskeiði iðnvæðingarinnar, jafnframt blómaskeiði auðgráð- ugra borgara. 1917 tekst kommún- istum að ræna byltingu og völdum í Rússlandi þar sem hafði orðið bylting hermanna, verkamanna og bænda gegn landeigendaaðli, auð- borgurum og algeru einræði keis- arans. Þeir sem komust til valda voru sósíaldemókratar sem stefndu að kommúnisma, en því marki tókst þeim aldrei að ná. Þeir hlutu að gjalda þess að hafa gripið inn í þróun, gripið fram fyrir hend- ur á vilja fólks, aðallega auðvitað bænda, sem i fyrstu voru mjög hrifnir af að fá eignarhald á jörð- um en höfðu ekki fagnað lengi þeg- ar það eignarhald var aftur afnumið. Þjóðfélagið var keyrt í fjötra til að reyna að ýta því áfram á það stig sem hægt yrði að leggja upp frá til kommúnisma. Það komst aldrei svo langt. Marx og Engels höfðu alltaf lagt á það meg- ináherslu að umskiptin frá borg- aralegu samfélagi til sósíalisma og þaðan til kommúnisma yrði að vilja og ósk fjöldans, skiptin yrðu að vera óhjákvæmileg. Með ráninu í Rússlandi ruglaðist þessi mynd. Menn vildu gjarnan trúa því að valdhafar þar stefndu að kommún- isma og áreiðanlega hafa þeir trú- að því sjálfir framanaf, síðar eru þeir auðvitað aðeins orðin valda- stétt sem vill halda völdum og for- réttindum. I formála að nýlegri kynningar- útgáfu á verkum Marx og Engels, skrifar I. Fetscher prófessor í Mannúð og frelsun undan oki var, að mati Þorvarðar Helgasonar, kjarninn í boðskap Marx og Engels. stjórnmálafræðum í Frankfurt til 1988 eftirfarandi: „Eru verk M. og E. yfirleitt áhugaverð ..? Spurn- ingin á því aðeins rétt á sér ef þannig stæði á að skrifræðisstjóm með miðlægu áætlanakerfi án íhlutunarréttar borgaranna sam- svaraði samfélaginu sem M. og E. sáu fyrir sér. Að svo er ekki hafa gagnrýnir marxistar haldið fram í áratugi. Hins vegar er ekki að efa að hlut að þeiiTÍ þróun sem varð á ekki ætlun heldur vöntun, fræðileg vanræksla af hendi M. og E. sök. Þeir gerðu ráð fyrir því að sósíal- isminn sigraði fyrst í þjóðfélögum sem ættu að baki borgarabyltingu þar sem fólk þekkti vel til borgara- legra og lýðræðislega stjómar- hátta. Þeir álitu einnig að með af- námi einkaeignaréttar á fram- leiðslutækjum hyrfi sérhagsmuna- pot og til tryggingar frelsi einstak- lingsins þyrfti ekki fjölflokkakerfi né valddreifingu til tryggingar frelsi einstaklingsins. Greinilegur veikleiki kenninga M. og E. kemur fram í ófullburða vísun þeirra um pólitískt form „hins frjálsa félags framleiðendanna". Styrkur þeiri-a lá í gagnrýni, ekki í því sem koma átti stað þess sem gagnrýnt var. Þess vegna skipta verk þeira enn máli ... (K.M. F.E. Kynningarút- gáfa, Studienausgabe, Band I, útg. Iring Fetscher, Fischer Taschen- buchverlag, Frankfurt am Main, 1990, bls. 9.) Síðar í sama formála leggur Fitscher áherslu á samhengið í hugsun Marx frá elstu verkunum til þeima síðari, „nefnilega að M. líti á frelsun verkalýðsstéttarinnar sem beint framhald af frelsisbar- áttu borgaranna. í allri gagnrýni M. á hið borgaralega samfélag leggi M. áherslu á mótsögnina á milli vilja og raunveruleika, lýð- ræðið sé ekki af hinu vonda, held- ur gervilýðræðið sem sé til staðar. Frelsið sem frjálslyndu flokkarnir boðuðu sé ekki illt heldur valdaaðstæð- umar í samfélaginu sem þeir létu óátaldar. Hápunktur gagnrýni Marx á borgurunum er greining hans á stjórn Napóleons III. Með 2. keisaradæminu afsala borgararnir sér pólitískum réttindum til þess að fá vernd undir hemaðarein- ræði. Það er verkalýð- urinn sem á að koma aftur á lýðréttindum í samfélaginu. Sá sem les þessa texta frá upphafsferli M. hlýtur að furða sig á hve aðstæður þær sem M. lýsir líkjast aðstæðum í Sovét undir flokksræðinu." Sem áður var sagt var mannúð og frelsun undan oki kjarninn í boðskap M. og E. og því voru vís- anir í þessa gömlu texta handhæg- ar - en aðeins svo lengi sem vald- hafar voru marxistar, en þegar því var ekki lengur til að dreifa voru M. og E. orðnir bitlausir gegn kerfi sem var aðeins í þykjustunni undir merki þeirra. En áður en það gerðist leyfðu sovétkennimenn í marxisma sér að líta svo að verk Marx frá því fyrir 1846 væru ekki réttur marxismi. Með öðrum orðum, hvernig hið nýja samfélagt ætti að vera, um það sögðu fræðin ekki nóg. Menn gátu því lagað það í hendi sér. Þetta fyrirbrigði, fyrst valdarán og síðan ofbeldi, kúgun, tillitsleysi og ofsóknarbrjálæði urðu einkenni þessarar tilraunar sem stefndi að kommúnisma en náði þangað aldrei. Eftir seinna stríðið var svo forskriftin, módelið flutt út í skjóli Rauða hersins, ef einhver reyndi að víkja af markaðri leið voru glefsandi blóðhundar Kreml strax mættir, Berlín ‘53, Búdapest ‘56, Prag ‘68. Þrátt fyrir frávik var ekki ráðist á þáverandi Júgóslavíu, þarlendir höfðu frelsað sig sjálfir, Stalin ku ekki hafa lagt í að ráðast á Tito. Hinir miklu kennifeður, Marx og Engels, voru móralistar, menn með sterka siðgæðistilfinningu sem ofbauð þjóðfélagsástand sam- tímans þar sem fáir hnepptu marga í morðfjötra fátæktar, óhreininda, vosbúðar og vinnuþrældóms, menn, konur og börn. Þeir vildu leggja sitt fram til að þeim hörm- ungum linnti og fólk gæti ekki komið svona fram við annað fólk, tillitslaust gagnvart þjáningum þess. Marx og Engels smíðuðu ekki þessa morðvél sem Svarta bókin fjallar um, það gerðu misvitrir lærisveinar; þeir einir verða að svara fyrir það. Lenin hafði tekist að smíða sér tæki sem var sterkt, óbilgjarnt og áhrifaríkt, flokkinn, fámennan og traustan. Með styrk flokksins tókst honum að hrifsa til sín völd úr höndum bráðabirgðastjórnarinar sem m.a. vildi halda stríðinu áfram - en slagorðin sem fengu fólk til að fylkja sér um Lenin og hans menn voru friður, brauð, land! Það er söguleg staðreynd að skóluðum marxistum ofbauð inni- hald ræða Lenins þegar hann var nýsloppinn inn í Rússland. (Sjá E. Wilson, To the Finland Station, Fontana 1972, bls 477.) Lenin var maður framkvæmda, hann hafði um árabil einbeitt sér að verkefn- inu að losa Rússland undan oki einveldis keisarans og nú hafði tækifærið fallið honum í skaut og hann var ákveðinn í að nota það. Eftir valdatökuna stóðu valda- menn frammi íýiir miklu verkefni, að breyta Rússlandi í réttlátt sam- félag - og marxisminn hjálpaði þeim lítið í því efni, hann sagði þeim hvert þeir ættu að stefna en ekki hvernig. Rússland var alls ekki það háþróaða iðnaðarland með lýðræðishefðir sem Marx og Engels litu á sem forsendu fyrir öreigabyltingu. Því verður að líta á valdatökuna í Rússlandi sem frá- vik frá marxisma, braut sem haldið er út á í krafti valda- og kúgunar- tækis í algjörri andstöðu við sýn Marx og Engels. Stalin sem erfði forystuna að Lenin látnum var enn fjær því að vera fræðimaður í marxisma, einnig maður fram- Þorvarður Helgason kvæmdanna, ruddalegra fram- kvæmda, hafði líka stjórnað ránum og þjófnaði til að fylla fjárhirslur flokksins fyrir valdatökuna. Þenn- an mann leiddi flokkurinn út á við- sjárverða braut, 1919 var hann gerður að yfirmanni eftirlitsstofn- unar verkamanna og bænda, stofn- unar sem hafði ómæld völd til eft- irlits og áhrifa á allt stjórnkerfið, 1922 var hann að auk valinn aðal- ritari flokksins, í krafti þeirrar stöðu er hann yfirmaður skrif- stofuveldis flokksins sem er einn við völd í landinu. Þar með er Stal- in á leið að verða ein- og alvaldur í landinu, fyrirbrigði sem á sér enga stoð í marxisma. Hér var verið að efna til mikils harmleiks. Það hefði þurft sérstakt siðferðisþrek til að standast þessar freistingar til valdbeitingar og notfæra sér þær ekki. Það var fyrirfram vitað að Stalin byggi ekki yfir því siðferðis- þreki, þeir völdu hann samt. Afieiðingarnar eru þekktar. Hann var valdasjúkur og haldinn ofsókn- arbrjálæði í ríkum mæli, auk þess var hann duglegur og fylginn sér og hikaði ekki frammi fyrir erfið- um verkefnum, eins og t.d. um- byltingu landbúnaðarins sem kost- aði milljónir mannslífa. Aðeins einu sinni svo vitað sé vissi hann ekki sitt ráð og lokaði sig af í nokkra daga, við innrás Þjóðverja. Hann hafði sjálfur veikt svo Rauða herinn með ofsóknum að hann var ekki til stórræðanna, enda æddu Þjóðverjar inn í Rússland mót- spymulítið. Stalin hefur vitað upp á sig sökina. Rússland er stórt og veturinn hjálpaði, sóknin var stöðvuð á síðustu stundu og smám saman snúið í gagnsókn. Kommúnisminn er eldri en M. og E. Þeh’ hentu hann á lofti og festu hann í sessi og svo lengi sem heiðarlegt fólk á sér draum um réttlátt þjóðfélag mun smíði þeirra lifa, kraftur gi’einingarinnar hvetja til eftirbreytni. I framhjáhlaupi er gaman að geta þess að Kommúnistaávarpið varð 150 ára nú í vetur. Alvarlegir blaðamenn á meginlandinu tóku sér þennan síunga teinung í hönd og lásu - og sumir fengu hroll, þeim fannst þeir verða vitni að eld- legum spádómum, textinn fjallaði um samtíð þeirra! Eg held að ýmsir hefðu gott af að fara eins að, 2. og 3. útgáfa, þ.e. snjöll þýðing ásamt inngangi Sverris Kristjánssonar sem kom út á 100 ára afmælinu og aftur síð- ar er enn á boðstólum. P.s. Skrifað í tilefni af grein Jak- obs F. Ásgeirssonar í Mbl. 14.6. sl. Höfundur er kennari og rithöfundur. áagar mam 20% a$&láttur mánudag - þriðjudag - miðvikudag úrval aþ nýjum vetrareftnum Barnaelsnin komin .. SARA Trönuhraun 6, Hafnarfirði við Faxafen Suðurlandsbraut 50, Rvk GITARSKOLI GÍTARSKÓLI ÍSLANDS Gítarnámskeið (haustönn) hefst 21. sept. nk. Einkatímar — 12 vikna námskeið fyrir aila aldurshópa, kassagítar, rafgít- ar, bassi fyrir byrjendur og lengra komna. (Nemendur geta valið sjálfir viðfangsefni í samráði við kennara). Skráning hefst 6. sept. milli kl. 19.00 og 21.00 í síma 581 1281 (símsvari - skilaboð á öðrum tímum). GÍS — Grensásvegi 5. Torfi Tryggvi Ólafsson Hiibner Bubbi Morthens með fyrirlestur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.